
HM karla í handbolta 2023

„Mætti halda að þjálfarateymið hafi verið í brandarakeppni á bekknum“
Arnar Daði Arnarsson, stjórnandi Handkastsins, var vægast sagt ósáttur eftir tap íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Svíum á HM í gær. Tapið þýðir að vonir Íslands um sæti í átta liða úrslitum eru nánast úr sögunni og Arnar vandaði þjálfarateymi liðsins ekki kveðjurnar.

HM í dag: Eigum skilið að fara heim
Það var ekki hátt risið á Henry Birgi og Stefáni Árna eftir tapið gegn Svíum í Scandinavium.

Myndasyrpa frá tapinu súra gegn Svíum
Vonir íslenska karlalandsliðsins í handbolta um að komast í átta liða úrslit á HM eru nánast orðnar að engu eftir súrt tap liðsins gegn heimamönnum í Svíþjóð í gær.

Skýrsla Henrys: Séra Palicka sá um útför íslenska liðsins
Draumur íslenska liðsins á HM varð að martröð í kvöld. Tap gegn Svíum og ballinu í raun lokið í Svíþjóð. Það eru gríðarleg vonbrigði. Svíagrýlan er víst ekki alveg dauð eftir allt saman.

„Ég hef enn sömu trú á liðinu“
Bjarki Már Elísson átti fínan leik fyrir íslenska handboltalandsliðið í kvöld, en það dugði ekki til og liðið mátti þola fimm marka tap gegn Svíum, 35-30. Bjarki var eðlilega sár þegar hann mætti í viðtal að leik loknum.

„Einkennist af því að við erum með ellefu algjör dauðafæri sem við misnotum“
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, var eðlilega súr og svekktur eftir fimm marka tap liðsins gegn Svíum á HM í kvöld.

„Án gríns, þetta er svo leiðinlegt“
„Ég er bara gríðarlega sár. Sár og svekktur og mér finnst við alltaf vera inni í leiknum,“ sagði leikstjórnandinn Gísli Þorgeir Kristjánsson eftir fimm marka tap Íslands gegn Svíþjóð á HM í kvöld.

Einkunnir strákanna okkar á móti Svíþjóð: Gísli Þorgeir besti maður liðsins
Strákarnir okkar fengu erfitt verkefni í kvöld og það þurftu mun fleiri leikmenn að spila betur ef íslenska liðið átti að halda sér á lífi á þessu heimsmeistaramóti.

Biður þjóðina afsökunar
„Mér líður illa og ég vill byrja á því að segja sorry við þjóðina,“ segir Elliði Snær Viðarsson, leikmaður íslenska landsliðsins, sem tapaði fyrir Svíum 35-30 í öðrum leik liðsins í milliriðlinum.

Topparnir í tölfræðinni á móti Svíþjóð: Palicka smjattaði á dauðafærum strákanna
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði með fimm marka mun á móti Svíum, 35-30, í öðrum leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð og Póllandi.

Twitter eftir tapið gegn Svíum: Eigum að vera að gera mikið betur
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mátti þola fimm marka tap gegn Svíum á HM í handbolta í kvöld. Tapið er dýrt fyrir liðið sem þarf nú að treysta á hagstæð úrslit úr öðrum leikjum til að eiga möguleika á sæti í átta liða úrslitum, en eins og við var að búast fylgdist íslenska þjóðin vel með leiknum og lét skoðanir sínar í ljós á Twitter.

Umfjöllun: Ísland - Svíþjóð 30-35 | Vonin veiktist verulega eftir tap fyrir heimamönnum
Von íslenska karlalandsliðsins í handbolta um að komast í átta liða úrslit á HM 2023 er afar veik eftir tap fyrir Svíþjóð, 30-35, í Gautaborg í kvöld. Eins marks munur var á liðunum í hálfleik, 16-17, en Svíar voru umtalsvert sterkari í seinni hálfleik sem þeir unnu, 18-14.

Umfjöllun: Brasilía - Ungverjaland 25-28 | Enginn brasilískur greiði
Ungverjaland kom sér í frábæra stöðu til að komast í átta liða úrslit á HM 2023 í handbolta karla með sigri á Brasilíu, 25-28.

Aron Pálmarsson ekki með íslenska liðinu gegn Svíum
Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins, verður ekki með í leiknum gegn Svíþjóð í milliriðli II á HM í kvöld.

Íslenska gleðin við völd fyrir stærsta leik HM til þessa: Myndir
Íslensku stuðningsmennirnir komu saman í Gautaborg í dag fyrir annan leik Íslands í milliriðli sem er á móti Svíum á eftir. Þetta er jafnframt mikilvægasti leikur íslenska liðsins á HM til þessa.

Pallborðið: Einar smá stressaður en Gunnar hefur fulla trú á sigri á Svíum
Svava Kristín Gretarsdóttir stýrði Pallborðinu á Vísi í dag þar sem kvöldleikur Íslands við Svíþjóð á HM í handbolta var krufinn til mergjar. Stemningin var líka skoðuð í beinni útsendingu frá stuðsvæði Íslendinga í Gautaborg.

Svíagrýlubaninn Fúsi fisksali svartsýnn á leikinn
Sigfús Sigurðsson fisksali var í liðinu sem drap Svíagrýluna. Hann er hóflega bjartsýnn fyrir leikinn í dag.

Portúgalar hlupu yfir Grænhöfðaeyjar og komust upp fyrir Ísland
Fyrstu leikjum dagsins í milliriðlum heimsmeistaramótsins í handbolta er lokið þar sem Spánverjar tryggðu sér sæti í átta liða úrslitunum.

„Þetta verður heimsklassaleikur“
„Ég er bara ferskur núna og er klár í slaginn fyrir leikinn,“ segir Ómar Ingi Magnússon, leikmaður íslenska landsliðsins, fyrir æfingu liðsins í Scandinavium höllinni í Gautaborg í gær.

Sænskur sérfræðingur: Meiri breidd í sænska liðinu
Blaðamaðurinn Johan Flinck hjá Aftonbladet er helsti handboltapenni Svía og hann segir að það sé meiri pressa á Íslendingum en Svíum í kvöld.

Klár í slaginn eftir flensuna
„Það er æðislegt að geta hitt strákana aftur og komast líka á æfingu,“ segir Elvar Örn Jónsson leikmaður íslenska landsliðsins fyrir æfingu liðsins í Scandinavium höllinni í Gautaborg í gær.

Björgvin Páll og Landin spiluðu 250. landsleikinn sinn með eins dags millibili
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson spilaði sinn 250. landsleik í sigri Íslands á Grænhöfðaeyjum í vikunni.

HM í dag: Geggjaði leikurinn hjá Íslandi verður gegn Svíum í kvöld
Ísland og Svíþjóð mætast í öðrum leik þjóðanna í milliriðlinum á HM í handbolta í kvöld. Ísland þarf á sigri að halda ætli liðið sér í 8-liða úrslitin.

„Næ vonandi að sýna mitt rétta andlit“
„Ég er ferskur, góður og spenntur fyrir leiknum,“ segir Aron Pálmarsson landsliðsfyrirliði en hann þarf að leiða sína menn til sigurs í kvöld.

Fjórir íslenskir meðal fimmtíu bestu en þrír betri en Ómar
Fjórir íslenskir handboltamenn eru á lista norsks sérfræðings yfir fimmtíu bestu handboltamenn heimsins í dag. Enginn þeirra þykir þó meðal þriggja bestu í heimi.

„Hann er bara mjög stressaður þegar ég er að taka þessi skot“
„Jú, hann er bara mjög stressaður þegar ég er að taka þessi skot,“ segir Elliði Snær Viðarsson, landsliðsmaður í handbolta, um frægu miðju skotin hans þegar línumaðurinn skorar í autt markið.

Dansandi HM-kallinn sem stelur senunni leik eftir leik
„Ég veit ekki alveg hvort ég sé búinn að slá í gegn en við erum allavega mætt á HM að styðja íslenska landsliðið, það er ekkert annað hægt að gera,“ segir Karl Brynjólfsson sem hefur slegið í gegn í stúkunni með einstökum danssporum á leikjum íslenska liðsins.

„Förum í þennan leik til þess að vinna hann“
„Mér líður vel,“ sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í aðdraganda stórleiksins gegn Svíum þar sem allt er undir hjá íslenska liðinu.

Rekinn af velli fyrir að bíta andstæðing
Bandaríski handboltamaðurinn Paul Skorupa er á leið í bann eftir að hafa bitið Husain Al-Sayyad í leik Bandaríkjanna og Barein í dag.

Ljósmyndarar á HM varaðir við þjófum
Ljósmyndarar sem staddir eru í Svíþjóð að taka myndir af heimsmeistaramótinu í handbolta hafa margir hverjir lent í því að dýrum búnaði þeirra sé stolið úr bílum þeirra á meðan að mótinu stendur.