

Már Kristjánsson, yfirlæknir Covid-göngudeildar á Landspítalanum, og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir verða gestir á opnum fjarfundi velferðarnefndar klukkan 10 í dag. Efni fundarins er framkvæmd sóttvarnaaðgerða.
Einstaklingur lést af völdum Covid-19 í gær. Frá þessu greindi Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við Björn Inga Hrafnsson sem sýnt var frá á Facebook-síðu Viljans.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu vinnur enn að rannsókn á andláti sem varð á geðdeild Landspítala í ágúst síðastliðinn þar sem hjúkrunarfræðingur er grunaður um að hafa orðið sjúklingi að bana.
Landspítalinn hefur í fyrsta skipti gefið út yfirlit yfir inniliggjandi sjúklinga með Covid-19 með upplýsingum um hvernig þeir eru flokkaðir eftir veiruafbrigði, bólusetningastöðu og því hvort ástæða innlagnar er Covid-19, hvort sjúklingar eru með Covid-19 eða hvort óvíst er um orsakasamhengi.
Líðan Árna Þórðar sonar Sigurðar Þ. Ragnarssonar bæjarfulltrúa í Hafnarfirði, sem betur er þekktur sem veðurfréttamaðurinn Siggi stormur, er óbreytt. En faðir hans og fjölskylda heldur í vonina.
Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir á Landspítalanum, segir að með vangaveltum sínum um hvort vit væri í því að framkvæma jafn mörg PCR-próf og raun ber vitni á hverjum degi hafi hann viljað setja fram vangaveltu um hvernig hægt væri að tækla faraldurinn til lengri tíma litið. Hann hafi hvergi lagt til að hætt yrði að beita PCR-prófum með öllu.
37 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19, en þeir voru 36 í gær.
Ragnar Freyr Ingvarsson, læknir á Landspítalanum, veltir því fyrir sér hvort fjármunum sem varið er í PCR-próf væri ekki betur varið í að byggja upp Landspítalann.
Tveir karlmenn á níræðisaldri létust í gær á Landspítala af völdum Covid-19. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítala í dag. 41 hefur nú látist af völdum kórónuveirunnar hér á landi frá upphafi faraldurs.
Forstjóri Landspítalans telur rétt að hækka á viðbúnaðarstig almannavarna á landsvísu vegna sívaxandi álags á heilbrigðiskerfið. Kórónuveirusmituðum hafi fjölgað ískyggilega og að herða þurfi samkomutakmarkanir enn frekar til að sporna við frekari innlögnum.
Ákveðið hefur verið að loka Klíníkinni næstu þrjár vikurnar á meðan tæplega tuttugu starfsmenn fyrirtækisins hlaupa undir bagga með starfsfólki Landspítalans.
Einstaklingum sem hafa klárað sjö daga einangrun vegna Covid-19, finna ekki fyrir einkennum og hafa ekki náð sambandi við Covid-göngudeild Landspítalans er nú heimilt að útskrifa sjálfa sig úr einangrun.
Óbólusettur maður sem veiktist illa af Covid-19 telur ljóst að hann hefði sloppið betur ef hann hefði bólusett sig. Hann er þó ekki fullur eftirsjár, er feginn að vera kominn með ónæmi í bili og vonar að hann þurfi ekki endurhæfingu.
Samkvæmt svartsýnustu spá Landspítala um innlagnir á legudeild vegna Covid-19 gætu allt að 90 sjúklingar lagst inn fyrir 20. janúar næstkomandi. Líkleg spá er 72 sjúklingar en bjartsýn spá 57. Innlagnir á gjörgæslu gætu orðið nærri 30.
37 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og fjölgar þeim um fimm milli daga.
Yfir þúsund manns greindust með kórónuveirunna innanlands í gær og metfjöldi á landamærunum. Sóttvarnalæknir er farinn að huga að tillögum um næstu sóttvarnaaðgerðir. Íslensk erfðagreining stefnir á að kanna raunverulega útbreiðslu veirunnar í næstu viku og segir sóttvarnalæknir að það muni reynast mjög hjálplegt.
Fullbólusettur einstaklingur sem greindist smitaður af ómíkron afbrigði kórónuveirunnar er meðal þeirra sjö einstaklinga sem liggja nú á gjörgæslu með Covid-19 samkvæmt upplýsingum frá Landspítala.
32 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og fjölgar þeim um tvo milli daga.
Bólusetningar barna á aldrinum 5-11 ára gegn kórónuveirunni verða í Laugardalshöll en ekki skólum líkt og til stóð. Þegar hafa 250 börn verið bólusett á þessum aldri. Nú eru 17.200 manns í einangrun eða sóttkví með eða næstum því fimm prósent landsmanna.
Karlmaður á sjötugsaldri lést af völdum Covid-19 á Landspítala í gær.
Forsætisráðherra segir ekki von á afléttingum sóttvarnaaðgerða á næstunni. Heilbrigðisráðherra segir viðbúið að það verði snúið að halda skólum opnum en afar mikilvægt. Sóttvarnalæknir biðlar til óbólusettra að endurskoða þá ákvörðun. Óbólusettir séu nú mest íþyngjandi.
Alls sóttu 2.697 einstaklingar bráðamóttökuna á Landspítala í nóvember og jókst fjöldinn um 6,3% frá sama tíma árið 2020.
Átta liggja nú á gjörgæslu Landspítalans með deltaafbrigði kórónuveirunnar og eru sex þeirra í öndunarvél. Sjö liggja inni vegna ómíkron. Sóttvarnalæknir segir aðallega óbólusett fólk vera á gjörgæslu. Hann hvetur enn á ný þá sem eiga eftir að láta bólusetja sig að gera það.
28 sjúklingar liggja nú á Landspítala með COVID-19 og fjölgar þeim um þrjá milli daga. Sjúklingum á Covid-göngudeildinni fjölgar um 1.356 milli daga, fer úr 7.198 í gær og í 8.554 í dag.
Lögmaður fjölfatlaðs manns sem hefur síðan í vor verið neitað um heimaþjónustu vonar að vinnubrögð Reykjavíkurborgar í málinu séu einsdæmi. Maðurinn missti pláss á hjúkrunarheimili aldraðra í gær og var vísað á spítala. Hann segir skrítið að liggja án veikinda á stofnun sem sé á neyðarstigi.
Landspítalinn uppfærði í dag orðalag sitt í daglegum tilkynningum um stöðuna á spítalanum. Áður kom þar fram hve margir sjúklingar lægju inni „vegna“ Covid-19 en í dag var orðalaginu breytt í „með“ Covid-19. Tvö börn liggja inni á barnadeild Landspítalans með Covid-19.
Læknir á Landspítalanum sem sendur var í leyfi í nóvember vegna ásakana um kynferðislega áreitni á er kominn aftur til starfa á spítalanum. Þetta staðfestir lögmaður hans, Jón Steinar Gunnlaugsson, í samtali við fréttastofu.
Björn Zoëga hefur fengið heimild hjá yfirstjórnendum Karolinska-sjúkrahússins í Svíþjóð til að sinna ráðgjafastörfum fyrir heilbrigðisráðherra Íslands í hjáverkum.
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Landspítalans, greindist með Covid-19 fyrir jól. Hún segir að í kringum 200 starfsmenn spítalans séu nú fjarri vinnu vegna kórónuveirunnar og að stöðugt bætist í fjöldann enda sé veiran „á fullri ferð“ í samfélaginu. Heilbrigðisstarfsfólk fari ekki varhluta af því.
25 sjúklingar liggja nú inni á Landspítala vegna Covid-19 og fjölgar um þrjá milli daga. Fjórtán þeirra eru bólusettir og ellefu óbólusettir.