
Fuglar

Landsmenn hugi að sóttvörnum
Það gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér ef fuglaflensa berst inn á stærri alifuglabú að sögn yfirdýralæknis Matvælastofnunar. Landsmenn eru hvattir til að huga vel að sóttvörnum, ekki síst í kringum dauða fugla.

Fuglaflensan gæti verið víða á landinu í ljósi greininga í villtum fuglum
Vonir eru bundnar við að fuglaflensan hafi ekki náð að dreifa frekar úr sér eftir að nokkur tilfelli voru staðfest hér á landi. Dýralæknir alifuglasjúkdóma hjá Matvælastofnun segir mikilvægt að fólk sé á varðbergi þó það sé ólíklegt að veiran ógni mannfólki.

Óttast að fuglaflensan hafi orðið súlunum að bana: „Ég hef aldrei séð þetta áður“
Viðbragðsáætlun Matvælastofnunar hefur verið virkjuð nú eftir að fuglaflensa hefur verið staðfest hér á landi. Vefmyndavélar í Eldey sýna dauðar súlur á víð og dreif og fer þeim fjölgandi milli daga. Prófessor í dýrafræði segir það slæmar fréttir ef fuglaflensusmit er að berast inn í fuglahópa.

Fuglaflensa greinst hér á landi
Fuglaflensa hefur verið staðfest í þremur villtum fuglum sem fundist hafa hér á landi undanfarna daga. Um er að ræða heiðagæs við Hornafjörð, hrafn á Skeiðum í Árnessýslu og súlu rétt við Strandarkirkju við Suðurstandaveg.

Vara við fuglaflensu sem berist líklega til landsins með vorinu
Ekkert lát er á útbreiðslu skæðrar fuglaflensu í Evrópu, bæði í alifuglum og villtum fuglum. Sérstakar reglur um tímabundnar varnaraðgerðir til að fyrirbyggja að flensan berist í íslenska fugla hafa verið setttar í gildi.

Lóan er komin
Lóan, vorboðinn ljúfi, er komin til landsins.

Beyglaði svanurinn lifir tiltölulega eðlilegu lífi
Bæklaður svanur hefur vanið komur sínar í tjörnina í Reykjavík. Við kíktum á svaninn, sem margir hafa áhyggjur af, og veltum upp hvað sé að honum með fuglafræðingi.

Friðaðir fuglar drepast og ólíft í kringum skólann
Íbúi á Suðureyri er óánægður með viðbrögðin við olíuleka sem varð á fimmtudag. Afla þurfti leyfis hjá lögreglu til að aflífa friðaða fugla - og það er að sögn íbúa ólíft í kringum grunnskólann og sundlaugina vegna lyktar.

Íbúar bjarga biksvörtum fuglum eftir olíuleka á Suðureyri
Íbúar á Suðureyri hafa þurft að taka til hendinni og bjarga fuglum sem hafa farið illa út úr þúsunda lítra olíuleka sem varð í bænum á fimmtudag.

Tjaldur slær met: Fór beint að hitta makann
Tjaldurinn er ansi snemma á ferðinni þetta árið en tjaldur sem hefur vetursetu á Ermarsundseyjum sást í Kjós í gær. Fuglinn virðist hafa flogið í beinustu leið í átt að maka sínum eftir veturinn.

Fór í leit að snípum en rakst á mjög óvæntan tittling
Fuglaskoðari á vegum Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands fór í gær að horfa eftir snípum á milli Dynjanda og Horns í Nesjum. Hann fékk þó meira fyrir peninginn en hann hafði gert ráð fyrir.

Yfir 29 þúsund fiskar og nokkrir fuglar drápust í óveðrinu á Reykjanesi
Talið er að yfir 29 þúsund fiskar hafi drepist í óveðrinu sem gekk yfir aðfaranótt þriðjudags í Stóru Sandvík á vestanverðu Reykjanesi. Þá er talið að fuglar sem fundust í fjörunni hafi drepist af völdum óveðursins.

Óvenjulega gæfur hrafn gefur frá sér einkennileg ástarhljóð
Varpstofn hrafna í Reykjavík hefur stækkað töluvert á síðustu árum. Fuglarnir para sig á þessum árstíma og eru því mjög áberandi í borginni. Við hittum ungan hrafn í leit að ást en hann fann í staðinn góðan vin í fréttamanni okkar.

Áform borgarinnar minni á ævintýri H. C. Andersen
Formaður Fuglaverndar segir áformaða landfyllingu í Skerjafirði eyðileggja einstakt fuglalíf í borgarlandinu. Íbúar safna nú undirskriftum til að stöðva framkvæmdina og eru vongóðir um að stjórnmálamenn séu meðfærilegri nú rétt fyrir kosningar.

Eyrugla stoppuð upp á Selfossi og fer í Grímsnes
Eyrugla, sem fannst dauð við sumarbústað í Grímsnesi síðasta sumar fær nú nýtt hlutverk því hún hefur verið stoppuð upp og fer aftur í Grímsnesið. Hamskeri, sem sá um verkið, segir mjög vandasamt að stoppa upp uglur.

Hungur líklega ástæða fjöldadauða en grannt fylgst með fuglaflensunni
Fuglaflensa greindist ekki í sýnum sem tekin voru úr svartfuglshræjum sem fundust á ströndum við Austurland. Ástæða fjöldadauðans er ekki ljós en sérfræðingar Matvælastofnunar telja hungur líklegustu skýringuna.

Segja ólíklegt að fuglaflensa hafi valdið fjöldadauða svartfugla hér á landi
Matvælastofnun mun koma til með að senda sýni til rannsóknar úr fjölda svartfugla sem fundust dauðir á Suðausturlandi en þar verður meðal annars kannað hvort um fuglaflensa hafi valdið dauða fuglanna. Mikið er um fuglaflensu í Evrópu um þessar mundir, bæði í villtum fyglum og alifuglum.

Mældu óvart ferðir þorsks og skarfs með sömu merkingunni
Rafeindamælitæki frá íslenska hátæknifyrirtækinu Stjörnu-Odda, sem komið var fyrir í þorski í Eystrasalti til að mæla hegðun hans, mældi nýlega óvart einnig hegðun skarfs. Var því hegðun tveggja dýrategunda mæld með sama mælinum.

Yngsti æðarbóndi landsins ætlar að koma æðardúnsvefnpokanum á kortið
Árni Rúnar Örvarsson er yngsti æðarbóndi landsins. Hann fer fyrir nýsköpunarfyrirtækinu Icelandic Eider sem stefnir að því að verða fyrsta fyrirtækið í heiminum til að fjöldaframleiða æðardúnsvefnpoka.

Yfirvöld víða á tánum vegna tilvika fuglaflensu
Alþjóðlegu dýraheilbrigðisstofnuninni (OIE) hefur borist nokkur fjöldi tilkynninga síðustu daga um alvarlega fuglaflensu í Evrópu og Asíu. Þá hefur 21 maður greinst með undirtýpu H5N6 í Kína á þessu ári, fleiri en allt árið 2020.

RAX Augnablik: Var kominn með hælana út fyrir brúnina á tvö hundruð metra fuglabjargi
Færeyingar eru að mörgu leyti í sterkum tengslum við náttúruna og Ragnar Axelsson elti eitt sinn mann að nafni Heine upp á fuglabjarg til þess að fylgjast með honum veiða fýl með háfi.

Vegagerð um Teigsskóg boðin út á næstu vikum
Eftir tveggja áratuga deilur um Teigsskóg er komið að því að bjóða út vegagerð í gegnum skóginn umdeilda og er stefnt er að því að vinnuvélar verði komnar á svæðið síðla vetrar.

Náttúruperla við ströndina sem fáir utan heimamanna vissu af
„Hér er mikil náttúruperla,“ segir jarðfræðingurinn Steingrímur J. Sigfússon um klettaströndina á Rauðanesi í Þistilfirði, sem lengi vel var nánast eins og vel varðveitt innansveitarleyndarmál, en ferðamenn hafa verið að „uppgötva“ á seinni árum.

Skárri kostur en algjört bann sem hafi verið til umræðu
Rjúpnaveiðimenn sýna hertum veiðireglum skilning þrátt fyrir að vilja hafa þær óbreyttar. Veiðibann er á meðal þeirra leiða sem skoðað var að fara.

Forfeðurnir hjuggu niður álftir og söltuðu í tunnur
Steingrímur J. Sigfússon hyggst meðal annars sinna æðarvarpi og vonast til að þurfa sem sjaldnast að fara í jakkaföt nú þegar hann hefur látið af þingmennsku. Á heimaslóðum sínum í Þistilfirði rifjar hann upp að forfeður hans veiddu álftir sér til matar.

Lukkudýr Seahawks klóraði stuðningsmann í höfuðið
Stuðningsmaður NFL-liðsins Seattle Seahawks komst í full mikið návígi við lukkudýr liðsins á meðan leiknum gegn Los Angeles Rams stóð.

Önd stal senunni á Kópavogsvelli
Undir lok fyrri hálfleiks í leik Breiðabliks og Paris Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu í gær setti óvæntur gestur skemmtilegan svip á viðureignina.

Sjaldgæfur gestur í Vatnsmýrinni
Bognefur sást í Vatnsmýrinni í gær en sá fugl er mjög sjaldgæfur gestur hér á landi. Fuglinn er af storkættum og er skreyttur litríkum fjöðrum.

Ernir fljúga yfir vinnusvæði þrátt fyrir sprengingar og véladrunur
Miklar sprengingar og drynjandi hávaði vinnuvéla í brúargerð í Þorskafirði hafa ekki fælt haferni frá vinnusvæðinu. Þeir fljúga yfir á hverjum degi til að forvitnast um framvindu verksins, að sögn verkstjóra Suðurverks.

Fjölbreytileiki, fjölástir og loðboltar í sjónvarpsþáttunum Afbrigði
„Það var ýmislegt sem kom mér á óvart. Kannski aðallega hvað við erum oft að reyna að fitta inn í eitthvað fyrirfram mótað norm sem við þorum ekki að stíga út fyrir, og hvað það er hressandi að gefa skít í það,“ segir Ingileif Friðriksdóttir í viðtali við Vísi.