
Páskar

Stjörnulífið: Páskafrí og veðurtepptir Íslendingar
Páskarnir eru að baki með tilheyrandi súkkulaðiáti og notalegheitum. Fjölmargir nutu páskanna erlendis á meðan aðrir skelltu sér til Ísafjarðar á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður.

Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards
Michele Roosevelt Edwards sendi páskakveðju frá Wow Air til fylgjenda sinna á LinkedIn í ár eins og hún hefur gert síðustu fjögur ár. Hún endurnýtir eldgamlar myndir og auglýsingar með kveðjunum. Þar að auki virðist hún hafa víkkað starfsemina út í veðreiðar með Wow Equine Services.

Vegir lokaðir víða um landið
Vegir eru lokaðir víða á landinu og færð ekki með besta móti sem er ekki gott fyrir alla þá ferðalanga sem þurfa að komast heim eftir páskahelgina.

Snjóbylur setur strik í stærstu skíðahelgi ársins
Víða er ófært á Norður- og Austurlandi í dag og þurftu stjórnendur Hlíðarfjalls að loka á einni stærstu skíðahelgi ársins þegar snjóbylur skall á. Þá hafa björgunarsveitir þurft að aðstoða mikinn fjölda ferðalanga.

„Stríð er alltaf fjarstæða og ósigur“
Frans páfi kallaði eftir vopnahléi á Gasa í páskaávarpi sínu í Vatíkaninu í dag. Hann kallaði einnig eftir því að Hamas sleppti öllum gíslum. Hann minntist á stríðið í Úkraínu

Sennilega þeir einu sem vilja rigningu um páskana
Eldgosið norðan Grindavíkur mallar enn eins og það hefur gert síðustu daga. Mikill þurrkur er á svæðinu svo kviknað hefur í gróðri á gosstöðvunum. Slökkviliðsmenn í Grindavík eru sennilega í minnihluta fólks sem vill að það rigni um páskana.

Táknmyndir páskanna og náttúruvernd
Útdauðar tegundir plantna og dýra munu ekki snúa aftur, en eins og upprisan fylgdi krossdauða Krists, finnur náttúran nýjar leiðir til að blómstra ef að henni er hlúð.

Sárir páskaeggjaleitarar ekki farið með rétt mál
Bæjarins Beztu Pylsur, sem sér um páskaeggjaleit í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum gefur lítið fyrir gagnrýni á framkvæmd hennar og segir hana hafa gengið vel. Eggin hafi nær ávallt dugað fram að lokun og rangt að þau hafi eitt sinn verið horfin um hádegisbil. Forstöðukona garðsins segir ungt starfsfólk hafa þurft að þola reiði og skammir að ósekju.

Eggin tuttugu búin í byrjun dags, fólk að hamstra og starfsmenn eltir uppi
Mæður á Facebook-hópnum Mæðratips furða sig á skipulagi páskaeggjaleitar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Aðeins er hægt að finna tuttugu egg á dag svo þau klárast snemma. Að sögn sjónarvotta eru dæmi um fólk sem hefur hamstrað egg.

Krossfesting Jesú sett á svið í Filippseyjum
Krossfesting Jesú var sett á svið á Filippseyjum í dag þegar fámennur hópur kaþólskra tilbiðjenda freistaði þess að upplifa síðustu stundir Krists.

Fengu fullkomið veður við áratugalanga hefð í Hvalfirði
Sólin hefur skinið skært á suðvesturhorninu í dag og margir nýttu góða veðrið í útiveru. Þar á meðal ferðalangar í Hvalfirði sem tíndu krækling í fjörunni á meðan þeir fylltu á D-vítamín tankinn.

„Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“
Aðsókn í Bláfjöll var minni í gær en búast hefði mátt við í heiðríkjunni vegna nokkurs hvassviðris á svæðinu að sögn framkvæmdastjóra. Hann býst hins vegar við fjölmenni í dag og skorar á fólk að draga fram skíðin og mæta.

Hvað er opið um páskana?
Opnunartímar verslana og þjónustu breytast yfir páskahátíðina en þó er hægt að verða sér út um helstu nauðsynjar á frídögum þessa helgina. Sundlaugar og skíðasvæði eru opin víða í dag.

Páskarnir - íhugunarhvatning
Páskarnir, stærsta trúarhátíð kristinna manna, eru handan við hornið og sá heimssögulegi atburður er sannarlega tilefni til að skrifa um og upphefja.

Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust
Páskaegg frá súkkulaðiframleiðandanum Nóa Síríus eru í uppáhaldi flestra landsmanna samkvæmt nýrri könnun Prósent. Næst á eftir koma páskaegg frá Freyju og síðan Góu.

Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan
Nú þegar páskarnir eru handan við hornið flykkjast Íslendingar í ferðalög. Á Keflavíkurflugvelli eru öll langtímastæði full þrátt fyrir að 300 hafi bæst við á síðustu dögum. Í Ártúnsbrekkunni síðdegis var stöðugur straumur bíla út á land.

Óhefðbundinn páskamatseðill að hætti Sigurðar Laufdal á OTO
Sigurður Laufdal, matreiðslumaður og eigandi veitingastaðarins OTO við Hverfisgötu, deilir hér þriggja rétta óhefðbundnum páskamatseðli með lesendum Vísis. Réttirnir eru sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana og geta verið skemmtileg áskorun fyrir þá sem vilja prófa sig áfram í eldamennskunni.

Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar
Verð á súkkulaði hefur víða hækkað miðað við janúarmánuð, samkvæmt niðurstöðum verðlagseftirlits ASÍ. Verð á súkkulaði frá Nóa Síríus hefur hækkað mest, en vörur frá Freyju hafa hækkað minnst í verði. Sumar þeirra hafa raunar lækkað í verði á tímabilinu.

Bein útsending: Veglegir vinningar í páskabingói Blökastsins
Þeir Auðunn Blöndal og Steindi Jr. stóðu fyrir árlega páskabingói Blökastsins klukkan 19:30 í kvöld. Sýnt var frá bingóinu í opinni dagskrá og beinni útsendingu hér á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi.

Bónus, Extra og Heimkaup oftast með lægsta verðið á páskaeggjum
Verð hafa færst lítillega niður á páskaeggjum í hægvinnu verðstríði undanfarnar tvær vikur. Bónus, Extra og Heimkaup eru oftast með lægsta verðið en Bónus, Krónan og Kjörbúðin með lægsta meðalverðið á páskaeggjum.

Fjandinn laus þegar málshættina vantar
Framkvæmdastjóri hjá Nóa Síríus segir páskaeggjavertíðinni senn lokið hjá fyrirtækinu, og að síðustu egg fari brátt úr húsi á lager fyrirtækisins. Að mörgu þurfi að huga við gerð eggjanna, en mikilvægastir séu málshættirnir. Fjarvera þeirra í eggjum landsmanna geti jafnvel eyðilagt hátíðarnar fyrir einhverjum.

Undurfagrar páskaskreytingar
Páskarnir eru handan við hornið með tilheyrandi veisluhöldum og samverustundum. Mínímalískar og undurfagrar páskaskreytingar lífga upp á heimilið og er sannkallaður vorboði.

Langur föstudagur
Nú í dymbilviku undirbúum við okkar páskahátíð sem framundan er. Hún er margvísleg og má vera öðruvísi. Sum okkar fara í frí, á skíði, til Tene eða aldrei suður og hlusta á tónlist. En það þurfa líka margir að vinna um þessa hátíð og sinna mikilvægum störfum sem halda samfélaginu gangandi. En af hverju höldum við pàskahàtið það er góð spurning?

Sleppti pálmasunnudagsprédikun á síðustu stundu
Frans páfi ákvað að sleppa því að flytja pálmasunnudagsprédikun skömmu áður en sextíu þúsund manna messa hófst á Sankti Péturstorgi í Páfagarði í dag.

Golgata er víða
Með pálmasunnudegi er dymbilvikan gengin í garð þegar við minnumst þess er Jesú var fagnað sem hetju þegar hann reið inn í Jerúsalem. En fljótt skipast veður í lofti. Fimm dögum síðar var hann tekinn af lífi með hræðilegustu aftökuaðferð Rómverja, krossfestingu – fyrir upplognar sakir.

Kirkjunnar fólk messar yfir Berglindi og Gísla
Innslag Berglindar Festival í spjallþættinum Vikunni með Gísla Marteini, þar sem inntakið er fáviska landans um uppruna páskana, hefur vakið misjöfn viðbrögð. Kirkjunnar fólk notar píslarsöguna úr Biblíunni til að sýna fram á meinta vitleysu sjónvarpsfólksins.

Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni
Elsta starfandi sælgætisgerð á Íslandi, Freyja, var stofnuð árið 1918. Á sögulegum og krefjandi tíma ákváðu nokkrir félagar að nú væri frábær tími til að setja á laggirnar sælgætisgerð. Á þessum tíma var Ísland að öðlast fullveldi frá Danmörku, spænska veikin gekk yfir Reykjavík, fyrri heimsstyrjöldinni var að ljúka og ofan á allt gaus ein stærsta eldstöð landsins, Katla.

Einföld og falleg fermingargreiðsla
Rakel María Hjaltadóttir hársnyrtir, förðunarfræðingur og ofurskvísa sýnir okkur hvernig má töfra fram einfalda hárgreiðslu fyrir fermingardaginn án mikillar fyrirhafnar.

Einföld og frískleg fermingarförðun
Rakel María Hjaltadóttir förðunarfræðingur og ofurskvísa sýnir okkur hvernig má töfra fram einfalda og fallega förðun fyrir fermingardaginn án mikillar fyrirhafnar.

Páskaegg hækkað um allt að 22 prósent á milli ára
Páskaegg eru ódýrust í Bónus en dýrust í 10-11. Verð á páskaeggjum hefur hækkað um 3 til 22 prósent frá því í fyrra