Grindavík
33 34 35 36 37 38 39 40 41 … 74 ›
Allt niður í tveggja tíma fyrirvari á eldgosi Nýtt hættumat fyrir Svartsengi og Grindavík var birt síðdegis og er enn ekki talið óhætt að hleypa íbúum aftur til að dvelja á heimilum sínum. Þá verður ekki hægt að opna Bláa lónið að svo stöddu en staðan verður endurmetin eftir helgina. Innlent 8.12.2023 18:36
Uppfæra hættumatskort í Grindavík Umbrotahrinunni sem hófst með landrisi við Svartsengi í október er ekki lokið samkvæmt nýrri færslu Veðurstofunnar. Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir við Svartsengi eru líkur á öðru kvikuhlaupi sem gæti endað með eldgosi. Innlent 8.12.2023 16:32
Leigutorg opnað fyrir Grindvíkinga Svokallað leigutorg, fyrir íbúa Grindavíkur, verður opnað á Ísland.is klukkan 14 í dag. Þar geta íbúar Grindavíkur skoðað leiguíbúðir, sem ætlaðar eru þeim sérstaklega, og voru skráðar eftir að óskað var eftir húsnæði til að leysa húsnæðisvanda Grindvíkinga. Innlent 8.12.2023 13:46
Myndaveisla: Grindvíkingar áttu hjartnæma stund saman Börn frá Grindavík brostu úr að eyrum á aðventugleði sem fram fór í dag þegar íbúar komu margir saman í fyrsta sinn frá því að bærinn var rýmdur. Lífið 7.12.2023 22:47
Aftur skólaskylda fyrir grindvísk börn Skólaskylda mun aftur taka gildi fyrir börn frá Grindavík þann 4. janúar. Það er eftir að undanþága var veitt vegna rýmingar bæjarins. Innlent 7.12.2023 21:16
Varnargarðar víða komnir upp í endanlega hæð Vinna við varnargarðana á Reykjanesi gengur vel. Búið er að flytja að mestu efni úr nærliggjandi námum og er nú nær eingöngu unnið með efni af svæðinu. Verklok munu skýrast á næstu tveimur vikum. Innlent 7.12.2023 17:00
Leita logandi ljósi að húsnæði fyrir hundrað grindvísk börn Um 380 Grindvíkingar, þar á meðal hundrað börn, eru ekki með öruggt húsnæði yfir jólahátíðina. Bæjarstjórinn segir allt gert til að finna húsnæði fyrir fólkið til lengri tíma. Aðventugleði Grindvíkinga fer fram síðdegis. Innlent 7.12.2023 11:20
Vill að Grindavíkurliðin spili sína heimaleiki inn í Grindavík Grindvíkingar þurftu að flýja bæinn sinn fyrir tæpum mánuði síðan vegna jarðhræringa undir bænum. Körfubolti 7.12.2023 10:31
Minni líkur á eldgosi en fleiri kvikuhlaup enn líkleg Líkur á eldgosi yfir kvikuganginum sem myndaðist 10. nóvember hafa minnkað verulega. Enn er önnur hætta áfram til staðar á umbrotasvæðinu. Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og er líklegt að atburðarásin endurtaki sig. Innlent 6.12.2023 15:10
Ákveðnar sprungur mögulega varðveittar Bæjarráð Grindavíkur ákvað á fundi sínum í gær að fresta viðgerð á ákveðnum sprungum í bænum. Það verði ákveðið síðar hvort að þeim verði leyft að vera sem einskonar minnisvarða um náttúruhamfarirnar þann 10. nóvember síðastliðinn. Innlent 6.12.2023 11:45
Dýrmætum munum Guðbergs og Kjarvalsverkum bjargað frá Grindavík Menningarlegum verðmætum, sem voru stödd í Grindavík, var bjargað úr bænum á dögunum. Á meðal þess sem var bjargað voru munir sem voru í eigu Guðbergs Bergssonar og málverk eftir Jóhannes Kjarval. Innlent 5.12.2023 18:00
Segja ásakanirnar rógburð, ósannindi og árás á mannorð Stjórnarmenn í Eflingu, sem voru viðstaddir mótmæli í höfuðstöðvum Gildis þann 30. nóvember síðastliðinn, fordæma það sem sagt er rógburður, ósannindi og árásir á mannorð Ragnars Þórs Ingólfssonar af hálfu yfirmanna skrifstofu Gildis lífeyrissjóðs. Innlent 5.12.2023 14:35
Útilokar ekki að leita réttar síns: „Hafna því alfarið að hafa beitt eða hvatt til ofbeldis“ Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist ekki átta sig á hvers vegna forsvarsmenn Gildis lífeyrissjóðs hafi kvartað formlega undan framgöngu hans í mótmælum gagnvart stjórnendum og starfsmönnum lífeyrissjóðsins. Hann útilokar ekki að leita réttar síns vegna málsins. Innlent 5.12.2023 09:55
Saka Ragnar um að hafa brotið gróflega gegn hagsmunum félagsfólks Forsvarsmenn Gildis lífeyrissjóðs hafa sent formlega kvörtun á stjórn VR vegna framgöngu og hegðunar Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, gagnvart stjórnendum og starfsmönnum lífeyrissjóðsins. Innlent 5.12.2023 06:32
Náðist ekki að láta vita af Grindvíkingum í eitt skipti Hátt í þrjúhundruð félagsmenn Eflingar fengu bókanir sínar á orlofsbústað félagsins felldar niður þegar félagið bauð Grindvíkingum bústaðina eftir að bærinn var rýmdur þann 10. nóvember síðastliðinn. Greiðlega gekk að ná í félagsfólk til að láta vita, utan eins skiptis. Innlent 5.12.2023 06:17
Hérastubbur bakari bauð upp á fimmtán sortir fyrsta daginn Bakarinn í Grindavík segir geggjað að geta opnað bakaríið sitt ásamt öllum börnunum sínum í dag. Hann var ánægður með viðskiptin þó það væri nokkuð rólegt enda bærinn ennþá hálftómur. Fyrirtæki eru þó eitt af öðru að hefja starfsemi á ný í bænum. Innlent 4.12.2023 18:31
Kvika virðist hætt að streyma í kvikuganginn Kvika virðist hætt að streyma inn í kvikuganginn á Reykjanesi. Hún safnast nú saman undir Svartsengi á hraða sem svipar til streymis Elliðaáa. Prófessor í jarðeðlisfræði segir að líkur á eldgosi hafi minnkað þrátt fyrir að ekki sé hægt að afskrifa það. Innlent 4.12.2023 12:18
Íbúar mega vera til klukkan 17 og starfsmenn fyrirtækja til 21 Íbúum og starfsmönnum fyrirtækja verður áfram hleypt inn í Grindavík í dag, eins og verið hefur. Íbúar geta verið í bænum á milli klukkan 7 og 17 og atvinnurekstur má vera í gangi til klukkan 21. Innlent 4.12.2023 09:16
Setja á fót leigutorg aðeins ætlað Grindvíkingum Stjórnvöld leita nú að leiguhúsnæði fyrir Grindvíkinga sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Eigendum fasteigna gefst nú kostur á að skrá íbúð sína til leigu á sérstöku leigutorgi sem eingöngu er ætlað Grindvíkingum. Innlent 2.12.2023 14:44
Nýr kafli hafinn á Reykjanesi Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga fer áfram minnkandi og flestir skjálftarnir undir einum að stærð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni í dag. Innlent 1.12.2023 17:39
Gáfu bílskúrsfylli af dósum til Grindavíkur Þrír ungir drengir skiluðu í gær hundrað þúsund krónum til Rauða krossins eftir mikla dósasöfnun í Laugardalnum. Móðir eins þeirra segir að bílskúr hafi verið orðinn troðfullur af dósum eftir söfnunina. Lífið 1.12.2023 14:45
Fékk sama fjölda í hádegismat og fyrir skjálftana Veitingamaður í Grindavík opnaði veitingastað sinn í fyrsta skipti eftir rýmingu bæjarins í dag. Hann fékk um 150 manns í hádegismat. Innlent 30.11.2023 22:16
Bjuggust ekki við 25 metra djúpri holu 25 metra djúp hola sem nær niður í grunnvatn kom í ljós í íbúðargötu í Grindavík í dag. Ljóst er að jarðvegur er enn á hreyfingu í bænum. Greint var frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrr í kvöld. Innlent 30.11.2023 21:48
Orkuverið í Svartsengi aftur tengt Landsnet tilkynnti rétt í þessu að orkuverið í Svartsengi sé aftur tengt inn á flutningskerfið. Svartsengislína 1, línan á milli Svartsengis og Rauðamels hafði verið tekin út fyrr í dag. Innlent 30.11.2023 20:14
Drónaflug áfram bannað við Grindavík Vegna jarðhræringa í nálægð Grindavíkur hefur áður útgefið flug- og drónabann verið framlengt til 15. desember. Fjölmiðlum verða veittar undanþágur með skilyrðum. Innlent 30.11.2023 18:35
Stefnir í yndislega aðventugleði hjá Grindvíkingum Aðventugleði Grindvíkinga verður haldin fimmtudaginn 7. desember á Ásvöllum í Hafnarfirði. Grétar Örvarsson úr Stjórninni hafði frumkvæði að veislunni. Lífið 30.11.2023 14:41
Lífeyrissjóðir þráist við Formaður verkalýðsfélags Grindvíkinga gefur lítið fyrir yfirlýsingu lífeyrissjóðanna um að unnið sé að farsælli lausn fyrir grindvíska lántakendur. Þrjú verkalýðsfélög hafa boðað til mótmæla við húsnæði samtakanna og lífeyrissjóðs Gildis í dag. Innlent 30.11.2023 13:00
Unnið að lausn hjá lífeyrissjóðum fyrir Grindvíkinga Landssamtök lífeyrissjóða segjast ekki hafa verið höfð með í ráðum þegar kynnt var heildstæð lausn frá lánastofnunum til Grindvíkinga. Unnið sé að lausn með aðkomu lífeyrissjóðanna sem sagt er að þurfi að rúmast innan ramma laga. Innlent 30.11.2023 08:52
Keyrt á varaafli í Grindavík í dag Varaaflsvélar Landsnets munu sjá Grindavík fyrir rafmagni í dag þar sem orkuverið í Svartsengi verður tekið út vegna framkvæmda við uppsetningu nýs masturs í Svartsengislínu við varnargarðana. Innlent 30.11.2023 08:09
Grindavíkurhöfn dýpri og mikill hugur í hafnarstjóranum Grindavíkurhöfn hefur dýpkað eftir jarðhræringar undanfarinna vikna. Bryggjurnar hafa sigið um tuttugu til þrjátíu sentímetra. Hafnarstjóri segir höfnina geta verið viðkvæmari fyrir flóðum en segir dýpkunina líka hafa ýmsa kosti í för með sér. Tekið verður á móti fyrsta skipi til löndunar síðan að bærinn var rýmdur á morgun. Viðskipti innlent 29.11.2023 22:27