Íslenskur læknir í sögulegri skilnaðardeilu í Skotlandi Íslenskur læknir sem búsettur er í Skotlandi er í klemmu eftir að dómstóll í Edinborg komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði átt að veita honum og fyrrverandi eiginkonu hans lögskilnað árið 2021. Bjarni Eyvindsson giftist öðru sinni árið 2023 en yfirvofandi úrskurður gæti leitt til þess að hann verði giftur tveimur konum. Málið á sér engin fordæmi í skoskri réttarsögu. 18.2.2025 07:01
„Ég sá fyrir mér að ég myndi deyja langt fyrir aldur fram“ „Fyrir mér var aðgerðin ákveðið „reset.“ Mér finnst ég hafa fengið að byrja upp á nýtt,“ segir Íris Hólm Jónsdóttir söngkona en líf hennar tók stakkaskiptum árið 2021 þegar hún gekkst undir magaermisaðgerð. Ákvörðunin var stór, en ekki erfið. Íris greindist á sínum tíma með jaðarpersónuleikaröskun og geðhvörf. Aðgerðin tók að hennar sögn ekki einungis álagið af líkamanum- heldur einnig sálinni. 17.2.2025 07:01
„Það er verra að vera sakaður um að beita ofbeldi en að verða fyrir því sjálfur“ „Þetta er ofbeldi sem mun alltaf fylgja mér og þetta er eitt af stærstu örunum sem ég er með á sálinni. En í dag veit ég að þessi ör munu gera mig enn sterkari og enn auðmjúkari en áður,“ segir Sævar Ingi Borgarsson fyrrum afreksíþróttmaður, líkamsræktarþjálfari og osteópati en líf hans umturnaðist fyrir tæpum tveimur árum. 15.2.2025 08:03
Taldi sig hólpna því síminn hringdi aldrei Hrefna Björk Sigvaldadóttir er ein af um 220 konum sem greinast árlega með brjóstakrabbamein hér á landi. Greiningin er nýleg en mannleg mistök leiddu til þess að hún fékk ekki mikilvægar upplýsingar fyrir sjö árum - að hún væri arfberi brakkagensins sem stóreykur líkur á brjóstakrabbameini. Hún er hugsi yfir mistökunum en ætlar ekki að láta lífsógnandi sjúkdóm skilgreina sig og tekur slaginn ásamt fjölskyldu sinni og hundinum Júlíusi Skugga, á hreinskilinn og opinskáan hátt. 12.2.2025 07:00
„Þarna upplifði ég mesta kulda ævinnar“ „Ég hef sagt að einu sinni hafi ég upplifað kulda á ævinni – ekkert annað toppar þetta. Maður var tilfinningalaus á höndum og fótum. Allar hugsanir og hreyfingar voru eins og í bíómynd sem var sýnd hægt. Þarna var bara spurning um tíma – hvað ég myndi endast kuldans vegna,“ segir Bergþór Ingibergsson, fyrrum stýrimaður á Barðanum GK, í nýjasta nýjasta Útkallsþætti Óttars Sveinssonar og Heiðars Aðalbjörnssonar. 9.2.2025 07:01
„Ég er búin að sætta mig við að ég mun líklega aldrei fá nein svör“ „Ég var bara ungabarn þegar mamma neyddist til að halda mér niðri öskurgrátandi á meðan læknir tók úr mér blóðprufu, svo þú gætir fengið staðfestingu hvort ég væri „þitt blóð“. Með þessum orðum hófst bréf sem Magdalena Katrín Sveinsdóttir tók tíu ár í að skrifa, og birti loks á facebook nú á dögunum. Bréfið var stílað á afskiptalaust foreldri, en hún hefur ekki séð blóðföður sinn í fimmtán ár. 8.2.2025 08:28
„Á svona tímapunkti vantar mann að geta tengt við einhvern“ „Það fór að birta til undir lok lyfjameðferðarinnar þar sem sólin var ætíð hærra á lofti, dag frá degi og þá vissi ég að það væri stutt í mark,“ segir Pétur Steinar Jóhannsson en hann var einungis 23 ára þegar hann greindist með Hodgkins lymphoma – eitilfrumukrabbamein á 2. stigi. 2.2.2025 08:01
„Mig langaði að segja þessar sögur“ „Það sem stendur svolítið upp úr er að á þessum tíma vissi í raun enginn hvernig ætti að bregðast við í þessum aðstæðum, þegar kom að björgunaraðgerðum og þess háttar,“ segir Daníel Bjarnason leikstjóri heimildarmyndarinnar Fjallið það öskrar sem frumsýnd var á Stöð 2 þann 3.janúar síðastliðinn. 2.2.2025 07:01
„Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ „Þetta fékk auðvitað á okkur alla. Ég mun aldrei gleyma því þegar ég þurfti að taka barnið; hvað það var lítið og létt. Og á þessum tíma átti maður sjálfur ung börn. Þannig að það var ýmislegt sem fór í gegnum hugann á þessum tíma,“ segir Guðmundur Oddgeirsson flugbjörgunarsveitarmaður. 1.2.2025 11:03
Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi „Fyrst þegar við vissum að þetta væri krabbamein fengum við bæði áfall og það var ekki fyrr en ég fór að vinna í mínum málum einu og hálfu ári eftir lyfjameðferð að það fór að birta til hjá mér,“ segir Aron Bjarnason en hann og Dagbjört eiginkonan hans voru bæði 31 árs þegar hún greindist með eggjastokkakrabbamein í lok árs 2021. 1.2.2025 08:02