„Við bara byrjum að moka“ Þjónusta við börn með fjölþættan vanda flyst frá sveitarfélögum til ríkisins samkvæmt samkomulagi stjórnvalda. Þá tekur ríkið alfarið yfir uppbyggingu hjúkrunarheimila . Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að kallað hafi verið eftir þessu í fimmtán ár. Félagsmálaráðherra vill byrja að moka. 19.3.2025 23:31
Fjórða stýrivaxtalækkunin og flatkökur aftur í boði Seðlabankastjóri býst við að fjármálastofnanir lækki vexti í kjölfar 0,25 prósenta stýrivaxtalækkunar í morgun. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka telur að óverðtryggðir vextir muni lækka meira en verðtryggðir vextir vegna hárra raunvaxta. 19.3.2025 22:00
Bæjarstjórnin vilji hefja uppbyggingu en ríkisstjórnin doka við Ríkisstjórnin telur ekki ráðlegt að hefja stórtækt endurreisnarstarf í Grindavík vegna óvissu með áframhald jarðhræringa. Bæjarstjóri vill hins vegar hefja uppbyggingu og saknar áætlunar um að halda við innviðum til að bjarga verðmætum. 18.3.2025 19:15
Ríkisstjórnin láti í sér heyra eftir mannskæðar árásir Nokkrir tugir stuðningsmanna Palestínumanna komu saman til mótmæla fyrir utan ríkisstjórnarfund við Hverfisgötu í morgun. Einn þeirra segir ríkisstjórnina þurfa að láta kröftuglega í sér heyra eftir að Ísraelsher felldi á fjórða hundrað manns í árásum á Gasaströndina í nótt. 18.3.2025 09:26
Samkeppniseftirlitið ætlar að skoða kvörtun verkalýðsfélaga ASÍ, Efling og SGS kvörtuðu í dag til Samkeppniseftirlitins vegna meintra samkeppnislagabrota fyrirtækja á veitingamarkaði. Þau halda því fram að SVEIT hafi stofnað gervistéttarfélag til að veikja kjör launafólks og samið svo við það. Eftirlitið hefur ákveðið að taka málið til skoðunar. Formaður Eflingar segir um að ræða eitt alvarlegasta mál sinnar tegundar. 17.3.2025 20:01
Mikið af gögnum sem þarf að yfirfara „Það er hægt og bítandi að koma mynd á málið, en náttúrulega heilmikil vinna eftir og mikið af gögnum sem á eftir að yfirfara,“ segir Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, um rannsókn á andláti karlmanns, sem fannst látinn í Gufunesi síðastliðinn þriðjudag. 17.3.2025 11:28
Best að sleppa áfenginu alveg Landlæknir ráðleggur fólki að nota eins lítið áfengi og hægt er. Best sé að sleppa því alveg. Landsmenn eru hvattir til að borða meiri fisk en áður en minna kjöt. Börn og ungmenni ættu að sneiða hjá orkudrykkjum. Þá ætti að takmarka neyslu á sætindum og unnum matvælum. 14.3.2025 20:33
Ætlar að finna jarðvarma á köldum svæðum Umhverfisráðherra er sannfærður um að hægt sé að finna jarðvarma á köldum svæðum og hefur blásið til átaks í því skyni. Verja á milljarði í verkefnið á næstum árum. Bylting ef vel tekst til, að sögn bæjarstjóra Vestmannaeyja. 13.3.2025 20:30
Úrslitin komu Höllu ekki á óvart Halla Gunnarsdóttir, nýkjörinn formaður VR, segir úrslit í formannskjörinu ekki hafa komið sér á óvart. Sitjandi formaður sé alltaf með forskot en hún hafi haft aðgengi að sömu gögnum og aðrir frambjóðendur. Mikil vinna sé framundan í félaginu. 13.3.2025 15:29
„Sjóðurinn er gjaldþrota og því falla kröfurnar á ríkið“ Fjármálaráðherra segir að það muni taka þjóðarbúið áratugi að greiða upp þá ríflega sex hundruð og fimmtíu milljarða króna sem Íbúðalánasjóður skildi eftir. Hann vonar þó að tillögur starfshóps um uppgjör verði samþykktar af kröfuhöfum og á Alþingi. 10.3.2025 19:08