
Sund

Jón Margeir bætti heimsmetið
Tók metið á ný af Ástralanum Daniel Fox á opna þýska meistaramótinu í Berlín.

Var búin að reyna við Íslandsmetið í þrjú ár
Bryndís Rún Hansen varð um helgina fyrsta konan til að synda 50 metra flugsund á undir 27 sekúndum. Bryndís tvíbætti Íslandsmetið í greininni og vann alls fimm einstaklingsgreinar á ÍM í 50 metra laug.

Eygló sankaði að sér verðlaunum | Bryndís synti á undir 27 sekúndum
Íslandsmeistaramótinu í sundi í 50 metra laug lauk í dag.

Eygló Ósk setti nýtt Íslandsmet
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Ægi, heldur áfram að gera frábæra hluti á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug sem fram fer í Laugardalnum um helgina.

Bara 11 dagar á milli Norðurlandameta hjá Eygló | Myndir frá ÍM
Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi setti ekki bara Íslandsmet í 200 metra baksundi á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug í kvöld því þetta var einnig Norðurlandamet hjá henni.

Bryndís Rún vann tvo Íslandsmeistaratitla í kvöld
Bryndís Rún Hansen úr Sundfélaginu Óðni tryggði sér tvo Íslandsmeistaratitla í kvöld á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug.

Eygló með Íslandsmet í 200 metra baksundi
Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi setti nýtt Íslandsmet í 200 metra baksundi á Íslandsmeistaramótinu í 50m laug í Laugardalslauginni.

Meiri æfingar á þurru landi skilar Eygló Ósk betri árangri í lauginni
Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi bætti Norðurlandametið í 200 m baksundi á Opna danska meistaramótinu í sundi í fyrradag. Með því tryggði hún sér bæði þátttökurétt á HM í Kazan í Rússlandi sumar og í Ólympíuleikunum í Ríó í Brasilíu á næsta ári.

Eygló Ósk fékk brons í 50 metra baksundi
Nýbakaður Norðurlandamethafinn þurfti að játa sig sigraða í baráttunni við Pólverja og Dana.

Eygló Ósk: Mig hefur dreymt um að ná þessu meti í þrjú ár
Lágmörkin ekki aðalatriðið fyrir sunddrottninguna sem stefnir miklu hærra.

Eygló Ósk setti Norðurlandamet og náði fyrst allra lágmarki á ÓL 2016
Sundkonan magnaða með þriðja besta tímann í Evrópu í 200 metra baksundi.

Anton Sveinn í öðru sæti á sterku háskólamóti
Anton Sveinn McKee synti í A úrslitum á NCAA mótinu í nótt, en Anton Sveinn synti í 200 jarda bringusundi. Sundgarpurinn úr Ægi lenti í sjötta sæti á tímanum 1.52,97.

Kanadískur hlaupari lést í æfingabúðum
Daundre Barnaby, kandadíski Ólympíuhlauparinn í 400 metra hlaupi, hefur verið úrskurðaður látinn eftir slys í æfingabúðum, einungis 24 ára að aldri.

Anton Sveinn með sinn besta tíma á árinu og á leið í úrslit
Anton Sveinn McKee, sundmaður úr Ægi, synti sig inn í A-úrslit á NCAA mótinu í Iowa í 200 jarda bringusundi, en úrsiltasundið verður synt í nótt.

Hrafnhildur setti Íslandsmet í Florida
Hrafnhildur Lúthersdóttir setti Íslandsmet í 100 metra bringasundi þegar hún synti á 1:08,15 á Speedo móti sem fram fór í Flórída í gærkvöldi.

Besta ákvörðun sem ég hef tekið hingað til í lífinu
Sundkonan Jóhanna Gerða Gústafsdóttir sér ekki eftir því að hafa tekið sundhettuna af hillunni fyrir fjórum árum en hún er nú fjórða árið í röð að fara að keppa fyrir Florida International-skólann á úrslitamóti NCAA.

Anna Þórey, Gísli og Hafþór sæmd gullmerki SSÍ
Þrjú fengu gullmerki SSÍ á 61. ársþingi sambandsins.

Phelps festir ráð sitt
Átjánfaldi Ólympíumeistarinn bað kærustunnar í gær og hún sagði já.

Þjálfar hausinn alveg eins og hún þjálfar líkamann
Sundtímabilið byrjaði ekki alltof vel hjá Ingibjörgu Kristínu Jónsdóttur í Arizona í Bandaríkjunum en það lítur út fyrir að það ætli að enda miklu betur. Vann sund á móti Ólympíumeistaranum Missy Franklin í vetur og er komin inn á úrslitamót NCAA í mars.

Þessi stóðu sig best í fyrri hluta Reykjavíkurleikanna
Reykjavíkurleikarnir hófust um helgina og þá var keppt í níu íþróttagreinum víðsvegar um borgina en flestar keppnir fóru fram í Laugardalnum. Mótahaldið gekk mjög vel fyrir sig og mikil ánægja með hvernig til tókst.

Davíð Þór hlaut Sjómannabikarinn
Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga fór fram í dag.

Fyrsti þeldökki heimsmeistarinn í sundi
Alia Atkinson frá Jamaíku braut blað í sögu sundíþróttarinnar á HM í Doha.

Phelps snýr aftur í laugina í ágúst
Sundkappinn Michael Phelps er á réttri leið í lífinu á nýjan leik eftir að hafa tekið nokkrar vitlausar beygjur.

Stelpurnar með öll Íslandsmetin og níu bestu sætin á HM í sundi
Fimm Íslandsmet og þrjú landssveitarmet voru sett á HM í sundi í Katar og landsliðsþjálfarinn er sáttur.

Hrafnhildur með glæsilegt Íslandsmet í 200 metra bringusundi
Íslensku keppendurnir luku leik á heimsmeistaramótinu í 25 metra laug í sundi í Doha í Katar í morgun. Hrafnhildur Lúthersdóttir setti glæsilegt Íslandsmet í sínu síðasta sundi.

Eygló komst ekki í undanúrslit
Eygló Ósk Gústafsdóttir varð í 27. sæti í 50 metra baksundi á heimsmeistaramótinu í sundi í 25 metra leik í Doha í Katar í morgun. Hún hefur nú lokið keppni.

Annað Íslandsmet hjá Ingu Elínu
Bætti metið í 400 m skriðsundi um 1,6 sekúndur á HM í Doha.

Hrafnhildur bætti Íslandsmet í Doha
Komst ekki áfram í 100 m bringusundi á HM í 25 m laug.

Eygló komst ekki áfram
Var nálægt Íslandsmeti sínu í 200 m baksundi en hafnaði í tíunda sæti.

Spænsk sundkona setti tvö heimsmet á einum klukkutíma
Spænska sundkonan Mireia Belmonte náði frábærum árangri á heimsmeistaramótinu í sundi í Doha í Katar þegar hún setti tvö heimsmet á einum klukkutíma og sigraði í báðum sundum nýkjörna sundkonu ársins.