
Loðnuveiðar

Byggðirnar bíða spenntar fregna um hvort loðnuganga sé fundin
Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn hafa glæðst eftir að fiskiskip urðu vör við flekki djúpt út af Suðausturlandi í gær, sem líklegt þykir að séu stórar loðnutorfur. Í loðnubyggðum landsins bíða menn spenntir fregna um hvort loðna sé fundin í nægilegu magni til að leyfa veiðar.

Rákust á stóra torfu og fara í loðnumælingar
Fiskiskip á kolmunnaveiðum rakst á talsvert stóra uppsjávarfiskstorfu við aukaleit undan suðausturströnd landsins í gær. Hafrannsóknarstofnun mun hefja formlegar loðnumælingar í dag. Sviðsstjóri hjá Hafró segir um jákvæðar fréttir að ræða fyrir mögulega loðnuvertíð.

Halda í vonina um loðnuvertíð í vetur
Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn dvínuðu í dag þegar Hafrannsóknastofnun tilkynnti að sáralítið hefði fundist af loðnu í þeirri loðnuleit sem núna stendur yfir. Útgerðarmenn halda þó enn í vonina um að loðnan finnist og að hægt verði að hefja veiðar.

Sáralítið mælist af loðnu
Önnur yfirferð loðnumælinga á árinu er langt komin og segir í tilkynningu Hafrannsóknarstofnunnar að „mjög lítið“ hafi mælst af loðnu. Eftir standi að fara yfir Vestfjarðamið og Suðausturmið.

Ágæt von um að loðnan sem upp á vantar finnist
Loðnubrestur með tugmilljarða efnahagsáfalli blasir við ef lítið finnst í loðnuleit þriggja fiskiskipa sem hefst í kvöld. Leiðangursstjórinn telur samt ágæta von um að nægilegt magn finnist til að hægt verði að leyfa einhverjar veiðar.

Tugmilljarða verðmæti í húfi og halda í vonina um loðnuvertíð
Ráðamenn sjávarútvegsfyrirtækja halda enn í vonina um loðnuvertíð í vetur þrátt fyrir að Hafrannsóknastofnun hafi tilkynnt í dag að enginn loðnukvóti verði gefinn út eftir nýafstaðna loðnuleit. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir þjóðarbúið.

Halda fast í fyrri ráðgjöf um engar loðnuveiðar
Hafrannsóknastofnun mun ekki breyta fyrri ráðgjöf um engar loðnuveiðar á þessari vertíð eftir mælingar síðustu vikuna. Ástæða þess er að lítið mældist og sterkar líkur á því að loðna sé enn undir hafísnum norðvestur af Íslandi.

Áfram enginn loðnukvóti
Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2023/2024.

Réðu reynslubolta frá Brim sem flytur fjölskylduna til Fáskrúðsfjarðar
Garðar Svavarsson hefur verið ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar hf. Fáskrúðsfirði. Garðar tekur við starfinu af Friðriki Mar Guðmundssyni sem lætur af störfum á haustmánuðum eftir 19 ára starf hjá félögunum, þar af sem framkvæmdastjóri undanfarin 10 ár.

Methagnaður hjá Loðnuvinnslunni
Loðnuvinnslan hefur aldrei skilað meiri hagnaði en í fyrra en hann var þrír og hálfur milljarður króna. Það er langbesta rekstrarár fyrirtækisins en ári áður var hagnaðurinn 1,2 milljarðar króna.

Kafari náði mögnuðum myndum af þéttri loðnutorfu við Hjalteyri
Kafari sem var að tína skeljar á hafsbotni í Eyjafirði í byrjun vikunnar upplifði það að þétt loðnutorfa var skyndilega farin að synda í kringum hann. Sérstaka athygli vekur að loðnan var óhrygnd, sem styrkir vísbendingar um breytt hegðunarmynstur og að hún hrygni í auknum mæli við Norðurland.

Fjórar loðnur á tíkallinum –billjónir loðna á land!
Þau góðu tíðindi bárust frá Hafrannsóknarstofnun að loðnuafli á yfirstandandi fiskveiðiári yrði aukinn um 184.100 tonn frá síðustu ráðgjöf, heildarmagn loðnu sem veiða má nemur því 459.800 tonnum. Þessi aukning mun skipta sköpum fyrir ríkissjóð við núverandi efnahagsaðstæður.

Flotinn mokveiddi hrognafulla loðnu undan Reykjanesi í dag
Loðnuvertíðin stendur nú sem hæst. Loðnan er komin að hrygningu og þar með í sitt verðmætasta form og er hver dagur að skila eins til tveggja milljarða króna gjaldeyristekjum.

Meint olía reyndist loðna
Í reglubundnu eftirlitsflugi í vikunni varð þyrlusveit Landhelgisgæslunnar vör við flekki sem í fyrstu sýn virtust vera olíuflekkir. Við nánari skoðun kom í ljós að um loðnutorfur var að öllum líkindum að ræða.

Óvænt loðna í Húnaflóa ávísun á mikil verðmæti
Miklar loðnutorfur hafa óvænt fundist norður af Húnaflóa og tilkynnti Hafrannsóknastofnun í dag að búast mætti við að minnsta kosti eitthundrað þúsund tonna aukningu loðnukvótans. Viðbótin gæti skilað tíu milljarða króna útflutningsverðmæti.

Reikna með um hundrað þúsund tonna hækkun á loðnuaflanum
Hafrannsóknarstofnun boðar hækkun á tillögum um hámarksafla á loðnuvertíðinni eftir að umtalsvert magn af hrygningarloðnu mældist norður af Húnaflóa á dögunum. Gera megi ráð fyrir yfir hundrað þúsund tonna hækkun, varlega áætlað. Sjómenn eru hvattir til loðnuveiða á þeim slóðum frekar en öðrum.

Bræðslur keyrðar á olíu vegna raforkuskerðingar
Annan veturinn í röð hafa fiskimjölsverksmiðjur neyðst til að brenna dísilolíu vegna raforkuskerðingar. Landsvirkjun segir þetta vegna mikils álags, kerfið sé nánast uppselt.

„Alltaf brælur í kortunum, lægðagangur og ógeð“
Loðnuvertíðin er að fara á fulla ferð þessa dagana og styttist í að loðnan verði hæf til frystingar á Japansmarkað. Síendurteknar brælur eru hins vegar í veðurkortunum og gætu hamlað veiðum.

Auka loðnukvótann um tæplega sextíu þúsund tonn
Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni 2022-2023 verði ekki meiri en 275.705 tonn, sem þýðir 57.300 tonna hækkun ráðgjafar frá þeirri sem gefin var út 4. október 2022. Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknarstofnunar.

Mest af loðnu fyrir norðan
Rannsóknaskip Hafrannsóknarstofnunar, Árni Friðriksson, er nú við loðnuleit. Skipið lagði frá Hafnafirði í síðustu viku og hélt suður fyrir land. Fyrir um viku síðan lagði skipið lykkju á leið sína norðvestur af landinu og hélt síðan til vesturs. Forstjóri Síldarvinslunnar segir ástæðu til bjartýni.

Sáu stórar loðnutorfur við Kolbeinseyjarhrygg
Áhöfn hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar hefur fundið stórar loðnutorfur við Kolbeinseyjarhrygg. Þetta er það mesta sem sést hefur af loðnu til þessa í sérstökum aukaleitarleiðangri skipsins, sem hófst á miðvikudag í síðustu viku.

Grænlensk skip landa loðnu meðan íslenski flotinn bíður
Tveir grænlenskir togarar, Tasiilaq og Polar Ammasak, lönduðu loðnu í íslenskum höfnum í gær. Loðnan veiddist úti af Norðausturlandi úr kvóta Grænlendinga innan íslensku lögsögunnar.

Hafrannsóknaskip í loðnu úti af Vopnafirði og Langanesi
Áhöfn hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar er búin að finna loðnu úti af Vopnafirði og Langanesi. Skipið heldur áfram loðnuleit næstu daga vestur með Norðurlandi í sérstökum aukaleitarleiðangri sem hófst síðastliðinn miðvikudag en byrjað var á því að leita undan sunnanverðum Austfjörðum.

Lagðir af stað í aðra aukaleit að loðnu á kostnað útgerðar
Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt úr Hafnarfjarðarhöfn í morgun til loðnuleitar. Þetta er annar aukaleitarleiðangurinn sem efnt er til á þessari vertíð en sá fyrri var í byrjun desembermánaðar.

Langar að hefja loðnuvertíð en sigla til kolmunnaveiða
Ekkert af íslensku loðnuskipunum virðist ætla til loðnuveiða núna í byrjun ársins. Uppsjávarflotanum virðist öllum stefnt til kolmunnaveiða norðan Skotlands.

Loðna flæðir inn í vinnslur á Vopnafirði og Norðfirði
Fyrstu loðnuförmum vertíðarinnar var landað í tveimur Austfjarðahöfnum í dag. Á Vopnafirði sögðu menn loðnuna sannkallaðan jólabónus en áratugur er liðinn frá því síðast tókst að hefja þar loðnuvinnslu fyrir jól.

Jólabónus Vopnfirðinga að hefja loðnuvinnslu fyrir jól
Fyrsti loðnufarmur þessarar vertíðar kom til Vopnafjarðar í morgun en þar stendur núna yfir löndun úr Víkingi AK, skipi Brims. Rekstrarstjóri Brims segir loðnuna sannkallaðan jólabónus en tíu ár eru frá því loðnuvinnsla hófst síðast á Vopnafirði fyrir jól.

Fyrstu loðnufarmarnir á leið til Vopnafjarðar og Norðfjarðar
Búist er við að fyrstu loðnu þessarar vertíðar verði landað á Austfjörðum á morgun. Von er á farmi til Vopnafjarðar í fyrramálið og öðrum til Norðfjarðar eftir hádegi. Nýafstaðin loðnuleit gefur ekki tilefni til að auka loðnukvótann, að mati Hafrannsóknastofnunar.

Loðnuveiðar hafnar en ekki talið tilefni til að auka kvóta
Fyrsta loðnan á þessari vertíð er veidd og var skip Síldarvinnslunnar, Beitir, komið með ellefuhundruð tonn nú laust fyrir hádegi. Hafrannsóknastofnun telur ekki tilefni til þess að auka loðnukvótann, eftir auka loðnuleiðangur sem lauk um helgina.

Útgerðir kosta mælingar í von um aukinn loðnukvóta
Rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson, héldu til loðnumælinga eftir hádegi í gær og er gert ráð fyrir að túrinn taki allt að tíu daga.