Seðlabankinn
32 33 34 35 36 37 38 39 40 … 48 ›
Evrópugerðir gera eftirlitinu kleift að sekta einstaklinga um 800 milljónir Innleiðing á Evrópugerðunum CRR og CRD gefur fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands víðtækari heimildir til að hafa eftirlit með fjármálafyrirtækjum. Eftirlitsstofnunin fær meðal annars heimild til að leggja 800 milljóna króna stjórnvaldssekt á einstaklinga sem brjóta gegn lögunum. Innherji 28.12.2021 18:00
Ár innfluttrar verðbólgu Eins og allir vita segir sagan okkur að verðbólga á Íslandi hefur jafnan verið hærri en í nágrannalöndum okkar. Svo ekki sé nú minnst á ástandið á sumum tímabilum síðustu aldar þegar verðbólgan var tugum prósenta hærri hér á landi en í helstu nágrannalöndum. Umræðan 25.12.2021 10:01
Aðeins fimm prósent nýrra íbúðalána á breytilegum vöxtum Heimilin hafa nánast alfarið sagt skilið við að taka íbúðalán á breytilegum vöxtum samtímis aukinni verðbólgu og væntingum um enn frekari vaxtahækkanir Seðlabankans á komandi misserum. Innherji 22.12.2021 11:06
Már sérstakur ráðgjafi fjármálaráðherra Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, hefur ekki setið aðgerðalaus frá því að hann lét af embætti haustið 2019. Hann hefur fengist við skýrsluskrif og greiningvinnu af ýmsum toga en athygli vekur þó að flest verkefnin sem Már hefur tekið sér fyrir hendur koma frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Klinkið 21.12.2021 18:06
Fyrrverandi seðlabankastjóri skoðar leiðir til að auka svigrúm lífeyrissjóða til fjárfestinga erlendis Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, fer nú fyrir vinnu á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem miðar að því að greina hvaða leiðir séu helst færar til að rýmka heimildir íslensku lífeyrissjóðanna til fjárfestinga erlendis eins og sumir þeirra hafa kallað mjög eftir. Innherji 20.12.2021 15:29
Bjarni segir auðvelt að koma í veg fyrir hagsmunaárekstrana sem Seðlabankinn varar við Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir auðvelt að koma í veg fyrir hagsmunaárekstrana sem Seðlabanki Íslands telur að geti orðið þegar æðstu stjórnendur ráðuneytisins sitja í stjórnum Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) og Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda. Hann bendir á að áratugalöng hefð sé fyrir þessu fyrirkomulagi. Innherji 14.12.2021 15:40
Ráðuneytisstjóri sagði sig úr stjórn LSR eftir þrýsting frá Seðlabankanum Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, sagði sig úr stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) fyrr á árinu eftir að Seðlabanki Íslands hafði gert margvíslegar athugasemdir við stjórnarsetu starfsmanna ráðuneytisins, einkum æðstu stjórnenda þess, í tveimur lífeyrissjóðum. Innherji 14.12.2021 07:01
Lagt til að Ásgeir taki við formennsku fjármálaeftirlitsnefndar af Unni Seðlabankastjóri ætti að gegna formennsku í fjármálaeftirlitsnefnd í stað varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits að mati höfunda nýrrar skýrslu sem fjallar um reynsluna af starfi peningastefnunefndar, fjármálastöðugleikanefndar og fjármálaeftirlitsnefndar. Innherji 13.12.2021 13:18
Sakaði seðlabankastjóra um ritstuld en fær nú sjálfur ásakanir af sama meiði Rithöfundurinn Bergsveinn Birgisson, sem í vikunni sakaði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra um ritstuld, hefur nú sjálfur fengið á sig ásakanir af sama meiði. Innlent 11.12.2021 10:47
Útilokar ekki málsókn vegna meints ritstuldar Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðamaður, segist munu bíða niðurstöðu siðanefndar Háskóla Íslands áður en hann tekur ákvörðun um mögulega málshöfðun á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, sem hann hefur sakað um ritstuld. Innlent 10.12.2021 07:55
Þjóðin beri aldrei aftur skaða af falli viðskiptabanka Seðlabankinn hefur sett reglur sem eiga að tryggja enn frekar að þjóðin beri aldrei aftur kostnað af falli viðskiptabanka. Þeir eigi að fjármagna sig með innlánum og forðast áhættusækni í eigin lántökum. Innlent 8.12.2021 20:00
Seðlabankastjóri vísar ásökunum um ritstuld á bug Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sendi nýverið frá sér bók þar sem hann fjallar um landnám Íslands. Eyjan hans Ingólfs heitir bókin sú en Bergsveinn Birgisson rithöfundur og fræðimaður segir Ásgeir fara ránshendi um bók sína Leitin að svarta víkingnum án þess að geta heimilda. Innlent 8.12.2021 18:24
Sakar seðlabankastjóra um ritstuld Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og fræðimaður, telur engan vafa á leika að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, hafi í veigamiklum atriðum stuðst við bók hans Leitina að svarta víkingnum í bók sinni Eyjan hans Ingólfs. Án þess að geta heimilda. Það heitir rit- og hugmyndastuldur. Innlent 8.12.2021 15:52
Seðlabankastjóri segir bönkunum að leggja peninga til hliðar Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði á kynningarfundi fjármálastöðugleikanefndar í morgun að það væri vel við hæfi að bankarnir myndu tafarlaust byrja að leggja peninga til hliðar. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans hefðu hjálpað bönkunum að draga úr útlánatöpum. Innherji 8.12.2021 10:37
Fjármálastöðugleikanefnd segir kerfisáhættu halda áfram að vaxa Kerfisáhætta heldur áfram að vaxa vegna hækkandi íbúðaverðs og aukningu í skuldum heimila. Þetta kemur fram í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar sem segir jafnframt að staða fjármálastöðugleika sé góð þegar á heildina er litið en óvissa vegna faraldursins sé enn nokkur. Innherji 8.12.2021 09:20
Bein útsending: Kynning á yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar, og Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, munu gera grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar sem kynnt var í morgun. Viðskipti innlent 8.12.2021 09:20
Seðlabankinn ítrekar mikilvægi innlendrar greiðslumiðlunar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hefur ítrekað að brýnt sé að áfram verði unnið að innleiðingu á óháðri innlendri smágreiðslulausn án tengingar við alþjóðlega kortainnviði. Þá er ítrekað að hugað verði að rekstraröryggi greiðslukerfa og minnir rekstraraðila á mikilvægi þess að tryggja rekstrarsamfellu. Viðskipti innlent 8.12.2021 08:47
Strangari reglur hjá Seðlabankanum en ráðuneytinu í útboði Íslandsbanka Engum starfsmanni Seðlabanka Íslands var heimilt að taka þátt í hlutafjárútboði Íslandsbanka en langflestum starfsmönnum fjármála- og efnahagsráðuneytisins var heimilt að kaupa bréf í útboði bankans, að því gefnu að þær byggju ekki yfir innherjaupplýsingum. Þetta kemur fram í svari stofnananna við fyrirspurnum Innherja. Innherji 6.12.2021 10:01
Rætt um að ganga enn lengra en allir sammála um stýrivaxtahækkunina Allir fimm nefndarmenn í peningastefnunefnd Seðlabankans voru sammála tillögu Seðlabankastjóra um að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig í nóvember. Rætt var þó um að hækka þá enn meira. Viðskipti innlent 2.12.2021 07:37
Fimmtíu milljarða viðsnúningur í viðskiptajöfnuði 13,1 milljarða króna afgangur var á viðskiptajöfnuði við útlönd á þriðja ársfjórðungi. Það er 50 milljarða króna betri niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 12,5 milljarða króna betri en á sama fjórðungi árið 2020. 31,1 milljarða króna halli var á viðskiptajöfnuði við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2021. Viðskipti innlent 1.12.2021 11:30
Ekki augljóst að fjárlögin muni styðja við lágt vaxtastig Það er ekki augljóst að rekstur ríkissjóðs á næstunni, eins og hann birtist í nýju fjárlagafrumvarpi sem Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í gær, muni leggjast sérstaklega á sveif með að styðja við peningastefnu Seðlabanka Íslands í því skyni að viðhalda lægri vöxtum en ella. Innherji 1.12.2021 07:01
Mál málanna Verðbólga er mál málanna þessa dagana en eftir nokkur ár af verðstöðugleika hér á landi er hún mætt aftur með töluverðum látum. Tólf mánaða verðbólga er búin að vera í kringum 4,5% allt árið og hefur ekki verið hærri frá árinu 2013. Uppsöfnuð verðbólga frá upphafi árs 2020 er að nálgast 10%. Umræðan 29.11.2021 10:01
Fimm milljarða króna innflæði í hlutabréfasjóði og blandaða í október Nettó innflæði í hlutabréfasjóði og blandaða sjóði nam tæplega 5 milljörðum króna í október. Ef litið er aftur til áramóta hefur nettó innflæði í sjóði af þessari gerð numið ríflega 50 milljörðum. Þetta kemur fram í nýjum tölum Seðlabanka Íslands. Innherji 26.11.2021 19:49
Fórnarlömb verðbólgunnar Þótt vaxandi verðbólga og viðsnúningur í vaxtavæntingum um heim allan eigi sér margar orsakir, er sú stærsta einfaldlega sú að viðspyrnan eftir að mestu takmörkunum vegna heimsfaraldursins var aflétt, hefur verið mun kröftugri en flestir reiknuðu með. Umræðan 26.11.2021 10:00
Hægt hefur á vexti peningamagns Hægt hefur á vexti peningamagns það sem af er ári eftir kraftmikinn vöxt á seinni hluta síðasta árs. Þetta kom fram í nóvemberhefti Peningamála, sem er gefið út af Seðlabankanum. Innherji 22.11.2021 20:00
Ásókn í breytilega vexti hefur ekki verið minni síðan í byrjun árs 2019 Í október voru 85 prósent nýrra íbúðalána til heimila með föstum vöxtum en einungis 15 prósent með breytilegum vöxtum. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Seðlabanka Íslands um útlán í bankakerfinu. Veiting íbúðalána með breytilegum vöxtum hefur ekki verið minni frá því í janúar 2019. Innherji 22.11.2021 16:07
Seðlabankastjóri: Mikilvægt að lífeyrissjóðir geti fjárfest meira erlendis Ekki er útlit fyrir að breytingar verði gerðar strax í byrjun næsta árs til hækkunar á því 50 prósenta hámarki sem erlendar fjárfestingar lífeyrissjóðanna mega vera sem hlutfall af heildareignum þeirra. Hlutfall erlendra eigna tveggja stærstu lífeyrissjóða landsins – LSR og Lífeyrissjóður verslunarmanna – var um mitt þetta ár komið í liðlega 42 prósent. Innherji 18.11.2021 20:31
SA vill lækka eða fresta samningsbundnum launahækkunum Samtök atvinnulífsins vilja lækka eða fresta samningsbundum launahækkunum á næsta ári til að forðast frekari vaxahækkanir og saka verkalýðshreyfinguna um ábyrgðarleysi. Forseti ASÍ segir launafólk hins vegar rétt núna vera að ná þeim kaupmætti sem glataðist í hruninu. Innlent 18.11.2021 20:00
Forseti ASÍ og framkvæmdastjóri SA takast á í Pallborðinu Seðlabankastjóri varpaði sprengju inn í stöðuna á vinnumarkaði í gær þegar hann sagði óheppilegt að launafólk fengi greiddan hagvaxtarauka ofan á laun sín næsta vor. Drífa Snædal forseti Alþýðusambandsins og Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins mæta í beina útsendingu í Pallborðinu á Vísi í dag til að ræða vaxandi óróa í samskiptum aðila vinnumarkaðarins. Innlent 18.11.2021 11:48
Seðlabankastjóri: „SA sömdu klárlega af sér" „Ég er hissa að séu stórar yfirlýsingar um að himinn og jörð séu að farast þegar við erum fyrirsjáanlega að hækka vexti núna. Vextir eru í 2 prósentum. Þeir voru í 4,5 prósentum þegar Lífskjarasamningurinn var gerður. Mér finnst svona yfirlýsingar úr korti við alla skynsemi og úr takti við raunveruleikann,” sagði Ásgeir Jónsson, Seðlabankastjóri á fundi Viðskiptaráðs Íslands sem fram fór í morgun og bar yfirskriftina Er vinnumarkaðurinn týndi hlekkurinn? Innherji 18.11.2021 10:09