Formaður dómaranefndar HSÍ: Rauða spjaldið hárrétt ákvörðun Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. apríl 2019 11:30
Formaður dómaranefndar HSÍ segir að dómarar leiks FH og Vals í Olís-deild karla hafi tekið rétta ákvörðun þegar þeir gáfu Daníel Frey Andréssyni, markverði Valsmanna, rauða spjaldið. Atvikið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Valsmenn voru í sókn þegar rúmar sjö mínútur voru til leiksloka en töpuðu boltanum, Daníel fór út að miðlínu, náði boltanum en lenti um leið í samstuði við FH-inginn Jakob Martin Ásgeirsson. Eftir að hafa stuðst við myndbandsupptöku sýndu dómararnir Daníel rauða spjaldið. Reynir Stefánsson, formaður dómaranefndar HSÍ, segir að ákvörðun þeirra Bjarka Bóassonar og Gunnars Óla Gústafssonar hafi verið rétt. „Þetta var hárréttur dómur. Þetta er eins skýrt og þetta verður,“ sagði Reynir í samtali við Vísi og vísaði til reglu 8.5 í lögunum. Þar segir að markvörður sé ábyrgur fyrir að því að tryggja að ekki skapist aðstæður sem geta verið hættulegar heilsu mótherja og að markvörður skuli vera útilokaður ef hann a) nær boltanum, en veldur árekstri við mótherjann með hreyfingum sínum; b) nær ekki boltanum eða stjórn á honum en veldur árekstri við mótherja. Jafnframt segir að ef dómarar eru sannfærðir um að mótherjinn hefði náð boltanum ef markvörðurinn hefði ekki brotið á honum við aðra hvora þessara aðstæðna, eigi að dæma vítakast.Regla 8.5.Reynir segir að markvörðurinn sé í raun réttlaus um leið og hann snertir mótherja utan síns vítateigs. Ef markvörðurinn nái hins vegar boltanum án þess að snerta mótherja eigi leikurinn að halda áfram. Valur var tveimur mörkum yfir, 23-25, þegar Daníel fékk að líta rauða spjaldið. Sami munur var á liðunum þegar uppi var staðið, 26-28. Valur er í 3. sæti Olís-deildarinnar en FH í því fjórða. Daníel er uppalinn FH-ingur en gekk í raðir Vals fyrir tímabilið.
Handbolti Tengdar fréttir Halldór Jóhann: Kveikir ekkert á takka í úrslitakeppninni Þjálfari FH segir að sínir menn hafi farið illa að ráði sínu gegn Val. 31. mars 2019 22:03 Umfjöllun og viðtöl: FH - Valur 26-28 | Valsmenn unnu stórleikinn Valur vann tveggja marka sigur á FH, 26-28, í stórleik umferðarinnar í Olís-deild karla. 31. mars 2019 22:45 Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti „Ég trúi þessu varla“ Sport „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Enski boltinn Fleiri fréttir Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins „Við vorum yfirspenntar“ Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Blomberg-Lippe í góðri stöðu í Evrópudeildinni „Eins besta vörn sem við höfum spilað held ég“ „Frammistaða á alþjóðamælikvarða“ Haukar flugu inn í 8-liða úrslitin Uppgjörið: Haukar - Hazena Kynzvart 27-22 | Frækin framganga Hauka dugði því miður ekki til Uppgjörið: Valur - Slavía Prag 28-21 | Valskonur skrefi nær undanúrslitum Þorsteinn Leó og félagar upp í toppsætið Uppgjör: ÍR-ÍBV 34-30 | ÍR-stelpur ekki vandræðum með Eyjakonur í Skógarselinu Vígja Mörthu í goðsagnarhöllina „Stundum reynir á samskipti okkar feðga“ Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Tveir nýliðar úr Haukum í landsliðinu „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Stór helgi að Hlíðarenda: Stefnan sett á undanúrslit Sjá meira
Halldór Jóhann: Kveikir ekkert á takka í úrslitakeppninni Þjálfari FH segir að sínir menn hafi farið illa að ráði sínu gegn Val. 31. mars 2019 22:03
Umfjöllun og viðtöl: FH - Valur 26-28 | Valsmenn unnu stórleikinn Valur vann tveggja marka sigur á FH, 26-28, í stórleik umferðarinnar í Olís-deild karla. 31. mars 2019 22:45