Lög og regla
53 54 55 56 57 58 59 60 61 … 120 ›
Stálu bíl og kveiktu í honum Þrjú ungmenni, tveir 17 ára gamlir piltar og 15 ára gömul stúlka, voru hlaupin uppi af lögreglu í Heiðmörk í gærmorgun. Þau voru grunuð um að hafa skemmt fjóra til fimm bíla í Seláshverfi í Reykjavík um nóttina, ásamt því að hafa stolið einum bíl sem þau óku upp í Heiðmörk þar sem þau kveiktu í honum. Innlent 13.10.2005 19:23
Sumarlöng leit að klámi í tölvum Lögreglan í Reykjavík vinnur enn að rannsókn tveggja mála tengdum misnotkun barna og barnaklámi sem upp komu um miðjan mánuðinn. Annar maðurinn er grunaður um að hafa misnotað og myndaðp fjögur stúlkubörn, en hinn var handtekinn og leitað hjá honum í alþjóðlegum aðgerðum Europol. Innlent 13.10.2005 19:23
36 rán að meðaltali á ári Að meðaltali eru framin 36 rán á Íslandi á ári. Flest rán voru framin árið 1999 en fæst árið 2002. Þetta kemur fram í úttekt sem nemi í félagsfræði við Háskóla Íslands vann fyrir ríkislögreglustjórann. Innlent 13.10.2005 19:23
Hass og hraðakstur Upp komu tvö fíkniefnamál um helgina á Sauðárkróki. Lögregla fann við reglubundið eftirlit með ökumönnum, annars vegar áhöld til neyslu efna og hins vegar lítilræði af tóbaksblönduðu hassi. Innlent 13.10.2005 19:23
Borgin sýknuð af launakröfum Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Reykjavíkurborg af kröfum heimilisfræðikennara um vangoldin laun upp á tæpar 700 þúsund krónur. Konan vísaði til samþykktar borgarráðs frá því í júní árið 1981 um að greiða bæri heimilisfræðikennurum tvær klukkustundir á viku fyrir matarinnkaup. Innlent 13.10.2005 19:23
Gill sleppt á laugardag Hæstiréttur fjallar ekki um kæru Pauls Gills vegna gæsluvarðhalds sem hann var úrskurðaður í því að honum var sleppt á laugardag. Innlent 13.10.2005 19:23
Fimm bíla árekstur Fimm bíla árekstur varð um hálffjögurleytið í gær skammt sunnan við Smáralind, norðan við gatnamót Arnarnesvegar og Reykjanesbrautar Innlent 13.10.2005 19:23
Slagsmál eftir dansleik á Súðavík Lögreglan á Ísafirði þurfti tvívegis að stöðva slagsmál eftir dansleik sem haldinn var á Súðavík í gærkvöld. Mikill fjöldi tók þátt í slagsmálum sem brutust fyrst út klukkutíma eftir dansleikinn og þegar lögreglan hélt að hún hefði róað lýðinn, hlupu menn aftur saman og héldu fjörinu áfram. Innlent 13.10.2005 19:23
Eldur í Hafnarfirði Eldur kviknaði í bátaskýli við Ásbraut í Hafnarfirði laust fyrir klukkan hálf átta í gærkvöldi. Innlent 13.10.2005 19:23
Maðurinn látinn Ökumaður bílsins sem lenti á steinstólpa við Reykjanesbraut í morgun er látinn. Bifreiðin lenti á stólpa þar sem Reykjanesbraut liggur undir brú á Miklubraut. Maðurinn var einn á ferð á leið í suðurátt. Hann var rúmlega fertugur að aldri, búsettur í Reykjavík. Tildrög slyssins eru óljós. Innlent 13.10.2005 19:23
Ók á steinstólpa við Elliðaárbrú Karlmaður um fertugt slasaðist alvarlega þegar bíll hans lenti á steinstólpa við Elliðaárbrúna í Reykjavík í morgun. Maðurinn var einn á ferð á leið í suðurátt. Bíll hans skemmdist mikið og þurfti að klippa manninn úr bílnum. Innlent 13.10.2005 19:23
Hátt í 200 teknir fyrir hraðakstur Á annað hundrað manns hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur um þessa miklu ferðahelgi. Sektirnar geta numið tugþúsundum. Innlent 13.10.2005 19:23
Þrettán látnir í ár Banaslys varð þegar reykvískur karlmaður á fimmtugsaldri keyrði á steinstólpa brúar þar sem Reykjanesbraut liggur undir Miklubraut í gærmorgun. Var hann að keyra suður eftir Reykjanesbrautinni. Innlent 13.10.2005 19:23
35 teknir fyrir hraðakstur Þrjátíu og fimm ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Akureyri í gærkvöldi og nótt. Þar af voru þrjátíu og þrír teknir innanbæjar. Innlent 13.10.2005 19:23
Vopnað rán í Lyf og heilsu Vopnað ráð var framið í lyfjaversluninni Lyf og heilsa við Háaleitisbraut í Reykjavík um sexleytið í gærkvöld. Tveir menn á tvítugsaldri ógnuðu starfsfólki með sprautunálum og komust á brott með tíu pakka af rítalíni og öðrum morfínskyldum efnum. Innlent 13.10.2005 19:23
Lyfjum stolið í Austurveri Vopnað rán var framið í Lyfjum og heilsu í Austurveri í fyrrakvöld. Tveir menn gengu inn í apótekið og otuðu sprautunálum að starfsfólki. Innlent 13.10.2005 19:23
Ólæti á Akureyri Fangageymslur voru fullar á Akureyri aðfaranótt laugardags. Mikill hasar var í bænum, töluvert um hópamyndanir og slagsmál. Nóttin var viðburðarík hjá lögreglunni, ölvun var veruleg en þó voru engin stórmál á ferð. Innlent 13.10.2005 19:23
Róleg nótt í borginni Rólegt var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt og segjast menn þar á bæ vera stoltir af því að aðeins 92 bókanir hafi verið gerðar. Nóttin gekk þó ekki alveg stórslysalaust fyrir sig en fjórar minniháttar líkamsárásir voru gerðar í miðbænum og voru fjórir stöðvaðir fyrir ölvunarakstur. Öllu meira var að gera hjá lögreglunni á Akureyri. Innlent 13.10.2005 19:23
Róleg þjóðhátíð 17. júní var tiltölulega rólegur fyrir lögregluna í Reykjavík. Óvenjulítið var um skemmtanahald og þurfti lögreglan ekki að hafa nein afskipti af ölvun unglinga. Innlent 13.10.2005 19:23
Parið úrskurðað í gæsluvarðhald Erlent par, sem er talið hafa flutt tvo bílaleigubíla úr landi með Norrænu og er auk þess grunað um fjárdrátt og skjalafals, var seint í gærkvöldi úrskurðað í gæsluvarðhald fram á fimmtudag. Nauðsynlegt þótti að tryggja að fólkið færi ekki úr landi og var parið því úrskurðað í gæsluvarðhald á forsendum rannsóknarhagsmuna. Innlent 13.10.2005 15:34
Endaði sár á spítala Eftirför lögreglunnar á Selfossi vegna ökumanns sem sinnti í engu stöðvunarmerkjum endaði með því að viðkomandi ók bíl sínum útaf og þurfti að flytja hann á slysadeild. Innlent 13.10.2005 15:33
Hraðakstur vandamál Áberandi mikið var um hraðakstur á þjóðvegum landsins í gær og fyrradag og höfðu flest lögregluembætti við þjóðveginn nóg að gera við eftirlit. Innlent 13.10.2005 15:33
Tuttugu teknir fyrir hraðakstur Tuttugu voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í Öxnadal milli klukkan sjö í gærkvöld og tvö í nótt. Sá sem hraðast ók mældist á 164 kílómetra hraða. Innlent 13.10.2005 15:33
Ökklabrotnaði í Rauðuskörðum Björgunarsveitir frá Ólafsvík og Dalvík voru kallaðar út í dag til aðstoðar vegna göngufólks sem hafði lent í vandræðum í Rauðuskörðum Ytri Árdal. Kona í hópnum datt og öklabrotnað. Tólf björgunarsveitarmenn héldu fótgangandi á staðinn á sjötta tímanum í kvöld og var reiknað með að þeir kæmu á tíunda tímanum í kvöld með konuna í sjúkrakörfu, niður að sjúkrabíl sem flytur hana til Akureyrar. Innlent 13.10.2005 15:34
Hæstiréttur ómerkti dóm héraðsdóms Máli þriggja pólskra verkamanna sem handteknir voru í mars vegna gruns um að þeir störfuðu hér á landi án atvinnuleyfa var vísað aftur til héraðsdóms fyrir Hæstarétti í gær. Höfðu mennirnir verið dæmdir hver um sig til mánaðar fangelsisvistar skilorðsbundið fyrir Héraðsdómi Suðurlands en niðurstaða Hæstaréttar var að sá dómur yrði ómerktur gerður. Innlent 13.10.2005 19:22
Frekari aðgerðir gegn handrukkurum Ekki liggur fyrir hvort einhverjir þeirra þrjátíu sem grunaðir eru um handrukkun eða tengsl við handrukkara verði ákærðir. Talið er að hópurinn sem ná þarf til sé mun stærri og eru frekari aðgerðir í undirbúningi. Innlent 13.10.2005 19:22
Ómálefnalegur dómur segir lögmaður Tveir erlendir starfsmenn ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo við Kárahnjúka voru dæmdir í gær í Héraðsdómi Austurlands til greiðslu 50 þúsund króna sektar auk sakarkostnaðar hvor fyrir að hafa starfað hér að löggiltri iðngrein án viðurkenningar á starfsréttindum. Annar var verkstjóri smíðaverkstæðis og hinn verkstjóri í rafmagnsdeild. Innlent 13.10.2005 19:22
Tekinn með fíkniefni í bíl Lögreglan í Kópavogi tók mann með fíkniefni nú undir morgun. Fíkniefnin fundust við reglubundið umferðareftirlit en maðurinn var farþegi í bíl sem lögreglan stöðvaði. Skýrsla var tekin af manninum og telst málið upplýst. Í ljós kom við þetta tækifæri að ökumaður bifreiðarinnar var með útrunnin ökuréttindi. Innlent 13.10.2005 19:22
Þrjátíu handteknir Höfð voru afskipti af 30 manns á aðfararnótt laugardags í aðgerðum lögreglu gegn handrukkurum. Enginn þeirra er enn í haldi lögreglu. Innlent 13.10.2005 19:22
Ummæli Jóns Baldvins ómerkt Ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar sendiherra sem hann viðhafði í Dagblaðinu um fyrrum tengdason sinn Marco Brancaccia, yfirmann ítölsku fréttaþjónustunnar ANSA í Mið-Ameríku, voru á miðvikudag ómerkt í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 19:22