
Stóriðja

Áfram skerðingar vegna „fádæma lélegs vatnsárs“
Landsvirkjun mun skerða afhendingu raforku til viðskiptavina sinna, sem flokkast sem stórnotendur, lengur fram á vorið en vonast hafði verið til. Ástæðan er fádæma lélegt vatnsár þar sem gengið hefur hratt á uppistöðulón.

Kynslóðaskipti: Arftakaáætlunin virkjuð, vinnustaðaskóli og ný tækifæri fyrir starfsfólk
Rio Tinto er eitt þeirra fyrirtækja á Íslandi sem vinnur markvisst að því að kynslóðaskipti innan fyrirtækisins gangi sem best fyrir sig.

Örsaga um ál og auðlindir
Raforka Íslendinga er að sönnu þjóðarauðlind. Í umræðunni um orkuskort gefa einhverjir þeirri hugmynd undir fótinn að stórkaupendum raforku sé ofaukið og á þeirra kostnað væri hægt að nýta orkuna í orkuskiptin og styrkja ferðaþjónustu.

Fernando Costa nýr forstjóri Alcoa Fjarðaáls
Fernando Costa hefur verið ráðinn forstjóri Alcoa Fjarðaáls og tekur við af Smára Kristinssyni sem hefur gegnt forstjórastarfinu tímabundið eftir að Einar Þorsteinsson lét af störfum fyrr á þessu ári. Smári fer á sama tíma aftur í starf framkvæmdastjóra framleiðslu.

Losun frá flugi og siglingum jókst um 95 prósent eftir faraldurinn
Útblástur gróðurhúsaloftegunda vegna alþjóðasamgangna frá Íslandi jókst um 95 prósent á milli ára í fyrra þegar ferðatakmörkunum eftir heimsfaraldurinn var aflétt. Losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda stóð svo gott sem í stað á milli ára í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum Umhverfisstofnunar.

Taprekstur kísilversins á Bakka versnaði milli ára
Taprekstur kísilvers PCC á Bakka jókst verulega milli ára þrátt fyrir að tekjur fyrirtækisins hefðu meira en tvöfaldast. Stjórnendateymið hefur nú þegar hrint í framkvæmd rekstraráætlun sem miðar að því að bæta reksturinn.

Bein útsending: Ársfundur Samáls
Ársfundur Samáls fer fram í Norðurljósasal Hörpu í dag. Á fundinum verða pallborðsumræður um áskoranir og tækifæri í loftslagsmálum. Þá verða einnig til sýnis hönnunarmunir. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu hér á Vísi.

Stöðva útflutning á upprunaábyrgðum vegna mögulegra brota
Grunur leikur á að íslenskir stórnotendur raforku hafi brotið reglur um upprunaábyrgðir með því að fullyrða að þeir nýti græna orku án þess að kaupa slíkar ábyrgðir. Útflutningur á upprunaábyrgðum frá Íslandi var stöðvaður í síðustu viku á meðan krafist er útbóta.

Guðrún Halla ráðin framkvæmdastjóri hjá Norðuráli
Guðrún Halla Finnsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Norðuráli. Fram kemur í tilkynningu frá Norðuráli að Guðrún muni meðal annars leiða vinnu við raforkusamninga fyrirtækisins.

Engir eftirbátar Norðmanna
Fréttablaðið fjallaði nýverið um meinta orkusóun í íslenskum áliðnaði, en sú frétt virðist eingöngu unnin upp úr gögnum sem Landvernd hefur aflað. Í fréttinni var haft eftir framkvæmdastjóra Landverndar að íslensk álver væru miklir eftirbátar álvera Norsk Hydro hvað varðar raforkunotkun á hvert framleitt tonn af áli.

Kísilverið á Bakka fór „verulega undir núllið“ í lok síðasta árs
Kísilverið á Bakka var rekið með verulegu tapi á fjórða ársfjórðungi síðasta árs vegna lítillar eftirspurnar eftir kísilmálmi og aukinnar alþjóðlegrar samkeppni. Þýska móðurfélagið bindur vonir við að minnkandi útflutningur frá Kína muni styðja við verð kísilmálms á komandi mánuðum.

Er „óveruleg“ hætta á jarðskjálftum við Straumsvík ásættanleg?
Fyrirtækið Coda Terminal vinnur að því að byggja móttöku- og förgunarmiðstöð fyrir koldíoxíð (CO2) í Straumsvík, s.k. Carbfix. Til stendur að farga allt að þremur milljónum tonna af koldíoxíð sem m.a. verður flutt inn til landsins og dælt djúpt niður í berglög þar sem það steinrennur með tíð og tíma.

Áform um 140 milljarða króna fjárfestingu á Bakka runnu út í sandinn
Viljayfirlýsing fyrirtækisins Carbon Iceland og sveitarfélagsins Norðurþings um stórfellda uppbyggingu á lofthreinsiveri við Bakka á Húsavík, rann út um síðustu áramót og hefur ekki verið endurnýjuð. Skilyrði um að fyrirtækið næði samningi við Landsvirkjun um afhendingu raforku hafði ekki verið uppfyllt.

Skaðabætur vegna veikinda sem mengun í Járnblendinu orsakaði
Jónas Árnason hlaut nýverið bætur vegna veikinda, óafturkræfra lungnaskemmda, sem talið er að megi rekja beint til mengunar og óbærilegra vinnuaðstæðna í Járnblendinu á Grundartanga.

Ekki tjaldað til einnar nætur í íslenskum áliðnaði
Ríkissjóður hefur verulegar tekjur af ETS-kerfinu, viðskiptakerfi ESB um losunarheimildir, þar sem ríkið fær úthlutað heimildum sem kallast á við útgjöld stóriðjunnar. Þó að útfærslan hafi ekki verið þannig hér á landi, þá er hugsunin með ETS-kerfinu er sú, að tekjur ríkja af kerfinu renni aftur til atvinnulífsins í formi styrkja til loftslagsvænna verkefna. Ekki er því lagt upp með að þetta sé bein skattlagning heldur að stjórnvöld og atvinnulíf leggist á eitt við að leysa loftslagsvandann.

Ríkið geti mætt losunarskuldbindingum með því að nýta heimildir vegna stóriðju
Heimild til þess að ríkið geti notað óseldar losunarheimildir vegna stóriðju upp í sínar eigin loftslagsskuldbindingar var bætt inn í fjárlagafrumvarpið fyrir þriðju og síðustu umræðu þess. Ungir umhverfissinnar segja heimildina skapa hættu á að ríkið dragi úr metnaði loftslagsaðgerða sinna.

Álverin óttast áhrif kolefnisgjalds á innflutt ál
Íslenskir og evrópskir álframleiðendur óttast að nýtt gjald sem Evrópusambandið hyggst leggja á innflutt ál geti skekkt enn frekar samkeppnisstöðu þeirra á alþjóðamarkaði og gert fyrirtæki sem framleiða álvörur ósamkeppnishæf. Kerfið gæti dýpkað loftslagsvandann í stað þess að draga úr honum.

Eldur í álverinu í Straumsvík
Eldur kviknaði í vinnuvél inni í skála í álverinu í Straumsvík klukkan 18:30. Fjórir dælubílar voru sendir á vettvang.

PCC á Bakka gæti dregið úr framleiðslu á nýju ári
PCC hefur nú til skoðunar að slökkva á öðrum ljósbogaofnanna í kísilverinu við Bakka við Skjálfandaflóa. Að sögn Gests Péturssonar, forstjóra PCC á Bakka, gætu verðþróun kísilmálms á heimsmarkaði og almenn efnahagsóvissa kallað á þá ákvörðun að draga úr framleiðslu. Engar uppsagnir starfsfólks eru fyrirhugaðar.

Sólveig og Steinunn til Century Aluminum
Sólveig Kr. Bergmann og Steinunn Dögg Steinsen hafa tekið við nýjum hlutverkum hjá Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls.

Töluverður eldur kviknaði í álþynnuverksmiðju TDK
Engin meiðsl urðu á fólki þegar eldur kviknaði í framleiðslutæki í álþynnuverksmiðju TDK á Krossanesi við Eyjafjörð í dag. Tveir voru þó fluttir til aðhlynningar á sjúkrahús til öryggis vegna mögulegrar reykeitrunar, að sögn slökkviliðs.

Hefði verið frábært ef þetta hefði gengið upp
Möguleikinn á starfsemi kísilvers í Helguvík er að öllum líkindum úr sögunni. Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ segir meirihluta íbúa anda léttar eftir að þetta varð ljóst, enda hafi margir orðið fyrir mikilum óþægindum. Óljóst er hvað verður um verksmiðjuna sjálfa.

Arion banki telur fullreynt að reka kísilver í Helguvík
Arion banki og PCC hafa slitið formlegum viðræðum um möguleg kaup PCC á kísilverksmiðjunni í Helguvík. Samhliða hefur Arion banki sagt upp raforkusamningi við Landsvirkjun þar sem framleiðsla kísils var forsenda samningsins. Því er allt útlit fyrir að kísilverksmiðjan í Helguvík verði ekki gangsett á ný og að hún verði flutt eða henni fært nýtt hlutverk.

Mótmæla harðlega fyrirhugaðri risaverksmiðju í Þorlákshöfn
Risafyrirtækið Heidelberg Material blés til íbúafundar í Þorlákshöfn þar sem það kynnti áform sín um umsvif í bæjarfélaginu en þau eru af risavöxnum skala.

Rekstrartap hjá kísilverinu á Bakka samhliða lækkandi verði á kísilmálmi
Eftir að hafa verið réttum megin við núllið frá lokum síðasta árs varð tap á rekstrinum hjá kísilveri PCC á Bakka á Húsavík á liðnum þriðja ársfjórðungi. Rekstrarumhverfið hefur versnað með lækkandi verði á kísilmálmi samtímis því að hráefniskostnaður hefur hækkað mikið.

Hraður viðsnúningur á rekstri móðurfélags Norðuráls á þriðja fjórðungi
Eftir sterkan annan ársfjórðung sem litaðist af ásættanlegu orkuverði og háu álverði, hallaði undan fæti á þriðja fjórðungi hjá Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls á Grundartanga. Félagið birti uppgjör fyrir þriðja fjórðung í vikunni.

Hagkerfið viðkvæmara fyrir verðsveiflum sjávarafurða en áls
Hátt afurðaverð sjávarfangs á fyrstu níu mánuðum ársins tryggir að viðskiptajöfnuður þjóðarbúsins hefur haldist í horfinu. Verðþróun á þorski skiptir höfuðmáli fyrir útflutningstekjur Íslands og því gæti skörp, efnahagsleg niðursveifla í Bretlandi haft slæm áhrif á viðskiptajöfnuð Íslands. Hagkerfið er orðið minna viðkvæmt fyrir sveiflum í álverði en áður var.

Utanríkisráðherra vill grípa til aðgerða gagnvart rússneskum álframleiðendum
Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir, utanríkisráðherra, vill að Vesturlönd grípi til aðgerða gagnvart rússneskum áliðnaði. Um það bil helmingur evrópskar álframeiðslu hefur stöðvast vegna hækkandi raforkukostnaðar, en á sama tíma flæðir rússnesk ál inn í birgðageymslur í Evrópu.

Raforkuverð til Rio Tinto á Íslandi hækkar vegna verðbólgu í Bandaríkjunum
Raforkuverðið sem álver Rio Tinto á Íslandi greiðir til Landsvirkjunar er á svipuðum slóðum og það sem fyrirtækið greiddi áður en endursamið var við Landsvirkjun í febrúar á síðasta ári. Verðlagsþróun í Bandaríkjunum er helsti drifkraftur hækkunarinnar, en stærstur hluti raforkusamnings Rio Tinto við Landsvirkjun er verðtryggður miðað við neysluverðsvísitölu í Bandaríkjunum. Tólf mánaða verðbólga í Bandaríkjunum stendur nú í 8,5 prósentum.

Stækka álverið á Grundartanga fyrir sextán milljarða
Áætlað er að stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga muni kosta sextán milljarða. Gert er ráð fyrir að framkvæmdunum ljúki árið 2024.