Forseti Íslands
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 29 ›
Hlynur Jónsson leggst undir forsetafeld Hlynur M. Jónsson, fasteignamiðlari og áhrifavaldur, hefur tjáð fylgjendum sínum að hann sé að íhuga framboð til forseta Íslands í forsetakosningum árið 2024. Innlent 6.1.2024 22:52
Glamúr, glæsikerra og einkaþota á Bessastaði Fegurðar- og ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir lýsir yfir framboði til forseta Íslands, líkt og fjöldi þjóðþekktra Íslendinga síðstliðna daga. Sem nýkjörinn forseti myndi Ásdís klæða Bessastaði í glamúrgallann með nýrri glæsikerru, nýjustu tísku og förðunarteymi. Lífið 4.1.2024 14:18
Hætta á að næsti forseti hafi lítinn stuðning vegna úreltra laga Hið minnsta þrír hafa tilkynnt um að þeir ætli að bjóða sig fram í næstu forsetakosningum hér á landi. Prófessor í stjórnmálafræði telur að margir eigi eftir að bætast við. Núverandi lög um embættið séu úrelt og hætta á að næsti forseti Íslands verði kjörinn með lægsta hlutfalli greiddra atkvæða í sögunni. Innlent 4.1.2024 13:31
Útilokar ekki forsetaframboð Björn Zoëga, forstjóri sjúkrahússins Karolinska í Stokkhólmi, segist ekki útiloka að bjóða sig fram til forseta Íslands í þeim forsetakosningum sem fram fara í sumar. Innlent 4.1.2024 07:39
Ástþór Magnússon býður sig fram til forseta Íslands Athafnamaðurinn Ástþór Magnússon hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta Íslands í forsetakosningunum sem fara fram í sumar. Ástþór er enginn nýgræðingur þegar kemur að forsetaframboði en þetta er í fimmta sinn sem hann gefur kost á sér. Innlent 3.1.2024 18:21
Eftirlaun Guðna allt önnur en Ólafs Ragnars og Vigdísar Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands á rétt á biðlaunum í sex mánuði eftir að hann lætur af embætti í sumar. Hann nýtur ekki aukinna réttinda þegar kemur að eftirlaunum fyrir að hafa gegnt embætti forseta Íslands. Innlent 3.1.2024 16:02
Arnar Þór ætlar á Bessastaði Arnar Þór Jónsson, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Þetta tilkynnti hann á blaðamannafundi á heimili sínu í Garðabæ rétt í þessu. Innlent 3.1.2024 11:51
Spáð í forsetaspilin Fréttastofa fór á stúfana í dag og ræddi við fólk á förnum vegi um þau tíðindi að Guðni Th. Jóhannesson forseti hefði ákveðið að láta gott heita eftir tvö kjörtímabil í embætti. Fólk var spurt hvaða manneskju það vildi sjá í embætti forseta Íslands næst. Innlent 2.1.2024 22:16
Landlæknir, ráðherrar og rithöfundar orðaðir við Bessastaði Forystufólk í heilbrigðiskerfinu, ráðherrar og rithöfundar eru orðaðir við forsetaframboð í sumar. Almannatengill býst við fjörugum kappræðum og mörgum frambjóðendum. Hann telur að sagan muni fara mjúkum höndum um núverandi forseta og ákvörðun hans um að láta gott heita. Innlent 2.1.2024 21:30
„Ég hef enga eftirsjá“ „Hér sit ég sjö mánuði enn, eftir það geri ég fastlega ráð fyrir því að sinna fræða og rannsóknarstörfum, hverfa á ný í þann heim sem ég kom úr. En annars veit ég ekkert hvað framtíðin beri í skauti sér þar fyrir utan. Við látum það ráðast,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti lýðveldisins, sem tilkynnti í gær að hann ætlaði að láta tvö kjörtímabil nægja og ætlar ekki að gefa kost á sér aftur. Innlent 2.1.2024 16:04
Axel Pétur og Dóri DNA mættir til leiks sem forsetaframbjóðendur Tveir hafa þegar riðið fram á völlinn og lýst yfir framboði til forseta Íslands. Guðni Th. Jóhannesson lýsti því yfir að hann hyggðist ekki sækjast eftir embættinu og þessir tveir biðu ekki boðanna. Innlent 2.1.2024 11:10
Veit loksins hvers virði hann er Einn þekktasti göngugarpur landsins, Reynir Pétur Ingvarsson, var í dag sæmdur fálkaorðu á Bessastöðum fyrir afrek hans og framgöngu í þágu fatlaðra. Hann segist oft hafa spurt sig í gegnum tíðina hvers virði hann væri, en nú væri hann kominn með svarið. Innlent 1.1.2024 19:00
Alls kyns yfirlýsingar tengdar forsetaframboði Þjóðþekktir einstaklingar hafa gefið út ýmiss konar yfirlýsingar tengdar forsetaframboði eftir að Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands tilkynnti að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri. Dóri DNA fullyrðir að hann muni bjóða sig fram. Lífið 1.1.2024 16:39
Elísabet, Gylfi Þór og Reynir Pétur í hópi nýrra fálkaorðuhafa Fjórtán Íslendingar – sjö karlar og sjö konur – voru sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í dag. Innlent 1.1.2024 14:48
Hjónin hafi ákveðið að verja lífinu á annan hátt Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur og prófessor emiritus, segir að ákvörðun Guðna Th. Jóhannessonar forseta að sækjast ekki eftir endurkjöri hafi komið sér ákaflega mikið á óvart. „Ég, eins og fleiri, átti von á því að hann myndi taka eitt kjörtímabil í viðbót þannig að þetta yrðu samtals tólf ár.“ Innlent 1.1.2024 14:12
„Verið velkomin á trúðasýninguna í vor“ Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hyggst ekki bjóða sig fram til forsetaembættisins að nýju. Sjöundi forseti Íslands verður því kjörinn í sumar. Sumir kvíða kosningunum en aðrir þakka Guðna fyrir síðastliðin tæp átta ár. Lífið 1.1.2024 14:07
Guðni lætur hjartað ráða og býður sig ekki fram að nýju Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hyggst ekki bjóða sig aftur fram til forseta Íslands næsta sumar. Sjöundi forseti lýðveldisins verður því kjörinn í forsetakosningum í júní næstkomandi. Innlent 1.1.2024 13:07
Vaktin: Hvað gerir Guðni? Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands mun tilkynna það í nýársávarpi sínu klukkan 13, hvort hann hyggist bjóða sig fram á ný til embættis forseta Íslands. Guðni hefur setið í forsetastól frá árinu 2016 en þegar hefur verið greint frá tveimur sem íhuga að bjóða sig fram til forseta. Innlent 1.1.2024 11:46
Nýja forsetahöllin sprettur upp Guðni Th. Jóhannesson, forseti íslenska lýðveldisins, er að reisa höll undir sig og fjölskyldu sína og miðar byggingu hennar vel. Innlent 29.12.2023 13:37
Veltir framboði til forseta fyrir sér Páll Pálsson eigandi Pálsson fasteignasölu íhugar forsetaframboð. Hann vonast til þess að Guðni Th. Jóhannesson tilkynni framboð í ávarpi sínu á Nýársdag því sjálfur hafði Páll áætlað framboð eftir fjögur ár. Innlent 18.12.2023 15:49
Guðni þögull sem gröfin fram á nýársdag Forseti Íslands ætlar ekki að upplýsa um áform sín í embætti fyrr en í árlegu áramótaávarpi sínu. Þetta segir forsetinn í skriflegu svari til fréttastofu. Innlent 7.12.2023 15:34
Sigríður Hrund íhugar framboð til forseta Íslands Sigríður Hrund Pétursdóttir, fjárfestir, eigandi Vinnupalla ehf. og fyrrverandi formaður Félags kvenna í atvinnulífinu, liggur undir feldi varðandi mögulegt forsetaframboð á nýju ári. Forseti Íslands ætlar ekki að upplýsa um áform sín fyrr en í áramótaávarpi sínu. Innlent 7.12.2023 15:13
Tíu tilnefnd sem framúrskarandi ungir Íslendingar Tíu einstaklingar hafa verið tilnefndir sem framúrskarandi ungur Íslendingur af Junior Chamber International á Íslandi. Verðlaunin eru fyrst og fremst hvatningarverðlaun til ungs fólks sem er að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni. Innlent 30.11.2023 16:37
Borgarstjóri segir mikilvægt að fá forseta Íslands í heimsókn Forsetahjónin fóru víða í dag í fyrstu opinberu heimsókn forseta Íslands til Reykjavíkur frá því Vigdís Finnbogadóttir heimsótti borgina á 200 ára afmæli hennar árið 1986. Borgarstjóri segir mikilvægt að fá forsetann í heimsókn. Innlent 23.11.2023 19:17
Forsetahjónin í opinberri heimsókn til Reykjavíkur á fimmtudag Þétt dagskrá verður í boði borgarinnar þegar forsetahjónin heimsækja höfuðborgina á fimmtudaginn. Borgarstjórahjónin munu leið þau í gegnum borgina á hina ýmsu viðburði og fjölbreyttar heimsóknir. Borgarbúum gefst kostur á að hitta þau á Kjarvalsstöðum. Innlent 21.11.2023 08:37
Þakklátur og stoltur af samfélaginu Haldin var svokölluð samverustund fyrir Grindvíkinga og þau sem vildu sýna þeim samhug og styrk í Hallgrímskirkju í dag. Þar sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti, að hann væri þakklátur og stoltur fyrir að búa í samfélagi Íslendinga. Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur, sagði óvissuna erfiða Innlent 12.11.2023 22:43
Inga Lind orðlaus með orðu frá Spánarkonungi Inga Lind Karlsdóttir fjölmiðlakona var sæmd heiðursorðu frá Spánarkonungi á viðburði í Reykjavík í gær þar sem því var fagnað að hundrað ár eru frá því að viðskipti Íslands og Spánar með þorsk og rauðvín hófust. Lífið 7.11.2023 12:48
Davíð loksins á Bessastaði eftir langa bið Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, fór ásamt fríðu föruneyti til fundar við forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson. Innlent 3.11.2023 11:53
Guðni vann hetjudáð þegar maður hneig til jarðar „Fallegt að sjá Guðna forseta stíga sterkt inn þegar gamall maður hneig niður í Ikea. Litla góða Ísland í hnotskurn,“ skrifar Katrín Oddsdóttir lögmaður á Facebook-síðu sína í dag. Innlent 26.10.2023 15:38
Forsetinn og ráðherra mættu í afmæli Reynis Péturs Það var mikill fögnuður á Sólheimum í Grímsnesi í dag þegar styttan af Reyni Pétri Ingvarssyni, göngugarpi úr Íslandsgöngunni kom heim eftir að hafa verið á flækingi, nú síðast í Grænlandi. Þá var 75 ára afmælisdegi Reynis Péturs líka fagnað en meðal viðstaddra var forseti Íslands, dómsmálaráðherra og Ómar Ragnarsson. Lífið 25.10.2023 21:31