Anton og Jónas dæma í Final Four í Köln Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. maí 2016 15:17 Jónas Elíasson. Vísir/Stefán
Besta handboltadómarapar landsins hefur fengið flotta viðurkenningu frá evrópska handboltasambandinu því íslensku dómararnir hafa verið valdir til að dæma á stærstu handboltahelginni í Evrópu. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson hafa nefnilega fengið úthlutað leik á úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu sem fram fer í Köln 28. til 29. maí næstkomandi. Þetta kemur fram á heimsíðu HSÍ. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson munu dæma leikinn um þriðja sætið sem fer fram sunnudaginn 29. maí. Liðin sem hafa tryggt sér sæti í Final Four þetta árið eru MVM Vezprém, Vive Tauron Kielce, PSG Paris og THW Kiel. Það verður Íslendingaslagur í undanúrslitunum þegar Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska liðinu Kiel taka á móti Aroni Pálmarssyni og liðsfélögum hans í ungverska liðinu Vezprém. Það er því öruggt að þeir Anton og Jónas munu dæma hjá öðru Íslendingaliðinu og þau gæti verið tvö því lið Róberts Gunnarssonar, PSG Paris, er einnig í undanúrslitunum í ár. Þetta verður stórt ár fyrir Anton Gylfa Pálsson og Jónas Elíasson því í ágúst munu þeir dæma í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í Ríó í Brasilíu.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Leik lokið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Handbolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn Fleiri fréttir Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar Leik lokið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu „Veit ekki hvar on-takkinn er“ „Þetta bara svíngekk“ Sjötta tap Hauks og félaga í röð Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Hafa ekki tapað undanúrslitaleik í nítján ár Ætla ekki að bíða aftur í 24 ár Sveinn spilar í fimmta landinu Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Dagur skilaði sínu fyrir Montpellier sem er komið áfram Elliði Snær frábær í góðum sigri Karabatic-ballið alveg búið Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins „Við vorum yfirspenntar“ Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Sjá meira