
Fuglar

Boða hertar sóttvarnir vegna skæðrar fuglaflensu
Matvælastofnun mun leggja til við ráðherra að fyrirskipa hertar sóttvarnir hér á landi frá miðjum febrúar vegna skæðrar fuglaflensu, sem heldur áfram að breiðast út víða um heim. Talsverðar líkur eru taldar á því að fuglaflensan berist hingað með farfuglum og MAST segir afleiðingar smits á stórum alifuglabúum geta verið mjög alvarlegar.

Skutu flugeldum á endurnar á Tjörninni
Íbúum við Tjörnina er brugðið en ungir menn hafa sést þar við þann ljóta leik að kveikja á flugeldum og kínverjum og beina að fuglalífi sem þar er.

Borgarvogur verði friðlýstur
Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu Borgarvogs í Borgarbyggð sem friðlands. Áformin eru kynnt í samstarfi við landeigendur og sveitarfélagið Borgarbyggð.

Rjúpnaveiði lítil í vetur: Formaður Skotvís telur líklegt að fálkadauða megi rekja til rjúpnaleysis
Rjúpnaveiði hefur verið fremur lítil í vetur og segir formaður Skotveiðifélags Íslands, Skotvís, að það sem bjargi jólamatnum á mörgum heimilum séu rjúpur í frystinum frá síðasta vetri. Veiðin rétt dugi fyrir jólamatnum.

Telur fálkadauða mega rekja til rjúpnaleysis
Sex dauðir eða deyjandi fálkar hafa fundist hér á landi í nóvember. Þrír ungar og þrír fullorðnir. Tveir þeirra hafa fundist á Akureyri. Fuglafræðingur telur góðar líkur á því að rjúpnaleysi sé um að kenna.

Hálfétinn fálki fannst við miðbæ Akureyrar
Dauður, hálfétinn fálki fannst skammt frá líkamsræktarstöðinni World Class við miðbæ Akureyrar í fyrradag. Náttúrufræðingur telur líklegt að hræætur hafi gætt sér á hræinu.

Fálki hámaði í sig hettumáv á palli í Fossvogi
Þórdís Bragadóttir, íbúi í Fossvogi, vissi ekki alveg hvaðan á sig stóð veðrið í gær þegar fálki birtist á pallinum heima hjá henni og fór að háma í sig ungan hettumáv sem þar lá dauður.

Síbrotafugl handsamaður af lögreglunni
Tólf ára gamall örn, eða síbrotafugl eins og lögreglan á Vestfjörðum kallar hann, var í dag handsamaður eftir að hafa komið sér í ógöngur.

Páfagaukurinn Kókó er sannfærður um að hann sé hundur
Páfagaukurinn Kókó er sannfærður um að hann sé hundur. Fuglinn leggur sig með hundunum á heimilinu, drekkur vatn úr hundaskálinni og nartar í hundamat.

María Meðalfellsgæs leitar að heimili
Maríu Meðalfellsgæs vantar heimili. Hún er gæf og félagslynd en á erfitt með að fóta sig í borginni.

Gæfur svanur veitti níu ára dreng mikla athygli við Reykjavíkurtjörn í dag
Svanurinn elti Baltasar upp á trébekk við tjörnina og leyfði drengnum að klappa sér í dágóða stund.

Járnvilji í bestu dúfu landsins
Bréfdúfan Járnfrúin átti stórsigur á mótaröð sumarsins í keppnisflugi og hefur verið valin besta dúfa landsins. Eigandi hennar á yfir eitt hundrað dúfur og segist þekkja þær allar í sundur.

Vargurinn í vandræðum vegna svartfuglsveiða við Látrabjarg
Snorri Rafnsson Vargur segir öfundarmenn reyna að koma á sig höggi - hann sé með allt sitt á hreinu.

Lóan er komin
Lóan er komin, mögulega að kveða burt snjóinn.

Hrafnar reyndu að vara við
Gerður Sigurðardóttir átti húsið að Gerðisbraut 10 sem nú er til sýnis í Eldheimum.

Óðinshaninn mættur eftir ótrúlegt ferðalag
Nær allir farfuglar sem verpa á Íslandi á sumrin eru komnir hingað til lands og segir fuglafræðingur vorið komið að því leytinu til.

Sprengingar trufluðu ekki arnarvarp - sumarbústaðir meiri ógn en vegir
Haförn kom upp unga á miðju framkvæmdasvæði á Barðaströnd í fyrrasumar á sama tíma og sprengingar stóðu sem hæst nálægt hreiðrinu. Forstöðumaður Náttúrufræðistofu Vestfjarða segir erni ekki hræðast bíla jafnmikið og gangandi fólk. Sumarbústaðir séu mun verri á arnarsvæðum heldur en vegir.