
Bókmenntahátíð

Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík
Það var margt um manninn og líf og fjör í breska sendiráðinu í Reykjavík um helgina. Tilefnið var kokteilboð til að heiðra breska rithöfunda sem staddir voru á Íslandi vegna bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir. Stjörnur á borð við David Walliams og Charles Spencer skáluðu og skemmtu sér vel.

Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur
„Við erum með marga stóra erlenda gesti og það hefur aldrei verið svona mikið af stórum nöfnum. Það er margt að sjá og erfitt að velja hvað stendur upp úr,“ segir rithöfundurinn Ragnar Jónasson í samtali við blaðamann en hann og Yrsa Sigurðardóttir eru forsprakkar bókmenntahátíðarinnar Iceland Noir sem hefst með pompi og prakt í Reykjavík í kvöld.

Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels
Suður kóreski rithöfundurinn Han Kang hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum þetta árið. Verk eftir hana hefur komið út á íslensku, en hún hefur einnig komið hingað til lands.

Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness
Bresk-bandaríski rithöfundurinn Salman Rushdie hlýtur í ár Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness. Hann mun veita þeim viðtöku frá forsætisráðherra Íslands í Háskólabíó í athöfn sem hefst kl. 17:30 og hægt er að sjá í beinni útsendingu hér á Vísi.

Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness
Bresk-bandaríski rithöfundurinn Salman Rushdie hlýtur Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í ár. Verðlaunin voru fyrst afhent árið 2019 en Rushdie mun veita verðlaununum viðtöku í Háskólabíói föstudaginn 13. september næstkomandi.

Sjötíu rithöfundar hvetja til sniðgöngu á Iceland Noir
Hillary Rodham Clinton er meðal gesta á Iceland Noir-bókmenntahátíðinni sem þau Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir hafa skipulagt og staðið fyrir. Því að Hillary sé meðal gesta vilja 67 mótmæla og hvetja til þess að hátíðin verði að sniðgengin.

Vaknar klukkan fimm á hverjum morgni til að sinna ástríðunni
Hinn pólski Jacek Godek hefur unnið ötullega að þýðingum úr íslensku yfir í pólsku í meira en fimmtíu ár. Ferill Jaceks í þýðingum hófst á unglingsaldri þegar hann fluttist hingað vegna starfa föður hans fyrir pólska sendiráðið.

Andrej Kúrkov hlýtur bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness
Úkraínski rithöfundurinn Andrej Kúrkov hlýtur Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness í ár og mun hann koma til Íslands þann 7. september til að veita þeim viðtöku.

Elif Shafak handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, afhenti í dag rithöfundinum Elif Shafak alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness á Bókmenntahátíðinni í Reykjavík. Að afhendingu lokinni flutti Elif Shafak fyrirlestur Halldórs Laxness.

Höfundurinn
Allir þeir einstaklingar sem lesa sér til ánægju þekkja þá tilfinningu að hrífast af bók og fyllast um leið forvitni um höfund hennar.

Hátíð lesenda
Aðlögun er þema Bókmenntahátíðar í Reykjavík. Sérstök barnadagskrá, heiðursverðlaun til þýðenda og alþjóðleg bókmenntaverðlaun meðal þess sem er á dagskrá.

Ný alþjóðleg bókmenntaverðlaun kennd við Halldór Laxness
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að veita tvær milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til að standa straum af verðlaunafé vegna nýrra alþjóðlegra bókmenntaverðlauna sem kennd verða við Halldór Laxness.

Sögurnar sem faðir minn sagði gerðust á hóruhúsi
Etgar Keret er ótvírætt einn af forvitnilegri gestum Bókmenntahátíðar í Reykjavík. Hann er alinn upp við óvenjulegar sögur foreldra sinna og lítur á sig sem sagnamann óháð miðlunum sem hann nýtir hverju sinni.

Mér finnst að manneskjur ættu að vera plöntur
Han Kang hlaut Man Booker bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Grænmetisætan árið 2016. Hún segir að bækur hafi alltaf verið stór hluti af lífi sínu og leitina að svörum skipta öllu máli.

Arnaldur kemur fram á Bókmenntahátíð í Reykjavík
Arnaldur Indriðason les upp úr væntanlegri bók sinni Myrkrið veit á Bókmenntahátíð í Reykjavík í kvöld.

Orðin eru alltaf þarna fyrir mig og hafa veitt mér skjól
Jonas Hassen Khemiri, einn vinsælasti rithöfundur Svía í dag, er á meðal margra góðra gesta Bókmenntahátíðar í Reykjavík. Hann segir að varanleiki bókarinnar sé eitt af því sem geri hana svo mikilvæga í heimi hverfulla orða og mynda.

Fótbolti og saga Rómaveldis
Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Reykjavík verður sett í dag og stendur út vikuna. Hún hófst þó í gær og norður á Akureyri var Stella Soffía Jóhannsdóttir, stjórnandi hátíðarinnar, stödd.

Glatt á hjalla
Bókmenntir eru mikilvægar. Þetta vita í raun allir sem eru ekki algjörir sokkar. Um þetta vitnar til að mynda fjöldi snjallra tilvitnana í fullt af mjög gáfuðu fólki vítt og breitt um veröldina.

Ferskir straumar heimsbókmenntanna beint í æð
Þó enn sé langt til haustsins og Bókmenntahátíðar í Reykjavík er þegar búið að ganga frá gestalistanum fyrir erlendu höfundana sem er einstaklega exótískur í ár samkvæmt Stellu Soffíu Jóhannsdóttur.

Stjórnvöld sem hlusta á vilja fólksins láta mennskuna ráða för
Rithöfundurinn Teju Cole flutti í gærkvöldi opnunarávarp Bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík og hann hefur mikinn áhuga á því mannlega sem tengir okkur öll.

Pallborðsumræður frá Bókmenntahátíð í Reykjavík í beinni útsendingu
Bókmenntahátíð i Reykjavík fer fram dagana 9.-12. september í Norræna húsinu og í Iðnó.

Dansaðu við þinn uppáhaldshöfund
Bókmenntahátíð í Reykjavík hefst í næstu viku og fagnar þrjátíu ára afmæli.

Málefni innflytjenda áberandi á Bókmenntahátíð í Reykjavík
Bókmenntahátíð í Reykjavík verður haldin dagana 9. til 12. september.

Murakami hrifinn af Íslandi
Japanski rithöfundurinn segir landið "mjög dularfullt“ og íhugar að segja frá því í væntanlegri bók sinni.

Barinn brýnn á Bókmenntahátíð
Fjöldi manns lagði leið sína í Norræna húsið og hlýddi á Mehmed Uzun og Margaret Atwood ræða um skáldverk sín á Bókmenntahátíð í hádeginu í gær. Alls taka þrjátíu skáld þátt í hátíðinni, þar af kemur 21 frá útlöndum.

Tuttugu og einn erlendur gestur
"Veðurguðirnir tóku vel á móti gestum Bókmenntahátíðar," segir Halldór Guðmundsson, formaður stjórnar Alþjóðlegu bókmenntahátíðarinnar.

Morgunblaðið ekki dýragarður
Íslensku bókmenntaverðlaunin gera ekkert fyrir bókmenntirnar segir Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, sem hefur sent frá sér bókina<em> Málsvörn og minningar</em>. Hann segir að mikilvægt hafi verið að slíta pólitísk tengsl blaðsins en ekki hafi verið ætlunin að breyta því í dýragarð allra landsmanna.