
Ásdís Hlökk Theodórsdóttir

Græn vindorka
Á dögunum voru birtar niðurstöður úr könnun þar sem fólk var spurt hvort það væri hlynnt eða andvígt því að afla grænnar orku. Eins og vænta mátti var mikill meirihluti þeirra sem tóku afstöðu í könnuninni hlynntur öflun grænnar orku. Við erum væntanlega flest ef ekki öll sammála um ágæti grænnar orku og stolt af stöðu Íslands sem nýtir nær alfarið vatnsafl og jarðvarma til raforkuframleiðslu og húshitunar.

Ógn og öryggi í Vesturbæ
Íbúar á Íslandi og í Reykjavík búa við þau miklu, en alls ekki sjálfsögðu, lífsgæði að hér ríkir öryggi, traust, jafnræði, frelsi og ekki síst sakleysi. Þessi gæði eru mikill auður sem við verðum öll að standa vörð um.

Skipulag byggðar og samgangna á vendipunkti
Loftslagsmálin eru komin á dagskrá. Loksins. Þótt það séu ekki ný sannindi að loftslag sé að hitna af mannavöldum, þá er nú loks svo komið að almenn samstaða og skilningur er um það í samfélaginu að aðgerða sé þörf og það strax.

Skipulag um loftslagsmál, landslag og lýðheilsu
Skipulagsákvarðanir móta umgjörð um okkar daglega líf, bæði okkar sem nú lifum og þeirra sem taka við.

Um skipulag miðborgar
Talsverð umræða hefur skapast undanfarið um skipulag miðborgar Reykjavíkur. Það minnir okkur á að skipulag byggðar varðar okkur öll. Það á að skipta okkur máli og á því eigum við að hafa skoðun. En um hvað snýst skipulag miðborgar?

Rammaáætlun vekur spurningar
Landslag orkuvinnslu hérlendis hefur breyst mikið á síðustu 10 árum eins og sjá má á meðfylgjandi kortum.

Hvað gengur þeim til?
Borgarstjórnarmeirihlutinn ætlar sér, eins og kunnugt er orðið, í mikinn og sársaukafullan uppskurð á skólakerfi borgarinnar. Fórnarlömb þessa eru börn sem nú eru á leik- og grunnskólaaldri og þau sem á eftir þeim koma.

Merkingarlaust kjaftæði?
Umræðan um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum tekur á sig ýmsar myndir, nú í aðdraganda kosninga til stjórnlagaþings.

Skipulag byggðar og lands – hefur það nú líka eitthvað með stjórnarskrána að gera?
Áttundi nóvember ár hvert er helgaður skipulagsmálum undir merkjum alþjóðlega skipulagsdagsins eða „World Town Planning Day“. Þennan dag standa samtök fagfólks í skipulagsmálum víða um heim fyrir viðburðum og umræðu um tiltekin skipulagsviðfangsefni.