Sport

„Þetta var manndrápstilraun“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mathieu Van Der Poel sést hér ásamt kærustu sinni Roxanne Bertels eftir keppnina.
Mathieu Van Der Poel sést hér ásamt kærustu sinni Roxanne Bertels eftir keppnina. Getty/Etienne Ganrnier

Hollenski hjólakappinn Mathieu van der Poel fagnaði sigri í Paris-Roubaix hjólakeppninni um helgina þrátt fyrir að lenda í mjög óskemmtilegu og í raun stórhættulegu atviki í miðri keppni.

Van der Poel varð fyrir því að áhorfandi kastaði í hann flösku þegar hann var á fullri ferð á hjólinu.

„Þetta var manndrápstilraun,“ sagði Mathieu van der Poel öskureiður eftir keppnina.

Van der Poel er vissulega stórstjarna í hjólreiðunum en hann er ekki vinsæll hjá öllum. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem eitthvað kemur upp á milli hans og áhorfenda.

„Þetta var eins og að fá stein í sig. Flaskan var næstum því full og var um hálft kíló að þyngd. Það að einhver skulu henda svona hlut í mann. Það er ekki hægt að líta fram hjá svona, sagði hinni þrítugi Van der Poel.

Van der Poel var að vinna Paris-Roubaix hjólakeppnina þriðja árið í röð.

Hann fékk flöskuna í sig þegar það voru 37 kílómetrar eftir. Það gerðist á steinlögðum vegi með fólk allt í hring, fólki sem hafði beðið í marga klukkutíma eftir hjólreiðaköppunum.

„Það þarf að gera eitthvað. Fólk er bæði að hrækja á okkur og henda í okkur hluti. Þetta er orðið of mikið og ég heimta að það verði tekið á þessu. Ég vona að þeir finni einstaklinginn sem gerði þetta og hann fái refsingu,“ sagði Van der Poel

Van der Poel lenti í því fyrir stuttu að það var baulað á hann alla keppnina. Hann hefur líka lent í því að fá í sig hlandpoka í fjallahjólreiðakeppni. Það er óhætt að segja að hann sé ekki vinsæll með áhugafólki um hjólreiðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×