Kvöldfréttir Stöðvar 2
29 30 31 32 33 34 35 36 37 … 63 ›
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formaður Flokks fólksins segist styðja þétt við bakið á þingmanni þeirra sem liggur undir harðri gagnrýni vegna skilaboða um kynferðisleg samskipti við taílenska konu. Hún hafi þó óbeit á orðfæri þingmannsins. Innlent 28.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stjórnarformaður Bankasýslunnar biðst afsökunar á þeim mistökum að hafa ekki kynnt mun betur fyrir almenningi hvað væri í vændum með sölu á Íslandsbanka. Hann segir ekki laust við að verið sé að koma ábyrgðinni á því sem misfórst yfir á Bankasýsluna. Innlent 27.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að greiða fólki sem dvaldi á barnaheimili á Hjalteyri á síðustu öld sanngirnisbætur. Hann segir nú þegar liggja fyrir nægar sannanir um að fólkið hafi verið beitt gríðarlegu ranglæti. Við ræðum við karlmann sem beittur var ofbeldi á barnaheimilinu í fréttatímanum. Innlent 26.4.2022 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Traust til ráðherra í ríkisstjórn hefur snarminnkað milli ára og þá ekki síst traust til Sigurðar Inga, Bjarna Benediktssonar og Katrínar Jakobsdóttur. F Fréttir 25.4.2022 18:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Claudia Ashanie Wilson lögmaður telur lögreglu á höfuðborgarsvæðinu hafa gert alvarleg mistök við afskipti af sextán ára syni hennar í vikunni. Lögregla vitjaði piltsins í tvígang í tengslum við leit að ungum strokufanga en þeir eru báðir dökkir á hörund. Ítarlega verður rætt við Claudiu um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 en hún hefur ekki tjáð sig um það við fjölmiðla fyrr en nú. Innlent 24.4.2022 18:23
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þriðji og langfjölmennasti mótmælafundurinn hingað til var haldinn á Austurvelli í dag til að mótmæla sölunni á Íslandsbanka. Mótmælendur krefjast þess að fjármálaráðherra segi af sér og sölunni verði rift. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. Innlent 23.4.2022 18:11
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forseti Úkraínu segir mikilvægt að hraða vopnaflutningum til landsins frá Bandaríkjunum og öðrum ríkjum vegna aukins þunga í hernaði Rússa í austur og suðurhluta landsins. Þrátt fyrir yfirlýsingar Rússa um sigur í Mariupol sé borgin ekki á þeirra valdi þar sem barist sé á götum úti í miðborginni. Við greinum frá nýjustu vendingum í Úkraínu í fréttatímanum og okkar maður Heimir Már, manna fróðastur um stríðið, kemur í sett og sýnir okkur hvernig og hvert átökin hafa þróast síðustu daga og vikur. Innlent 22.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Enn er leitað að strokufanga sem slapp úr haldi lögreglu á miðvikudag. Í tvígang hefur lögregla haft afskipti af sextán ára dreng sem er algjörlega óskyldur málinu eftir ábendingar um að hann væri strokufanginn. Innlent 21.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Karlmaður um þrítugt var hætt kominn um páskana eftir að hafa reynt að flytja þrjátíu pakkningar af kókaíni til landsins innvortis. Innflutningur á fíkniefnum í gegnum Keflavíkurflugvöll virðist hafa stóraukist á milli ára og meira hefur verið tekið af oxíkontín nú en á öllu árinu í fyrra. Innlent 20.4.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forsætisráðherra telur ekki að fjármálaráðherra þurfi að víkja vegna sölunnar á Íslandsbanka. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja Bankasýsluna niður og rannsókn er hafin á sölunni. Bankasýslan segir söluna í samræmi við yfirlýst áform en skoðar nú lagalega stöðu sína gagnvart söluaðilum bankans. Innlent 19.4.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Íbúar í Chernihiv í vesturhluta Úkraínu máttu þola hryllilegar pyntingar og kvalir á meðan þeir voru læstir inni í litlum kjallara vikum saman og gátu enga björg sér veitt. Forseti Úkraínu segist aldrei ætla að láta landsvæði af hendi og hyggst berjast til hins ítrasta. Innlent 17.4.2022 18:29
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður áfram fjallað um stöðuna í Úkraínu, en Rússar hyggjast hernema Maríupól áður en helgin er á enda. Innlent 16.4.2022 18:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nokkur hundruð manns kröfðust afsagnar fjármálaráðherra á fjöldafundi í dag vegna sölunnar á Íslandsbanka. Mikil fagnaðarlæti brutust út undir þrumuræðum um spillingu og siðblindingja í fjármálakerfinu. Sýnt verður frá mótmælunum í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 15.4.2022 18:14
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Eftirlitsmaður hjá Alþýðusambandinu segir hópuppsögn hjá Eflingu fordæmalausa og að hún muni hafa mikil áhrif á vinnumarkaðinn. Formaður Eflingar segir nóg komið af því að lítið sé gert úr forystu félagsins. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á slaginu 18:30. Innlent 14.4.2022 18:06
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Trúnaðarmaður VR innan Eflingar segir að Sólveig Anna eigi að skammast sín og að búið sé að gengisfella tíu ára starf innan verkalýðshreyfingarinnar með hópuppsögn - sem ekkert samráð hafi verið haft um. Vilhjálmur Birgisson ber fullt traust til Sólveigar Önnu. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 13.4.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Mikill kostnaður fylgir hópuppsögn allra starfsmanna Eflingar. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum okkar á Stöð 2 og Bylgjunni klukkan hálf sjö. Forseti ASÍ hvetur félagið til að draga ákvörðunina til baka. Innlent 12.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjármálaeftirlitið hefur tekið söluna á Íslandsbanka til skoðunar. Viðskiptaráðherra segir óeiningu hafa verið í ríkisstjórn um framkvæmdina en það var hvergi fært til bókar að sögn forsætisráðherra. Þingmaður stjórnarandstöðunnar segir krísuástand í ríkisstjórn. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 11.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunni klukkan hálf sjö höldum við áfram með fréttir af síðasta útboði á Íslandsbanka en gagnrýnisraddir aukast eftir því sem meira kemur fram um söluna. Innlent 10.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar á Stöð tvö og Bylgjunni klukkan hálf sjö segjum við frá fundi á Austurvelli í dag þar sem fólk kom sama til að mótmæla sölunni á Íslandsbanka. Þá segjum við frá gríðarmiklum eldsvoða sem varð í Endurvinnslustöð hjá Íslenska Gámafélaginu við Helguvík í dag. Innlent 9.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Talið er að fimmtíu óbreyttir borgarar hafi fallið og yfir þrjú hundruð særst í eldflaugaárás Rússa á lestarstöð í borginni Kramatorsk í suðausturhluta Úkraínu í morgun. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins heimsótti Bucha í dag og segir grimmd Rússa þar skekja allt mannkynið. Innlent 8.4.2022 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar köfum við ofan í söluna á hlutabréfunum í Íslandsbanka þar sem nokkrir góðkunningjar í bankahruninu eru aftur komnir á kreik íbankakerfinu og sumir sem unnu við söluna keyptu bréf og sátu því beggja megin borðs. Innlent 7.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá bjartsýni í ferðaþjónustinni. Bílaleigur hafa vart undan að fjölga í flota sínum og bókanir á hótelherberjum fyrir sumarið eru komnar upp í 70 prósent. Innlent 6.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Forseti Úkraínu hvetur til þess að Rússar verði reknir úr öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir stríðsglæpi og Evrópusambandið ætlar að banna innflutning á kolum frá Rússlandi og skipum þaðan að koma til evrópskra hafna. Innlent 5.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra lét rasísk ummæli falla um framkvæmdastjóra Bændasamtakanna í gleðskap á Búnaðarþingi og baðst afsökunar á þeim í dag. Aðstoðarmaður ráðherra þrætti fyrir orð Sigurðar um helgina. Við ræðum við þingmenn sem hafa ýmislegt við atburðarásina um helgina að athuga. Innlent 4.4.2022 18:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Utanríkisráðherra Úkraínu segir Rússa hafa framið fjöldamorð á almennum borgurum í bænum Bucha, Bútsja þar sem lík liggja eins og hráviði á götum eftir brotthvarf Rússa. Vestrænir leiðtogar fordæma Rússa fyrir voðaverk á svæðinu og saka þá sumir um stríðsglæpi. Innlent 3.4.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Úkraínumenn saka Rússa um að hafa gert sprengjuárásir á friðsæl mótmæli í sunnanverðri Úkraínu í dag. Stjórnvöld vara við hörðum átökum á svæðinu næstu daga. Frans páfi var óvenjuharðorður í garð Rússlandsforseta í ávarpi í dag. Farið verður yfir stöðuna í Úkraínu í kvöldfréttum. Innlent 2.4.2022 18:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum greinum við frá því hvernig Reykjavíkurborg ætlar að tvöfalda árlegt lóðaframboð sitt næstu fimm árin til að svara þeim eftirspurnarvanda sem nú er á húsnæðismarkaði. Borgin skorar á nágrannasveitarfélög sín og ríkið að gera með sér húsnæðissáttmála. Innlent 1.4.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kona sem varð 75 prósent öryrki eftir fæðingu sonar síns um aldamótin segir að heilbrigðiskerfið hafi brugðist henni og syninum, sem var hætt kominn í fæðingunni. Doktor í félagsfræði segir ofuráherslu á náttúrulegar fæðingar á Íslandi skaðlega mæðrum. Innlent 31.3.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í dag fór fjöldi flóttamanna frá Úkraínu yfir fjórar milljónir eða sem svarar til allra íbúa Króatíu. Flóttafólk sem kom til Póllands í dag treystir ekki yfirlýsingum Rússa um að þeir ætli að draga úr árásum á borgir í norðurhluta Úkraínu. Sendiherra landsins hjá Sameinuðu þjóðunum segir ganga vel að afvopna Rússa. Innlent 30.3.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nokkur árangur virðist hafa náðst í friðarviðræðum Rússa og Úkraínumanna í Tyrklandi í dag sem gæti leitt til beinna viðræðna á milli forseta landanna. Sjö óbreyttir borgarar féllu í árás á stjórnarbyggingu í Mykolaiv í dag og fjöldi manns særðist. Innlent 29.3.2022 18:01