Guðni staðfestir framboð til formanns KSÍ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. desember 2016 11:07 Guðni Bergsson í banastuði við Laugardalsvöllinn um árið. Vísir/Hörður Sveinsson
Eftir nokkra íhugun og hvatningu fjölda fólks, innan sem utan knattspyrnuhreyfingarinnar, hef ég ákveðið að gefa kost á mér til formanns KSÍ á næsta ársþingi þess. Svo segir í yfirlýsingu frá Guðna Bergssyni, fyrrverandi atvinnumanni í knattspyrnu og landsliðsmanni. Ljóst er að formannsslagur verður á ársþingi KSÍ í Vestmannaeyjum þann 11. febrúar þar sem Geir Þorsteinsson, formaður síðan árið 2007, hyggst sömuleiðis bjóða sig fram. Stefnir í mest spennandi formannsslag í sambandinu í manna minnum. Björn Einarsson, formaður Víkings, íhugar einnig framboð til formanns.Tilkynningu Guðna má sjá í heild hér að neðan.Ég tel að tímabært sé að koma á nauðsynlegum breytingum á forystu knattspyrnusambandsins en núverandi formaður hefur verið framkvæmdastjóri og formaður sambandsins síðastliðin 20 ár. Með endurnýjun koma nýir kraftar og ferskir vindar sem eru félagasamtökum eins og KSÍ bæði nauðsynlegir og hollir. Framboð mitt mótast af þeirri trú að ég geti skilað góðu starfi fyrir íþróttina sem hefur gefið mér svo margt og mótað mitt líf. Bakgrunnur minn sem áhugamaður með Val í knattspyrnu, atvinnumaður, landsliðsmaður, fyrirliði, lögmaður og foreldri barna í knattspyrnu tel ég vera mjög gott veganesti. Einnig hef ég gengt trúnaðarstörfum fyrir knattspyrnufélagið Val og verið einn af forsvarsmönnum Knattspyrnuakademíu Íslands. Þessi víðtæki bakgrunnur hefur aflað mér dýrmætrar reynslu og víðtækrar og glöggrar innsýnar sem ég tel að muni nýtast mér til að veita íslenskri knattspyrnu öfluga forystu. Verkefnin eru ærin: • Ég vil leiða kröftugt starf KSÍ með virkri umræðu um leiðir til þess að bæta knattspyrnuna í landinu. • Starfið í grasrótinni, hjá félögunum sjálfum um allt land, er hinn eiginlegi grunnur velgengni íslenskrar knattspyrnu. Í því sambandi er menntun þjálfara og fræðsla mér hugleikin sem og öflugt yngri flokka starf almennt. • Nauðsynlegt er að huga sérstaklega að starfinu á landsbyggðinni, aðstöðu til knattspyrnuiðkunar og þeim kostnaði sem leggst á félög vegna ferðalaga. • Það þarf að efla markaðsstarf fyrir deildirnar og fjölga áhorfendum. • Kvennaknattspyrna er í mikilli sókn og næsta sumar tekur landsliðið þátt í EM í Hollandi. Ég vil sjá KSÍ styðja við stelpurnar okkar af metnaði og einlægum áhuga til að bæta kvennafótboltann enn frekar. • Við getum bætt unglingaþjálfunina og styrkt umgjörð unglingalandsliðanna. • Við viljum halda okkar landsliðum meðal þeirra bestu og og styrkja enn frekar þau faglegu vinnubrögð sem skiluðu karlalandsliði okkar í fremstu röð. • Þörf er á nýjum leikvangi í Laugardal og við þurfum að gæta vel hagsmuna okkar á alþjóðavettvangi. Fyrst og síðast vil ég skila góðu starfi í þágu fótboltans. Það yrði verðugt og spennandi að takast á við það verkefni sem formaður KSÍ. Starfið innan hreyfingarinnar er öflugt en það er alltaf hægt að gera betur og stefna hærra.
KSÍ Íslenski boltinn Mest lesið „Þetta var manndrápstilraun“ Sport „Við erum búnir að brenna skipin“ Íslenski boltinn Lélegasta lið Man United frá upphafi ensku úrvalsdeildarinnar Enski boltinn Fórnar bandarískum háskólapartýum til að ná á toppinn Golf „Við bara brotnum“ Körfubolti „Þetta er fyrir utan teig“ Íslenski boltinn „Eru greinilega lið sem eru betri en við“ Körfubolti Markmenn Bestu deildar kvenna: Hásætið laust Íslenski boltinn „Mínir menn geta borið höfuðið hátt“ Íslenski boltinn „Kominn tími fyrir þá að fara í háttinn“ Körfubolti Fleiri fréttir „Við erum búnir að brenna skipin“ Markmenn Bestu deildar kvenna: Hásætið laust „Þetta er fyrir utan teig“ „Mínir menn geta borið höfuðið hátt“ Daði leggur skóna á hilluna Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 2-1 | Tveir sigrar í röð hjá Stjörnumönnum Uppgjörið: KR - Valur 3-3 | Ótrúleg dramatík í Laugardalnum „Þetta var eitt af þessum stóru augnablikum sem ég mun aldrei gleyma“ KA búið að landa fyrirliða Lyngby Versti sóknarleikur nýliða í meira en þrjá áratugi Lærðu að fagna eins og verðandi feður Besta-spáin 2025: Áframhaldandi hamingja í Víkinni „Aðeins léttari þegar það er saklaus sál heima sem þarf að sjá um“ Besta-spáin 2025: Stórir draumar í Laugardalnum Mörkin úr Bestu: Fram afgreiddi meistara Blika á ellefu mínútna kafla „Við erum að reyna að skapa vonir og trú á þetta verkefni“ Uppgjörið: Víkingur - KA 4-0 | Meiðslum hrjáðir Víkingar léku KA-menn grátt Uppgjörið: Fram - Breiðablik 4-2 | Skoruðu fjögur mörk á minna en tíu mínútum til að tryggja sigur „Ég skil ekki hvernig við náum ekki að klára þetta“ Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 0-0 | Markalaust í nýliðaslagnum Uppgjörið: Vestri - FH 1-0 | Daði Berg hetja Vestra Hundur hljóp inn á völlinn í leik Vestra og FH VAR í Bestu deildina? Völsungur vann vítaspyrnukeppni á afmælisdeginum Adam Ægir á heimleið Formaðurinn ósáttur við tveggja leikja bannið og aganefnd Njarðvík og ÍR fögnuðu bæði tveimur sigrum í kvöld Uppgjörið: Breiðablik - Valur 0-1 | Valskonur meistarar meistaranna Blikum spáð öðrum titli en stutt stopp hjá nýliðunum Fjögur prósent eru bara í fótbolta og langflestar vilja VAR og gervigras Sjá meira