
Icelandair

Kaupin á WOW Air hrundu af stað mestu viðskiptum í Kauphöllinni síðan föstudaginn fyrir hrun
Fjörugur dagur á markaði er nú að kvöldi kominn en gengi Icelandair Group hækkaði um 39,2% eftir að tilkynnt var um kaup félagsins á flugfélaginu WOW Air.

Icelandair hækkaði um 39% í dag eftir að tilkynnt var um kaupin á WOW Air
Hlutabréf í Icelandair Group hækkuðu um 39 prósent í Kauphöll Íslands í dag eftir að tilkynnt var kaup félagsins á öllu hlutafé í WOW Air. Kaupverðið er greitt með hlutabréfum í Icelandair. WOW Air verður sjálfstætt dótturfélag Icelandair. Félögin verða rekin áfram undir sömu vörumerkjum og engin breyting verður á rekstri þeirra fyrst um sinn.

Samrunatilkynning ekki borist Samkeppniseftirlitinu
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir algjörlega ótímabært að gefa nokkuð út um um hve langan tíma mun taka að komast að niðurstöðu varðandi kaup Icelandair Group á WOW air.

Eftir ókyrrð í lofti flaug WOW í fang Icelandair
Það er ekki ofsögum sagt að það hafi gustað um flugfélagið WOW air undanfarna mánuði en í dag var tilkynnt að fyrirtækið verði selt Icelandair Group, að uppfylltu samþykki hluthafafundar, samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.

Bréf í Icelandair hækkuðu um fimmtíu prósent eftir opnun
Hlutabréf í Icelandair hafa hækkað um rúm 50 prósent eftir að tilkynnt var um kaup Icelandair Group á WOW air.

Þetta hefur þjóðin að segja um yfirtöku Icelandair á WOW
Stjórn Icelandair Group hefur gert kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í flugfélaginu WOW air.

Kaup Icelandair á WOW air: Jákvætt fyrir ferðaþjónustuna en líklegt að flugmiðaverð breytist
Greinendur á markaði telja að við fyrstu sýn séu fyrirhuguð kaup Icelandair Group á Wow Air jákvæð tíðindi, ekki síst fyrir ferðaþjónustuna enda sé flugfélögin, gangi kaupin eftir, betur í stakk búinn til þess að glíma við erfiðar rekstraraðstæður

Engin breyting á rekstri WOW air að sögn Skúla
Í bréfi til starfsmanna Wow air segir Skúli Mogensen að engin breyting verði á rekstri Wow air þrátt fyrir að það verði nú að sjálfstæðu dótturfélagi Icelandair Group.

Kaupverðið rúmir tveir milljarðar króna
Icelandair Group keypti WOW Air á rúmlega tvo milljarða króna sé miðað við 5,4% hlutafjár Icelandair Group sem hluthafar WOW Air eignast eftir kaupin.

Icelandair kaupir WOW air
Stjórn Icelandair Group hefur gert kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í flugfélaginu WOW air. Kaupin eru m.a. gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Icelandair Group, samþykki Samkeppniseftirlitsins og niðurstöðu áreiðanleikakönnunar.

Bréf í Icelandair rjúka upp eftir uppgjör
Gengi hlutabréfa Icelandair hafa hækkað í Kauphöll Íslands eftir að opnað var fyrir viðskipti í morgun.

Óska eftir formlegri undanþágu frá lánaskilmálum
Í dag gaf Icelandair umboðsmanni skuldabréfaeigenda fyrirmæli um að hefja skriflegt ferli þar sem óskað verður eftir formlegri undanþágu.

Icelandair: Ófullnægjandi aðstaða á varaflugvöllum stærsta ógn við flugöryggi til og frá landinu
Það er mat forráðamanna lcelandair að smæð flughlaða og skortur á flugstæðum á flugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum sé stærsta ógn við öryggi flug til og frá íslandi

Vildi bætur frá Icelandair vegna þjófnaðar á dýrum tískuvörum úr farangri
Icelandair þarf ekki að greiða farþega flugfélagsins bætur vegna tískuvarnings sem stolið var úr farangri farþegans á leið frá New York til Berlínar með millilendingu í Keflavík.

Sá þriðji neitar sök í Icelandair-málinu
Kristján Georg Jósteinsson neitaði sök þegar þinghaldi var framhaldið í Icelandar-innherjasvikamálinu svokallaða.

„Þá hætti ég að nenna að burðast með þig“
Dæmi eru um að flughræðsla setji vinnu og fjölskyldulíf fólks algjörlega úr skorðum að sögn umsjónarmanna flughræðslunámskeiðs sem Icelandair hefur staðið fyrir í á þriðja áratug.

Telur Cleveland-búa ekki hafa áttað sig á kostum íslensku flugfélaganna
Vonar að þeir muni nýta Icelandair til að komast ódýrt til Evrópu.

Guðjón lendir eftir átján ár á flugi
Hugur hans leitar til Selfoss þar sem hann ætlar að taka þátt í uppbyggingu nýs miðbæjar en Guðjón er Selfyssingur að uppruna.

Vélarbilun og farþegar fastir í Hamborg
Flugi FI511 hjá Icelandair frá Hamburg til Íslands hefur verið aflýst vegna vélarbilunar. Vélin átti að leggja af stað frá þýsku hafnarborginni klukkan 12:05 að íslenskum tíma.

Myndband úr vél Icelandair sýnir farþega haldast í hendur í mikilli ókyrrð
Fjórir þurftu á áfallahjálp að halda eftir flug með vél Icelandair frá Billund í Danmörku til Keflavíkur í gær.

Áfallahjálp eftir ógleði og grát í flugi Icelandair
Mikil ókyrrð var í flugi Icelandair frá Billund til Keflavíkur síðdegis í gær. Svo mikil að farþegar töldu sumir að þeir væru að upplifa sitt síðasta

Birtir mynd af skemmdunum á rúðu Icelandair-vélarinnar
Eins og greint var frá í gær þurfti flugvél Icelandair á leið frá Orlando til Íslands að lenda á herflugvelli í Kanada eftir að sprungur mynduðust á framrúðu vélarinnar. Flugáhugamaður hefur nú birt mynd af skemmdunum.

Farþegarnir tóku misvel í það hversu hratt flugvélinni var lent
Það tók aðeins um tíu mínútur frá því að farþegum um borð í vél Icelandair á leið frá Orlando var tilkynnt að lenda þyrfti vélinni á flugvelli í Kanada þangað til vélin var lent. Farþegi um borð segir að viðbrögð farþega við atburðarrásinni hafi verið mjög mismunandi.

Flugvél Icelandair lenti á herflugvelli í Kanada eftir að sprunga kom í framrúðu
Flugvél Icelandair á leið frá Orlando í Bandaríkjunum var lent á herflugvelli í Kanada eftir að sprunga kom í framrúðu flugvélarinnar.

„Langflestar“ flugfreyjur Icelandair völdu fullt starf
Meirihluti flugfreyja og flugþjóna í hlutastarfi hjá Icelandair, sem gert var að velja á milli þess að fara í fulla vinnu frá og með 1. janúar næstkomandi ellegar missa vinnuna, valdi fyrri kostinn.

Líkur á að Icelandair semji
Icelandair gæti þurft að sækja sér fjármagn takist ekki að semja við skuldabréfaeigendur um undanþágur frá lánaskilmálum. Líklegra er þó að samkomulag náist að mati hagfræðings hjá Landsbankanum.

„Erum ekki að fara að biðja um nýtt fjármagn“
Starfandi forstjóri Icelandair fer yfir viðræður við fulltrúa eigendur skuldabréfa í flugfélaginu.

Icelandair hefur viðræður við lánardrottna
Icelandair Group hefur í dag viðræður við þá lánardrottna sína sem ráða yfir meira en 50 prósent af útgefnum óverðtryggðum skuldabréfum félagsins.

Vélinni gefið grænt ljós til Kaupmannahafnar eftir að flugfreyjur leituðu á sjúkrahús
Skoðun á flugvél Icelandair, sem kom til landsins frá Edmonton í Kanada snemma í morgun, lauk skömmu eftir lendingu og var vélin send til Kaupmannahafnar síðdegis í dag.

Fjórar flugfreyjur leituðu á heilbrigðisstofnun með höfuðverk og þreytueinkenni
Fjórir starfsmenn Icelandair, sem voru í áhöfn um borð í vél flugfélagsins sem kom til landsins frá Edmonton snemma í morgun, leitaði á sjúkrahús vegna óþæginda, höfuðverks og þreytueinkenna. Þetta staðfestir Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair, í samtali við fréttastofu.