
Mál Kanye West

Ætlar í stríð við Kim leyfi hún North ekki að rappa á lagi með Diddy
Kanye West gaf út lag með dóttur sinni North og Sean „Diddy“ Combs um helgina en rapp North á laginu virðist vera í óþökk Kim Kardashian, fyrrverandi eiginkonu West. Búið er að eyða laginu en fyrir útgáfuna sagðist West ætla í stríð við Kim ef hún kæmi í veg fyrir útgáfuna.

Kanye og Censori séu við það að skilja
Tónlistarmaðurinn Kanye West, eða Ye, og eiginkona hans Bianca Censori og eru sögð við það að skilja. Parið hefur verið gift frá árinu 2022 og hefur vakið mikla athygli saman, þá sérstaklega fyrir klæðaburð hennar, eða skort á honum.

Nasistadýrkun og gyðingaandúð: Ye hættur á Twitter
Tónlistarmaðurinn Kanye West, eða Ye eins og hann hefur einnig kallað sig, hefur lokað eða eytt aðgangi sínum á X/Twitter eftir að hafa farið hamförum á miðlinum um helgina.

Segist vera nasisti sem elskar Hitler
Kanye West hefur á síðustu klukkutímum sagst vera nasisti og elska Adolf Hitler. Hann segir gyðingahatur bull sem gyðingar bjuggu til og hann ætli aldrei aftur að biðjast afsökunar á ummælum sínum.

„Kemur í ljós að þetta er í raun einhverfa“
Kanye West segist hafa verið ranglega greindur með geðhvörf og sé í raun einhverfur. Hann þakkar eiginkonu sinni fyrir að senda hann í greiningu og segist hættur að taka geðlyf.

Adidas og Ye sættast
Þýski íþróttavoruframleiðandinn Adidas og rapparinn Ye, áður Kanye West, hafa náð sáttum eftir að hafa staðið í málaferlum síðan Adidas sleit samstarfi við rapparann árið 2022.

Ye biðst afsökunar á gyðingaandúð á hebresku
Umdeildi rapparinn og fatahönnuðurinn Ye, áður Kanye West, hefur beðið gyðingasamfélagið afsökunar vegna hatursfullra ummæla sem hann hefur síðastliðið ár látið falla um gyðinga. Hann segist nú vonast eftir fyrirgefningu og sjá eftir ummælum sínum.

Bannað að kenna á annarri hæð því Kanye er hræddur við tröppur
Kennari, sem áður kenndi við skóla sem stofnaður var af rapparanum og athafnamanninum Kanye West, segir börn sem ganga í skólann ekki fá tilhlýðilega menntun. Hún er einn fyrrverandi kennara sem nú standa í málaferlum við skólann.

Kanye hatar ekki lengur gyðinga þökk sé Jonah Hill
Rapparinn umdeildi Kanye West kveðst ekki lengur hata gyðinga. Ástæðan er einföld: frammistaða Jonah Hill í kvikmyndinni 21 Jump Street frá árinu 2012.

Kanye West sagður vera kominn með nýja „eiginkonu“
Slúðurmiðlar vestanhafs greina frá því að tónlistarmaðurinn umdeildi Kanye West sé kominn með nýja konu upp á arminn. Ekki nóg með það, heldur hafi þau haldi leynilega brúðkaupsathöfn nú á dögunum.

„Að deila uppeldinu er virkilega fokking erfitt“
„Að deila uppeldinu er virkilega fokking erfitt,“ sagði Kim Kardashian í viðtali við útvarpskonuna og hlaðvarpsþáttastjórnandann Angie Martinez á dögunum. Kardashian deilir forræði yfir börnunum sínum fjórum með fyrrverandi eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Ye.

Kanye West segist hafa komið að Kim Kardashian með Chris Paul
Stórstjörnur í NBA körfuboltanum eru farnir að dragast inn í hringavitleysuna sem er í gangi í kringum tónlistarmanninn og tískuhönnuðinn Kanye West.

„Það er margt sem ég elska við Hitler“
Tónlistarmaðurinn Ye, áður Kanye West, hefur aftur verið bannaður á Twitter eftir að hafa deilt mynd af lógói þar sem Davíðsstjörnunni og hakakrossinum hefur verið blandað saman.

West gert að greiða Kardashian um 29 milljónir á mánuði í meðlagsgreiðslur
Bandaríska rapparanum Kanye West hefur verið gert að greiða 200 þúsund Bandaríkjadali á mánuði í meðlagsgreiðslur til fyrrverandi eiginkonu sinnar, raunveruleikastjörnunnar og viðskipakonunnar Kim Kardashian.

Rannsaka ásakanir á hendur Kanye West
Tískurisinn Adidas rannsakar nú ásakanir á hendur rapparanum og tískuhönnuðinum Kanye West, einnig þekktum sem Ye, sem sakaður er um að hafa skapað „eitrað andrúmsloft“ meðan hann starfaði með fyrirtækinu.

Segist ekki hafa beitt sér fyrir endurkomu Ye
Elon Musk, sem varð í gær eini eigandi samfélagsmiðilsins Twitter, segist ekki hafa beitt sér fyrir því að tónlistarmaðurinn Ye, áður Kanye West, hafi fengið að koma aftur á miðilinn eftir að hafa verið úthýst þaðan fyrr í mánuðinum vegna hatursorðræðu hans í garð gyðinga.

Sagður hafa viljað nefna plötu eftir Adolf Hitler
Bandaríski tónlistarmaðurinn Kanye West er sagður hafa dáðst lengi að nasistaforingjanum Adolf Hitler, svo mjög að hann vildi nefna plötu sem hann gaf út árið 2018 „Hitler“. Samstarfsaðilar West hafa fjarlægt sig frá honum eftir röð hatursfullra ummæla í garð gyðinga að undanförnu.

Hætta að spila útgöngulag með Ye eftir hatursfull ummæli
Lagið Power með tónlistarmanninum Ye, áður Kanye West, mun ekki lengur heyrast í græjunum á Vitality vellinum, heimavelli enska úrvalsdeildarfélagsins Bournemouth, eftir að rapparinn lét hatursfull ummæli um gyðinga falla nýverið.

Ye vísað á dyr í höfuðstöðvum Skechers
Tónlistarmanninum og fatahönnuðinum Ye, áður Kanye West, var vísað á dyr þegar hann mætti óboðinn í höfuðstöðvar Skechers í Los Angeles í gær. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að Ye og föruneyti hans hafi verið fylgt út eftir stutt samtal.

Stjörnurnar skera á tengslin við Ye
Íþróttamennirnir Aaron Donald, leikmaður Los Angeles Rams í NFL deildinni, og Jaylen Brown, leikmaður Boston Celtics í NBA deildinni, hafa báðir slitið samstarfi sínu við Donda, markaðsstofu Ye - áður þekktur sem Kanye West, vegna ummæla sem tónlistarmaðurinn lét falla nýverið.

Adidas slítur samstarfi við West vegna hegðunar hans
Þýski íþróttavöruframleiðandinn Adidas ætlar að slíta samstarfi sínu við tónlistarmanninn Kanye West vegna endurtekinnar særandi hegðunar hans. West hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum og í viðtölum og spúið gyðingahatri.

Einangraður og umdeildur eftir röð hatursfullra ummæla
Rapparinn Kanye West á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir en ummæli hans og hegðun síðastliðnar vikur hafa vakið talsverða athygli. Samfélagsmiðlar hafa lokað á aðgang hans og fyrirtæki slitið öll tengsl við hann. Ekkert lát virðist vera á hatursfullum ummælum hans en af ýmsu er að taka.

Fjölskylda George Floyd íhugar málaferli gegn Kanye
Fjölskylda George Floyd sem myrtur var af lögreglumönnum í Minneapolis í maí árið 2020 íhugar nú að fara í mál við rapparann Kanye West. Kanye sagðist efast um orsök dauða Floyd í hlaðvarpsþætti í vikunni.

Ye kaupir eigin samfélagsmiðil
Listamaðurinn Ye, eða Kanye West, ætlar að kaupa Parler, sem er umdeildur og áhrifalítill samfélagsmiðill, skömmu eftir að hann var bannaður á Twitter og Instagram vegna færslna sem innihalda gyðingahatur. Ye segir samfélagsmiðla ekki halda uppi málfrelsi og því hafi hann keypt eigin miðil.

Kanye bannaður eftir ásakanir um gyðingahatur
Rapparanum Kanye West var um helgina úthýst af Instagram og Twitter eftir að hafa birt færslur sem hvöttu til ofbeldis gegn gyðingum. West segist ekki geta verið gyðingahatari því hann sé svartur.

Adidas skoðar framtíð Kanye
Fyrirtækið Adidas er að endurskoða samstarf sitt við tónlistarmanninn Kanye West. „Farsælt samstarf byggir á sameiginlegri virðingu og sömu gildunum,“ sagði fyrirtækið í tilkynningu.

Kanye West svarar fyrir sig eftir gagnrýni á „White Lives Matter“ boli
Rapparinn Kanye West sætir mikilli gagnrýni um þessar mundir fyrir að hafa klæðst bol með áletruninni „White Lives Matter“ á tískusýningu í París í vikunni. Þá fullyrti hann að „Black Lives Matter“ hafi verið svik og sagði fólk taka þátt í að „rífa niður svartan mann fyrir að hafa aðra pólitíska skoðun.“

Kanye biður Kim afsökunar
Kanye West hefur beðið fyrrverandi eiginkonu sína, Kim Kardashian, afsökunar á öllu því stressi sem hann hefur valdið henni. Hann segist geta borið erfiðleika sína með Kim saman við erfiðleika sína með Adidas.

Kanye West greindi frá dauða Davidson
Rapparinn Kanye West brást við sambandsslitum Kim Kardashian og Pete Davidson með því að birta andlátstilkynningu á Instagram fyrir Skete Davidson. Frá því Davidson byrjaði með Kim hefur Kanye áreitt leikarann á samfélagsmiðlum og uppnefnt hann „Skete.“

Ye hættir við að koma fram á Coachella
Rapparinn Ye, áður Kanye West, hefur dregið sig út úr Coachella hátíðinni. Hann átti að koma fram á lokakvöldi beggja tónleikahelganna.