Juventus ítalskur meistari fimmta árið í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. apríl 2016 16:40 Leikmenn Juventus fagna eftir sigurinn á Fiorentina í gær. vísir/getty
Juventus varð í dag ítalskur meistari fimmta árið í röð eftir 1-0 sigur Roma á Napoli. Juventus fór langt með að tryggja sér titilinn með 2-1 sigri á Fiorentina í gær en Napoli þurfti að vinna síðustu fjóra leiki sína og treysta á að Juventus tapaði þremur síðustu leikjum sínum til að taka titilinn. Það gekk ekki eftir því Napoli-menn biðu lægri hlut fyrir Rómverjum á útivelli í dag. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum en það gerði belgíski miðjumaðurinn Radja Nainggolan þegar ein mínúta var til leiksloka. Juventus byrjaði tímabilið illa en fór í gang í byrjun nóvember og hefur unnið 24 af síðustu 25 leikjum sínum og gert eitt jafntefli. Juventus hefur haldið hreinu í 17 af þessum 25 leikjum en markvörðurinn reyndi, Gianluigi Buffon, neitaði hreinlega að fá á sig mark á tímabili. Eins og áður sagði er þetta í fimmta sinn í röð sem Juventus verður ítalskur meistari. Antonio Conte, verðandi knattspyrnustjóri Chelsea, var stjóri Juventus fyrstu þrjú skiptin en Massimiliano Allegri hefur stýrt liðinu til tveggja síðustu titlanna. Juventus er langsigursælasta lið Ítalíu með 32 meistaratitla. Juventus á enn möguleika á að vinna tvöfalt en liðið mætir AC Milan í úrslitaleik ítölsku bikarkeppninnar á Ólympíuleikvanginum í Róm 21. maí næstkomandi.Leikmenn Juventus fögnuðu vel og innilega eftir að titilinn var í höfn These guys have just made #HI5TORY!!! pic.twitter.com/XTV07B9Rgu— JuventusFC (@juventusfcen) April 25, 2016
Ítalski boltinn Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti Fleiri fréttir „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum Sjá meira