
Indland

Hélt í sér að ræða indverska drauminn í meira en ár
Tómas Geir Howser Harðarson leikari getur loksins sagt frá ótrúlegum ævintýrum sínum í Indlandi þar sem hann fór með stórt hlutverk í sjónvarpsþáttaseríu Sony sem byggir á sönnum atburðum. Tómas lauk tökum fyrir meira en ári og segir Indland stórkostlegt land.

Átján létust í troðningi
Átján manns hafa verið úrskurðaðir látnir eftir mikinn troðning á lestarstöð í höfuðborg Indlands. Þar á meðal eru fimm börn.

Neituðu að skrifa undir yfirlýsingu um gervigreind
Erindrekar og embættismenn frá Bretlandi og Bandaríkjunum neituðu að skrifa undir fjölþjóðlega yfirlýsingu um þróun gervigreindar. Yfirlýsingin, sem samin var á leiðtogafundi í París, snýst meðal annars um að heita opnu og siðferðilegu ferli við þróun gervigreindartækni.

Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn
Manmohan Singh, fyrrverandi forsætisráðherra Indlands, er látinn, 92 ára að aldri. Singh var í hópi þeirra sem hafa gegnt forsætisráðherraembættinu hvað lengst í landinu, en hann stýrði landinu á árunum 2004 til 2014 en áður hafði hann gegnt embætti fjármálaráðherra landsins.

Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar
Minningarathafnir voru haldnar víða í Suður-Asíu í dag til að minnast þeirra sem fórust þegar skjálftaflóðbylgjur gengu á land þennan dag árið 2004. Þetta eru mannskæðustu náttúruhamfarir þessarar aldar en tæplega 230 þúsund fórust.

Tíu ungbörn létust og sextán særðust í eldsvoða á nýburadeild
Eldur kviknaði á gjörgæsludeild fyrir nýbura á sjúkrahúsi í norðurhluta Indlands með þeim afleiðingum að tíu nýfædd börn fórust og sextán særðust, að sögn yfirvalda.

Loftvarnir Íran verulega laskaðar eftir árásir helgarinnar
Loftvarnarkerfi Íran skutu niður örfáar ef einhverjar af þeim eldflaugum sem Ísraelar skutu að skotmörkum í landinu um helgina. Loftvarnarkerfin sjálf, sem Íranar fengu frá Rússlandi, voru meðal skotmarkanna.

Togað hafi verið í stýrið og afturhluti vélar strokið flugbrautina
Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) telur að togað hafi verið í hæðarstýrið eftir að lyftispillar virkjuðust sjálfvirkt í lendingu, þegar stél á flugvél Icelandair straukst við flugbraut í Indlandi í fyrra.

Fyrsti fundur Xi og Modi í meira en fimm ár
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur tekið móti leiðtogum BRICS-ríkjanna svokölluðu, auk annarra þjóðarleiðtoga og erindreka í Kazan í Rússlandi en þar fer sextándi leiðtogafundur BRICS-ríkjanna svokölluðu fram. Fundur leiðtoga Kína og Indlands á hliðarlínunum í Kazan hefur vakið mikla athygli.

Saka yfirvöld í Indlandi um ofbeldi og morð í Kanada
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur sakað ríkisstjórn Indlands um aðild að glæpum, ofbeldi og morðum í Kanada. Hann sakaði Indverja um að hafa gert „grundvallar mistök“ og að aðgerðir þeirra væru alfarið óásættanlegar.

Læknar á Indlandi krefjast aðgerða vegna nauðgunar
Unglæknar á Indlandi mættu margir ekki til vinnu í dag þrátt fyrir að boðuðu verkfalli Læknasamtakanna væri lokið. Læknasamtökin á Indlandi boðuðu til verkfalls um allt land til að krefjast úrbóta fyrir lækna og sérstaklega kvenkyns lækna eftir að 31 árs læknanema var nauðgað og hún myrt á vakt.

Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi
Aurskriður sem féllu í Kerala-fylki í Suðurhluta Indlands í morgun urðu minnst 123 að bana. Hundrað til viðbótar er enn saknað og óttast er að tala látinna hækki enn fremur.

Fjallar um móður sína sem er fyrsti Íslendingurinn ættleiddur frá Asíu
Móðir þjálfarans og kvikmyndagerðarmannsins Friðriks Agna Árnasonar er fyrsta ættleidda barnið sem kom frá Asíu til Íslands. Friðrik hyggst gera heimildamynd um móður sína þar sem hann freistar þess að komast á snoðir um uppruna hennar.

Viðvörun gefin út í Kerala á Indlandi vegna Nipah-veirunnar
Heilbrigðisyfirvöld í Kerala á Indlandi hafa gefið út viðvörun eftir að 14 ára drengur lést af völdum Nipah-veirunnar. Um það bil 60 eru sagðir hafa orðið útsettir fyrir smiti.

87 talin af vegna troðnings
Minnst 87 krömdust til bana í troðningi á hindúískri helgiathöfn sem fór fram í Uttar Pradesh-ríki á Indlandi í dag. Troðningurinn átti sér stað í þorpi um 200 kílómetrum suðaustur af Nýju-Delí.

Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar
Þakið á flugvellinum í Nýju Delí hrundi í gærmorgun vegna mikillar rigningar og vinds. Einn er látinn og er búið að aflýsa innanlandsflugi. Sá hluti þaksins sem hrundi er við brottfararhliðs númer eitt á flugvellinum.

Narendra Modi lýsir yfir sigri á Indlandi
Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, hefur lýst yfir sigri í þingkosningum þar í landi þrátt fyrir mikið fylgistap milli kosninga. Flokkur hans, Bharatiya Janata, hefur unnið hreinan meirihluta á Lok Sabha, neðri deild indverska þingsins, síðustu tvær kosningar.

Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna
Indverska knattspynugoðsögnin og þriðji markahæsti landsliðsmaður heims, Sunil Chhetri, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann mun leika sinn síðasta landsleik gegn Kúveit, 6. júní næstkomandi.

Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum
Andstæðingar Narendra Modi forsætisráðherra Indlands saka hann um að fara niðrandi orðum um múslima með ummælum sem hann lét falla um helgina. Þingkosningar hófust á Indlandi á föstudag en þær eru umfangsmestu lýðræðislegu kosningar á jörðinni.

Nýr fríverslunarsamningur við Indland undirritaður
Nýr fríverslunarsamningur milli Indlands og EFTA-ríkjanna, það er Íslands, Liechtensteins, Noregs og Sviss var undirritaður í Nýju Delí í dag. Bjarni Benediktsson skrifaði undir samninginn fyrir hönd Íslands.

Hópnauðgun á ferðamanni á Indlandi vekur athygli og reiði
Hópnauðgun sem átti sér stað í Dumki í Jharkhand-ríki á Indlandi hefur vakið mikla athygli og reiði en fjórir hafa verið handteknir í tengslum við árásina og þriggja er leitað.

Meint njósnadúfa frá Kína hreinsuð af sök
Yfirvöld í Indlandi slepptu á þriðjudaginn dúfu eftir að hún hafði verið í haldi í átta mánuði vegna gruns um að hún væri í raun kínverskur njósnari. Eftir ítarlega rannsókn hefur komið í ljós að dúfan slapp frá eigendum sínum í Taívan.

Komu í veg fyrir stórslys í Rauðahafi
Tekist hefur að slökkva eld sem logaði um borð í fraktskipinu Marlin Luanda eftir að eldflaug Húta hæfði það í Rauðahafinu seint í gærkvöldi. Hætt var á að hann kæmist í tæri við afar eldfiman farm skipsins.

Vígði nýtt hindúahof þar sem áður stóð moska
Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, hóf í dag vígsluathöfn stórs hindúahofs í Ayodhya á reit þar sem áður stóð moska. Miklar deilur hafa staðið um staðinn síðustu aldirnar, en BJP-flokkur Modi, þjóðefnisflokkur hindúa, hefur gert mikið úr vígsluathöfninni, nú þegar styttist í þingkosningar.

Varlega skal farið í að „skipta um þjóð í þjóðinni“: Seinni saga
Ég starfaði í Afríku á árunum 1992-1998. Þessi saga fjallar um innflutning á fólki til nýs lands en af öðrum toga en fyrri grein en fjallar hún um að skipta um þjóð í þjóðinni.

Beittu sér gegn Apple eftir viðvörun um njósnir
Margir af þekktustu blaðamönnum Indlands og stjórnmálamenn lýstu því yfir í október að tæknifyrirtækið Apple hefði varað þá við því að tölvuþrjótar á vegum ríkis hefðu gert árás á síma þeirra og tæki. Ríkisstjórn Nardendra Modi, forsætisráðherra Indlands, brást hratt við með því að beina spjótum sínum að Apple.

Flugvél Icelandair enn föst á Indlandi
Flugvél Icelandair er enn föst á Indlandi eftir að afturhluti vélarinnar rakst í flugbraut við lendingu í nóvember. Ferja þarf vélina á annan flugvöll til að ljúka viðgerð.

Öllum bjargað eftir sautján daga
Búið er að bjarga mönnunum 41 úr göngum sem hrundu að hluta til á Indlandi. Mennirnir höfðu setið fastir í göngunum í sautján daga. Þeir unnu við að grafa göng undir fjall í Uttarakhand-héraði þegar þeir festust þar inni.

Saka Indverja um banatilræði í Bandaríkjunum
Yfirvöld í Bandaríkjunum eru sögð hafa stöðvað banatilræði gegn síka-aðgerðasinna í Bandaríkjunum. Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa rætt við ráðamenn í Indlandi um að þeir síðarnefndu hafi komið að tilræðinu. Stutt er síðan ríkisstjórn Kanada sakaði Indverja um að hafa komið að morði á leiðtoga aðskilnaðarsinna síka þar í landi.

Vélinni líklega flogið heim frá Indlandi á næstu vikum
Afturhluti vélar Icelandair straukst við flugbraut í lendingu á Lal Bahadur Shastri flugvellinum á Indlandi fyrr í mánuðinum. Gert er ráð fyrir því að hægt verði að fljúga vélinni aftur heim fljótlega. Flugvirkjar voru með í fluginu sem hófu strax vinnu við að meta tjónið.