Innlendar

Sigmundur Einar Másson gæti náð langt
Úlfar Jónsson hrósar Sigmundi fyrir gott hugarfar fyrir golfíþróttina. Hann telur að Sigmundur geti náð langt í íþróttinni, ekki síst vegna góðrar æfingaaðstöðu í Bandaríkjunum.

Skipt um dómara í miðjum leik
Jóhannes Valgeirsson gat ekki haldið áfram dómgæslu í leiknum vegna þeirra meiðsla sem hann varð fyrir í Grindavík fyrir skömmu. Garðar Örn Hinriksson hefur tekið við flautunni en hann dæmdi leik ÍA og FH í gær. Staðan í leiknum er 1-0 fyrir KR, Björgólfur Takefusa skoraði úr vítaspyrnu á 51. mínútu.

Fram í riðil með Gummersbach
Í morgun var dregið í riðla fyrir Meistaradeild Evrópu í handbolta þar sem Íslandsmeistarar Fram fara beint inn í riðlakeppnina. Útkoman úr drættinum var afar athyglisverð fyrir Fram sem dróst í riðil með Gummersbach sem Alfreð Gíslason mun stýra.

Dennis Siim aftur til FH
Íslandsmeistarar FH í knattspyrnu hafa á ný fengið til sín danska miðjumanninn Dennis Siim. Hann á að fylla í skarð Davíðs Þórs Viðarssonar sem leikur ekki meira með liðinu á árinu vegna meiðsla.
Strandhandbolti í Nauthólsvík
Íslandsmótið í strandhandbolta fór fram í Nauthóslvík í dag og var mikið um dýrðir þar. Lið úr Íslandsmótinu tóku þar þátt og nota mótið m.a. sem lið í undirbúningi sínum fyrir veturinn.

Indriði Sigurðsson til liðs við KR
Indriði Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er genginn til liðs við KR eftir því sem krreykjavik.is greinir frá. Indriði sem leikið hefur með belgíska liðinu Genk er laus allra mála gerði opinn áhugamannasamning við KR og er því heimilt að fara frá félaginu, bjóðist honum atvinnumannasamingur erlendis. KR vonast til að Indriði verði gjaldgengur á mánudag þegar KR mætir Fylki í 12. umferð Landsbankadeildarinnar.

Birgir Leifur áfram í Wales
Birgir Leifur Hafþórsson lék ágætlega á öðrum keppnisdegi áskorendamótsins í Wales í dag og lauk keppni á þremur höggum undir pari. Birgir lék á tveimur höggum yfir pari í gær, en komst naumlega í gegn um niðurskurðinn með góðum leik sínum í dag.

Breiðablik lagði Víking
Einn leikur fór fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Breiðablik vann góðan sigur á Víkingi í Kópavogi 1-0. Það var markahrókurinn Marel Baldvinsson sem skoraði sigurmarkið strax á 8. mínútu leiksins. Blikar, sem hafa verið í fallbaráttu framan af sumri, erum með sigrinum skyndilega komnir í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig eftir 12 leiki. Víkingur er í sjötta sætinu með 15 stig.

Valur úr leik
Valur er úr leik í forkeppni Evrópukeppni félagsliða eftir að liðið gerði markalaust jafntefli á heimavelli við danska liðið Bröndby í kvöld. Danska liðið vann fyrri leikinn 3-1 og er því komið áfram í keppninni.

Skagamenn úr leik þrátt fyrir sigur
Skagamenn eru úr leik í forkeppni Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu þrátt fyrir 2-1 sigur á danska liðinu Randers á heimavelli sínum á Skipaskaga í kvöld. Hjörtur Hjartarson kom ÍA yfir í fyrri hálfleik, en Danirnir jöfnuðu skömmu síðar. Það var svo Bjarni Guðjónsson sem tryggði ÍA sigurinn með marki úr víti þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.
Jafnt í hálfleik hjá Val og Bröndby
Ekkert mark hefur litið dagsins ljós í leik Vals og Bröndby í forkeppni Evrópukeppni félagsliða þegar flautað hefur verið til leikhlés. Valsmenn hafa verið sterkari aðilinn á vellinum en hafa þó ekki skapað sér mörg marktækifæri. Danska liðið vann fyrri leikinn 3-1 og því er erfitt verkefni framundan hjá Hlíðarendapiltum.
Jafnt í hálfleik á Skaganum
Staðan í leik Skagamanna og danska liðsins Randers í forkeppni evrópukeppni félagsliða er enn jöfn 1-1 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Hjörtur Hjartarson skoraði mark ÍA á 27. mínútu. Gestirnir hafa verið sterkari í fyrri hálfleiknum og fátt í stöðunni sem bendir til þess að heimamenn komst áfram í keppninni.
Tvö mörk komin á Skaganum
Staðan í leik Skagamanna og danska liðsins Randers er orðin 1-1 eftir hálftíma leik. Hjörtur Hjartarson kom heimamönnum yfir á 28. mínútu, en gestirnir jöfnuðu aðeins tveimur mínútum síðar. Danska liðið vann fyrri leikinn 1-0 ytra.

Birgir Leifur á tveimur yfir í Wales
Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson var nokkuð frá sínu besta á fyrsta hringnum á áskorendamótinu í Wales og lauk hringnum á 73 höggum eða tveimur höggum yfir pari. Efsti maður á mótinu er að leika á sjö undir pari og er Birgir því nokkuð langt frá efstu mönnum.
Ísland í næst neðsta sæti
Íslenska U-18 landsliðið í körfubolta vann í dag sigur á Úkraínu 100-88 í lokaleik sínum í A-deildinni á EM sem fram fer í Grikklandi. Íslenska liðið hafnaði því í 15. sæti af 16 á mótinu og er þegar fallið í B-deild. Brynjar Björnsson var stigahæstur í íslenska liðinu í dag með 30 stig.

Treysti strákunum til að klára þetta
Davíð Þór Viðarsson, leikmaður FH, varð fyrir því óláni að slíta hásin í leiknum við Legia Varsjá í forkeppni meistaradeildarinnar í gær og segist ekki geta spilað fótbolta fyrr en í fyrsta lagi eftir sex mánuði. Davíð fer í aðgerð í dag.

Vill ekki tjá sig
Guðmundur Viðar Mete, leikmaður Keflavíkur, er ekki tilbúinn að svara þeim alvarlegu ásökunum sem Hjörtur Hjartarson, leikmaður ÍA, bar hann í Kastljósinu á þriðjudag. Hjörtur Hjartarson viðurkenndi í þættinum að hafa kallað Guðmund "Tyrkjadjöful" en sagði jafnframt að Guðmundur væri ekki saklaus enda hefði hann ögrað sér, hótað sér lífláti sem og líkamsmeiðingum. Hjörtur segir Guðmund einnig hafa látið ófögur orð falla um móður sína.

Friðrik aðstoðar Sigurð
Friðrik Ingi Rúnarsson hefur verið ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari íslenska A-landsliðsins í körfuknattleik og mun vinna með Sigurði Ingimundarsyni þjálfara í framtíðinni. Friðrik er öllum hnútum kunnugur hjá landsliðinu og hefur áður verið aðalþjálfari þess.
Tap fyrir Portúgal
Íslenska stúlknalandsliðið í körfuknattleik tapaði í dag naumlega 60-58 fyrir portúgölum í B-deildinni á EM sem fram fer á Ítalíu. Helena Sverrisdóttir úr Haukum var stigahæst í íslenska liðinu með 19 stig.
Ísland tapaði fyrir Þjóðverjum
Íslenska piltalandsliðið í körfubolta tapaði í dag 92-63 fyrir því þýska á EM í körfubolta sem fram fer í Grikklandi. Brynjar Björnsson var stigahæstur í íslenska liðinu í dag með 22 stig. Úrslitin þýða að U-18 ára lið Íslands er fallið niður í B-deildina.

Fékk gæsahúð þegar ég heyrði afmælissönginn
Margrét Lára Viðarsdóttir hélt upp á tvítugsafmælið sitt með stæl í gærkvöldi þegar hún skoraði hvorki meira né minna en sjö mörk þegar Valur burstaði Fylki í Landsbankadeild kvenna. Hópur stuðningsmanna Valsliðsins söng afmælissönginn fyrir hana eftir leikinn, en Margrét skorar tæp þrjú mörk að meðaltali í leik í sumar sem er tölfræði sem hvaða handboltamaður gæti verið stoltur af.

Margrét Lára skoraði sjö mörk á afmælisdaginn
Valskonur halda uppteknum hætti í toppbaráttunni í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu og í kvöld valtaði liðið yfir Fylki 14-0 á Valbjarnarvelli. Margrét Lára Viðarsdóttir hélt upp á tvítugsafmælið sitt með því að skora 7 mörk í leiknum. Þrír aðrir leikir fóru fram í deildinni í kvöld.

Þáttur um Essomótið á Sýn í kvöld
Í kvöld klukkan 20:10 verður á dagskrá Sýnar sérstakur heimildarþáttur í umsjón Þorsteins Gunnarssonar íþróttafréttamanns um Essomótið í knattspyrnu sem fram fór í 20. sinn á dögunum. Mótið var venju samkvæmt haldið á Akureyri og verður stemmingunni á vellinum sem og í kring um mótið gerð góð skil í þætti kvöldsins.

Bjarnólfur í tveggja leikja bann
Nokkrir leikmenn úr efstu deild karla í knattspyrnu voru dæmdir í leikbann í dag þegar aganefnd KSÍ kom saman og fundaði. Bjarnólfur Lárusson, leikmaður KR, var dæmdur í tveggja leikja bann eftir að vera rekinn af velli gegn fyrrum félögum sínum í ÍBV í Visa-bikarnum í gær.

Sigur á Englendingum
Íslenska stúlknalandsliðið vann í dag sigur á Englendingum 96-79 í B-deildinni á Evrópumóti U-18 ára landsliða sem fram fer á Ítalíu. Helena Sverrisdóttir og María Ben Erlingsdóttir skoruðu 20 stig hvor og Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 17 stig.

Birkir Már framlengir við Val
Knattspyrnudeild Vals hefur framlengt samning sinn við varnarmanninn Birkir Má Sævarsson til ársins 2010. Birkir er uppalinn Valsmaður og hefur spilað ágætlega með liðinu í sumar. Þá var Birkir fyrir nokkru valinn í íslenska U21 árs landsliðshópinn. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals í dag.

Haukastúlkur til Ungverjalands
Í morgun var dregið í Evrópukeppni bikarhafa í kvennaflokki og þá varð ljóst að bikarmeistarar Hauka í kvennaflokki mæta ungverska liðinu Cornexi-Alcoa-HSB. Haukar spila fyrri leik sinn á heimavelli um miðjan október og útileikinn viku síðar.

KR-ingar í undanúrslit
KR-ingar eru komnir í undanúrslitin í Visa-bikarnum eftir sigur á ÍBV í vítakeppni í Frostaskjóli í kvöld. Bjarni Aðalsteinsson kom ÍBV yfir í fyrri hálfleik, en Björgólfur Takefusa jafnaði fyrir KR í þeim síðari. Staðan var jöfn 1-1 að lokinni framlengingu og það var markvörðurinn Kristján Finnbogason sem var hetja sinna manna og tryggði þeim 4-2 sigur.

Þáttur um Esso-mótið á Sýn annað kvöld
Annað kvöld verður á dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar sérstakur þáttur helgaður Esso-mótinu í knattspyrnu sem fram fór á Akureyri á dögunum, en þetta var í 20. sinn sem mótið er haldið. Þorsteinn Gunnarsson íþróttafréttamaður var á svæðinu og tók fjölda viðtala við keppendur og áhorfendur á mótinu. Þátturinn hefst klukkan 20:10 annað kvöld.

Keflvíkingar lögðu Skagamenn í frábærum leik
Keflavík, Víkingur og Þróttur tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Visa-bikars karla í knattspyrnu. Keflvíkingar lögðu Skagamenn 4-3 í frábærum leik á Skaganum, Víkingur lagði Val 2-1 á útivelli og Þróttarar gerðu góða ferð norður á Akureyri og burstuðu KA 5-1. Á morgun mætast svo KR og ÍBV um síðasta sætið í undanúrslitunum.