

Vistaskipti
Fréttir af vistaskiptum fólks innan fyrirtækja, stofnana og ýmissa samtaka.

Ólafur Reynir nýr starfsmaður þingflokks Framsóknar
Ólafur Reynir Guðmundsson hefur verið ráðinn nýr starfsmaður þingflokks Framsóknar. Ólafur Reynir starfaði sem lögfræðingur hjá Ferðamálastofu frá árinu 2018 og þar áður hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá árinu 2011.

Kristín til aðstoðar forsætisráðherra
Kristín Ólafsdóttir fréttmaður Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar hefur verið ráðin aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra.

Jóna Dóra til Hagkaups
Jóna Dóra Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin nýr vöruflæðis-og birgðastjóri Hagkaups. Meginhlutverk starfsins er að tryggja áreiðanleika upplýsinga í birgða- og innkaupakerfum Hagkaups. Vöruflæðis- og birgðastjóri starfar þvert á deildir fyrirtækisins. Hún hefur þegar hafið störf.

Bjóða Birki Jón velkominn til starfa
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar, hefur ákveðið að ráða Birki Jón Jónsson sem nýjan aðstoðarmann formanns. Vísir greindi frá ráðningu hans á dögunum.

Þrír gagnavísindamenn til Snjallgagna
Alexander O'Donovan-Jones hugbúnaðar- og gagnafræðingur, Ásmundur Alma Guðjónsson hugbúnaðarverkfræðingur og Gunni Singh gagnavísindamaður hafa verið ráðnir til Snjallgagna.

Rósa og Þórhildur vilja stýra Mannréttindastofnun
Fyrrverandi þingmennirnir Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir eru meðal þeirra átjan sem sóttu um embætti framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar Íslands.Yfirmaður réttindagæslumanna fatlaðs fólks sótti einnig um.

Skipt um mann í brúnni hjá Frumherja
Jóhann Geir Harðarson hefur verið ráðinn forstjóri bifreiðaskoðanafyrirtækisins Frumherja. Hann tekur við starfinu af Orra Hlöðverssyni sem hefur stýrt fyrirtækinu frá 2006.

Heimir Már til liðs við Ingu og Flokk fólksins
Heimir Már Pétursson, einhver vaskasti fréttamaður nú um stundir, hefur söðlað um og tekið að sér að verða framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi þingflokks Flokks fólksins.

Katrín Ýr frá JBT Marel til Heilsu
Katrín Ýr Magnúsdóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Heilsu og hóf störf 1. febrúar.

Ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga
Birkir Jón Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar formanns Framsóknarflokksins. Þetta kemur fram á vef Alþingis.

Hættir sem formaður Rafiðnaðarsambandsins
Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, er hættur sem formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Hann hefur gegnt embættinu frá 2011.

Eiginkona Ragnars Þórs aðstoðar Ásthildi Lóu
Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra.

Rafn Heiðar ráðinn veitingastjóri Olís
Rafn Heiðar Ingólfsson hefur verið ráðinn veitingastjóri Olís.

Þrjár í framboði formanns Fíh
Þrjár eru í framboði til formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Það eru þær Helga Rósa Másdóttir, Hulda Björg Óladóttir, Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen. Atkvæðagreiðslan hefst á hádegi föstudaginn 28. febrúar og lýkur á hádegi þriðjudaginn 4. mars. Nýr formaður tekur við af Guðbjörgu Pálsdóttur sem hefur verið formaður síðustu ár.

Aðalsteinn aðstoðar Þorgerði
Aðalsteinn Leifsson, fyrrverandi ríkissáttasemjari, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.

Anna nýr sjóðstjóri hjá SIV eignastýringu
Anna Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem sjóðstjóri til SIV eignastýringar og kemur hún inn í kredit teymi félagsins.

Kjarninn farinn úr Heimildinni
Arnar Þór Ingólfsson blaðamaður hefur söðlað um, hann er hættur á Heimildinni og er hann nú orðinn starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar.

Ráðin til Samfylkingarinnar
Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata sem skipti síðar yfir í Samfylkinguna, hefur verið ráðin starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar. Þetta kemur fram á vef Alþingis.

Frá Sjálfstæðisflokknum til Viðskiptaráðs
Lísbet Sigurðardóttir hefur verið ráðin í stöðu lögfræðings á málefnasviði Viðskiptaráðs. Hún kemur til ráðsins frá þingflokki Sjálfstæðisflokkins þar sem hún hefur starfað frá árinu 2021.

Gísli Rafn til Rauða krossins
Rauði krossinn á Íslandi hefur ráðið Gísla Rafn Ólafsson sem nýjan framkvæmdastjóra félagsins og hefur hann störf í þessari viku. Gísli Rafn var þingmaður fyrir Pírata en náði ekki inn á þing, eins og aðrir þingmenn Pírata, í síðustu alþingiskosningum. Hann sat fyrir hönd Pírata í utanríkismála- og þróunarsamvinnunefnd á meðan hann sat á þingi frá 2021 til 2024.

Söguleg skipun Agnesar
E. Agnes Eide Kristínardóttir hefur verið skipuð yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hún er fyrsta konan til að gegna stöðu yfirlögregluþjóns hjá embættinu. Á sama tíma er stokkað upp í stöðum aðstoðaryfirlögregluþjóna.

Ráðin til fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka
Þrír nýir starfsmenn hafa gengið til liðs við fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, Guðríður Svana Bjarnadóttir og Ólafur Örn Ólafsson í stöður verkefnastjóra og Helena Wessman í starf sérfræðings.

Gunnar Bragi starfsmaður Miðflokksins
Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, hefur verið ráðinn starfsmaður Miðflokksins.

Milla ráðin rekstrarstjóri hjá Ólafi Darra og félögum
Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin sem rekstrarstjóri og yfirframleiðandi hjá framleiðslufyrirtækinu ACT4 . ACT4 var stofnað í lok árs 2022 og sér um að þróa og fjármagna framleiðslu á íslensku sjónvarps- og kvikmyndaefni fyrir alþjóðamarkað.

Birgir hættir hjá Skaga
Birgir Arnarson, framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Skaga, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu.

Skipaður skrifstofustjóri fjármála
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Guðmann Ólafsson skrifstofustjóra á skrifstofu fjármála í heilbrigðisráðuneytinu.

Ráðin fræðslustjóri Samkaupa
Samkaup hefur ráðið Drífu Lind Harðardóttur í stöðu fræðslustjóra í mannauðsteymi fyrirtækisins á verslana- og mannauðssviði.

Björn Ingi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs
Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlamaður er nýr aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins. Fyrst var greint frá á vef RÚV en Björn Ingi staðfesti ráðninguna við þau.

Breytingar hjá Arctic Adventures með nýju skipuriti
Nokkrar breytingar hafa orðið í stjórnendahópi Arctic Adventures þar sem nýtt skipurit var kynnt í upphafi árs.

Kári nýr formaður Sameykis
Kári Sigurðsson, sem verið hefur varaformaður Sameykis, hefur tekið við formennsku hjá félaginu frá og með deginum í dag.