Úkraína
32 33 34 35 36 37 38 39 40 … 79 ›
Rússar muni skrúfa fyrir gasflæði um Nord Stream 1 leiðsluna enn á ný Orkurisinn Gazprom er sagður ætla að loka fyrir flæði á gasi í gegnum Nord Stream 1 gasleiðsluna til Þýskalands á morgun og muni lokunin vara í þrjá daga. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gazprom lokar á flæði gass til Þýskalands en gasflæði þangað sem og til annarra Evrópuríkja hefur verið óstöðugt í nokkurn tíma. Erlent 30.8.2022 20:25
Eftirlitsmenn Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar komnir til Úkraínu Eftirlitsmenn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar eru komnir til Kænugarðs í Úkraínu og hyggjast skoða aðstæður í kjarnorkuverinu í borginni Zaporizhzhia. Úkraínskar hersveitir sækja hart fram gegn Rússum í Kherson héraði og eru sagðar hafa náð fjórum bæjum þar undan yfirráðum Rússa. Erlent 30.8.2022 20:24
Plata Rússa til að skjóta dýrum eldflaugum á gervi-HIMARS Úkraínumenn segjast hafa platað Rússa til að skjóta minnst tíu Kalibr-eldflaugum á gerviskotmörk sem smíðuð voru eftir útlit HIMARS-eldflaugakerfa. Gerviskotmörkin eru smíðuð úr timbri og er erfitt að greina þau sundur frá raunverulegum HIMARS með drónum sem eru hátt á lofti. Erlent 30.8.2022 16:50
Tók upp flugferðir sínar yfir Úkraínu og birti til minningar fallins félaga Flugher Úkraínu birti í morgun myndband sem einn af flugmönnum hersins gerði til minningar um annan. Myndbandið sýnir flugmann, sem heitir Ivan, fljúga yfir Úkraínu í mismunandi verkefnum og skjóta eldflaugum að skotmörkum. Erlent 30.8.2022 14:01
Úkraínuforseti skorar á Rússa að leggja á flótta frá Kherson Óstaðfestar fregnir eru um stórsókn úkraínskra hersveita í Kherson héraði í suðurhluta Úkraínu. Forseti landsins skorar á rússneskar hersveitir að leggja á flótta og segir að Úkraínumenn muni endurheimta landamæri sín á öllum vígstöðvum. Erlent 30.8.2022 11:50
Vill gera miklar breytingar á Evrópusambandinu Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, kallaði í gær eftir umfangsmiklum breytingum á Evrópusambandinu. Gera þyrfti sambandinu auðveldara að stækka og komast yfir innri deilur, samhliða því að gera því kleift að standa í hárinu á utanaðkomandi andstæðingum eins og Rússlandi og Kína. Erlent 30.8.2022 10:17
Össur hjálpar fólki í Úkraínu sem misst hefur útlimi Stoðtækjaframleiðandinn Össur hefur hlotið styrk úr heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu til að útvega Úkraínumönnum, sem misst hafa útlimi, stoðtæki. Forstjóri fyrirtækisins segir þessa aðstoð hafa gríðarleg áhrif á fólk og einn sem hafi fengið nýjan gervifót hafi beðið maka síns á sjúkrabekknum þegar hann fékk nýja fótinn. Innlent 30.8.2022 08:50
Selenskí varar innrásarhermenn í Kherson við yfirvofandi gagnárásum Úkraínuher hefur hafið gagnárás sína í suðurhluta Úkraínu, eftir að hafa unnið að því í nokkrar vikur að rjúfa birgðarlínur Rússa í Kherson og einangra innrásarhermenn þar. Erlent 30.8.2022 08:17
Segjast hafa brotið sér leið í gegnum varnir Rússa Úkraínumenn segjast hafa gert umfangsmiklar gagnárásir gegn Rússum í Kherson-héraði í Suður-Úkraínu. Embættismenn segja gagnárásirnar hafa skilað árangri og þeir hafi brotið sér leið í gegnum varnir Rússa á svæðinu. Erlent 29.8.2022 11:24
Teymi Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar loks á leið til Zaporizhzhia Eftirlitsmenn á vegum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) eru nú á leið til úkraínska kjarnorkuversins í Zaporizhzhia þar sem harðir bardagar hafa staðið milli úkraínskra og rússneskra hersveita síðustu vikurnar. Erlent 29.8.2022 06:36
Selenskí segir varaaflstöðvar hafa forðað kjarnorkuslysi Vólódimír Selenskí Úkraínuforseti segir að litlu hafi mátt muni að kjarnorkuslys yrði þegar síðasta rafmagnslínan að Zaporizhzhia kjarnorkuverinu datt út í átökum í kringum verið. Nokkrar klukkustundir tók að gera við línuna. Erlent 26.8.2022 07:22
Skipun um stærri her ólíkleg til að skila árangri í Úkraínu Vladimír Pútin, forseti Rússlands, gaf í dag þá skipun að her Rússlands yrði stækkaður. Hermönnum yrði fjölgað um þrettán prósent fyrir enda þessa árs. Það þýðir að þeim yrði fjölgað um 137 þúsund og yrði her Rússlands þá skipaður 1,15 milljónum hermanna. Erlent 25.8.2022 22:42
Rússneskir grínistar blekktu Ian McKellen í spjall við Zelenskí Breski leikarinn Ian McKellen greindi frá því í gær að tveir rússneskir grínistar, sem hugðust notfæra sér leikarann, hafi sent honum boð um einkasamtal við Volodímír Zelenskí, Úkraínuforseta. Þegar samtalið við forsetann hófst runnu tvær grímur á leikarann og lagði hann á þá. Erlent 25.8.2022 22:03
Tuttugu og tveir látnir eftir eldflaugaárás á lestarstöð Minnst tuttugu og tveir eru látnir og tugir eru særðir eftir að Rússar skutu eldflaugum að lestarstöð í bænum Chaplyne. Eldflaugar eru sagðar hafa lent á farþegalest og stóðu fjórir lestarvagnar í ljósum logum eftir árásina. Erlent 24.8.2022 22:23
Selenskí segir úkraínsku þjóðina hafa „endurfæðst“ við innrás Rússa Úkraínumenn eru undir það búnir að Rússar geri stórfelldar árásir í landinu í dag, þegar Úkraínumenn fagna því að 31 ár er liðið frá aðskilnaði Úkraínu frá Sovétríkjunum. Í dag eru einnig sex mánuðir liðnir frá því að innrás Rússa hófst. Erlent 24.8.2022 07:29
Sérsveitin stöðvaði unga sjálfstæðismenn við mótmæli við rússneska sendiráðið Sérsveit ríkislögreglustjóra og lögreglumenn stöðvuðu unga sjálfstæðismenn sem hugðust mótmæla stríði Rússa í Úkraínu við rússneska sendiráðið í kvöld. Ungmennin ætluðu að mála úkraínska fánann á gangstéttina við sendiráðið en voru stöðvuð við verkið og eftir eru tveir málningarpollar á gangstéttinni. Einn gulur og einn blár. Innlent 23.8.2022 22:52
Úkraínska fótboltadeildin snýr aftur í miðju stríði Allar keppnisíþróttir stöðvuðust í Úkraínu þegar Rússar réðust inn í landið í febrúar og þar á meðal fótboltadeildin. Úkraínustríðið stendur enn en Úkraínumenn ætla engu að síður að hefja nýtt fótboltatímabil í dag. Fótbolti 23.8.2022 09:30
Segja morðingjann hafa verið með tólf ára dóttur sinni Ráðamenn í Rússlandi saka leyniþjónustu Úkraínu um að bera ábyrgð á því að rússnesk kona dó í bílasprengju nærri Moskvu um helgina. Úkraínsk kona er sögð hafa gert árásina og flúið til Eistlands. Yfirlýsingar Rússa hafa mætt miklum efasemdum. Erlent 22.8.2022 22:00
Útilokar friðarviðræður og segir langt stríð framundan Gennady Gatilov, fastafulltrúi Rússlands við Sameinuðu þjóðirnar, segir beinar viðræður milli Vladimir Pútín Rússlandsforseta og Vólódimírs Selenskís Úkraínuforseta ekki koma til greina. Erlent 22.8.2022 12:18
„Ég veit það hljómar fáránlega en mér finnst betra að vera í Kyiv en á Íslandi“ Listamaðurinn Óskar Hallgrímsson er kominn aftur heim til Kænugarðs í Úkraínu eftir að hafa verið á Íslandi í nokkrar vikur. Hann segir ferðalagið hafa verið langt en hann sé feginn að vera kominn aftur heim, þrátt fyrir stríð í landinu. Innlent 21.8.2022 07:12
Ætla að grafa hægt og rólega undan Rússum Dregið hefur úr stórskotaliðsárásum Rússa í suðurhluta Úkraínu samhliða auknum árásum Úkraínumanna á skotfærageymslur, birgðastöðvar, brýr og aðra innviði á Krímskaga og í suðurhluta Kherson. Her Úkraínu virðist hafa breytt um stefnu og vinnur nú með langvarandi átök í huga. Erlent 19.8.2022 21:47
Hringir í Pútín eftir leiðtogaviðræður Takmarkaður árangur virðist hafa náðst í viðræðum leiðtoga Tyrklands, Úkraínu og Sameinuðu þjóðanna í dag. Tyrklandsforseti hyggst ræða efni fundarins við Vladímir Pútín, forseta Rússlands. Erlent 18.8.2022 21:04
Rússar segja stórar sprengingar á Krímskaga skemmdarverk Stærðarinnar sprengingar urðu á Krímskaga í morgun þar sem skotfæra- og vopnageymsla rússneska hersins sprakk í loft upp. Rússar segja að tímabundin vopnageymsla sem reist var á sveitabæ í Dzhankoi-héraði hafi sprungið vegna skemmdarverks. Erlent 16.8.2022 11:17
Segjast hafa ráðist á höfuðstöðvar Wagner-hópsins Úkraínumenn segjast hafa gert stórskotaliðsárás á höfuðstöðvar Wagner-hópsins, hóps rússneskra málaliða, í austurhluta Úkraínu. Héraðsstjóri Luhansk segir Úkraínumenn hafa komist á snoðir um staðsetningu hópsins eftir að rússneskur fréttamaður birti mynd af nokkrum meðlimum hans. Erlent 15.8.2022 22:14
Sameinuðu þjóðirnar uggandi eftir ítrekaðar árásir á kjarnorkuver Rússar og Úkraínumenn benda enn hvorir á aðra vegna ítrekaðra árása á stærsta kjarnorkuver Evrópu í austurhluta Úkraínu. Árásir þessar hafa aukið á áhyggjur manna af því árásirnar leiði til stórslyss í kjarnorkuverinu sem hafi óafturkræfar afleiðingar í för með sér. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna kallar eftir því að svæðið í kringum kjarnorkuverið verði hlutlaust. Erlent 12.8.2022 10:00
Segja Rússland vera hryðjuverkaríki Þingmenn Lettlands samþykktu í morgun ályktun um að Rússland væri hryðjuverkaríki og aðgerðir Rússa í Úkraínu væru tilraunir til þjóðarmorðs á úkraínsku þjóðinni. Þingmennirnir kölluðu eftir því að önnur ríki lýsi því einnig yfir að Rússland sé hryðjuverkaríki. Erlent 11.8.2022 11:29
Átta herflugvélar virðast hafa skemmst í sprengingum á herstöð á Krímskaga Að minnsta kosti átta rússneskar herflugvélar virðast hafa skemmst eða eyðilagst í sprengingum sem urðu á Saky herstöðinni á Krímskaga á þriðjudag, ef marka má nýjar gervihnattamyndir af herstöðinni. Erlent 11.8.2022 07:23
Seagal braut gegn Genfarsáttmálanum á hernumdum svæðum í Úkraínu Steven Seagal, hinn víðfrægi bandaríski leikari, er nú staddur í Úkraínu á svæðum sem Rússar hafa hernumið. Þar er hann sagður vinna að gerð heimildarmyndar sem ætlað er að varpa ljósi á sannleikann varðandi innrás Rússa í Úkraínu og breyta viðhorfi fólks til innrásarinnar. Erlent 10.8.2022 13:23
Kænugarður vígður við rússneska sendiráðið Torgið Kænugarður á horni Garðastrætis og Túngötu var formlega vígt við fjölmenna athöfn í morgun. Torgið nærri rússneska sendiráðinu. Innlent 10.8.2022 12:05
Frelsun Krímskaga forsenda stríðsloka, segir Selenskí Stríðið í Úkraínu hófst með innlimun Krímskaga og mun aðeins enda með frelsun hans, segir Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti. Selenskí segir Krímskaga tilheyra Úkraínu og að Úkraínumenn muni aldrei gefa hann eftir. Erlent 10.8.2022 07:50