
Bensín og olía

Svona er staðan á bensínstöðvunum
Olíufyrirtækið N1 hefur lokað fyrir afgreiðslu á bensíni eða dísel á nokkrum stöðvum á suðvesturhorninu. Tankar eru víða að tæmast.

Landsmenn minntir á strangar reglur er varða geymslu á bensíni
Umhverfisstofnun minnir landsmenn á að olíu skal meðhöndla með varúð og gæta þess að hún komist ekki með neinum hætti út í jarðveg, niðurföll, frárennslislagnir, vatnsföll eða aðra staði þar sem hún getur dreifst um og valdið mengun.

Áhrif verkfallsins strax mikil og fyrstu bensínstöðvarnar að tæmast
Forstjóri Skeljungs segir verkfallið strax hafa gríðarleg áhrif á viðskiptavini félagsins eins og bensínstöðvar, verktaka, rútufyrirtæki og flugvelli. Það styttist í að bensín klárist á fyrstu bensínstöðvunum.

Tankarnir byrjaðir að tæmast og allar línur rauðglóandi
Þrjár bensínstöðvar N1 eru lokaðar vegna verkfallsins. Framkvæmdastjóri N1 segir að nú séu allar línur rauðglóandi hjá fyrirtækinu og að skýra þurfi hvernig aðilar með undanþágu eigi að fá eldsneyti.

Margföld sala á eldsneyti: Smurolíutunnur, brúsar og tankar dregnir fram
Sala á bensíni og olíu í dag hefur verið margföld á við venjulegan dag vegna yfirvofandi verkfalls olíubílstjóra á morgun. Neytendur hafa dregið fram ýmis ílát til að geyma bensín komi til langs verkfalls. Framkvæmdastjóri N1 reiknar með einstaklingar geti farið að finna fyrir verkfallinu strax annað kvöld.

Flutningur á lyfjum og mat gæti stöðvast vegna verkfalla
Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu deilir þungum áhyggjum með forstjórum hjúkrunarheimila af verkfalli olíubílstjóra sem hefst á morgun. Flutningur á mat og lyfjum gæti skerst verulega sem hefði gríðarlegar afleiðingar í för með sér fyrir viðkvæmasta hóp samfélagsins.

Áhrif verkfallsins einskorðist ekki við höfuðborgarsvæðið
Verkfall olíubílstjóra hefst á hádegi á morgun. Framkvæmdastjóri Olís segir áhrif verkfallsins ekki bara einskorðast við höfuðborgarsvæðið. Þá taki það ekki marga daga fyrir eldsneytið að klárast.

Kostnaður við 90 daga neyðarbirgðir yrði olíufélögum of þungbær
Skeljungur, dótturfélag SKEL fjárfestingafélags, telur að rekstrargrundvöllur félagsins, sem og annarra olíufélaga, geti ekki staðið undir fjármagnskostnaði sem félli til vegna þeirra kvaða um birgðahald eldsneytis sem áformað er að leiða í lög. Nauðsynlegt sé að niðurgreiða aukið birgðahald enda sé það hlutverk ríkisins, ekki einkafyrirtækja, að tryggja þjóðaröryggi.

Varar fólk við að hamstra eldsneyti
Framkvæmdastjóri Skeljungs segir ljóst að fólk sé farið að hamstra eldsneyti vegna yfirvofandi verkfalls olíubílstjóra. Slökkviliðsstjóri segir hamstrið vera varasamt og mælir með því að fólk sleppi því.

Löng bið eftir bensíni hjá Costco
Svo virðist sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu séu byrjaðir að fylla á bíla sína í ljósi verkfalls olíubílstjóra sem hefst að óbreyttu á miðvikudag. Löng röð hefur verið í Costco í Kauptúni í Garðabæ í morgun eftir bensíni.

Bensínið gæti klárast á fimmtudag
Forstjóri Skeljungs segir að bensín bensínstöðva gæti klárast strax á fimmtudag ef af verkfalli olíubílstjóra verður á miðvikudag, eins og virðist stefna í. Hann hefur þungar áhyggjur af stöðunni, alvarlegt ástand geti skapast á örfáum dögum.

Bræðslur keyrðar á olíu vegna raforkuskerðingar
Annan veturinn í röð hafa fiskimjölsverksmiðjur neyðst til að brenna dísilolíu vegna raforkuskerðingar. Landsvirkjun segir þetta vegna mikils álags, kerfið sé nánast uppselt.

Boða fleiri verkföll á hótelum, í vörubílaakstri og olíudreifingu
Samninganefnd Eflingar hefur boðað til fleiri verkfalla, sem taka til hótelkeðjanna Berjaya Hotels, hótelsins The Reykjavík Edition, til þeirra sem starfa við vörubílaakstur og olíudreifingu. Atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks sem boðanirnar taka til verða auglýstar á vef Eflingar fyrir hádegi í dag. Aftur er um að ræða ótímabundna vinnustöðvun sem mun hefjast klukkan tólf á hádegi 15. febrúar.

Lærdómurinn frá Þýskalandi
Hið óhugsandi gerðist þegar Rússland beitti gasvopninu gegn Evrópu. Hvað ef alvöru stríðsátök, til dæmis við Persaflóa, brytust út og olíuverð hækkaði í 200 eða 300 Bandaríkjadali fyrir tunnuna? Þá verður Ísland alveg jafn berskjaldað fyrir þeim hækkunum eins og aðrir. Norðmenn munu selja á heimsmarkaðsverði eftir sem áður, eins og allir aðrir olíuframleiðendur. Við verðum ekki aftur í sömu sápukúlu og síðastliðna 12 mánuði.

Segir Evrópu eiga nægar olíubirgðir í aðdraganda aukinna þvingana
Aðildarríki Evrópusambandsins og G7-ríkin búa yfir nægum birgðum af hráolíu, dísilolíu og flugvélaeldsneyti til að komast í gegnum áhrifin af auknum viðskiptaþvingunum gagnvart Rússlandi, að sögn Kadri Simpson sem fer fyrir orkumálum Evrópusambandsins.

Norska ríkisstjórnin gefur út 47 ný leyfi til olíuleitar
Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Terje Aasland, hefur úthlutað 47 nýjum sérleyfum til olíuleitar og olíuvinnslu á norska landgrunninu. Ráðherrann tilkynnti um úthlutunina á árlegri ráðstefnu norska olíuiðnaðarins í bænum Sandefjord í fyrradag.

Goldman Sachs: Olíuverð yfir 100 Bandaríkjadali á árinu
Bandaríski fjárfestinganbankinn Goldman Sachs spáir því að heimsmarkaðsverð á tunnunni af hráolíu muni ná 105 Bandaríkjadölum á fjórða ársfjórðungi þessa árs. Sterkur vöxtur í eftirspurn, einkum frá Kína er helsta skýringin á hækkandi olíuverði á árinu.

Dísilolía flæðir frá Rússlandi í aðdraganda viðskiptabanns
Útflutningur á dísilolíu frá Rússlandi mun stóraukast í janúarmánuði frá desember. Þann 5. febrúar næstkomandi tekur gildi bann við innflutningi á rússnesku eldsneyti sjóleiðis.

Leggja 190 milljarða króna í gasvinnsluna í Hammerfest
Norska ríkisolíufélagið Equinor og samstarfsaðilar þess á Snøhvit-gasvinnslusvæðinu í Barentshafi hafa ákveðið að leggja 13,2 milljarða norskra króna, andvirði 190 milljarða íslenskra, í uppfærslu gasvinnslustöðvarinnar á Melkøya við bæinn Hammerfest í Norður-Noregi. Áætlaður líftími stöðvarinnar framlengist með þessu um áratug, til ársins 2050, auk þess sem rafvæðing hennar mun draga verulega úr losun koltvísýrings.

Jólagjöf Norðmanna sögð stór gaslind í Barentshafi
Norska olíufélagið Vår Energi, sem er að meirihluta í eigu hins ítalska Eni, tilkynnti á Þorláksmessu um stóran gasfund á svokölluðu Lupa-svæði nærri Golíat-olíusvæðinu í Barentshafi. Frumathugun bendir til að stærð gaslindarinnar jafngildi 57 til 132 milljónum tunna af vinnanlegri olíu.

Verðmæti bensínstöðvalóðanna sjö til átta milljarðar
Fyrirhugað er að byggja um það bil 700 til 800 íbúðir á ellefu lóðum í Reykjavík, þar sem áður voru bensínstöðvar. Lóðirnar telja samtals um 40 þúsund fermetra.

Vindmyllur orðnar helsti raforkugjafi Færeyinga
Umskipti hafa orðið í raforkumálum Færeyinga með opnun nýs vindorkuvers í byrjun mánaðarins og fá þeir núna í fyrsta sinn meirihluta raforku sinnar úr sjálfbærum orkulindum. Í fyrra komu yfir sextíu prósent raforkunnar úr dísilrafstöðvum en núna er vindurinn orðinn stærsti orkugjafinn.

Verð bensíns og dísilolíu helst hátt þrátt fyrir lægra hráolíuverð
Þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á hráolíu hafi aðeins hækkað um 8,7 prósent það sem af er ári hefur verðhækkun á bæði á bensíni og dísilolíu um allan heim verið töluvert meiri.

Bensínverð „ekkert nema græðgi og ofurálagning“
Bensínlítrinn er nú fimmtíu krónum dýrari en hann var í byrjun árs, þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á olíu sé svipað og þá. Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir græðgi stjórna ferð hjá íslenskum olíufyrirtækjum.

N1 lækkar verð í Norðlingaholti
Frá og með deginum í dag getur þú fengið fengið ódýrara eldsneyti á stöð N1 í Norðlingaholti. Stöðin bætist með þessu í hóp fimm N1 stöðva sem bjóða ódýrara eldsneyti en mikil eftirspurn er eftir slíkum stöðvum.

Ísland ekki undanskilið hugsanlegum skorti á dísilolíu á komandi ári
Íslensku olíufélögin munu næstu vikur semja um olíukaup næsta árs við erlenda birgja. Ef óvænt aukning verður í eftirspurn olíu hér á landi, til dæmis með auknum loðnukvóta eða stærra ferðamannasumri en spár gera ráð fyrir, er allsendis óöruggt að hægt verði að tryggja meira magn af eldsneyti til landsins en pantað var fyrir árið.

Heimsmeistaramótið þrengir að framboði flugvélaeldsneytis
Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem fer fram í Katar og hefst eftir rúma viku hefur stóraukið eftirspurn eftir flugvélaeldsneyti við Persaflóa. Það hefur aftur haft þær afleiðingar að minna af eldsneytinu fer til Evrópu en ella.

Mikil fjölgun hagsmunavarða jarðefnaeldsneytisfyrirtækja á COP27
Áætlað er að um sex hundruð hagsmunaverðir jarðefnaeldsneytisiðnaðarins séu viðstaddir COP27-loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Egyptalandi, um fjórðungi fleiri en tóku þátt í síðustu ráðstefnu í Glasgow.

Snúin staða á markaði með dísilolíu og verð gæti haldist hátt um skeið
Þrátt fyrir að hráolíuverð hafi gefið lítið eitt eftir að undanförnu vegna dökkra efnahagshorfa þá helst verðið á dísilolíu áfram hátt. Snúin staða ríkir á heimsmarkaði með dísilolíu af margvíslegum ástæðum. Líklegt er að þau vandamál sem steðja að bæði Bandaríkjunum og Evrópu haldi áfram inn í veturinn.

Vilja taka eins á jarðefnaeldsneyti og kjarnavopnum
Hópur eyríkja leggur til að ríkis heims semji um að takmarka útbreiðslu jarðefnaeldsneytis líkt og gert var með kjarnavopn. Áætlað er að þróunarríki þurfi um tvær biljónir dollara á ári til að fjármagna orkuskipti og aðlögun og til að bæta tjón af völdum loftslagshamfara.