
Landbúnaður

Nefndin klofnaði og draumur um norskar hænur í þéttbýli úti
Matvælaráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Matvælastofnunar að hafna beiðni manns sem sótti um leyfi til að flytja inn sextíu frjó hænsnaegg frá norska genabankanum sem henta fyrir smábúskap sem og bakgarðshænur í þéttbýli. Erfðanefnd landbúnaðarins klofnaði í málinu en meirihlutinn taldi íslensku landnámshænunni stafa ógn af norskum stofnum.

Katrín mun gegna störfum Svandísar næstu vikurnar
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun gegna störfum Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á meðan hún tekur sér nokkurra vikna veikindaleyfi vegna krabbameinsgreiningar.

Missti áhugann á fótbolta og á nú fyrirtæki sem metið er á rúmlega hundrað milljarða
José Ignacio Peleteiro Ramallo, betur þekktur sem Jota, er nafn sem ef til vill harðasta stuðningsfólk Aston Villa man eftir en þessi 32 ára Spánverji á í dag landbúnaðarfyrirtæki sem metið er á fleiri hundruð milljarða.

Vinnuvélar og dráttarvélar til sýnis í Borgarnesi
Traktorar og vinnuvélar eiga allan hug manns í Borgarnesi, sem er nú með sýningu á módelum sínum í Safnahúsi Borgarfjarðar. Sjón er sögu ríkari.

Ekki grundvallarbreytingar á búvörusamningum
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Þórdís Kolbrún Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðaherra undirrituðu í gær fyrir hönd stjórnvalda samkomulag um endurskoðun búvörusamninga við Bændasamtök Íslands. Gunnar Þorgeirsson formaður BÍ undirritaði fyrir hönd samtakanna.

Þrír kiðlingar fæddir – Vorstemming í sveitinni
Þrír kiðlingar voru að koma í heiminn á bæ á Skeiðunum en einn þeirra fæddist á gos daginn í Grindavík og fékk að sjálfsögðu nafnið Gosa því hún er huðna. Þá eru hinir tveir kiðlingarnir með nöfn handboltastráka í íslenska landsliðinu.

Karamelluskyrið rýkur upp í verði
Verð á mjólkurvörum hækkaði í mörgum verslunum milli fyrstu og annarrar viku ársins samkvæmt niðurstöðum verðlagseftirlits ASÍ. Heildsöluverð á mjólk hækkaði um 1,6 prósent þann 8. janúar sem er strax farið að skila sér í meiri kostnaði fyrir neytendur. Áhugafólk um karamelluskyr finnur sérstaklega fyrir hækkun.

Tollar í landbúnaði og geðheilbrigði bænda
Fulltrúar ungra bænda eru nú staddir í Mýrdalnum þar sem þeir halda aðalfund sinn og fara yfir brýnustu málefni landbúnaðarins og það sem fram undan er. Á fundinum er meðal annars rætt um tolla á búvörum og geðheilbrigði bænda.

Riðutilfelli á sjö hundruð kinda búi
Matvælastofnun hefur borist tilkynning frá tilraunastöð HÍ í meinafræði þess efnis að riða hafi greinst í sláturfé í Blöndudal í Húna og Skagahólfi.

„Þetta voru vinir mínir, skepnurnar”
Guðmunda Tyrfingsdóttir, bóndi á tíræðisaldri sem vann fullnaðarsigur gegn Matvælastofnun þegar skepnum hennar var slátrað, ætlar ekki að gefast upp í búskapnum því hún er búin að fá sér hænur. Matvælastofnun hefur sent henni afsökunarbeiðni og lagt inn á hana andvirði skepnanna, sem var slátrað í óleyfi.

Samdráttur í kjötframleiðslu áhyggjuefni
Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna segir samdrátt í kjötframleiðslu verulegt áhyggjuefni. Samdráttin megi rekja til hækkunar á fjármagnskostnaði og fóðri og erfiðri samkeppni íslenskra afurða við innflutt kjöt.

Forystukindin Mæja og mandarínurnar hennar
Forystukindin Mæja á Eyrarbakka er engin venjuleg kind því það sem henni þykir best að borða eru mandarínur, helst með berkinum og svo er hún líka hrifin af allskonar grænmeti.

Svín með jólasveinahúfu og jólaskraut
Svín á sveitabæ á Suðurlandi hafa notið jólahátíðarinnar ekki síður en mannfólkið, því þau hafa fengið jólaskraut í stíurnar sínar og jólasveinahúfan er á sínum stað á þeim.

Skaftholtsréttum breytt í skautasvell
Skaftholtsréttir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hafa fengið tímabundið nýtt hlutverk því búið er að útbúa skautasvell í réttunum. Mikil ánægja er á meðal heimamanna, ekki síst barnanna með nýja skautasvellið þó þar séu engar kindur.

Huga að útigangskindum í Borgarfirði - ein vafin í gaddavír
Hópur fólks lagði af stað í hádeginu í Þverárhlíð í Borgarfirði til að kynna sér ástand tuttugu kinda, sem eru þar á útigangi og engin virðist hugsa um. Kindurnar eru mjög styggar og ein þeirra öll vafinn í gaddavír. Fólkið fór með hey á staðinn.

Ingibjörg bar þremur kálfum á Tannstaðabakka
Kýrin Ingibjörg á bænum Tannstaðabakka í Hrútafirði gerði sér lítið fyrir í vikunni og bar þremur kálfum, tveimur nautum og einni kvígu. Aðeins einn kálfur var lifandi, annað nautið.

„Aðeins eitt gat af völdum flugelda og húsin hreinlega springa“
Garðyrkjubændur biðja nágranna um að skjóta ekki upp flugeldum í nágrenni við gróðurhúsin sín. Guðmundur Steinar Zebitz annar eiganda skógarmiðstöðvarinnar Kvistabæjar í Reykholti segir að flugeldar geti valdið mörghundruð milljóna króna skaða.

Mál Guðmundu þyngra en tárum taki
Helga Arnardóttir, kvikmyndagerðarkona, segir mál Guðmundu Tyrfingsdóttur sem var vörslusvipt búfénaði sínum og honum ólögmætt slátrað, vera þyngra en tárum tekur í færslu sem hún birti á Facebook í dag.

Þórarinn Snorrason í Vogsósum látinn
Þórarinn Snorrason, bóndi í Vogsósum 2 í Selvogi, er látinn, 92 ára að aldri. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi á jóladag. Hann hafði legið á sjúkrahúsi um mánaðarskeið eftir að hafa lærleggsbrotnað er hann féll við útistörf við fjárhúsin í Vogsósum en þar stundaði hann sauðfjárbúskap.

Fæðuöryggi Íslands á stríðstímum
Formaður Bændasamtakanna hefur miklar áhyggjur af fæðuöryggi þjóðarinnar á stríðstímum, sem séu einhverjir níu dagar á meðan Finnar eiga til dæmis níu mánaða matar birgðir fyrir sitt fólk.

Mátti svipta bræðurna að Brimnesi öllum nautgripum
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af öllum kröfum tveggja bænda, sem Matvælastofnun svipti vörslum allra 137 nautgripa þeirra árin 2021 og 2022.

Tíu þúsund króna dagsektir lögmætar að mati ráðuneytis
Matvælaráðuneytið hefur staðfest lögmæti dagsekta Matvælastofnunar (MAST) á bónda vegna alvarlegra brota í búrekstri hans á lögum um dýravelferð og reglugerð um velferð nautgripa. Dagsektirnar voru tíu þúsund krónur á dag.

MAST mátti ekki slátra skepnum Guðmundu
Ákvörðun Matvælastofnunar um að vörslusvipta Guðmundu Tyrfingsdóttur bónda búfénaði sínum og slátra honum hefur verið úrskurðuð ólögmæt af matvælaráðuneytinu. Lögmaður Guðmundu segir Guðmundu sátta með úrskurðinn þó dýrin snúi aldrei heim.

Langtímalausnir í stað plástra
Þann 5. desember síðastliðinn skilaði hópur ráðuneytisstjóra tillögum sínum að aðgerðum til stuðnings þeim bændum sem eiga í fjárhagserfiðleikum vegna núverandi efnahagsástands. Um er að ræða viðbótarstuðning til bænda upp á 1,6 milljarð króna. Í meðförum fjárlaganefndar er búið að hækka þessa upphæð um 500 milljónir.

Framleiðsla á rifostum slær öll met á Sauðárkróki
Framleiðsla á rifostum hjá Mjólkursamsölunni á Sauðárkróki hefur slegið öll met í ár en framleiðslan verður tæplega tvö þúsund tonn þegar árið er liðið. Osturinn fer meira og minna ofan á pizzur landsmanna.

Ellefu ára stelpa fer daglega út að hlaupa með hrútinn Ástaraldin
Einstakt samband hefur skapast á milli hrútsins Ástaraldins og 11 ára stelpu á sveitabæ í Flóahreppi en þau fara á hverjum degi saman út að hlaupa. Eftir hlaupið kembir stelpan hrútnum og dekrar við hann enda er hann gæfur með eindæmum.

Bændur og fæðuöryggi í breyttum heimi
Víða er ótryggt ástand bæði efnahagslega og hernaðarlega. Óstöðugleikinn vegna átaka bæði í Ísrael og Úkraínu hefur ýtt undir ákveðnar efnahagsþrengingar. Mörg ríki þar á meðal Bandaríkin hafa varað við þessu ástandi og einkum áhrif þess á efnahagsmál.

Fjárhagsvandi bænda og loftslagshamfarir
Vandi bænda hefur verið í brennidepli upp á síðkastið. Talað er um að 12 milljarða vanti við búvörusamninga til að leysa í bráð. Rætt er um að ríkisstjórnin sé reiðubúin til að leggja fram 1600 milljónir strax til bænda í fjárhagserfiðleikum, þar af 600 milljónir fyrir unga bændur.

Eru ungir bændur í SÉR-flokki?
Uppáhalds amma mín og ein merkilegasta og kærleiksríkasta kona sem ég hef umgengist um ævina var mikill Framsóknarmaður. Hún var fædd á Sléttu í Fljótum í Skagafirði, dóttir hreppstjórans í sveitinni og amma Óla Jó kenndi henni að lesa.

Getur einkaaðili samið við ríkið um að hækka skatta á keppinautum sínum?
Félag atvinnurekenda hefur sent Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra erindi og krafizt aðildar að endurskoðun búvörusamninga hvað tollamál varðar. FA bendir á að láti ráðherra undan kröfum Bændasamtaka Íslands um að hækka tolla á innfluttum búvörum sé ráðherra að taka stjórnvaldsákvörðun sem væri íþyngjandi fyrir matvöruinnflytjendur, félagsmenn FA.