
Birtist í Fréttablaðinu

Toyota sýndi nýja Aygo og Auris
Ekki var minna um dýrðir hjá Toyota en hjá systurfyrirtækinu Lexus á bílasýningunni í Genf og sýndi Toyota bæði nýuppfærðan smábílinn Aygo sem og nýja þriðju kynslóð Auris, sem nú er orðinn gullfallegur bíll.

Koma með einkaskilaboð frá Kim til Bandaríkjastjórnar
Sendinefnd suðurkóreskra erindreka mun koma einkaskilaboðum frá Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, til Bandaríkjastjórnar þegar sendinefndin ferðast til höfuðborgarinnar Washington síðar í vikunni.

Eigendur bera kennsl á þýfi og meintir þjófar áfram í haldi
"Það er herjað á okkur, virðist vera,“ segir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn um innbrotahrinu á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu.

Seðlabankinn með neikvætt eigið fé
Eigið fé Seðlabanka Íslands var neikvætt upp á 1,5 milljarða króna í lok síðasta mánaðar samkvæmt nýbirtum tölum úr efnahagsreikningi bankans.

Losun hafta mikið hagsmunamál
Formaður efnahags- og viðskiptanefndar segir losun innflæðishafta Seðlabankans gríðarlegt hagsmunamál fyrir heimili og fyrirtæki.

Fá sextán þúsund á tímann í kjararáði
Þóknun til þeirra sem sitja í kjararáði er nú 16.290 krónur á tímann og hafa launin hækkað um 62,9 prósent á tíu árum. Allar þrjár óskir formanns kjararáðs um launahækkun til ráðsmanna á undanförnum sex árum hafa verið samþykktar.

Siðaskiptin voru afturför fyrir konur og alþýðuna
Steinunn Kristjánsdóttir, fornleifafræðingur og höfundur bókarinnar Leitin að klaustrunum – klausturhald á Íslandi í fimm aldir, segir merkilegt hvað þessum þætti Íslandssögunnar hafi verið ýtt niður.

Elstu tré Hafnarfjarðar felld til að bjarga Siggubæ
„Þetta er eiginlega spurning um hvort það sé hægt að viðhalda húsinu eða hvort trén eigi að fá að vera,“ segir Steinar Björgvinsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, um tvö af elstu trjám bæjarins sem til stendur að fella.

Atli ráðinn sem ráðgjafi hjá Pírötum
Píratar ætla sér stóra hluti í komandi sveitarstjórnarkosningum og munu bjóða fram í nokkrum sveitarfélögum landsins.

ÁTVR innsiglar loks tóbaksdósir eftir frávik
Vonir standa til að nýjar innsiglaðar dósir af íslenska neftóbakinu verði komnar á markað í vor. Dæmi eru um að áteknar, hálftómar og jafnvel kaffiblandaðar dósir hafi ratað frá smásölum til neytenda. Gæðaeftirlit ÁTVR er strangt.

Kljúfa Austur-Ghouta í tvennt
Stjórnarherinn er nálægt því að kljúfa Austur-Ghouta í tvennt og hefur tekið næstum helming svæðisins. Nærri 800 hafa fallið í átökum nýverið og hundruð hermanna til viðbótar komu til Austur-Ghouta í gær.

Markmiðið að kynna alvöru street food
Box verður götumarkaður þar sem hægt verður að kaupa sér spennandi götumat, tísku og horfa á HM í knattspyrnu – allt saman í Skeifunni. Herlegheitin munu verða opin frá 1. júní til 29. júlí í sumar.

Harðorður í garð Venesúela og Egyptalands
Grunnstoðir lýðræðisins rotna í Venesúela og yfirvöld í Egyptalandi grafa undan lýðræðinu.

Félagsbústaðir kaupa íbúðir og stefna að hækkun leiguverðs
Rekstrarhagnaður Félagsbústaða upp á 1,7 milljarða króna rétt dugar fyrir afborgunum og vöxtum af eignunum. Áforma að hækka leigu um fimm prósent. Stefna á að kaupa 124 íbúðir í safnið á yfirstandandi ári.

Nýkjörinn formaður boðar breytta tíma
Sólveig Anna Jónsdóttir, nýkjörinn formaður Eflingar, hefur ekki kynnt sér eigin launakjör sem forystumaður í verkalýðshreyfingunni. Hún boðar breytingar í verkalýðsbaráttunni. Segir yfirburði framboðs síns hafa komið á óvart.

Hvatning til fólks um að virða söguna, landið og umhverfið
Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafni Árnesinga á laugardag. Önnur er Þjórsá, sambland innsetningar, vídeós og texta- og hljóðverks eftir Borghildi Óskarsdóttur myndlistarkonu.

Gefur út nýja plötu eftir 12 ára hlé
Eftir 12 ára pásu frá sviðsljósinu er Hildur Vala að senda frá sér plötu. Af því tilefni heldur Hildur útgáfutónleika á morgun. Hún segir nýju tónlistina vera frábrugðna þeirri sem hún hefur áður gefið út.

Breytt staða á Kóreuskaga
Forseti Suður-Kóreu og einræðisherra Norður-Kóreu, Kim Jong-un, munu eiga sinn fyrsta fund í apríl. Beinni línu á milli leiðtoganna verður komið á.

Vantrausti ekki lýst á ráðherra í 100 ár
Tillaga um vantraust á dómsmálaráðherra var felld á Alþingi í gær. Skýr munur er á tillögum um vantraust á ríkisstjórn og vantraust á ráðherra. Ráðherrar segja af sér frekar en þola vantraust.

Greiðslur til borgarstjóra á pari við launakjör forsætisráðherra
Talsverður munur er á kjörum borgarstjórnarfulltrúa eftir í hve mörgum nefndum og ráðum þeir sitja. Borgarstjóri er með fimmfalt hærri laun en sá launalægsti.

Fangelsi og fuglabúr
Hljómsveitin Volta frá Akureyri hefur nýverið gefið út breiðskífuna Á nýjan stað.

Meirihluti stjórnarmanna á engan hlut
Fimmtungur stjórnarmanna í skráðum félögum á yfir eins prósents hlut í því félagi sem þeir sitja í stjórn hjá. Meirihluti stjórnarmanna á ekkert hlutafé í sínu félagi. Áhrif einkafjárfesta hafa farið dvínandi.

Kosið um kaupauka í næstu viku
Stjórn Klakka, eignarhaldsfélags sem heldur utan um 100 prósenta hlut í eignaleigufyrirtækinu Lykli, hefur boðað til hluthafafundar næsta þriðjudag þar sem lagt verður til að kaupaukagreiðslur til stjórnenda og stjórnar verði dregnar til baka.

Útiloki ekki hálendislínur
Bæjarráð Fljótsdalshérað telur óráðlegt að útiloka allar línulagnir yfir hálendi eins og gert sé ráð fyrir í stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.

Helmingur borgarbúa er hlynntur Borgarlínunni
Fjórðungur er andvígur henni og fjórðungur er hlutlaus í afstöðu sinni.

Þjóðernishreinsanir á Róhingjum í Mjanmar sagðar halda áfram
Undanfarið hálft ár hafa Róhingjar verið beittir ofbeldi í Rakhine-héraði Mjanmar og hefur mannréttindastjóri SÞ meðal annars notað hugtökin þjóðernishreinsanir og þjóðarmorð um aðgerðir hersins.

Borgun segist ekki hafa brotið gegn bannlista
Borgun segir í bréfi til stjórnar Íslandsbanka ámælisvert hafi bankinn komið gögnum til FME sem eigi að sýna að félagið hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar. Ágreiningur um hvort Borgun hafi starfað eftir yfirlýsingu frá 2016.

Neyðarástand á Srí Lanka vegna átaka trúarhópa
Yfirvöld á Srí Lanka lýstu í gær yfir tíu daga neyðarástandi þar í landi í von um að hægt verði að stöðva átök sem geisað hafa á milli búddista og múslima.

Jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
Jóhann Jóhannsson tónskáld verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju á föstudag. Jóhann lést í Berlín þann 9. febrúar, 48 ára að aldri.

Hækkunin hér sú mesta innan OECD
Hvergi innan aðildarríkja OECD hækkaði íbúðaverð frá þriðja ársfjórðungi 2016 til þriðja fjórðungs 2017 eins mikið og hér á landi. Raunhækkunin á Íslandi var 24,9 prósent en 2,9 prósent á evrusvæðinu.