
Eyja- og Miklaholtshreppur

Tveir kaflar að Látrabjargi lagfærðir fyrir almyrkvann
Almyrkvi á sólu, sem verður á jörðinni þann 12. ágúst á næsta ári, mun vara lengst á Látrabjargi. Þetta er ástæða þess að hótelrými á sunnanverðum Vestfjörðum er fyrir löngu uppselt í kringum þennan dag og þar er búist við umferðaröngþveiti.

Stór skjálfti reið yfir í Ljósufjallakerfinu
Jarðskjálfti reið yfir í Ljósufjallakerfinu upp úr fimm í dag sem var 2,9 að stærð. Að sögn náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands er þetta með stærri skjálftum sem riðið hafa yfir á svæðinu á undanförnum árum.

Hækka vöktunarstig en segja kvikuhreyfingar ekki nærri yfirborði
Veðurstofan hefur hækkað vöktunarstig á Ljósufjöllum. GPS og gervitunglagögn sýna enga mælanlega aflögun og eru engar sérstakar vísbendingar um að kvikuhreyfingar séu nærri yfirborði. Skjálfar hafa mælst á svæðinu en þeir eru á „óvenjulegri dýpt“ samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar um málið.

Efla vöktun við Ljósufjöll vegna jarðhræringa
Veðurstofan hyggst auka vöktunarstig við Ljósufjöll vegna skjálftavirkni á svæðinu undanfarnar vikur. Náttúruvársérfræðingur segir sérstakt að skjálftavirkni mælist svo lengi á jafnmiklu dýpi og raunin er nú.

Skjálftar við Grjótárvatn og Bárðarbungu
Skjálfti 2,9 að stærð varð við Grjótárvatn, norður af Borgarnesi, klukkan 5:13 í nótt. Þá varð skjálfti 4,1 að stærð við Bárðarbungu upp úr hálf fjögur í nótt.

Vill efla vöktun og innviði vegna kerfisins sem er að vakna
Sveitarstjóri í Borgarbyggð segir nauðsynlegt að efla þar vöktun og tryggja innviði í ljósi jarðhræringa í Ljósufjallakerfi síðustu daga. Borgarbyggð sé víðfemt og fjölfarið sveitarfélag, þar sem fjarskiptasambandi sé til að mynda víða ábótavant. Nýjar þrívíddarmyndir veita innsýn í dýpt og dreifingu jarðskjálfta á svæðinu síðasta árið.

„Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir útlit fyrir að þekkt eldgosasvæði á Snæfellsnesi sé komið í gang, en um þúsund ár eru liðin frá síðasta eldgosi þar. Mestar líkur séu á hraungosi ekki ósvipuðum þeim sem sést hafa á Reykjanesskaganum undanfarin ár.

Lengsti óróapúlsinn til þessa
Lengsti óróapúlsinn í Ljósufjallakerfinu mældist við Grjótarárvatn í fjöllunum ofan Mýra síðdegis í gær. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands greinir frá á Facebook-hóp sínum.

Skjálftavirkni í Mýrafjöllum stóraukist á árinu
Skjálftavirkni í Mýrafjöllum ofan Mýra í Borgarbyggð jókst margfalt þegar líða tók á árið. Virknin telst ný af nálinni en fyrir árið 2021 voru varla skráðir skjálftar á svæðinu frá upphafi mælinga árið 1991. Öflugasti jarðskjálfti ársins hérlendis var í Bárðarbungu og mældist 5,4 að stærð.

Óróahviður í Mýrafjöllum sagðar líkjast aðdraganda Reykjaneselda
Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands líkir óróahviðum í Ljósufjallakerfinu við þær sem sáust í aðdraganda eldsumbrotanna á Reykjanesskaga. Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur vekur athygli á því að mun stærri jarðskjálftahrina hafi orðið í Ljósufjöllum árið 1938 með stærsta skjálfta upp á 5,2 stig.

Eldstöðvar sem ógnað gætu Vestlendingum minna á sig
Stærsti jarðskjálfti sem mælst hefur í Ljósufjallakerfinu til þessa, upp á 3,2 stig, varð þar í gærkvöldi og fylgdi honum skjálftahrina í nótt og fram eftir morgni. Eldstöðvakerfið teygir sig í gegnum byggðir á Vesturlandi.

Skógur á Snæfellsnesi undirlagður salernispappír
Sá hvimleiði siður margra ferðamanna, að ganga örna sinna úti í náttúrunni með tilheyrandi sóðaskap, verður aldrei upprættur, að mati leiðsögumanns. Skógur á Snæfellsnesi hefur verið undirlagður salernispappír í sumar.

Saka sveitarstjórn um að taka afstöðu með tveimur heimilum
Foreldrar nokkurra barna í Eyja og Miklaholtshreppi hafa gefið út yfirlýsingu varðandi lokun Laugagerðisskóla. Foreldrarnir hafa boðist til að reka skólann og gera við húsnæðið.

Loka Laugargerðisskóla: Kostnaður við hvert barn tæpar ellefu milljónir
Ákvörðun hefur verið tekin um að loka Laugargerðisskóla, sveitaskóla í miðjum Hnappadal á sunnanverðu Snæfellsnesi. Á fundi sveitastjórnar Eyja-og Miklaholtshrepps síðastliðinn mánudag, var ákveðið að óska eftir formlegum viðræðum við sveitarfélagið Stykkishólm um að veita grunn- og leikskólaþjónustu fyrir hreppinn á næsta skólaári. Kostnaður við hvert barn í skólanum eru tæpar ellefu milljónir króna.

Grettir Sterki mættur til Stykkishólms
Dráttarbáturinn Grettir Sterki er kominn til Stykkishólms. Báturinn er í leigu hjá Vegagerðinni, Sæferðum og Stykkishólmsbæ en Sæferðir sjá um að manna bátinn.

Sóttu slasaðar konur í Hvalfirði og á Snæfellsnesi
Útkall barst til björgunarsveita á Vesturlandi á fjórða tímanum í dag vegna konu sem hafði hrasað og slasað sig á fæti í Hvalfirði. Hún hafði verið á göngu í Síldarmannagötum innst í firðinum þegar hún slasaðist og gat hún ekki gengið.

Flestir íbúar hreppsins vilja sameinast „öllu Snæfellsnesi“
Herdís Þórðardóttir hlaut flest atkvæði í óbundnum kosningum í sveitarfélaginu Eyja- og Miklaholtahreppi á sunnan- og innanverðu Snæfellsnesi á laugardaginn. Samhliða kosningum til hreppsnefndar fór fram skoðanakönnun meðal íbúa um hug þeirra til sameiningar sveitarfélaga.

Ekkert verður af sameiningu á Vesturlandi
Tillaga um sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar var felld í kosningum í dag.

Kosið um sameiningu sex sveitarfélaga
Kosið verður um sameiningu í sex sveitarfélögum í dag. Oddviti eins af smærri sveitarfélögunum segir það rökrétta þróun að lítil sveitarfélög sameinist þeim stærri um alla þjónustu við íbúa.

Perlur Íslands: Löngufjörur á Snæfellsnesi standa upp úr
„Ég hef verið allt of lélegur að ferðast innanlands í gegnum tíðina en í sumar verður heldur betur bætt úr því.“

Ákvörðun Skipulagsstofnunar um umhverfismat á Kjalarnesi felld úr gildi vegna formgalla
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar frá því í júní í fyrrasumar um að breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

„Engar vísbendingar, ekki neitt“
Lögregla og björgunarsveitir á Vesturlandi hófu skömmu eftir hádegi í dag leit að göngumanni sem ekki skilaði sé til byggða 30. desember.

Munu ekki leita að göngumanninum í dag
Ekki verður leitað að týnda göngumanninum í Heydölum á Snæfellsnesi í dag.

Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna leitarinnar á Snæfellsnesi
Leit er hafin á ný, en henni var hætt um klukkan tvö í nótt.

Leitin á Snæfellsnesi: Ákvörðun um framhald leitar tekin fyrir hádegi
Í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi frá því í nótt segir að tekin verði ákvörðun með morgninum um áframhaldandi leit.

Tæplega 300 manns nýta veðrið til að leita fram á nótt
Umfangsmikil leit stendur yfir að týndum göngumanni á Snæfellsnesi og koma tæplega 300 manns að leitinni.

Leitað að manni á Snæfellsnesi
Búið er að kalla út björgunarsveitir á Vesturlandi og víðar vegna manns sem talinn er vera týndur á fjöllum á Snæfellsnesi.

Fjölskyldufríið breyttist í óskiljanlegan harmleik
Hrint hefur verið af stað söfnun fyrir bandaríska fjölskyldu sem lenti í bílslysi á Snæfellsnesi á laugardag.

Slysið á Snæfellsvegi var banaslys
Einn hefur verið úrskurðaður látinn en ástand hinna fjögurra sem í bifreiðinni voru liggur ekki fyrir.

Sjúkrabílar kallaðir út frá fimm stöðum vegna slyssins
Fimm slösuðust og þar af tveir alvarlega þegar bíll erlendra ferðamanna fór út af Snæfellsvegi nærri bænum Gröf við Kleifá á sunnanverðu Snæfellsnesi í dag.