
Bobby Fischer

Ríkisborgararéttur fyrir Fischer?
Ríkisborgararéttur til handa Bobby Fischer er á dagskrá á fundi allsherjarnefndar í fyrramálið. Fjórir stuðningsmenn Fischers eru boðaðir á fund nefndarinnar. Fulltrúi í nefndinni kveðst ekki geta túlkað þetta öðruvísi en svo að samstaða sé um að veita Fishcer ríkisborgararétt.

Utanríkisráðherra taki af skarið
Utanríkisráðherra þarf að taka af skarið í máli Fischers og ræða við japönsk og bandarísk stjórnvöld og finna lausn, segir fulltrúi Samfylkingarinnar í allsherjarnefnd. Japönsk stjórnvöld hafa kveðið upp úr með að Fischer verði ekki fluttur til Íslands því hann hafi bandarískt ríkisfang.

Fær ekki að koma til Íslands
Japönsk stjórnvöld útilokuðu í gær að Bobby Fischer skákmeistari fengi að fara til Íslands. Talsmaður japanska dómsmálaráðuneytisins lýsti þessu yfir við þingnefnd sem fjallaði um málið í gær að ósk eins þingmanna stjórnarandstöðunnar. Hann sagði að ef Fischer yrði fluttur úr landi þá yrði hann sendur til Bandaríkjanna.

Leita aftur ríkisborgararéttar
Japönsk stjórnvöld útilokuðu í gær að Bobby Fischer, skákmeistari, fengi að fara til Íslands. Vinir Fischers reyna enn að fá allsherjarnefnd Alþingis til að mæla með að honum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur.

Mál Fischers inn á Japansþing
Stjórnarandstöðuþingmenn í Japan ætla á morgun að krefja stjórnarliða svara við því hvers vegna Bobby Fischer sé enn í haldi þrátt fyrir að hafa uppfyllt öll skilyrði fyrir því að vera sleppt úr haldi. Fischer er aftur kominn í einangrun í gæslufangelsinu eftir átök við fangavörð.

Auka þrýsting á japönsk stjórnvöld
Stuðningsmenn Bobbys Fischers í Japan auka nú þrýsting sinn á japönsk stjórnvöld í viðleitni sinni til að fá Fischer leystan úr fangelsi og sendan til Íslands.

Hafnar beiðni um lausn Fischers
Útlendingastofnun japanska dómsmálaráðuneytisins hafnaði í morgun beiðni lögmanns Bobbys Fishers um að hann yrði leystur úr haldi. Ráðuneytið telur að það breyti engu um aðstöðu Fischers þótt hann hafi íslenskt vegabréf en öðru gilti ef hann fengi íslenskan ríkisborgararétt.

Verði að fá ríkisborgararétt
Íslenskt vegabréf dugar ekki til að leysa Bobby Fischer úr haldi japanskra stjórnvalda samkvæmt óformlegu svari sem barst lögmönnum hans í dag. Sæmundur Pálsson, vinur Fischers, segir að nú verði íslensk stjórnvöld að bregðast við og veita Fischer fullan ríkisborgararétt.

Fischer: Yfirvöldum verður stefnt
Verði Bobby Fischer ekki látinn laus í Japan fyrir föstudaginn verður japönskum og bandarískum yfirvöldum stefnt og mótmæli verða skipulögð um allan heim. Heiminum verður gert ljóst að Bobby Fischer var rænt, segir John Bosnitch, helsti stuðningsmaður hans í Japan.

Fischer losnar ekki á næstunni
Japönsk yfirvöld sögðu í morgun að enn væri langt í að Bobby Fischer yrði leystur úr haldi. Lögfræðingur Fischers, sem fékk vegabréf hans í hendur í gær, gerði sér vonir um að hann yrði látinn laus innan nokkurra daga og fengi að yfirgefa innflytjendabúðirnar sem hann hefur dvalið í í átta mánuði.

Fischer losni eftir tvo daga
Lögfræðingur Bobbys Fischers bindur vonir við að Fischer losni úr fangelsi og geti yfirgefið Japan á afmælisdaginn sinn, eftir tvo daga. Hún fékk vegabréf hans í hendur í dag og Sæmundur Pálsson, vinur Fischers, segir að Davíð Oddsson og íslenska ríkisstjórnin hafi veitt Fischer stórkostlega aðstoð.

Forsendur fyrir varðhaldinu farnar
Lögfræðingur Bobby Fischers, Masako Suzuki, ætlar að ganga frá flugmiða fyrir skákmeistarann í fyrramálið og fara í japanska dómsmálaráðuneytið þar sem hún mun fara fram á að Fischer verði sleppt þar sem forsendurnar fyrir því að halda honum séu ekki lengur fyrir hendi.

Sæmi og Fischer hittust
Sæmundur Pálsson og Bobby Fischer felldu báðir tár þegar þeir hittust loks aftur eftir rúmlega þrjátíu ár á staðnum þar sem Fischer er í haldi í innflytjendabúðum yfirvalda í Japan. Það var því tilfinningaþrungin stund þegar endurfundir þeirra urðu loks að veruleika eftir langa bið.

Lögfræðingnum afhent vegabréfið
Lögfræðingur Bobby Fischers fékk íslenskt vegabréf hans í hendur fyrir nokkrum mínútum. Þórður Ægir Óskarsson, sendiherra Íslands í Japan, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu fyrir augnabliki.

Í einangrun vegna nefbrots
Bobby Fischer var að eigin sögn varpað í einangrunarklefa í fangelsinu í Japan eftir átök við fangaverði sem lauk með því að hann nefbraut einn þeirra. Ástæðan var að honum var neitað um egg með matnum eins og aðrir fangar fá. Lögmaður Fischers ætlar að freista þess að fá vegabréf hans í hendur á morgun en það hefur verið í vörslu sendiráðs Íslands í rúma viku.

Fischer sakaður um skattalagabrot
Bandarísk stjórnvöld saka nú Fischer um skattalagabrot og hyggjast ákæra hann 5. apríl. Stuðningsmenn skáksnillingsins telja að brögð séu í tafli og hvetja íslensk stjórnvöld til að afhenda Fischer vegabréf til Íslands áður en Japönum takist að framselja hann til Bandaríkjanna.

Hyggjast kæra Fischer
Stuðningshópur Bobbys Fischers, sem dvelur í Japan, segir Bandaríkjamenn undirbúa nýjar ákærur á hendur skáksnillingnum. Sæmundur Pálsson, vinur hans, óttast að Fischer séu brugguð launráð til að fá hann framseldan til Bandaríkjanna áður en tekst að láta hann hafa íslenskt vegabréf. Nú stendur til að ákæra hann fyrir skattsvik. Fischer situr enn í einangrun í gluggalausum klefa í fangelsi í Japan.

Flugmiði keyptur fyrir Fischer
Sæmundur Pálsson og aðrir úr stuðningsmannahópi Bobbys Fischers hér á landi héldu blaðamannafund í Tókýó í Japan í morgun. Fram kom meðal annars að keyptur hefur verið opinn flugmiði fyrir Fischer til Íslands. Mikill áhugi var fyrir blaðamannafundinum og var vel mætt.

Vilja Fischer út fyrir afmæli hans
Opinn flugmiði til Íslands bíður nú Bobbys Fischers og vonast stuðningsmenn hans til þess að hann verði leystur úr haldi japanska yfirvalda fyrir 62 ára afmæli sitt þann 9. mars næstkomandi. Mikil þátttaka var á blaðamannafundi sem stuðningsmenn Fischers héldu í Tókýó í morgun.

Fischer enn haldið í einangrun
Enn er Bobby Fischer haldið í einangrun og enginn fær að heimsækja hann í fangelsið í Japan. Opinn flugmiði til Íslands bíður hans og vonast stuðningsmenn hans til að hann verði leystur úr haldi fyrir 62 ára afmælisdag hans í næstu viku.

Ólíklegt að Fischer verði sleppt
Sæmundur Pálsson segir að mikil óvissa sé enn vegna mála Bobbys Fischers og ekkert bendi til þess að hann verði leystur úr haldi í Japan á næstunni. Sæmundur og aðrir úr stuðningsmannahópi Fischers hér á landi héldu blaðamannafund í Tókýó í Japan í morgun.

Blaðamannafundur í Japan á morgun
Sæmundur Pálsson, vinur Bobbys Fischers, og aðrir stuðningsmenn hans hér landi, sem komnir eru til Japans, hafa boðað til blaðamannafundar í Japan á morgun. Fangelsisyfirvöld í Japan hafa meinað Sæmundi að hitta Fischer í dag.

Fær ekki að hitta Fischer
Sæmundur Pálsson, vinur Bobbys Fischers, fær ekki að hitta Fischer í dag en honum og unnustu skáksnillingsins var meinað að heimsækja hann þar sem hann er í haldi yfirvalda í innflytjendabúðum í Japan.

Fischer í algerri einangrun
Bobby Fischer er nú haldið í algerri einangrun. Hann fæ hvorki að hitta gesti né tala í síma. Þegar unnusta Fischers og Sæmundur Pálsson reyndu að fá að heimsækja hann í morgun var þeim tilkynnt þetta og gefið í skyn að skákmeistarinn hefði brotið einhverjar reglur í gærmorgun.

Afhending vegabréfsins vandasöm
Það að Fischer hafi ekki fengið vegabréfið íslenska afhent á sér eðlilegar skýringar segir Davíð Oddsson utanríkisráðherra. Hann segir að kannað hafi verið hvort starfsmaður íslenska sendiráðsins í Japan gæti komið vegabréfinu til Fischers en þá verið bent á að erlendir sendifulltrúar hefðu ekki leyfi til að hafa samskipti við „landlausa“ menn í þessum búðum sem skákmeistarinn er í.

Afhending vegabréfsins vandasöm
Það að Fischer hafi ekki fengið vegabréfið íslenska afhent á sér eðlilegar skýringar segir Davíð Oddsson utanríkisráðherra. Hann segir að kannað hafi verið hvort starfsmaður íslenska sendiráðsins í Japan gæti komið vegabréfinu til Fischers.

Japanska pressan ræðir við Sæma
Japanska dagblaðið <em>Mainchi Daily News</em> greinir í ítarlegu máli frá viðleitni Sæmundar Pálssonar til að ná fundi Bobby Fischers skákmeistara í innflytjendabúðunum þar sem honum hefur verið haldið föngnum síðan í fyrrasumar.

Heimsækir Fischer væntanlega í dag
Sæmundur Pálsson, vinur Bobbys Fischers, heimsækir Fischer væntanlega í dag þar sem hann hefur verið í haldi japanskra yfirvalda í marga mánuði. Sæmundur, sem hélt utan fyrir nokkrum dögum, mun einnig fara í íslenska sendiráðið í Tókýó en þar bíður útlendingavegabréf skákmeistarans.

Fengu ekki að hitta Fischer
Óljósar öryggisástæður komu í veg fyrir að Sæmundur Pálsson gæti hitt Bobby Fischer í morgun. Koma Sæmundar til Japans virðist hafa valdið miklum taugatitringi í japanska stjórnkerfinu.

Reyna að leysa mál Fischers
Íslensk sendinefnd hélt til Japans í dag til að knýja á um lausn skáksnillingsins Bobbys Fischers. Sæmundur Pálsson sem þegar er kominn til Japans segist hlakka til að hitta þennan forna vin sinn.