Sænski boltinn

Óli Valur mögulega á leið til Svíþjóðar
Sænska úrvalsdeildarfélagið Sirius hefur mikinn áhuga á Óla Val Ómarssyni, hægri bakverði Stjörnunnar og einni skærustu stjörnu Bestu deildar karla í fótbolta.

Aron hafði betur gegn Ara Frey
Aron Bjarnason og félagar í Sirius unnu 1-0 útisigur á Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Sveinn Aron Guðjohnsen spilaði rúmlega stundarfjórðung í 1-1 jafntefli Häcken og Elfsborg.

Jón Guðni enn meiddur og spilaði ekki þegar Hammarby tapaði
Vonast er til að Jón Guðni Fjóluson fari að snúa til baka eftir að hafa slitið krossband á síðasta ári en hann náði ekki að vera með í dag. Hammaarby fór í heimsókn til Djurgården og laut í gras 1-0.

Davíð lék allan leikinn er Kalmar gerði jafntefli gegn botnliðinu
Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn í vinstri bakverði hjá Kalmar er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn botnliði Helsingborg.

Fimm mörk og tvö rauð er Alex og félagar töpuðu
Alex Þór Hauksson og félagar hans í sænska liðinu Öster máttu þola 2-3 tap er liðið tók á móti Skovde í sænsku B-deildinni í fótbolta í dag.

Malmö tapaði óvænt gegn Sundsvall: Mæta Víkingum næst
Sænska meistaraliðið Malmö tapaði nokkuð óvænt gegn Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Liðið mætir Íslands- og bikarmeisturum Víkings í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í næstu viku.

Lærisveinar Brynjars Björns enn á botninum eftir þriðja jafnteflið í röð
Brynjar Björn Gunnarsson og lærisveinar hans í Örgryte eru enn á botni sænsku B-deildarinnar í fótbolta eftir 2-2 jafntefli gegn Jönköping í kvöld.

Alfreð gæti farið aftur til Svíþjóðar
Alfreð Finnbogason gæti verið á leiðinni aftur til Svíþjóðar. Hammarby hefur boðið honum samning.

Sveinn Aron með frábæra innkomu í stórsigri Elfsborg
Það var nóg um að vera í sænsku úrvalsdeild karla í fótbolta í kvöld. Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði í stórsigri Elfsborg, Davíð Kristján Ólafsson spilaði allan leikinn í sigri Kalmar og Aron Bjarnason spilaði allan leikinn í tapi Sirius.

Häcken henti frá sér tveggja marka forystu
Tveir Íslendingar voru í eldlínunni í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Valgeir Lunddal Friðriksson var í byrjunarliði BK Häcken og Ari Freyr Skúlason byrjaði hjá Norrköping.

Arnór orðaður við endurkomu til Norrköping
Staðarmiðlar í Norrköping halda því fram að landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson gæti verið að snúa aftur í raðir félagsins. Arnór gerði gott mót með Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni áður en hann færði sig um set til Rússlands.

Segir Alfreð staddan í Svíþjóð á leið í viðræður
Sænski miðillinn Sport Expressen greinir frá því að Alfreð Finnbogaon sé staddur í Svíþjóð þar sem hann sé á leið í viðræður við Hammarby.

Berglind í byrjunarliðinu í sigri en Hallbera ekki í hóp
Berglin Rós Ágústsdóttir var í byrjunarliði Örebro í 1-2 útisigri liðsins á Vittsjo í sænsku úrvalsdeildinni en á sama tíma var Hallbera Guðný Gísladóttir ekki í leikmannahóp Kalmar sem tapaði á heimavelli gegn Djurgarden, 0-1.

Guðrún og stöllur styrkja stöðu sína á toppnum | Kristianstad vann Íslendingaslaginn
Guðrún Arnarsdóttir og liðsfélgar hennar í Rosengård tóku botnlið AIK í kennslustund með 0-6 stórsigri í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Á sama tíma vann Kristianstad Íslendingaslagin gegn Piteå með einu marki gegn engu.

Sjáðu Hlín svara hraustlega fyrir sig í nótt eftir EM-valið
Hlín Eiríksdóttir er ein af þeim sem voru allra næst því að ná sæti í EM-hópi Íslands sem tilkynntur var síðasta laugardag en urðu að bíta í það súra epli að fá ekki sæti. Hún sendi landsliðsþjálfaranum skýr skilaboð með frammistöðu sinni í nótt.

Hlín eftir þrennuna í miðnætursólinni: „Frábær tilfinning í alla staði“
Hlín Eiríksdóttir reyndist hetja Piteå er liðið lagði Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í miðnætursólinni í Svíþjóð í gærkvöld. Hlín skoraði öll þrjú mörk Piteå í 3-0 sigri.

Hlín skoraði öll þrjú í öruggum sigri
Berglind Rós Ágústsdóttir og Hlín Eiríksdóttir voru báðar í byrjunarliðum sinna liða í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Hlín var svo sannarlega drifkrafturinn í sigri Piteå á Djurgarden en hún skoraði þrennu í kvöld.

Ekki missa af Hlín og stöllum hennar í miðnætursólinni í Svíþjóð
Hlín Eiríksdóttir og stöllur hennar í Piteå mæta Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 21.00 að íslenskum tíma og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3 en í Svíþjóð verður klukkan 23.00 er flautað verður til leiks.

Guðrún og stöllur enn á toppnum eftir stórsigur
Fimm leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og voru Íslendingar í eldlínunni í fjórum þeirra. Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård unnu 5-2 stórsigur gegn Umeå og eru enn taplausar á toppi deildarinnar.

Elísabet áfram á sigurbraut
Íslendingalið Kristianstad vann sinn fjórða leik í röð í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Diljá á skotskónum í stórsigri Hacken
Íslendingalið Hacken gerði góða ferð til Stokkhólms og vann stórsigur á Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Guðrún Arnardóttir skoraði mark í uppgjöri toppliðanna í Svíþjóð
Guðrún Arnardóttir og stöllur í Rosengård sóttu afar öflugan 3-4 sigur á útivelli gegn Linköping í uppgjöri liðanna í 1. og 2. sæti í sænsku úrvalsdeildinni.

Mark Hlínar dugði ekki til í dramatískum Íslendingaslag
Tveir leikir fóru fram í úrvalsdeild kvenna í Svíþjóð í kvöld er 11. umferð deildarinnar kláraðist. Þrír Íslendingar komu við sögu og komst ein á blað.

Ari Freyr lagði upp mark í jafntefli
Ari Freyr Skúlason lagði upp fyrra mark Norrköping þegar liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Elfsborg í sænsku efstu deildinni í fótbolta karla í dag.

Agla María missti af tveimur stigum í toppbaráttunni
Agla María Albertsdóttir, landsliðskona í fótbolta, kom inná sem varamaður þegar lið hennar Häcken gerði markalaust jafntefli við Djurgärden þegar liðin mættust í sænsku efstu deildinni í dag.

Valgeir og félagar á toppnum eftir ótrúlegan sigur í Íslendingaslag
Valgeir Lunddal Friðriksson og félagar hans í Häcken eru á toppnum í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir 4-3 sigur gegn Aroni Bjarnasyni og félögum hans í Sirius. Heimamenn í Häcken léku manni færri stóran hluta síðari hálfleiks, en náðu að kreista fram sigur.

Berglind lék allan leikinn er Örebro komst aftur á sigurbraut
Berglind Rós Ágústsdóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar í liði Örebro er liðið komst aftur á sigurbraut með 1-0 sigri gegn Eskilstuna í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Guðrún og stöllur hennar sænskir bikarmeistarar
Tveir Íslendingar fögnuðu þegar leikið var til úrslita í sænsku bikarkeppnunum í fótbolta.

„Beta er drottning í Kristianstad“
Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í fótbolta, segir það afar dýrmætt að hafa fengið að spila eitt tímabil undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur hjá Kristianstad. Hún talar afar vel um Elísabetu sem hefur stýrt Kristianstad frá 2009.

Hlín á skotskónum og Elísabet vann stórsigur
Fjöldi íslenskra knattspyrnukvenna var í eldlínunni í sænska og norska boltanum í dag.