
Filippseyjar

Fundu 40 kíló af plasti í hvalshræi
Hvalshræ sem skolaði á land á Filippseyjum á dögunum hefur verið krufið og er dánarorsökin ljós. Vísindamenn hafa greint frá því að hvalurinn hafi drepist vegna ofþornunar og hungurs sem rekja má til þeirra 40 kílóa af plastpokum sem fundust í maga hvalsins.

Blaðakonunni sem var handtekin sleppt gegn tryggingu
Ritstjóri fréttasíðunnar Rappler var handtekinn í gær. Fjölmiðillinn hefur verið gagnrýninn á stjórn Rodrigo Duterte forseta.

Útgefandi gagnrýninnar fréttavefsíðu handtekinn á Filippseyjum
María Ressa, forstjóri Rappler, segir ásakanir á hendur henni tilraunir Duterte forseta til að þagga niður í gagnrýni fréttasíðunnar.

Á þriðja tug látnir eftir að sprengja sprakk í messu
Að minnsta kosti 27 eru látnir og tugir særðir eftir að sprengjuárás var gerð á kaþólska kirkju í suðurhluta Filippseyja á sunnudagsmorgun.

Kínverjar hóta því að granda bandarískum skipum
Yfirvöld Kína segjast hafa komið nýjum langdrægum eldflaugum fyrir í Kína sem geti grandað herskipum Bandaríkjanna í Suður-Kínahafi.

Duterte segist hafa brotið gegn vinnukonu sem táningur
Hinn umdeildi forseti Filippseyja, Rodrigo Duterte, hefur enn á ný ollið usla heima fyrir og í þetta sinn þegar hann sagðist hafa "snert“ vinnukonu sem starfaði á heimili hans þegar hann var táningur.

Kæra fjölmiðil í Filippseyjum fyrir skattaundanskot
Dómsmálaráðuneytið í Filippseyjum hefur ákært Rappler þarlendan fréttamiðil fyrir að skjóta undan skatti. Sumir líta á þetta sem lið í því að bæla niður frjálsa fjölmiðlun í landinu.

Imelda Marcos sakfelld fyrir spillingu
Fyrrverandi forsetafrúin er einna þekktust fyrir að hafa átt þúsund skópör þegar hún og eiginmaður hennar stýrðu FIlippseyjum með harðri hendi.

Mannskæðar aurskriður á Filippseyjum eftir Mangkhut
Talið er að 100 manns séu látnir á Filippseyjum eftir að fellibylurinn Mangkhut gekk þar yfir um helgina. Flest þeirra létust í aurskriðum en björgunaraðilar keppast við að finna eftirlifendur.

Ógurlegt tjón eftir Mangkhut
Minnst 64 eru látnir eftir að hitabeltisstormurinn Mangkhut fór yfir Filippseyjar og suðurhluta Kína. Talið er víst að tala látinna muni hækka enn. Illa gengur að koma björgunarfólki á þau svæði sem verst urðu úti.

Mangkhut herjar á Kína og minnst 49 látnir á Filippseyjum
Fellibylurinn Mangkhut herjar nú á fjölbýlasta hérað Kína, eftir að hafa ollið skemmdum í Hong Kong.

Minnst 25 dánir og ótti um uppskerubrest
Yfirvöld Filippseyja vinna nú hörðum höndum að því að taka saman dauðsföll og skemmdir í kjölfar fellibylsins Mangkhut sem fór þar yfir fyrr um helgina.

Mangkhut olli usla í Filippseyjum og er nú á leið til Kína
Minnst tveir eru dánir eftir að fellibylurinn Mangkhut fór yfir Filippseyjar.

Vonbrigði að Íslendingar hafi ekki þegið heimboðið
Fulltrúi Filippseyja á mannréttindaþingi Sameinuðu þjóðanna fór hörðum orðum um Íslendinga og þær 37 aðrar þjóðir sem gagnrýndu ástand mannréttindamála á eyjunum í liðinni viku.

Ætla að standa í hárinu á Kína
Bandaríkin munu standa í hárinu á Kínverjum varðandi hervæðingu þeirra í Suður-Kínahafi.

Kínverjar sendu þotur og skip gegn bandarískum herskipum
Yfirvöld Kína brugðust í dag reið við því að tveimur bandarískum herskipum var siglt nærri eyjum í Suður-Kínahafi sem Kínverjar hafa gert ólöglegt tilkall til.

Dani sá fyrsti sem er dæmdur fyrir falsfréttir í Malasíu
Hann var dæmdur í mánaðarfangelsi þar sem hann gat ekki greitt sekt.

Duterte deilir við sjötuga nunnu
Forseti Filippseyja, Rodrigo Duterte, hefur tekið upp deilur við systur Patriciu Fox. Systir Fox stofnaði ásamt öðrum kirkjuna Our Lady of Sion árið 1990 í Manila og hefur síðan þá unnið góðgerðarstarf með fátækum og öðrum jaðarsettum hópum.

Duterte vill rjúfa Rómarsamþykktina
Rodrigo Duterte skar upp herör gegn fíkniefnum á Filippseyjum.

Forseti Filippseyja segist orðinn gamall og lúinn
Gagnrýnendur Duterte telja að hann ætli sér að halda í völdin og taka sér alræðisvald. Sjálfur segist hann ætla að víkja úr embætti innan tveggja ára.

Utanríkisráðherra Filippseyja vonsvikinn yfir málflutningi Íslendinga
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra átti í dag fund með Peter S. Cayetano, utanríkisráðherra Filippseyja.

Duterte bregst við gagnrýni á fíkniefnastríðið
Forseti Filippseyja hefur bannað lögreglu landsins að taka þátt í stríðinu gegn fíkniefnum

Gaf lítið fyrir gagnrýni íslensku hræsnaranna
Filippseyjar taka lítið mark á ríkjum sem framkvæma fóstureyðingar í jafn miklum mæli og Íslendingar.

Kirkjan fordæmir herferð Duterte
Kaþólska kirkjan á Filippseyjum fordæmdi í gær herferð forsetans Rodrigo Duterte gegn eiturlyfjafíklum, -sölum, -framleiðendum og -smyglurum. Herferðin hefur kostað að minnsta kosti 3.500 lífið og drepur lögregla grunaða án dóms og laga.

Sérsveitir Bandaríkjahers aðstoða Filippseyjar
Sérsveitir Bandaríkjahers hafa verið kallaðar út til að aðstoða filippeyska herinn, sem reynir nú að ná aftur yfirráðum yfir borginni Marawi á suðurhluta Filippseyja.

Duterte hótar neyðarlögum um allar Filippseyjar
Neyðarlögum hefur þegar verið lýst yfir í þriðjungi ríkisins vegna árása vígamanna.

Sagðir auka hernaðaruppbyggingu í Suður-Kínahafi
Kínverjar munu vera nálægt því að koma fyrir langdrægnum loftvarnarskeytum víða um hafið.

Þetta eru hryðjuverkin sem Bandaríkjastjórn segir fjölmiðla ekki hafa fjallað mikið um
Bandaríkjastjórn hefur nú gefið út lista yfir hryðjuverkaárásir sem Donald Trump forseti og félagar hans vilja meina að fjölmiðlar hafi lítið fjallað um.

Hlé á morðherferð gegn fíkniefnum
Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, hefur ákveðið að stöðva tímabundið herferð lögreglunnar gegn fíkniefnum. Áður en haldið verður áfram þurfi að uppræta spillingu innan lögreglunnar.

Segir hreinsanir sínar njóta stuðnings Donalds Trump
Áætlun Rodrigo Duterte, forseta Filippseyja, um að drepa alla grunaða fíkniefnasala og neytendur í landinu virðist eiga hljómgrunn hjá verðandi forseta Bandaríkjanna - ef marka má Duterte sjálfan.