
Vinnumarkaður

„Orðið var við aukna umræðu um að vinnan eigi ekki að valda álagi“
„Það sem er að gerast núna og má segja að sé samfélagsleg breyting, er að atvinnulífið er að reyna að gera betur á marga vegu, þó það sé kannski mjög margt í einu,“ segir Helgi Héðinsson, mannauðsleiðtogi hjá Orkuveitunni og Veitum.

Segir rógburð að sendlar Wolt séu á „skammarlega lágum launum“
Upplýsingafulltrúi Wolt segir ekki rétt að fyrirtækið borgi starfsmönnum sínum skammarlega lág laun, eins og Vísir hafði eftir sviðsstjóra og sérfræðingi ASÍ í gær. Hann segir fyrirtækið hafa reynt að miðla málum við Alþýðusambandið án árangurs.

Fiskikóngurinn segir atvinnurekendur aumingja
Kristján Berg, sem jafnan er kallaður Fiskikóngurinn, hefur skorið upp herör gegn því sem kalla má óheiðarleika vinnuafls og meðvirkni lækna þar með.

Ekkert einkamál: Áhrif vinnustaða á geðheilsu jafn stór og makans
„Það hefur mikil áhrif á frammistöðu okkar hvort við séum við góða geðheilsu eða ekki, hvort við séum orkumikil, að blómstra, félagslega virk og vel sofin í samanburði við það að vera ósofin, kvíðin eða streitan farin að bíta í,“ segir Hilja Guðmundsdóttir hjá Mental ráðgjöf.

Sendlar Wolt á „skammarlega lélegum launum“
Sviðstjóri og sérfræðingur hjá lögfræði- og vinnumarkaðsviði ASÍ segja sendlarisann Wolt slá met í ábyrgðar- og skeytingarleysi í máli tuttugu einstaklinga sem kærðir hafa verið fyrir að starfa hjá fyrirtækinu án atvinnuréttinda. Þau segja Wolt nýta sér einstaklinga í berskjaldaðri stöðu og skora á neytendur að hugsa sig tvisvar um áður en þeir kaupa sér grunsamlega ódýra þjónustu.

Ekkert svar.....
Ég stóð á sextugu þegar ég flutti suður haustið 2020 eftir 25 ára búsetu vestur á fjörðum og hef síðan þá svarað vel á annað hundrað atvinnuauglýsingum og sótt um. Ég held að ég hafi fengið í mesta lagi 10 svör kannski 11 og tvö viðtöl.

Fyrirbærið Wolt - Að taka allan gróðann en enga ábyrgð
Nýverið komu fram fréttir af því að um 20 af okkar berskjölduðustu systkinum hafi „gerst sek“ um brot á atvinnuréttindum útlendinga með því að sendast með mat fyrir eitthvað fyrirbæri sem heitir Wolt. Viðbrögð fyrirbærisins Wolt í kjölfarið slær líklega öll fyrri met um algjört skeytingar- og ábyrgðarleysi alþjóðlegra fyrirtækja sem leynt og ljóst byggja viðskiptamódel sitt á hagnýtingu einstaklinga í berskjaldaðri stöðu.

Tæplega sextíu sagt upp hjá Landvinnslu Þorbjarnar í Grindavík
Fimmtíu og sjö starfsmönnum hjá Landvinnslu Þorbjarnar í Grindavík var sagt upp síðastliðinn fimmtudag, þrítugasta maí. Þetta staðfestir Jóhann Gunnarsson, yfirmaður landvinnslu Þorbjarnar, í samtali við fréttastofu.

441 sagt upp í sex hópuppsögnum
Sex tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í nýliðnum maímánuði. 441 starfsmanni var sagt upp í uppsögnunum sex.

„Þú varst aumingi ef þú fórst á hausinn en glæpamaður ef þú græddir“
„Ég tel að næsti áratugurinn feli í sér meiri breytingar en við höfum séð síðustu hundrað árin og internetið er þá innifalið í því,“ segir Stefán Baxter stofnandi og framkvæmdastjóri Snjallgagna.

„Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“
Lögregla rannsakar nú mál um tuttugu útlendinga sem fóru með sendingar fyrir fyrirtækið Wolt án þess að vera með atvinnuleyfi á Íslandi. Sérfræðingur hjá ASÍ segir ábyrgð fyrirtækisins mikla í málinu.

Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru
Um tuttugu manns sem afhent hafa sendingar á vegum Wolt eiga yfir höfði sér kæru fyrir að starfa án atvinnuréttinda hér á landi. Lögreglan segir ábyrgð atvinnurekenda í málum sem þessa töluverða.

„Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“
„Ég á það til dæmis til að tala svolítið mikið. Samt hef ég ekkert meiri rétt til þess að tala á kaffistofunni en starfsfólkið. Enda hef ég sagt við þau að þá verði þau bara að segja mér að þegja,“ segir dr. Sigurbjörn Árni Arngrímsson, skólastjóri Framhaldsskólans á Laugum og íþróttalýsandi.

Sögðu upp 82 starfsmönnum
Icelandair gekk frá starfslokasamningum við 82 starfsmenn í dag. Um er að ræða starfsfólk úr ýmsum deildum á skrifstofum og starfsstöðvum félagsins.

Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair
Fjölda fólks hefur verið sagt upp hjá flugfélaginu Icelandair í morgun. Samkvæmt heimildum fréttastofu ná uppsagnir til margra ólíkra deilda á skrifstofu félagsins.

„Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“
„Oft er þetta bara einn starfsmaður á vinnustaðnum sem er ekki að taka ábyrgð á starfinu sínu, stuðar fólk eða hegðar sér þannig að allir eru á tánum í kringum viðkomandi og enginn þorir að segja neitt,“ segir Sigríður Indriðadóttir, framkvæmdastjóri Saga Competence sem dæmi um aðstæður á vinnustað þar sem þögla herinn er að finna.

„Ég einfaldlega spurði kennarann: Ertu ekki að djóka?!“
Þann 11.maí síðastliðinn, hélt París Anna Bergmann, sextán ára nemandi við Menntaskólann á Akureyri erindi á ráðstefnu félagi Ungra athafnakvenna, UAK.

„Oft sömu aðilar og verða öskureiðir ef þú rangkynjar köttinn þeirra eða hundinn“
„Þetta er ekkert svo flókið og snýst ekkert um það að fólk þurfi að passa sig á því hvort það eigi að segja hún, hann eða hán. Þetta snýst meira um þá sem rangkynja meðvitað, sem oft eru sömu aðilar og verða öskureiðir ef þú rangkynjar köttinn þeirra eða hundinn,“ útskýrir Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns.

„Ég var pæja sem vildi ekki vera með ljótan gulan hatt á hausnum“
„Það er fyrirséð að um allan heim mun vanta fleira fólk í tæknigeirann í framtíðinni. Það er skortur á fólki nú þegar og fyrirséð að sá skortur er. Þannig að óháð öllu öðru, þá er það líka einfaldlega staðreynd að samfélögum vantar að fá fleiri konur til að velja tækni,“ segir Lena Dögg Dagbjartsdóttir, verkefnastjóri Vertonet.

Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu
Nýir kjarasamningar Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins voru undirritaðir í dag.

Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar
Árið 2023 fengu 115 Víetnamar dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli sérfræðiþekkingar. Um er að ræða umtalsverða fjölgun frá fyrri árum og langstærsta hópinn sem fékk dvalarleyfi á þessum forsendum.

Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun
„Á þessum degi eru fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar hvattir til að halda upp á daginn, gera sér dagamun og sýna hvað við stöndum fyrir sem fag,” segir Sigrún Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Mannauðs í tilefni Alþjóðlega Mannauðsdagsins sem haldinn er í dag.

„Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði
„Íslenska með hreim er tákn um hugrekki“, segir meðal annars í nýju appi, „Bara tala“, sem kennir íslensku á einfaldan og skemmtilegan hátt. Tvö hundruð manna fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu hefur nýtt sér úrræðið með mjög góðum árangri.

Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma
Hæstiréttur hefur viðurkennt að starfsmaður átti að fá greitt fyrir þann tíma sem hann varði í flugvélum í vinnuferð. Þar með staðfestir Hæstiréttur dóm Landsréttar.

Starfsgetumat gæti kostað líf
Við öryrkjar höfum lengi óttast það að sitjandi ríkisstjórn framkvæmi hótanir sínar um að innleiða starfsgetumat.

Starfsgetumat er kerfisbreytingin - ekki dass af báðu í mixtúru fyrir aumingja!
Þegar félags- og vinnumarkaðsráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson (eða Mummi ráðherra eins og hann er gjarnan kallaður) kynnti starfsgetumatið og kerfisbreytingarnar sem ríkisstjórnin er að leggja til eina ferðina enn ítrekaði hann að að ekki væri um að ræða breska starfsgetumatið.

Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum
Það færist sífellt í vöxt að dýr séu notuð í meðferðum með börnum til að bæta lífsgæði þeirra, ekki síst hundar. Gott dæmi um þetta er sálfræðingur í Reykjavík, sem ætlar sér að nýta sinn hund í tímum með skjólstæðingum sínum og í Fossvogsskóla mætir hundur tvisvar í viku með eiganda sínum í vinnuna.

Engin hópuppsögn í apríl
Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í liðnum aprílmánuði.

Aukið atvinnuleysi
Í marsmánuði voru 9.500 manns atvinnulausir á Íslandi samkvæmt gögnum Hagstofunnar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 4,1 prósent og jókst um 0,5 prósentustig milli mánaða.

Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar
Samningar voru undirritaðir milli SA fyrir hönd ISAVIA ohf. og samninganefnda starfsmanna Sameykis og FFR rétt í þessu og verkföllum sem boðuð höfðu verið á Keflavíkurflugvelli aflýst.