Írak
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 27 ›
Vopnin kvödd í Írak Lögreglustjórinn í borginni Mosúl í Írak hefur gefið borgarbúum tveggja vikna frest til þess að skila inn vopnum sínum. Eftir það mun lögreglan hefja aðgerðir til þess að gera vopn upptæk. Al-Kaída samtökin hafa brugðist við með því að hóta að myrða borgarstjórann í Mosúl. Erlent 13.10.2005 18:45
Bresk vél fórst í Írak Bresk vöruflutningavél af gerðinni C-130 Herkúles fórst norðvestur af Bagdad fyrr í dag. Brak úr vélinni hefur dreifst yfir stórt svæði að sögn sjónarvotta sem tilkynntu bresku sjónvarpsstöðinni Sky um málið. Erlent 13.10.2005 15:29
Um sextíu prósent kosningaþátttaka Tæplega fimmtíu manns létust í árásum uppreisnarmanna í Írak í gær þegar fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í fimmtíu ár fóru fram. Stjórnmálasérfræðingar hafa áhyggjur af lítilli kosningaþátttöku súnní-múslíma. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 15:29
Kjósendur sýndu þrautseigju Kosningarnar í Írak í dag voru blóði drifnar. Þær einkenndust af árásum hryðjuverkamanna og þrautseigju Íraka, sem flykktust á kjörstaði þrátt fyrir hættuna. Erlent 13.10.2005 15:29
Kjörsókn framar vonum Kjörstöðum í Írak var lokað klukkan tvö í dag og svo virðist sem kjörsókn hafi farið fram úr björtustu vonum manna. Yfirkjörstjórn Íraks skýrði frá því að 72 prósent kjörgengra Íraka hafi kosið og fólk beið enn í biðröðum þegar kjörstöðum var lokað. Líklegt er að öllum þeim sem komnir voru á kjörstaði fyrir lokun verði leyft að kjósa. Erlent 13.10.2005 15:29
Enginn ráðherra sagt af eða á Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi ráðherra, segist ekki muna hvort stuðningur Íslands við innrásina í Írak hafi verið ræddur á ríkisstjórnarfundi 18. mars árið 2003. Þegar ummæli ráðherra Framsóknarflokksins eru skoðuð kemur í ljós að enginn þeirra hefur sagt af eða á um það hvort ákvörðunin hafi verið rædd á fundinum. Erlent 13.10.2005 15:29
Rödd frelsis ómar frá Írak Forseti Bandaríkjanna lýsti mikilli ánægju sinni með framkvæmd kosninganna í Írak í gær. Hann heitir Írökum áframhaldandi aðstoð. Öldungardeildarþingmaður demókrata vill hermennina heim. Erlent 13.10.2005 15:29
Kosningarnar blóði drifnar Ekki færri en tuttugu og tveir liggja í valnum eftir röð árása á kjörstaði í Írak í morgun. Fyrstu lýðræðislegu kosningarnar í landinu eru blóði drifnar. Erlent 13.10.2005 15:29
Sex árásir á kjörstaði Sex sjálfsmorðssprengjuárásir hafa verið gerðar á kjörstaði í Írak í morgun og hefur töluverður mannfjöldi farist í árásunum. Litlar fregnir hafa borist af kjörsókn en forseti Íraks sagði í gær að hann teldi líklegt að hún yrði lítil. Erlent 13.10.2005 15:29
Fimm óbreyttir borgarar drepnir Átta fórust í sjálfsmorðssprengjuárás í norðausturhluta Bagdad-borgar í morgun. Sjálfsvígsmaðurinn sprengdi sig í loft upp utan við herstöð Bandaríkja- og Íraksherja. Fimm þeirra sem fórust voru óbreyttir borgarar. Erlent 13.10.2005 15:28
Ástandið í Írak ógnvekjandi Ástandið á götum Íraks er ógnvekjandi. Þar er í raun stríðsástand og byssuskot heyrast nánast hvert sem er farið. Þetta segir Jón Ársæll Þórðarson dagskrárgerðarmaður sem er nýkominn frá Írak. Innlent 13.10.2005 15:29
Síðustu stundirnar blóði drifnar Síðustu stundirnar fyrir fyrstu frjálsu kosningarnar í Írak eru blóði drifnar. Barist er á götum úti og um traust kjósenda sem óttast er að þori ekki á kjörstaði á morgun. Erlent 13.10.2005 15:29
Írak leikur á reiðiskjálfi Írak leikur á reiðiskjálfi í aðdraganda frjálsra þingkosninga þar á morgun. Árásir dynja yfir og trúarleiðtogar æsa stuðningsmenn sína upp, ýmist í von um að þeir kjósi eða sniðgangi kosningarnar. Erlent 13.10.2005 15:29
Annan talar til uppreisnarmanna Kofi Annan talaði í dag til uppreisnarmanna í Írak og bað þá um að hindra ekki kosningarnar í landinu sem fram eiga að fara á sunnudaginn. Óöldin sem geisað hefur í Írak hefur færst í aukana undanfarið eftir því sem nær dregur kosningum og tugir manna fallið og enn fleiri liggja sárir. Erlent 13.10.2005 15:28
Fyrstu Írakarnir kjósa Írakar í Ástralíu urðu í morgun fyrstir til þess að kjósa í sjálfstæðum kosningum í heimalandi sínu í heil fimmtíu ár. Fyrstu atkvæðin utan kjörfundar voru greidd í Ástralíu sem er eitt þeirra fjórtán landa þar sem Írakar, sem ekki eru búsettir í heimalandinu, geta kosið. Erlent 13.10.2005 15:28
32 fallið á tveimur dögum Tólf manns hið minnsta liggja í valnum eftir árásir dagsins, þar af tveir bandarískir hermenn. Í gær létust tuttugu, þar af einn Bandaríkjamaður. Erlent 13.10.2005 15:28
Fjórir féllu í sprengingu Fjórir Írakar féllu í valinn í morgun þegar bílsprengja sprakk nærri lögreglustöð í suðurhluta Bagdad. Í gær létust nítján Írakar og einn Bandaríkjamaður í árásum uppreisnarmanna og ljóst að aðgerðir þeirra fara sífellt harðnandi fram að kosningunum sem fram fara á sunnudaginn. Erlent 13.10.2005 15:28
Bandaríkjamenn yfirgefa Írak? George Bush Bandaríkjaforseti sagðist í gær reiðubúinn til þess að kalla herlið Bandaríkjanna út úr Írak, færi svo að nýkjörin stjórnvöld í landinu myndu fara þess á leit. Í viðtali við <em>New York Times</em> í gær sagði Bush að Írakar stæðu á eigin fótum og væri það vilji þeirra að losna við herlið Bandaríkjamanna eftir kosningarnar yrði gengið að því. Erlent 13.10.2005 15:28
Hvíta húsið með yfirlýsingu Davíðs Í yfirlýsingu Davíðs Oddssonar frá 18. mars 2003, sem finna má á vef Hvíta hússins, vísar hann til yfirlýsingar íslensku ríkisstjórnarinnar um deilurnar í Írak. Ekki var hægt að fá uppgefið frá ráðuneytum hvaða yfirlýsingu var verið að vísa til. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 15:28
Þrískipt Írak er möguleiki Kúrdar gætu haft framtíð Íraks í sínum höndum en margir þeirra geta vel hugsað sér að landið verði eingöngu lauslegt ríkjasamband eða að það verði jafnvel brotið niður í þrjú sjálfstæð ríki Erlent 13.10.2005 15:27
Fjöldi vopna haldlagður Bandarískir hermenn hafa undanfarna daga lagt hald á töluvert magn vopna sem talið er að hafi átt að fara til hryðjuverkamanna í aðdraganda kosninganna í Írak sem fara fram eftir fimm daga. Vopnin fundust í leit á heimilum meintra uppreisnarmanna í Bagdad. Erlent 13.10.2005 15:27
Myndband með bandarískum gísl Myndband sem sýnir bandarískan gísl í haldi mannræningja í Írak hefur dúkkað upp en þar sést karlmaður biðja sér griða á meðan byssu er beint að höfði hans. Maðurinn virðist afar hræddur, segist heita Roy Hallams og hafa unnið fyrir bandaríska herliðið í Írak. Erlent 13.10.2005 15:27
Skipulagðar misþyrmingar í Írak Núverandi stjórnvöld í Írak stunda skipulagðar misþyrmingar á föngum sem sitja í fangelsum landsins og ólöglegar handtökur og pyntingar eru reglan fremur en undantekningin. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandarísku mannréttindasamtakanna Human Rights Watch sem hafa tekið viðtöl við níutíu írakska fanga á síðustu tveimur árum. Erlent 13.10.2005 15:27
Sami herafli í Írak út næsta ár Bandaríski herinn mun halda núverandi liðsafla sínum í Írak út árið 2006 hið minnsta. Þetta er haft eftir háttsettum foringja innnan hersins í <em>Washington Post</em> í dag. 120 þúsund bandarískir hermenn eru nú í Írak auk 30 þúsund hermanna af öðru þjóðerni. Erlent 13.10.2005 15:27
Kosningarnar breyta litlu Kosningarnar í Írak á sunnudag eru aðeins þær fyrstu af þremur sem eru fyrirhugaðar í landinu fyrir árslok. Ekki er talið að þær breyti miklu enda sitja þingmennirnir sem verða kosnir aðeins til bráðabirgða. Erlent 13.10.2005 15:27
Hervélmenni notuð í Írak Bandaríkjaher telur sig hafa fundið svarið við því hvernig eigi að ráða niðurlögum írakskra uppreisnarhópa. Verið er að setja saman sérsveit vélmenna sem send verða á vígvöllinn í mars. Erlent 13.10.2005 15:26
Lykilmaður Al-Zarqawis handtekinn Írakskir þjóðvarnarliðar hafa handtekið lykilmann innan uppreisnarhóps Abu Musabs Al-Zarqawis. Maðurinn, sem kallar sig Abu-Omar al Kurdi, er sakaður um að hafa staðið á bak við þrjátíu og tvær bílsprengjuárásir síðan innrásin í Írak hófst. Hann hefur verið í haldi í rúma viku en ekki var tilkynnt um handtökuna fyrr en í morgun. Erlent 13.10.2005 15:26
Bandarískir hermenn á nálum Gríðarleg spenna liggur í loftinu í Írak nú þegar aðeins sex dagar eru í þingkosningar. Bandarískir hermenn í landinu eru á nálum því að árásir andspyrnumanna eru eins og rigningin: maður veit aldrei hvar hún lendir. Þetta segir sjónvarpsmaðurinn Jón Ársæll Þórðarson sem er á ferð með bandaríska hernum í Írak. Erlent 13.10.2005 15:26
Fresturinn framlengdur í Írak Frestur til að kjósa utan kjörfundar í Írak hefur verið framlengdur vegna dræmrar kjörsóknar. Meira en milljón Írakar í fjórtán löndum hafa átt þess kost að kjósa utan kjörstaða síðan í byrjun síðustu viku. Um miðjan dag í gær höfðu aðeins ríflega 130 þúsund, eða í kringum 13%, nýtt atkvæðarétt sinn. Erlent 13.10.2005 15:26
Tíu særðust í sjálfsmorðsárás Að minnsta kosti tíu særðust í sjálfsmorðsárás í Bagdad í morgun sem átti sér stað nærri höfuðstöðvum Iyads Allawis, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar. Sjálfur var Allawi ekki á svæðinu þegar árásin var framan. Svæðið hefur verið girt af og þyrlur sveima yfir vettvangi. Erlent 13.10.2005 15:26