Stórsigur KA á Þrótti | Grótta og Selfoss unnu mikilvæga sigra Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. ágúst 2015 20:15 Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði eitt marka KA. Vísir/Andri Marinó
Heil umferð fór fram í 1. deild karla í kvöld. KA-menn gerðu sér lítið fyrir og rúlluðu yfir Þróttara á Akureyrarvelli, 4-1. Þetta var þriðji sigur KA í röð en liðið hefur unnið báða leiki sína eftir þjálfaraskiptin. KA er nú fimm stigum á eftir Þrótti í 2. sæti deildarinnar þegar fimm umferðunum er ólokið. Það er því ekki öll nótt úti enn fyrir Akureyringa. KA komst yfir með sjálfsmarki Karls Brynjars Björnssonar strax á 1. mínútu leiksins en Viktor Jónsson jafnaði metin korteri seinna með sínu 15. deildarmarki í sumar. Davíð Rúnar Bjarnason kom KA aftur yfir á 43. mínútu og eftir þriggja mínútna leik í seinni hálfleik kom Elfar Árni Aðalsteinsson heimamönnum í 3-1. Það var svo Jóhann Helgason sem gulltryggði sigur KA þegar hann skoraði fjórða markið á 73. mínútu. Á Eskjuvelli vann Grótta mjög mikilvægan sigur á Fjarðabyggð, 2-3. Seltirningar eru nú aðeins einu stigi frá öruggu sæti. Viktor Smári Segatta skoraði tvívegis fyrir Gróttu og Atli Freyr Ottesen Pálsson eitt mark. Bjarni Mark Antonsson og Elvar Ingi Vignisson gerðu mörk Fjarðabyggðar sem hefur ekki unnið leik í seinni umferðinni og er komið niður í 6. sæti deildarinnar.Björgvin Stefánsson heldur áfram að raða inn mörkum fyrir Hauka.vísir/valliTopplið Víkings Ólafsvíkur vann öruggan 3-0 sigur á HK fyrir vestan. Þetta var sjötti sigur Ólsara í röð. Hrvoje Tokic, Ingólfur Sigurðsson og Kristófer Eggertsson gerðu mörk Víkinga sem eru með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar. Denis Sytnik var hetja Selfyssinga sem unnu 1-2 sigur á Fram í Úlfarsárdalnum. Þetta var langþráður sigur hjá Selfossi en síðasti sigur liðsins kom 13. júlí. Sytnik gerði bæði mörk Selfyssinga í fyrri hálfleik en Orri Gunnarsson minnkaði muninn fyrir Fram þegar 11 mínútur voru eftir af leiknum. Haukar unnu 1-0 sigur á Þór á Schenkervellinum sem hefur reynst Hafnfirðingum drjúgur í sumar. Það var Björgvin Stefánsson sem skoraði eina mark leiksins á 14. mínútu en hann hefur átt frábært sumar og er kominn með 14 mörk í 1. deildinni. Haukar eru í 7. sæti deildarinnar en Þórsarar í því fjórða. Þá vann Grindavík 1-0 sigur á botnliði BÍ/Bolungarvíkur. Filipsseyingurinn Angel Guirado Aldeguer skoraði sigurmark Grindvíkinga á 78. mínútu. Grindavík er í 5. sæti deildarinnar en Djúpmenn eru langneðstir með aðeins fimm stig.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug Körfubolti Adam Ingi í ótímabundið hlé frá knattspyrnu Fótbolti „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ Körfubolti „Holan var of djúp“ Körfubolti „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ Körfubolti „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Handbolti Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 104-89 | Álftnesingar í undanúrslit í fyrsta sinn Körfubolti „Gott að vera komin heim“ Íslenski boltinn Spiluðu óvart rangt lag fyrir stórleikinn á Villa Park Fótbolti „Sýna þeim að þau gerðu mistök að segja samningnum upp“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Það sem klikkaði var að þær komust á lagið og gerðu vel“ Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 6-1 | Meistararnir byrja af krafti „Gott að vera komin heim“ Uppgjörið: Þróttur - Fram 3-1 | Nýliðarnir máttu þola tap í endurkomunni Hin næstum fertuga Sif fær félagaskipti í Víking „Komin ótrúlega langt miðað við hversu stutt er síðan hún átti sitt fyrsta barn“ „Sýna þeim að þau gerðu mistök að segja samningnum upp“ „Það verður alltaf talað um hana“ „KA búið að leggja það í vana sinn að bregðast mjög seint við“ „Taka hringi á jörðinni og öskra eins og þú sért að fæða barn“ Besta spáin 2025: Skjöldurinn fer ekki neitt Besta-spáin 2025: Nýir tímar en sömu væntingar á Hlíðarenda Stúkan ræddi umdeilt víti KR-inga: „Þetta er ekkert eðlilega heimskulegt“ „Við erum búnir að brenna skipin“ Markmenn Bestu deildar kvenna: Hásætið laust „Þetta er fyrir utan teig“ „Mínir menn geta borið höfuðið hátt“ Daði leggur skóna á hilluna Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 2-1 | Tveir sigrar í röð hjá Stjörnumönnum Uppgjörið: KR - Valur 3-3 | Ótrúleg dramatík í Laugardalnum „Þetta var eitt af þessum stóru augnablikum sem ég mun aldrei gleyma“ KA búið að landa fyrirliða Lyngby Versti sóknarleikur nýliða í meira en þrjá áratugi Lærðu að fagna eins og verðandi feður Besta-spáin 2025: Áframhaldandi hamingja í Víkinni „Aðeins léttari þegar það er saklaus sál heima sem þarf að sjá um“ Besta-spáin 2025: Stórir draumar í Laugardalnum Mörkin úr Bestu: Fram afgreiddi meistara Blika á ellefu mínútna kafla „Við erum að reyna að skapa vonir og trú á þetta verkefni“ Uppgjörið: Víkingur - KA 4-0 | Meiðslum hrjáðir Víkingar léku KA-menn grátt Sjá meira