Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Fjölnir 0-3 | Skagamenn áttu ekki séns Stefán Árni Pálsson á Norðurálsvelli skrifar 3. júní 2015 14:42 Ólafur Páll Snorrason er spilandi aðstoðarþjálfari Fjölnis. vísir/vilhelm
Fjölnir komst í kvöld áfram í 16-liða úrslit Borgunarbikarsins með sigri á Skagamönnum, 3-0, upp á Skipaskaga í kvöld. Fjölnir gerði tvö mörk í fyrri hálfleik. Aron Sigurðarson gerði tvö mörk í leiknum. Fjölnismenn byrjuðu leikinn mikið mun betur og voru sérstaklega ákveðnir alveg frá fyrstu mínútum. Skagamenn réðu ekkert við Aron Sigurðarson á vinstri kantinum og lék hann ítrekað á heimamenn. Fjölnismenn voru því ekki lengi að komast yfir en fyrsta mark leiksins kom eftir tæplega korters leik. Þar var að verki Mark Charles Magee sem stýrði boltanum laglega framhjá Páli Gísla í marki ÍA. Þórir Guðjónsson lagði boltann laglega fyrir Charles með höfðinu. Aðeins nokkrum mínútum síðar var Aron Sigurðarson mættur og skoraði hann annað mark Fjölnis. Staðan var orðin 2-0 eftir tuttugu mínútna leik og Fjölnismenn einfaldlega í ruglinu. Fjölnismenn voru mikið betri í fyrri hálfleiknum og í raun merkilegt að staðan hafi bara verið 2-0 í hálfleik. Liðið fékk heldur betur færin til að skora fleiri. Síðari hálfleikurinn hófst með miklum látum og bæði lið gjörsamlega óðu í færum. Boltinn fór nokkrum sinnum í tréverkið en inn vildi hann ekki. Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, gerði breytingar á sínu liði en þær tókust einfaldlega ekki sem skildi. Skagamenn áttu í raun aldrei séns í þennan leik. Aron Sigurðarson var aftur á ferðinni rétt fyrir leikslok og gerði sitt annað mark í leiknum. Hann var magnaður í kvöld. Leiknum lauk því með öruggum 3-0 sigri Fjölnis og verða þeir í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitin. Ólafur Páll: Við ætlum okkur langt í þessari keppniÓlafur Páll í leik með Fjölni í sumar.„Við gerðum ekki alveg ráð fyrir því að vinna Akranes 3-0 og erum mjög sáttir með sigurinn,“ segir Ólafur Páll Snorrason, spilandi aðstoðarþjálfari Fjölnis, eftir leikinn. Ólafur var samt sem áður utan hóps í kvöld. Emil Pálsson var ekki í hóp vegna meiðsla og Gunnar Már Guðmundsson og Þórir Guðjónsson fóru báðir útaf í hálfleik vegna meiðsla. „Við vorum búnir að skipuleggja það að taka Þórir útaf í hálfleik, það er gríðarlega mikilvægur leikur á móti Stjörnunni um helgina og við viljum halda honum heilum. Emil er búinn að vera tæpur og við ákváðum að hvíla hann, sem og mig.“ Fjölnir hefur í gegnum tíðina verið nokkuð bikarlið og ekki er langt síðan að liðið komst alla leið í bikarúrslitaleikinn. „Við ætlum okkur langt í þessari keppni. Fjölnir hefur tvisvar farið í úrslitaleikinn og þá myndaðist gríðarleg stemning og við viljum finna það aftur.“ Gunnlaugur: Það er komið örlítið stress í hópinnGunnlaugur Jónsson.vísir/ernir„Ég er gríðarlega óhress með mannskapinn og mitt lið,“ segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, eftir ósigurinn í kvöld. „Við erum bara ekki klárir þegar leikurinn hefst og við þurftum að lenda 2-0 undir til þess að vakna og það er bara óásættanlegt. Sérstaklega eftir tap á móti þessu sama liði á sunnudaginn, það er ekki lengra síðan.“ Gunnlaugur vildi ekki ræða gang leiksins við sína leikmenn inn í klefa og mun bíða með það til morguns. „Maður getur bara sagt eitthvað sem maður sér eftir, svona stuttu eftir leik. Það er ljóst að liðið hefur núna tapað fjórum leikjum í röð og það er ekki ásættanlegt.“ Skagamenn mæta Fylki í næstu umferð Pepsi-deildarinnar en er komið stress í hópinn? „Já, það örlar á örlitlu stressi í hópnum, það er ekki hægt að neita því. Við erum ekki jafn öryggir og í fyrstu leikjunum. Þetta eru fjórir tapleikir í röð, það er brekka sem við erum í og getum ekki lokað augunum fyrir þeirri staðreynd. Við þurfum að finna einhver ráð til að koma mönnum upp á tærnar.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Persónulegar ástæður fyrir brotthvarfi Vésteins Sport Blá og marin rétt fyrir EM: „Vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta“ Sport Sonur Ronaldos í fyrsta sinn í landsliði Fótbolti Ólafur baðst afsökunar eftir leik: „Ég er bara rosalega viðkvæmur eins og er“ Körfubolti Segir að Cecilía verði keypt fyrir metverð Fótbolti Real Madrid vill fara í viðræður við Liverpool um Trent Enski boltinn Tóku Valsmenn til bæna: „Það er kannski helvítis málið, það er ekki hungur í paradís“ Íslenski boltinn Valdi fjórar verstu hornspyrnur ÍBV: „Þessi var helvíti slæm“ Íslenski boltinn Í beinni: Inter - Barcelona | Mögnuð skemmtun áfram? Fótbolti Sjáðu partýið í Kópavogi, Gylfa afgreiða Fram og nýliðana í stuði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingvar gerir ráð fyrir að vera klár í næsta leik Fimm mörk að meðaltali í leik hjá KR Valdi fjórar verstu hornspyrnur ÍBV: „Þessi var helvíti slæm“ Tóku Valsmenn til bæna: „Það er kannski helvítis málið, það er ekki hungur í paradís“ Sjáðu partýið í Kópavogi, Gylfa afgreiða Fram og nýliðana í stuði „Þetta er eins og eldgamla tómatsósan“ Uppgjörið: Víkingur - Fram 3-2 | Gylfi Þór skoraði fyrsta mark sitt í torsóttum sigri Víkings Uppgjörið: Afturelding - Stjarnan 3-0 | Nýliðarnir öflugir á heimavelli Uppgjörið: Breiðablik - KR 3-3 | Stórleikurinn stóðst væntingarnar Valskonur ólíkar sér: Kallar eftir hungraðri Nadíu í stað Rhodes Sjáðu Flóka færa Val fyrsta tapið, ÍA í stuði og hvernig Vestri fór á toppinn Þorleifur snýr heim í Breiðablik Uppgjörið: FH - Valur 3-0| FH skellti Valsmönnum Nik sendi Ástu skeyti: „Mikil eftirvænting fyrir þessari frumraun“ Uppgjörið: ÍA - KA 3-0 | Skagamenn risu upp og Viktor fann markaskóna Uppgjörið: ÍBV - Vestri 0-2 | Vestramenn aftur á toppinn Sjáðu markaveislu Breiðabliks og FH og mörkin úr sögulegum sigri Fram „Við gátum ekki farið mikið neðar“ Uppgjörið: Stjarnan - Valur 1-0 | Stjarnan fyrst til að skora gegn Val FH-ingar kláruðu Akureyringa á korteri og jöfnuðu Blika á toppnum Leik lokið: Þróttur - Tindastóll 1-0 | Eina markið skorað úr fyrstu sókn leiksins Uppgjörið: Fram - FHL 2-0 | Fram nældi í sín fyrstu stig í nýliðaslagnum við FHL Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-0 | Meistararnir með markaveislu í sólinni „Þetta var ákvörðun sem ég þurfti að taka“ „Finnst þessir fyrstu tveir leikir hræðilegir“ Draumaendir Bjarka á ferlinum: „Loksins fann ég þjálfara sem virkilega skildi mig“ „Fannst ekkert gerast nema Fanndís væri að gera eitthvað“ „Hvað eru menn búnir að láta fífla sig út í?“ Vilja að Arna elti stóru systur: „Þær eru svakalegir íþróttamenn“ Sjáðu sjálfsmarkið sem skipti sköpum og fyrstu mörk Lífar Sjá meira
Tóku Valsmenn til bæna: „Það er kannski helvítis málið, það er ekki hungur í paradís“ Íslenski boltinn
Tóku Valsmenn til bæna: „Það er kannski helvítis málið, það er ekki hungur í paradís“ Íslenski boltinn