
Úganda

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir Tansaníu ekki veita nægar upplýsingar um ebólu
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur ávítað Tansaníu fyrir að hafa ekki veitt upplýsingar um möguleg ebólu smit þar í landi.

Staðfesta annað tilfelli ebólu í milljónaborg í Austur-Kongó
Annað tilfelli ebólu hefur verið staðfest í borginni Goma í Austur-Kongó.

Neyðarástandi á heimsvísu lýst yfir vegna ebólu
Ebólu faraldrinum, sem brotist hefur út í Austur-Kongó, var í dag lýst yfir sem neyðarástandi á heimsvísu af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni eftir að vírusinn smitaðist til borgar þar sem tvær milljónir manna búa.

Bandarískur sjálfboðaliði sagður bera ábyrgð á dauða um hundrað barna
Renee Bach flutti til Úganda aðeins átján ára gömul til þess að sinna sjálfboðaliðastarfi. Nú, sautján árum síðar, er búið að stefna henni fyrir ólöglega læknastarfsemi og er hún sögð ábyrg fyrir dauða fjölda barna.

Ekki ástæða til að lýsa yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna ebólu
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur ákveðið að lýsa ekki yfir neyðarástandi á heimsvísu vegna ebólufaraldursins í Austur-Kongó.

Bandarísk kona og leiðsögumaður laus úr haldi mannræningja í Úganda
Fjórir vopnaðir menn rifu fólkið úr safari-bíl sem þau voru í í Queen Elizabeth þjóðgarðinum á þriðjudaginn og fóru þeir fram á hálfa milljón dala.

Komnar með leiklistarbakteríu
Bíómyndin Tryggð fjallar um sambúð þriggja kvenna og menningarárekstra þeirra á milli. Enid Mbabazi og Claire Harpa Kristinsdóttir leika mæðgur frá Úganda og eru sjálfar þaðan.

Partýbátur sökk í mannskaðaveðri á Viktoríuvatni
22 hafa fundist látnir í Viktoríuvatni eftir að svokallaður partýbátur sökk. Að sögn vitna voru yfir 90 manns um borð í bátnum þegar hann sökk. Talið er að stormur sem skall á hafi orsakað slysið.

Áfram í fangelsi vegna Facebook-ummæla
Aðgerðasinninn, rithöfundurinn, ljóðskáldið og fræðimaðurinn Stella Nyanzi hefur verið í fangelsi síðan í síðasta mánuði eftir að hún var ákærð í fyrra fyrir að hafa kallað Yoweri Museveni forseta "rasshaus“ á síðasta ári.

Veiðiþjófar höggva andlit og loppur af ljónum sem þeir eitra fyrir
Þjóðgarðsverðir og dýraverndunarsinnar reyna nú allt hvað þeir geta til þess að berjast gegn veiðiþjófum sem herja á ljón víða um Afríku.

Wine ákærður fyrir landráð
Bobi Wine, þingmaður og fyrrverandi poppstjarna, var í gær ákærður fyrir landráð í Úganda.

Hefja tilraunir með mögulegt bóluefni við HIV í mönnum
Tilraunir með nýtt bóluefni við HIV-sýkingu í ósmituðum einstaklingum og öpum hefur borið afar góða árangur. Vísindamönnunum tókst að framkalla heppilega ónæmissvörun með því gefa þessum einstaklingum blöndu af nokkrum lyfjum sem áður hafa gefið góð raun í baráttunni við HIV.

Slúðurskattur settur á notkun samfélagsmiðla í Úganda
Ríkisstjórn Úganda hefur ákveðið að leggja svokallaðan slúðurskatt á notkun samfélagsmiðla. Þeir sem nota samfélagsmiðla á borð við Facebook, WhatsApp, Viber og Twitter munu framvegis þurfa að greiða um fimm íslenskar krónur á dag til stjórnvalda.

Þingmaður sagði nauðsynlegt að siða eiginkonur til með barsmíðum
Mikil reiði hefur gripið um sig í Úganda vegna ummæla þingmannsins Onesmus Twinamasiko.