
Andrés Magnússon

Verðlagseftirlit á villigötum
Verðlagseftirlit ASÍ túlkar niðurstöðu nýrrar verðkönnunar sinnar á þann veg að á kunni að vanta að samkeppni meðal matvöruverslana sé nægjanlega virk. Því til stuðnings bendir verðlagseftirlitið sérstaklega á að hækkanir hafi orðið á kjötvörum um 8 til 45% á sl. 14 mánuðum.

Varnarlínur heimilanna
Bændasamtökin kynntu fyrir nokkrum dögum lágmarkskröfur Bændasamtaka Íslands í viðræðum við Evrópusambandið svokallaðar varnarlínur sem eru sjö talsins.

Uppskipting fyrirtækja
Sú breyting á samkeppnislögum sem Alþingi samþykkti á dögunum felur í sér gífurlega breytingu á núgildandi lagaumhverfi.

Umræða á villigötum
Undanfarna mánuði og misseri hafa reglulega sprottið upp umræður í þjóðfélaginu um verð innfluttra vara og hversu hratt eða hægt menn telja að verð þeirra eigi að breytast í takt við breytingar á gengi krónunnar. Iðulega hafa verslunarfyrirtæki verið gagnrýnd fyrir að lækka verð innfluttra vara hvorki nógu hratt né nógu mikið samfara styrkingu krónunnar. Þessi gagnrýni hefur enn á ný skotið upp kollinum undanfarna daga.

Að slíta í sundur friðinn
Eitt af því sem hefur því miður einkennt okkur Íslendinga eftir hrunið er skortur á samstöðu. Í mörgum mikilvægum málum hefur þjóðin skipst í fylkingar og hver höndin verið upp á móti annarri. Þetta hefur síðan valdið því að lausn mikilvægra mála hefur tafist úr hófi. Þegar frá líður verður það væntanlega verkefni sagnfræðinga eða jafnvel sálfræðinga að greina af hverju þjóðin valdi leið sundurlyndis þegar þörfin fyrir samstöðu var meiri en nokkru sinni fyrr.

Jarðtengdir stjórnmálamenn óskast
Nú rúmu ári eftir hrunið sjá íslensk fyrirtæki ekki enn til lands. Rekstrarumhverfi þeirra er skelfilegt – endurfjármögnun er í uppnámi, háir vextir gera það fjármagn sem í boði er of dýrt til að réttlæta framkvæmdir, há verðbólga, fallandi eða hrunin eftirspurn, handónýtur gjaldmiðill og svo mætti áfram telja.

Að óttast sína eigin þjóð
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um stöðu íslenskra fyrirtækja um þessar mundir, ytra umhverfi þeirra er skelfilegt og birtist m.a. í himinháum vöxtum, verðbólgu, gjaldeyrishöftum, dauðvona krónu og skertum kaupmætti. Við þessar aðstæður er atvinnulífinu gert að standa í fæturna, rétta úr bakinu og spýta í lófana enda öflugt atvinnulíf forsenda þess að þjóðin komi sér upp úr núverandi stöðu.