Stunguárás við Skúlagötu
1 2 3 … 3 ›
Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Sextán ára piltur sem er grunaður um að hafa banað stúlku og sært tvö önnur ungmenni í stunguárás á menningarnótt hefur verið ákærður. Innlent 25.11.2024 16:43
Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Rannsókn lögreglunnar á stunguárás við Skúlagötu í Reykjavík, sem átti sér stað á Menningarnótt, 24. ágúst síðastliðinn, er lokið. Lögregla hefur sent gögn málsins til Héraðssakóknara. Innlent 25.11.2024 11:40
Skítamix til að gera það besta úr vonlausri stöðu Til stendur að skipta starfsemi Stuðla upp og flytja hluta hennar frá Grafarvogi, þar sem hún hefur verið, upp í Mosfellsbæ. Í nýtt húsnæði sem starfsmenn segja ekki henta. Þar hefur fundist mygla og húsnæðið er ekki hannað fyrir starfsemi að þessu tagi. Funi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Barna- og fjölskyldustofu segir þetta skítamix - verið sé að reyna að gera það besta úr vonlausri stöðu. Innlent 15.10.2024 11:33
Minnast Bryndísar Klöru með tónleikum: „Fallegt hvað allir stóðu saman“ Minningartónleikar til heiðurs Bryndísar Klöru Birgisdóttur eru haldnir í kvöld, þar sem margir fremstu tónlistarmenn landsins koma fram. Skipuleggjandi segist hafa fundið mikinn samtakmátt meðal samnemenda Bryndísar Klöru. Innlent 3.10.2024 19:56
Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Góðgerðarnefnd Verzlunarskóla Íslands heldur á fimmtudaginn minningartónleika um Bryndísi Klöru Birgisdóttur. Á tónleikunum koma fram Bubbi Morthens, GDRN, Aron Can, Friðrik Dór og Páll Óskar. Allur ágóði tónleikanna rennur í minningarsjóð Bryndísar Klöru. Lífið 26.9.2024 22:01
Pilturinn áfram bak við lás og slá Sextán ára piltur sem grunaður er um að hafa banað sautján ára stúlku með hnífi við Skúlagötu í miðbæ Reykjavíkur á Menningarnótt hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 26.9.2024 09:44
„Þetta er ekki átak til einhverra daga eða vikna“ Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, tók á móti tæpum níu milljónum króna sem söfnuðust í Minningarsjóð Bryndísar Klöru með kertasölu og góðgerðahlaupi í Salaskóla. Skipuleggjandi kertasölunnar segir magnað að sjá hvað samtakamáttur þjóðarinnar er mikill þegar bjátar á. Innlent 23.9.2024 21:03
Söfnuðu um níu milljónum í minningu Bryndísar Klöru Minningarsjóði Bryndísar Klöru Birgisdóttur var í dag afhent um níu milljónir króna sem söfnuðust í annars vega kertasölu og hins vegar í áheitahlaupi skólasystkina hennar. Í tilkynningu kemur fram að tæpar sjö milljónir hafi safnast í kertasölunni og um 1,4 í áheitahlaupinu. Forseti Íslands er verndari sjóðsins og tók við peningunum í dag fyrir hönd sjóðsins. Innlent 23.9.2024 16:42
Um sjö milljónir söfnuðust í minningarsjóð með kertasölu Afrakstur kertasölu og framlag verslanakeðja til minningar um Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem jarðsett var síðastliðinn föstudag nemur tæplega 6,9 milljónum króna. Skipuleggjandi sölunnar segir kærleikann áfram þurfa að vera eina vopnið í samfélaginu. Innlent 18.9.2024 11:10
Finnum sérstaklega til þegar börn eigi í hlut Aldrei hafa verið framin jafn mörg manndráp á Íslandi á einu ári líkt og það sem af er þessu ári. Afbrotafræðingur vonast til þess að um sé að ræða topp sem gangi svo aftur niður. Þjóðin finni sérstaklega til þegar börn eiga í hlut í málunum. Innlent 17.9.2024 12:17
„Við berum ekki þeirra sorg“ Þegar þjóðarsálin upplifir hvert áfallið á fætur öðru á það til að gerast að sumir dofni og sýni sinnuleysi en aðrir upplifa rosalega sterkar tilfinningar. Innlent 16.9.2024 20:53
Þriðja manndrápsmálið á árinu þar sem barn lætur lífið Íslenskur maður var handtekinn í Krýsuvík í gærkvöldi, grunaður um að hafa orðið dóttur sinni að bana. Um er að ræða sjötta manndrápsmálið hér á landi í ár, og það þriðja þar sem barn lætur lífið. Innlent 16.9.2024 15:07
Útför Bryndísar Klöru frá Hallgrímskirkju Útför Bryndísar Klöru Birgisdóttur verður frá Hallgrímskirkju klukkan 15 í dag. Útförinni verður streymt á Vísi. Innlent 13.9.2024 11:01
Fólk kveiki á kerti til minningar um Bryndísi Klöru Anna Björt Sigurðardóttir hvetur landsmenn til að kveikja á friðarkerti á föstudag til að minnast Bryndísar Klöru Birgisdóttur. Útför Bryndísar Klöru fer fram á föstudag. Anna Björt hefur haft samband við allar stærstu matvöruverslanir landsins sem munu í dag hefja sölu á sérstöku friðarkerti. Allur ágóði af sölu kertisins rennur óskiptur í Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Innlent 11.9.2024 10:09
Segir kraftaverk að sonur sinn sé á lífi „Mig hefur lengi langað að koma ýmsu á framfæri en ég hef hvorki treyst mér til né haft áhuga að ræða þetta eins og nú. Það brýtur í mér hjartað að nú, fjórum árum seinna, er ung manneskja dáin eftir hnífaárás, og hún átti allt lífið eftir,“ segir Anna María De Jesus, móðir átján ára pilts sem varð fyrir grófri hnífaárás af hálfu unglingsstúlku í apríl árið 2020. Innlent 8.9.2024 11:31
„Þetta má aldrei gerast aftur“ Forseti Íslands kallar eftir samstilltu þjóðarátaki gegn ofbeldi í kjölfar andláts Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem stungin var til bana á Menningarnótt. Opin minningarstund var haldin í Lindakirkju í dag þar sem fólk gat heiðrað minningu Bryndísar Klöru og veitt sorg sinni útrás. Innlent 7.9.2024 19:19
„Við erum öll harmi slegin“ Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, segir nauðsynlegt að ráðast að rótum vandans vegna þeirra sorglegu atburða sem hafa átt sér stað í samfélaginu undanfarið. Íslendingar þurfi að gerast „riddarar kærleikans“ og gera kærleikann að eina vopninu í samfélaginu. Innlent 7.9.2024 12:21
Opna dyrnar til að minnast Bryndísar Klöru Í ljósi djúprar sorgar og ákalls samfélagsins um að heiðra minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur mun Lindakirkja í Kópavogi opna dyr sínar fyrir almenning á morgun laugardaginn 7. september frá klukkan 12 til 17. Þá eru liðnar tvær vikur frá voðaverkinu. Innlent 6.9.2024 15:45
Vilja sýna hluttekningu með frestun á stóru balli Skólameistari Fjölbrautarskólans við Ármúla hefur ekki orðið var við hnífaburð nemenda í skólanum. Hann telur nemendur orðna það þroskaða að átta sig á afleiðingum sem slíkt gæti haft í för með sér. Stóru nýnemaballi hefur verið frestað um eina til tvær vikur. Innlent 5.9.2024 15:49
Samfélag þar sem börn bana hvort öðru Mikill harmleikur hefur skekið landið okkar undanfarna daga. Ótímabært og ólýsanlega hryllilegt dauðsfall ungrar stúlku eftir banvæna hnífaárás af hálfu annars ungmennis á síðastliðinni Menningarnótt. Hún hefur nú verið borin til grafar. Skoðun 5.9.2024 09:02
Hetja sem muni bjarga mörgum mannslífum í framtíðinni Bryndís Klara Birgisdóttir hafði hlýja nærveru, var augasteinn foreldra sinna og ömmu- og afabarn af bestu gerð. Góð vinkona, sönn og heil. Innlent 4.9.2024 15:09
Vistunardagar barna í gæsluvarðhaldi 520 á árinu Forstjóri Barna- og fjölskyldustofu segir gríðarlegan vanda ríkja á Stuðlum, sérstaklega í neyðarvistun. Vistunardögum barna í gæsluvarðhaldi hefur fjölgað verulega frá árinu 2022. Hún segir álag á neyðarvistuninni valda því að ekki er hægt að sinna meðferðarhluta Stuðla eins vel og áður. Innlent 3.9.2024 21:06
Boða hertar aðgerðir gegn vopnaburði Ríkisstjórnin boðar hertar aðgerðir gegn vopnaburði ungmenna og hefur skipað starfshóp sem á að skila tillögum að aðgerðum á næstu dögum. Dómsmálaráðherra segir brýnt að bregðast við og svara ákalli þjóðarinnar. Lögregla hefur aldrei lagt hald á eins mikið magn hnífa og annarra vopna og síðustu ár. Innlent 3.9.2024 19:33
Nota málmleitartæki á busaballi MR Notast verður við málmleitartæki í öryggisgæslu á busaballi Menntaskólans í Reykjavík sem fer fram á fimmtudag. Rektor skólans segir viðbótina gerða til að ungmenni á ballinu upplifi sig örugg. Innlent 3.9.2024 16:57
„Ég ætla ekki að fara með þér niður í bæ ef þú ert með hníf“ Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir mikilvægt að skólasamfélag, heimilin og allt samfélagið komi að þjóðarátaki gegn vopnaburði og ofbeldi meðal ungmenna. Jafningjastuðningu sé einnig mikilvægur. Besta forvörnin fyrir ungmennin sé þó alltaf að ganga ekki með vopn á sér. Afleiðingarnar af því geti verið svo alvarlegar. Innlent 3.9.2024 15:01
Stuðlar orðnir að gæsluvarðhaldsfangelsi fyrir börn Dómsmálaráðherra segir brýnt að bregðast við stöðu sem upp sé komin á Stuðlum sem nái ekki að sinna hlutverki sínu sem meðferðarúrræði vegna þess að meðferðarheimilið sé orðið að gæsluvarðhaldsfangelsi. Hún hefur mikla trú á samfélagslögreglu til að bregðast við vopnaburði barna. Innlent 3.9.2024 14:06
Skýr mynd komin af atburðum á Skúlagötu Lögregla telur sig vera komna með skýra mynd af atburðum á Skúlagötu á menningarnótt, þegar sautján ára stúlka varð fyrir stunguárás sem dró hana til dauða. Innlent 3.9.2024 14:00
Fundaði með ráðherrum vegna vopnaburðar ungmenna Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir nauðsynlegt að setja aukinn kraft í aðgerðir og forvarnir til að sporna gegn aukinni ofbeldishegðun og vopnaburði barna sem vart hefur orðið við að undanförnu. Sigríður fundaði með ráðherrum ríkisstjórnarinnar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem kynntar voru tillögur að frekari aðgerðum til að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin. Innlent 3.9.2024 13:12
Af hverju bíður barnið? Voveiflegir atburðir hafa gerst í okkar samfélagi. Megi þau óafturkræfu áföll sem orðið hafa verða til raunverulegra samfélagslegra breytinga. Við höfum talað um geðheilbrigðismál barna og fullorðinna árum og áratugum saman. Þrátt fyrir veljvilja flestra breytist allt of lítið og of hægt. Skoðun 3.9.2024 07:31
„Við þurfum að læra af öðrum þjóðum“ Hlynur Snorrason, formaður félags yfirlögregluþjóna, segir það ekki of seint að bregðast við ógnvænlegri þróun þar sem ungmenni beita vopnum í auknum mæli og að allt samfélagið þurfi að leggjast á eitt til að sporna gegn þessu. Mikilvægt sé að draga lærdóm frá öðrum þjóðum. Innlent 2.9.2024 22:03