
Hrísey

Telja brunann í Hrísey af mannavöldum
Lögreglan á Akureyri hefur nánast útilokað að bruninn sem varð í frystihúsi Hríseyjar Seafood í Hrísey á fimmtudagsmorgun hafi komið til vegna rafmagnsbilunar. Nú er unnið með tvær kenningar. Bruninn hafi verið af mannavöldum, en óljóst er hvort um slys eða íkveikju hafi verið að ræða.

Vettvangsrannsókn lokið í Hrísey
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur lokið rannsókn sinni á vettvangi stórbrunans í fiskvinnslu Hrísey Seafood í Hrísey í gær.

Fullar geymslur af fiski fuðruðu upp í stórbrunanum í Hrísey
Fiskvinnsla Hrísey Seafood í Hrísey brann til kaldra kola í stórbruna í eyjunni í morgun. Íbúar segja eldsvoðann gríðarlegt áfall en vinnsla var við það að hefjast á ný eftir hlé vegna kórónuveirufaraldursins.

Eigendur Hríseyjar Seafood í áfalli
Allir hafi þó komist heilir frá eldsvoðanum, og það skipti mestu máli.

Búnir að ná tökum á eldinum
Slökkviliðsmenn telja sig hafa náð tökum á eldinum sem kviknaði í Hrísey í morgun.

Eldurinn hefur borist í annað fiskvinnsluhús
Eldurinn sem kviknaði í frystihúsinu í Hrísey í morgun hefur borist yfir í annað fiskvinnsluhús á hafnarsvæðinu.

Vilja fá að bjóða landsmönnum út í Hrísey í sumar
Hríseyingar stefna ótrauðir á það að lokka Íslendinga út í eyjuna í sumar. Formaður Ferðamálafélags eyjunnar lofar nógu plássi og engum troðningi fyrir þá sem eru orðnir þreyttir á inniveru vetrarsins.

Vilja koma Hrísey á kortið
Stefnt er að því að blása til sóknar til þess að markaðssetja Hrísey sem áfangastað fyrir innlenda ferðamenn. Ný könnun sýnir að margir Íslendingar sjá ekki neina ástæðu til þess að heimsækja eyjuna.

Banaslysið á Árskógssandi: Skert meðvitund ökumanns sennilega ástæða þess að bílinn stoppaði ekki á bryggjunni
Ekki er hægt að fullyrða hvað hafi orðið til þess að bíll lenti í sjónum við höfnina á Árskógssandi í nóvember 2017 með þeim afleiðingum að pólsk fjölskylda fórst. Talið er sennilegt að ökumaður bílsins hafi misst meðvitund af óþekktum ástæðum, auk þess sem að bryggjukantur var lágur og varnarbúnaður ekki nægilegur til að koma í veg fyrir að keyrt væri út af bryggjusporðinum.

Fær ekki lengur áfall við komu í heimabankann
Verslunarstjóri Hríseyjarbúðarinnar veit líklega meira um íbúa eyjunnar en þeir vita um sjálfa sig. Reksturinn hefur verið erfiður undanfarin ár en bjartari tímar eru framundan að sögn verslunarstjórans.

Vilja rafmagnsferju í Hríseyjarsiglingar
Sú hugmynd hefur verið rædd á meðal Hríseyinga að ný Hríseyjarferja gangi eingöngu fyrir rafmagni. Skipstjóri núverandi ferju segir að kominn sé tími á endurnýjun á ferjunni og tvímælalaust eigi þá að horfa til rafmagnsferju.

Gjörningur í kirkjunni í Hrísey hryggir íbúana
Listamaðurinn Snorri Ásmundsson fór án leyfis í messuskrúða í Hríseyjarkirkju og framdi gjörning. Formaður sóknarnefndarinnar segir að hér eftir verði ekki hægt að treysta fólki fyrir kirkjunni.

Milljónir í bætur eftir tvö föll í röð við innsiglingu í Hrísey
Tryggingarfélag fyrrverandi rekstraraðili Hríseyjarferjunnar Sævars þarf að greiða konu 3,5 milljónir í bætur eftir að skipinu var siglt á bryggjuna í Hrísey í júlí 2015.

Vill breytingar á vegalögum
Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Flokks fólksins, hefur lagt fram frumvarp þess efnis að þjóðferjuleiðum verði bætt við skilgreiningu vegalaga á þjóðvegum.

Bryggjan á Árskógssandi stóðst ekki núgildandi reglugerð
Bryggjukanturinn á Árskógssandi var of lágur þegar þrennt lést þar í slysi 3. nóvember síðastliðinn. Kanturinn ekki í samræmi við 13 ára gamla reglugerð. Öryggisúttekt ekki verið gerð á höfninni í nokkur ár að mati sviðsstjóra.

Öryggismál hafna verða tekin til endurskoðunar í kjölfar banaslyss á Árskógssandi
Gísli Gíslason hafnarstjóri segir að taka eigi fastar á öryggismálum við hafnir landsins.

Fjölskyldan sem fórst í banaslysinu við Árskógssand var frá Póllandi
Foreldrarnir voru 36 og 32 ára og dóttir þeirra fimm ára gömul.

Bílnum ekið á eðlilegum hraða eftir bryggjunni
Bíllinn stoppaði aldrei áður en hann fór fram af bryggjunni.

Samveru- og bænastund í Hrísey
Minnast þeirra þriggja sem fórust við Árskógssand.

Fólkið sem lést var búsett í Hrísey
Foreldrar og ungt barn þeirra fórust í slysi á Árskógssandi í gær þegar bíll þeirra fór fram af hafnarbakkanum og lenti í sjónum.