Eldgos og jarðhræringar
1 2 3 4 5 6 … 137 ›
Nýju hættumatskorti ætlað að ná betur utan um hættu utan Reykjanesskagans Nýtt hættumatskort Veðurstofunnar tekur gildi í dag. Kortinu er ætlað að gera betur skil hættu sem getur átt sér stað utan þeirra svæða sem áður var lögð áhersla á. Nýtt hættumatskort gildir til 22. apríl. Innlent 15.4.2025 15:19
Þáttaskil hafi orðið í skjálftavirkni í Ljósufjallakerfinu á föstudag Stærsti skjálftinn, sem mælst hefur frá því að jarðhræringar hófust í Ljósufjallakerfinu árið 2021, mældist í morgun, 3,7 að stærð. Jarðeðlisfræðingur segir að þáttaskil hafi orðið síðastliðinn föstudag þegar skjálftavirkni jókst til muna. Innlent 15.4.2025 12:30
Stærsti skjálfti sem mælst hefur á svæðinu frá því virkni hófst Jarðskjálfti að stærð 3,7 reið yfir klukkan átta í morgun við Grjótárvatn á Mýrum í Borgarbyggð. Þetta er stærsti skjálfti sem hefur mælst nálægt Ljósufjallakerfinu síðan virkni hófst þar árið 2021. Innlent 15.4.2025 08:52
Tveir skjálftar yfir fjórum að stærð í Bárðarbungu Tveir skjálftar yfir fjórum að stærð urðu í Bárðarbungu í nótt. Innlent 15.4.2025 06:33
Jarðskjálftahrina í Ljósufjallakerfinu Tugir jarðskjálfta hafa mælst síðustu klukkustundir í Ljósufjallakerfinu á Snæfellsnesi, á milli Grjótárvatns og Langavatns á Vesturlandi. Innlent 12.4.2025 19:35
Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Meta þarf hvort ástæða sé til að reisa varnargarða við hverfi á höfuðborgarsvæðinu sem eru talin geta orðið fyrir áhrifum eldgosa í framtíðinni. Þetta segir slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins. Þegar sé byrjað að þjálfa neyðarstjórnir sveitarfélaganna komi til alvarlegrar náttúruvár í borginni. Innlent 9.4.2025 19:02
Geti sagt fyrir um eldgos við höfuðborgarsvæðið með nokkurra vikna fyrirvara Veðurstofan hefur stórbætt vöktunarkerfi sitt síðan eldvirkni hófst á Reykjanesi að sögn fagstjóra. Reynslan sýni að hægt sé að vara við eldsumbrotum með nokkurra vikna fyrirvara. Hann segir ekkert nýtt í nýrri skýrslu um náttúruvá á höfuðborgarsvæðinu þar sem varað er við mögulegum eldsumbrotum og jarðskjálftum. Hins vegar sé um að ræða mikilvæga samantekt um mismunandi sviðsmyndir á svæðinu. Innlent 9.4.2025 14:40
Líf ólíklega í hættu en byggð gæti gjöreyðilagst Tiltölulega litlar líkur eru á því að mannslíf væru í hættu vegna hraunrennslis á höfuðborgarsvæðinu myndi eldgos verða svo nálægt borginni þannig að henni væri ógnað. Það væri vegna þess að í flestum tilfellum væri nægur tími til að rýma byggð. Hins vegar gæti tjón á byggingum og innviðum orðið gífurlegt og gjöreyðilegging möguleg. Innlent 8.4.2025 18:57
Landris hraðara en eftir síðustu eldgos Landris heldur áfram undir Svartsengi og mælist það nú hraðara en eftir síðustu eldgos. Of snemmt er að segja til um þróun á hraða kvikusöfnunarinnar en á meðan hún heldur áfram eru líkur á endurteknum kvikuhlaupum. Innlent 8.4.2025 15:54
Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Kvikugangurinn stóri, sem myndaðist í eldsumbrotunum við Grindavík í síðustu viku, minnir óþyrmilega á þá ógn sem Reykjavíkursvæðinu gæti stafað af Reykjaneseldum. Nýlegt dæmi sýnir að kvikugangar geta brotist upp með eldgosi tugi kílómetra frá megineldstöðinni. Innlent 7.4.2025 22:11
Órói mældist við Torfajökul Órói mældist við Torfajökul laust eftir klukkan átta í kvöld en er að mestu dottinn niður. Talið er að óróinn tengist breytingum á jarðhitakerfinu í kringum jökulinn. Innlent 6.4.2025 22:39
Áfram landris og skjálftar á Reykjanesskaga Síðasta sólahring hafa um 550 jarðskjálftar mælst á Reykjanesskaga og út á Reykjaneshrygg. Mælingar sýna greinilega að landris sé hafið undir Svartsengi en erfitt er að meta hraða kvikusöfnunar. Innlent 6.4.2025 11:59
Landris hafið og enn dregur úr skjálftavirkni Áfram dregur úr jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga og hafa rúmlega 300 skjálftar mælst síðasta sólahringinn. Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands kemur fram að enn mælist smáskjálftar við kvikuganginn á um fjögurra til sex kílómetra dýpi. Innlent 5.4.2025 10:51
Segir mjög litlar líkur á öðru gosi á næstunni Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, segir að líkur á öðru eldgosi á Reykjanesskaga á næstu dögum séu mjög litlar og verði minni eftir því sem lengra líður. Verði eldgos á næstu dögum, sem hann telur ólíklegt, myndi kvikan sennilega koma upp norðar en við Sundhnúka. Innlent 4.4.2025 22:29
Landris hafið á ný GPS-mælingar sýna vísbendingar um að landris sé hafið á ný í Svartsengi. Stysta eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni lauk í gær. Innlent 4.4.2025 14:54
Dregur úr skjálftavirkni í kvikugangi en hrina í Trölladyngju fannst víða Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga hélt áfram í nótt en hefur þó farið minnkandi frá fyrri dögum. Hins vegar reið kröftug gikkskjálftahrina yfir við Trölladyngju og fannst hún víða. Innlent 4.4.2025 06:48
Enn skjálftahrina við Trölladyngju Enn er í gangi skjálftahrina við Trölladyngju. Snarpur skjálfti fannst víða á höfuðborgarsvæðinu nú rétt fyrir klukkan 23 og mældist um 3,9. Upptök skjálftans voru á milli Sveifluháls og Trölladyngju. Innlent 3.4.2025 23:03
Hrina gikkskjálfta við Trölladyngju Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt um klukkan 18. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni mældist hann um 3,6 og eru upptök hans við Trölladyngju þar sem nú á sér stað gikkskjálftahrina. Innlent 3.4.2025 18:08
Stuttu eldgosi lokið Í uppfærslu á skýrslu sem jarðvísindamenn Veðurstofunnar hafa skrifað segir að stuttu eldgosi sé nú lokið, en sjálftavirkni mælist áfram. Landsig mælist ekki lengur í Svartsengi. Innlent 3.4.2025 15:16
Stöðug og jöfn jarðskjálftavirkni Engin virkni hefur sést á gossprungunni sem opnaðist norðan við Grindavík 1. apríl en jarðskjálftavirkni hefur haldist stöðug í nótt. Frá miðnætti hafa mælst um 600 skjálftar og dreifast þeir nokkuð jafnt eftir ganginum. Innlent 3.4.2025 06:25
Kvikugangur talinn ná langleiðina að flugvallarstæði Hvassahrauns Vísindamenn Veðurstofunnar áætla að kvikugangurinn sem myndaðist í gær sé hátt í tuttugu kílómetra langur. Þeir telja enn möguleika á nýju gosi á norðausturhluta kvikugangsins en taka þó fram að það sé að verða ólíklegra með tímanum. Innlent 2.4.2025 21:43
Möguleiki að kvikugangurinn opnist nærri Reykjanesbraut Fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands segir kvikuganginn, sem myndaðist í gosinu á Reykjanesskaga í gær, ná frá Vogum að Grindavík. Mögulegt sé að kvika komi upp norðarlega í kvikuganginum nærri Reykjanesbraut þó það teljist ólíklegt. Innlent 2.4.2025 12:11
Af neyðarstigi og á hættustig Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hefur ákveðið að færa almannavarnastig af neyðarstigi á hættustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Innlent 2.4.2025 11:39
Engin virkni á gossprungunni en glóð logar í hrauninu Ekki hefur sést virkni á gossprungunni norðan við Grindavík frá því í eftirmiðdag í gær. Glóð logar enn í nýja hrauninu og er svæðið óstöðugt og varasamt. Innlent 2.4.2025 06:45
Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Skipað hefur verið að nýju í framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Árni Þór Sigurðsson sendiherra gegnir áfram formennsku. Innlent 1.4.2025 23:30
Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, segir að atburðurinn í dag sé sambærilegur kvikuinnskotinu í nóvember 2023 þegar stóri kvikugangurinn myndaðist. Hann segir að gangurinn sé að troða sér í norðaustur og að gosið í dag hafi bara verið „smá leki“ frá ganginum neðanjarðar. Innlent 1.4.2025 20:14
„Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Hermann Ólafsson hobbýbóndi, fyrrverandi sjávarútvegsmaður og Grindvíkingur, er miður sín eftir að hafa fengið að kenna óþyrmilega á því: Handjárnaður, „blásaklaus“, settur í steininn og til að bíta hausinn af skömminni: Talinn hafa ógnað fólki með byssu. Innlent 1.4.2025 17:15
Fordæmir atvikið í Grindavík Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir það hafa verið afar leitt að heyra af því að maður hefði otað byssu að björgunarsveitarmanni. Innlent 1.4.2025 17:00
Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Hjón sem búa í Grindavík tóku fréttum af yfirvofandi eldgosi af mesta jafnaðargeði í morgun. Þau klæddu sig, borðuðu morgunmat og gáfu dýrunum að borða. Þau telja enga hættu á ferð heima hjá sér og neituðu að rýma bæinn í morgun þegar viðbragðsaðilar gáfu skipanir um slíkt. Innlent 1.4.2025 14:54
„Þessi staður er ákaflega óheppilegur“ Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruváreftirlits Veðurstofu Íslands, segir eldgosið sem hófst í morgun hafa komið upp á ákaflega óheppilegum stað. Aftur á móti sé heppilegt að kvikan hafi dreift sér um langa sprungu og því sé gosið rólegt. Innlent 1.4.2025 12:41