
UMF Njarðvík

„Ótrúlega stoltur að klára mjög sterkt og vel mannað Grindavíkurlið“
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var í sjöunda himni í leikslok eftir að Njarðvíkingar sópuðu Grindvíkingum út úr 4-liða úrslitum Subway-deildar kvenna.

Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 69-82 | Njarðvík í úrslit
Grindavík tók á móti Njarðvík í undanúrslitum Subway-deildar kvenna í leik sem gular unnu að vinna þar sem gestirnir frá Njarðvík voru 2-0 yfir í einvíginu fyrir leik kvöldsins. Leikurinn var nokkuð jafn framan af en undir lokin stakk Njarðvík af og sópur niðurstaðan. Njarðvík því komið í úrslitarimmuna.

„Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“
Benedikt Guðmundsson sagði mikið af mistökum hafa einkennt leik Njarðvíkur og Vals í dag. Hann sagði aðra leikmenn eiga að geta tekið við keflinu ef Chaz Williams á ekki sinn besta dag.

Uppgjörið: Njarðvík - Valur 69-78 | Deildarmeistararnir læstu vörninni
Deildarmeistar Vals jöfnuðu einvígið gegn Njarðvíkingum í Ljónagryfjunni í kvöld í leik þar sem hart var tekist á. Varnarleikur Valsmanna var til fyrirmyndar að þessu sinni en Njarðvíkingar skoruðu aðeins tíu stig síðustu tíu mínútur leiksins.

Geta unnið fjóra í röð í fyrsta sinn í heilan áratug
Njarðvíkingar geta stigið stórt skref í átt að úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Val í Ljónagryfjunni í kvöld en þeir væru þá komnir í 2-0 og vantaði því aðeins einn sigur úr næstu þremur leikjum til að vinna einvígið.

„Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var sáttur með 66-58 sigur sinna kvenna á Grindavík í kvöld í 4-liða úrslitum Subway-deildarinnar en ætlar samt að horfa á leikinn 30 sinnum til að bæta leik liðsins fyrir næsta leik.

Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 66-58 | Njarðvíkingar einum sigri frá úrslitum
Njarðvík leiðir 2-0 í einvígi sínu gegn Grindavík í undanúrslitum Subway-deildar kvenna eftir 66-58 sigur Ljónagryfjunni í kvöld. Njarðvíkingar tóku fyrsta leikinn í Smáranum og hrifsuðu þar með til sín heimavallarréttinn.

„Skákin er bara byrjuð“
Valsmenn hafa verið þekktir fyrir traustan varnarleik í vetur en Njarðvík varð í kvöld fyrsta liðið á þessu tímabil sem nær að setja yfir 100 stig á Val í venjulegum leiktíma þegar liðið lagði Vals á Hlíðarenda í kvöld, 84-105.

Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg
Undanúrslit Subway-deildar karla rúlluðu af stað í kvöld þar sem deildarmeistarar Vals tóku á móti Njarðvíkingum. Gestirnir höfðu tekið lengstu mögulegu leið inn í undanúrslitin eftir að hafa farið í oddaleik gegn Þórsurum en það var þó ekki að sjá að þeir væru þreyttir né úttaugaðir eftir þau átök.

Tók sinn tíma að jafna sig
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur segir það hafa tekið sig langan tíma að ná sér niður á jörðina eftir dramatískan sigur liðsins í oddaleik gegn Þór Þorlákshöfn í átta liða úrslitum Subway deildar karla á dögunum. Það einvígi sé þó nú að fullu að baki, bæði hjá honum og leikmönnum Njarðvíkur sem mæta aftur til leiks í kvöld.

Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga
Njarðvíkingar hefja í kvöld undanúrslitaeinvígi sitt á móti Val í Subway deild karla í körfubolta. Þeir eru þar þökk sé magnaðri flautukörfu Þorvaldar Orra Árnasonar.

„Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“
Rúnar Ingi Erlingsson og hans konur í Njarðvík eru komnar í 1-0 í einvígi sínu gegn Grindavík í 4-liða úrslitum Subway-deildar kvenna en eftir sveiflukenndan leik skoruðu Njarðvíkingar tólf stig gegn aðeins þremur hjá Grindavík á lokasprettinum.

Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum
Grindavík tók á móti Njarðvík í fyrsta leik liðanna í undanliða úrslitum Subway-deildar kvenna í sveiflukenndum leik, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Fór það svo að „gestirnir“ úr Njarðvík unnu fjögurra stiga sigur.

Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár
Njarðvík varð í gær fjórða og síðasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Subway deildar karla í körfubolta sem hefjast síðan strax á mánudagskvöldið.

Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“
Körfuboltadómaranum Davíð Tómasi Tómassyni bárust miður falleg skilaboð eftir oddaleik Njarðvíkur og Þórs Þ. í átta liða úrslitum Subway deildar karla í gær.

Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra
Dramatíkin í jafnasta einvígi 8-liða úrslita Subway-deildar karla ætlaði engan endi að taka en oddaleikur Njarðvíkur og Þórs í kvöld var hnífjafn og fór að lokum í framlengingu.

„Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“
Benedikt Guðmundsson var í sjöunda himni með dramatískan sigur Njarðvíkur gegn Þór Þorlákshöfn í oddaleik í átta liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta í Ljónagryfjunni í kvöld.

Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu
Þorvaldur Orri Árnason tryggði Njarðvík sæti í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta með flautuþristi í framlengingu í oddaleik liðs við Þór Þorlákshöfn í Ljónagryfjunni í kvöld.

Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur
Friðrik Ingi Rúnarsson fékk gullmerki Njarðvíkur á dögunum en félagið fagnar nú áttatíu ára afmæli sínu.

Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik
Stórleikur fer fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld þegar heimamenn í Njarðvík og Þórsarar spila hreinan úrslitaleik um sæti í undanúrslitaeinvígi Subway deildar karla í körfubolta.

„Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, var sáttur með sigur sinna manna þegar liðið sótti útisigur í Þorlákshöfn í kvöld, 84-91, og tryggði sér þar með oddaleik á fimmtudaginn.

Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik
Njarðvík sótti í kvöld sigur í Þorlákshöfn og tryggði sér þar með oddaleik um sæti í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta.

Uppgjör og viðtöl: Valur - Njarðvík 67-82 | Íslandsmeistararnir í sumarfrí
Njarðvík er komið í undanúrslit Subway-deildar kvenna í körfubolta eftir þægilegan sigur á Val á Hlíðarenda. Tapið þýðir að Íslandsmeistarar Vals eru komnir í sumarfrí. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum
Þór Þorlákshöfn er komið 2-1 yfir í einvígi sínu við Njarðvík í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta eftir magnaðan sigur í framlengdum leik í Ljónagryfjunni.

„Erum að spila á móti ríkjandi Íslandsmeisturum og þurfum að vera klárar“
Njarðvík kjöldróg Valsliðið í Ljónagryfjunni í kvöld 92-59 þegar liðin mættust í þriðja leik í 8-liða úrslitum Subway deildar kvenna í körfubolta.

„Náðum að keyra upp hraðann á réttum mómentum“
Njarðvík kjöldróg Valsliðið í Ljónagryfjunni í kvöld 92-59 þegar liðin mættust í þriðja leik í 8-liða úrslitum Subway deildar kvenna í körfubolta.

Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Valur 92-59 | Einstefna og grænar einum sigri frá undanúrslitum
Njarðvík vann Val með fádæma yfirburðum í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Subway-deildar kvenna í körfubolta. Staðan í einvíginu 2-1 Njarðvík í vil og þarf liðið aðeins einn sigur til að tryggja sér sæti í undanúrslitum.

Sjáðu magnaðan hetjuþrist Tómasar í Þorlákshöfn
Tómas Valur Þrastarson svo gott sem tryggði Þór Þorlákshöfn sigur gegn Njarðvík í gærkvöld með sannkölluðum hetjuþristi á ögurstundu, í 8-liða úrslitum Subway-deildarinnar í körfubolta.

„Menn þorðu ekki að taka af skarið“
Benedikt Guðmundsson var sáttur við sumt og ósáttur við annað þegar lið hans, Njarðvík, laut í lægra haldi gegn Þór Þorlákshöfn í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld.

Uppgjörið: Þór Þ. – Njarðvík 95-92 | Sirkusþristur hjá Tómasi Val tryggði sigurinn
Þór Þorlákshöfn jafnaði metin í 1-1 í einvígi sínu við Njarðvík í átta liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta með 95-92 sigri sínum í dramatískum leik liðanna í Iceland Gacier-höllinni í Þorlákshöfn í kvöld.