Dýraheilbrigði
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 19 ›
Apar pyntaðir í ágóðaskyni öðrum til skemmtunar BBC hefur birt umfjöllun um fjölmenna hópa á samfélagsmiðlum þar sem rætt er um, óskað eftir og deilt myndskeiðum þar sem apar eru pyntaðir, stundum til dauða. Um er að ræða pyntinga-hring, þar sem fólk getur greitt fyrir myndskeið þar sem apar eru pyntaðir á umbeðinn máta. Erlent 20.6.2023 08:49
Sungið fyrir svínin áður en þau fara í gasklefann Samkvæmt innanbúðarupplýsingum hjá Stjörnugrís öskra svínin og ærast í gasklefanum. Sérgreinadýralæknir hjá MAST segir gösun valda svínum stressi og þau reyni að komast úr aðstæðunum. Innlent 20.6.2023 08:00
Paul Watson segir hvalveiðar Íslendinga stjórnast af þráhyggju eins manns Paul Watson fyrrverandi leiðtogi Sea Shepard samtakanna sem sökktu tveimur hvalbátum í Reykjavíkurhöfn árið 1986 nálgast Íslandsmið til að trufla veiðar Hvals hf. í sumar. Hópur fólks úr Hvalavinum koma saman til mótmæla við hvalbátana seinni partinn í dag en nú er verið að undirbúa þá til veiða. Innlent 19.6.2023 19:21
Gæslan meðvituð um ferðir og fyrirætlanir Watson og félaga Landhelgisgæslan er meðvituð um ferðir skipsins John Paul Dejoria og kunnugt um þær yfirlýsingar sem áhöfn þess hefur gefið í fjölmiðlum, segir í skriflegu svari Gæslunnar við fyrirspurn fréttastofu. Innlent 19.6.2023 11:37
Fagráð um velferð dýra segir hvalveiðar ekki samræmast lögum Fagráð um velferð dýra hefur komist að þeirri niðurstöðu að sú veiðiaðferð sem beitt er við veiðar á stórhvelum samræmist ekki ákvæðum laga nr. 55/2013 um velferð dýra. Ekki sé hægt að uppfylla þau skilyrði sem nauðsynleg eru til að tryggja velferð dýra við aflífun. Innlent 19.6.2023 10:14
Stjörnugrís leyfir fjölmiðlum ekki að mynda gösun svína Samtök um dýravelferð á Íslandi skora á Stjörnugrís að bjóða fjölmiðlum og fulltrúum dýravelferðarsamtaka að koma og fylgjast með slátrun. Stjörnugrís mun ekki heimila það. Innlent 16.6.2023 14:41
Eitt sláturhús á Íslandi gasar svín Eitt af fjórum svínasláturhúsum á Íslandi notar koltvíoxíð gas til að aflífa svín. Thelma Róbertsdóttir sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun segir þetta samræmast lögum um dýravelferð og Evrópureglugerð. Enn þá sé þetta besta aðferðin til aflífunar svína. Innlent 14.6.2023 14:18
Upphaf hvalveiðivertíðar í uppnámi Umhverfisráðuneytið áformar að vísa frá beiðni Hvals hf. um undanþágu frá starfsleyfi. Fyrirtækið sótti um undanþáguna vegna óvissu um að veiðar gætu hafist á hefðbundnum tíma. Vertíðinni gæti því seinkað í ár. Innlent 13.6.2023 15:33
Fólk beðið um að láta af brauðgjöf til andanna Dýravinir á öllum aldri eru beðnir um að standast þá freistingu að gefa öndunum brauð við Tjörnina í Reykjavík í sumar. Ástæðan eru sílamávar sem eru líklegir til að vaða í nýklakta andarungana. Innlent 8.6.2023 14:09
Bein útsending: Rostungur í fjörunni á Álftanesi Rostungur sem sást í Hafnarfjarðarhöfn liggur nú í fjörunni á Álftanesi. Þar hefur hann verið í nokkrar klukkustundir. Fólk er varað við því að koma ekki nær en hundrað metra frá rostungnum Innlent 7.6.2023 15:49
Segja prímata hafa stundað sjálfsfróun í 40 milljón ár Þróunarfræðingar segja sjálfsfróun hafa verið iðkaða meðal prímata fyrir allt að 40 milljón árum síðan. Þeir hafa kortlagt hegðunina meðal núlifandi prímata en segja enn óljóst hvaða þróunarfræðilega tilgangi hún hefur þjónað. Erlent 7.6.2023 08:26
Meðvirkni og aðgerðarleysi viðhaldi hræðilegu ástandi á Höfða Sveitarstjórnarfulltrúi og bóndi í Borgarbyggð segir Matvælastofnun bregðast bændum og kindum á Höfða í Borgarfirði og að meðvirkni einkenni málið. Þrátt fyrir yfirlýsingar um aðgerðir hafi stofnunin ekkert gert og ástandið farið versnandi með hverju ári. Innlent 2.6.2023 15:04
Fuglaflensa ekki talin ástæða fjöldadauðans Fuglaflensa er ekki talin ástæða fjöldadauða fugla sem hefur valdið vísindamönnum áhyggjum upp á síðkastið. Hundruð fugla hafa fundist dauð víða um land. Innlent 1.6.2023 16:32
„Þau áttuðu sig á því sjálf að þau réðu ekki við þetta“ Matvælastofnun (MAST) hefur bannað dýrahald á sauðfjárbýli á Vesturlandi og falið lögreglustjóra að gefa út ákæru. Bæði búpeningur og gæludýr eru þegar farin af bænum. Innlent 1.6.2023 10:54
MAST sviptir bændur leyfi til dýrahalds Starfsmenn Matvælastofnunar hafa lagt fram beiðni til lögreglu um að ábúendur á bóndabæ á Vesturlandi verði meinað að hafa dýr í þeirra umsjá. Beiðnin byggir á lögum um velferð dýra en í yfirlýsingu frá stofnuninni segir að eftirlit á bænum hafi leitt í ljós óviðunandi ástand þar. Innlent 30.5.2023 17:53
Bólusetja endur í haust Franska landbúnaðarráðuneytið hefur tilkynnt að bólusetningartilraunir við fuglaflensu á öndum hafi gefið viðunandi árangur. Stefnt er að því að bólusetja aliendur í haust. Erlent 30.5.2023 16:12
Meint dýraníð látið viðgangast í áraraðir Íbúi í Borgarfirði segir fé á bænum Höfða í Borgarfirði hafa búið við slæman aðbúnað í áraraðir. Húsakostur rúmi ekki allt féð sem ráfi vannært og illa farið um sveitina. Hvorki Matvælastofnun né sveitarstjóri geri nokkuð í málinu sem hafi verið opinbert leyndarmál í rúm fimmtán ár. Innlent 29.5.2023 17:19
„Ég man ekki eftir svona miklum dauða“ Dauðir lundar og ritur hafa sést hundraðatali í fjörum á Faxaflóasvæðinu undanfarna daga. Stórfelldur fugladauði þvert á tegundir þykir óvenjulegur og mikið áhyggjuefni að mati fuglafræðings. Innlent 28.5.2023 19:32
Fjöldadauði fugla á Faxaflóa Óútskýrður fjöldadauði fugla á Faxaflóa veldur vísindamönnum áhyggjum. Hundruð fugla hafa fundist dauðir í fjörum, jafnvel á stöðum þar sem þeir eru ekki vanir að halda sig. Innlent 28.5.2023 12:21
Stjórnvöld verði að breyta sínum áherslum í riðumálum Sveitarstjóri Húnabyggðar segir að sauðfjárbændur í Austur Húnavatnssýslu séu á nálum yfir því að riða getið komi upp á svæði þeirra eftir að riða kom upp á tveimur bæjum í Vestur Húnavatnssýslu í vor. Innlent 27.5.2023 15:04
Vonir um að útbreiðslan sé ekki mikil Niðurstöður sem komnar eru úr greiningu riðusýna í Miðfjarðarhólfi vekja vonir um að útbreiðslan sé ekki mikil. Því er brýnt að hefta hana með fumlausum viðbrögðum og í því sambandi mikilvægast að taka mögulega smitbera úr umferð eins fljótt og hægt er. Innlent 25.5.2023 10:44
Hvalur biður ráðherra um undanþágu til að geta hafið veiðar Hvalur hf. hefur sótt um undanþágu frá starfsleyfi til ráðherra til að geta hafið starfsemi og hvalveiðar í sumar. Samkvæmt úttekt heilbrigðiseftirlits þyrfti að gera úrbætur á frágangi við olíutank áður en slíkt yrði gefið út. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands telur samt ólíklegt að leyfið muni stranda á því. Innlent 24.5.2023 12:38
Skoðar hvort hægt sé að takmarka hvalveiðar Matvælaráðherra segir til skoðunar að takmarka hvalveiðar í sumar þrátt fyrir hún telji ekki lagastoð fyrir afturköllun á veiðileyfi. Hollywood-stjarna hvetur fólk til þess að mótmæla veiðunum. Innlent 23.5.2023 12:01
Ekki lagastoð til að stöðva hvalveiðar í sumar Matvælaráðherra ítrekaði að hann teldi hendur sínar bundnar í að stöðva veiðar á langreyðum í sumar á fundi þingnefndar í morgun. Engin lagastoð væri fyrir því að afturkalla gildandi veiðileyfi. Enginn ákvörðun hafi verið tekin um veiðar á næsta ári en við blasi að endurskoða þurfi lög um hvalveiðar almennt. Innlent 23.5.2023 09:55
Bein útsending: Hvalaskýrslan til umræðu á opnum fundi atvinnuveganefndar Ný skýrsla Matvælastofnunar um velferð hvala við veiðar á langreyðum á Íslandi 2022 verður til umfjöllunar á opnum fundi atvinnuveganefndar Alþingis sem hefst klukkan 8:30. Innlent 23.5.2023 08:31
Smáhveli rak á land við Sandgerði Dautt smáhveli rak á land í Sandgerðisfjöru. Líklegt er talið að það hafi rekið á land um helgina. Innlent 22.5.2023 15:04
Gæludýraormalyf virka betur fyrir fólk en mannalyf Ormalyf fyrir gæludýr virka betur á fólk en þau lyf sem eru ætluð fólki. Meiri peningum er varið í ormalyfjarannsóknir fyrir gæludýr en fólk, en sjúkdómarnir herja aðallega á fólk í þróunarlöndum. Erlent 21.5.2023 07:01
Viðurkennir að hafa farið rangt að við veiðar Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, viðurkennir að betur hefði mátt standa að hvalveiðum þegar hvalur var eltur í tvær klukkustundir í myrkri og sex sprengiskutlum skotið á hann. Innlent 20.5.2023 11:15
Hundruð dauðra fugla í fjörunni á Fitjum í Njarðvík Tæplega hundrað ritur auk nokkurra dauðra gæsa og álfta fundust dauðar í sjávarmálinu og við tjarnirnar á Fitjum í Njarðvík. Meindýraeyðir segir að hræjum fuglanna hafi verið komið yfir til Matvælastofnunar til rannsóknar. Sérfræðingar Matvælastofnunar hafa áður viðrað áhyggjur sínar af óútskýrðum fjöldadauða rita. Innlent 19.5.2023 10:16
Fara með hvalveiðileyfi til EFTA Náttúruverndarsamtök Íslands hafa vísað veitingu hvalveiðileyfis til Hvals hf. til eftirlitsstofnunar EFTA. Lögfræðingur samtakanna segist telja að leyfið stangist á við Evrópureglur og vonar að stofnunin bregðist hratt við. Innlent 18.5.2023 22:21