
Heimsmarkmiðin

Utanríkisráðherra sækir vorfundi Alþjóðabankans
Vorfundir Alþjóðabankans í Washington standa nú yfir. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra verður viðstaddur fundina í höfuðstöðvunum í Washington í dag og á morgun.

Þjóðir í neyð finna mest fyrir samdrætti í framlögum
Opinber framlög til þróunarsamvinnu í heiminum drógust saman um tæplega þrjú prósent á árinu 2018 miðað við árið á undan. Til neyðar- og mannúðaraðstoðar lækkuðu framlögin um átta prósent og til Afríkuríkja um fjögur prósent.

Fátækar konur og jaðarsettar njóta minnstra kyn- og frjósemisréttinda
Verulegur ávinningur hefur náðst í kyn- og frjósemisréttindum frá árinu 1969 þegar Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) var stofnaður. Þrátt fyrir framfarir á þeirri hálfu öld sem liðin er standa hundruð kvenna í dag frammi fyrir hindrunum.

Allt að 120 milljónir til verkefna í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð
Utanríkisráðuneytið ætlar að verja allt að 120 milljónum króna til verkefna á sviði þróunarsamvinnu og mannúðarmála í gegnum félagasamtök. Umsóknarfrestur um verkefnin er til 20. maí.

Hrósar ungu fólki fyrir að skrópa í skólanum
Rúmlega ein milljón hefur slegist í hópinn frá því Thunberg settist á tröppurnar. 15. mars efndu ungmenni til loftslagsmótmæla á 2000 mismunandi stöðum í 125 ríkjum. Hvort heldur sem er í Nýja Sjálandi eða Suður-Kóreu, Indlandi eða Íslandi.

Loftslagsbreytingar ógna lífi og framtíð rúmlega 19 milljóna barna í Bangladess
Flóð, fellibyljir og aðrar náttúruhamfarir sem rakin eru til loftslagsbreytinga ógna nú lífi og framtíð fleiri en 19 milljóna barna í Bangladess. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF, A Gathering Storm, sem kom út í dag.

Brugðist við útbreiðslu kóleru í Mósambík
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), í samstarfi við Alþjóða heilbrigðisstofnunina (WHO), hóf umfangsmikið bólusetningarátak gegn kóleru í Mósambík á dögunum. Bólusetningarátakið á að ná til 900 þúsund íbúa.

Eitt af hverjum 20 börnum á Filippseyjum yfirgefið, munaðarlaust eða vanrækt
Fjölskyldueflingarverkefni SOS Barnaþorpanna á Filippseyjum hófst með formlegum hætti í byrjun mánaðarins. SOS á Íslandi fjármagnar verkefnið með stuðningi utanríkisráðuneytisins sem lagði til rúmar 45 milljónir króna.

Alvarlegur matarskortur meðal 113 milljóna jarðarbúa
Alvarlegur matarskortur hrjáði um það bil 113 milljónir íbúa í 53 ríkjum á síðasta ári, samkvæmt nýrri sameiginlegri skýrslu Sameinuðu þjóðanna og Evrópusambandsins, sem birt var í gær.

„Ekki koma með ræðu, komið með áætlun“
Efnt verður til leiðtogafundar um loftslagsmál á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í haust, nánar tiltekið 23. september. António Guterres aðalframkvæmdastjóri SÞ hvetur þjóðarleiðtoga ekki aðeins til þess að sækja fundinn heldur til að kynna raunhæfar aðgerðir.

UNICEF biðlar til almennings um stuðning við neyðaraðgerðir
Að mati Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) eiga rúmlega 1,5 milljónir barna um sárt að binda á hamfarasvæðunum í sunnanverðri Afríku eftir að fellibylurinn Idai reið yfir þann 15. mars. Eyðileggingin er gífurleg.

Rúmlega 25 milljónir til neyðaraðstoðar í Mósambík og Malaví
Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að fela Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) að ráðstafa 200 þúsund Bandaríkjadölum – um 25 milljónum íslenskra króna – til björgunarstarfa á hamfarasvæðunum í Mósambík og Malaví.

Nýr nemendahópur við Landgræðsluskólann
Nýr hópur nema hefur hafið nám við Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Skólinn er hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands og hýstur af Landbúnaðarháskóla Íslands í samvinnu við Landgræðsluna.

Tæplega 66% þjóðarinnar þekkir eða hefur heyrt um heimsmarkmiðin
Alls segjast 65,6 prósent landsmanna annað hvort þekkja eða hafa heyrt um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Þannig segjast 15,1 prósent þekkja til heimsmarkmiðanna en 50,6 prósent segjast hafa heyrt um þau.

Alþjóðlegt netnámskeið um þróun viðskiptalíkans fyrir endurheimt landgæða
Hvernig er hægt að skapa atvinnu- og viðskiptatækifæri með því að vinna að landbótum og endurheimt vistkerfa? Svarið við þeirri spurningu er að finna á nýju netnámskeiði sem Landgræðsluskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna hefur þróað ásamt samstarfsaðilum í ENABLE verkefinu.

Fjögur ár frá upphafi stríðsins í Jemen og 10 milljónir á barmi hungursneyðar
Fjögur ár eru liðin frá því stríð braust út í Jemen. Síðustu tólf mánuði hafa að minnsta kosti 226 jemensk börn látið lífið og 217 slasast í loftárásum Sádi-Araba og bandamanna þeirra.

Rúanda á heimsmetið í þátttöku kvenna á þingi
Konur eru 67,5% þingmanna í Rúanda. Hvergi í heiminum skipa konur jafn mörg þingsæti og í Rúanda. Síðastliðið haust setti Rúanda nýtt heimsmet í þátttöku kvenna á þingi þegar nýtt landsþing tók til starfa.

Neyðarsöfnun vegna ofsaflóða í sunnanverðri Afríku
Fórnarlömb ofsaflóða í sunnanverðri Afríku telja 5,3 milljónir íbúa. Í morgun var staðfest að 705 væru látnir. Starfsfólk og sjálfboðaliðar Rauða krossins vinna nótt sem nýtan dag við það að bjarga mannslífum.

Stjórnvöld skrifa undir samkomulag við FAO
Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) og Ísland ætla að vinna náið saman að verkefnum sem stuðla að langtímavernd vistkerfa sjávar. Samstarfið felur í sér meðal annars fjárhagslegan og tæknilegan stuðning af Íslands hálfu.

Íslensk þróunarsamvinna: Vatnsból fyrir hálfa milljón íbúa
Íslensk stjórnvöld hafa í alþjóðlegri þróunarsamvinnu komið upp vatnsbólum fyrir hálfa milljón íbúa í Afríkuríkjum. "Vatn er undirstaða alls lífs og ekkert bætir líf fátæks fólks meira en greiður aðgangur að hreinu vatni," segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

„Konur þurfa að fá A plús í prófinu til að fá einkunnina C mínus“
Kristín Ástgeirsdóttir sagði frá starfi og árangri Kvennalistans á Íslandi á sérstökum hliðarviðburði á kvennanefndarfundi Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku. Viðburðurinn var haldinn á vegum Íslandsdeildar Norræns nets kvenna í friðarumleitunum og fór fram fyrir fullu húsi í New York.

Sýrlenskur flóttadrengur á stjörnuhimni Cannes
Æska Zain Al Rafeaa sem flóttadrengs í Beirút var honum innblástur í aðalhlutverki verðlaunamyndarinnar Capernaum sem skaut honum upp á stjörnuhimininn í Cannes og jafnvel lengra. Þannig hefst frásögn á vef Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem segir frá ferðalagi ungs flóttadrengs frá Sýrlandi frá götum Beirút á rauða dregilinn í Cannes.

Neyðarsjóður SÞ leggur fram fjármagn til hamfarasvæðanna í sunnanverðri Afríku
Óttast er um afdrif þúsunda íbúa þriggja ríkja í sunnanverði Afríku eftir hamfarirnar af völdum fellibylsins Idai í lok síðustu viku. Mark Lowcock mannúðarstjóri Sameinuðu þjóðanna tilkynnti í morgun að Neyðarsjóður SÞ (CERF) myndi leggja fram 20 milljónir bandarískra dala til hjálparstarfs á neyðarsvæðunum.

Fátækir greiða hærra verð fyrir vatn en ríkir
Rúmlega tveir milljarðar jarðarbúa hafa ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni. Tvöfalt fleiri, 4,3 milljarðar, hafa ekki aðgang að viðunandi salernis- og hreinlætisaðstöðu. Árleg stöðuskýrsla um vatnsmálin í veröldinni frá Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) var birt í dag.

Mörg barnanna þekkja ekkert annað en stríð
Alþjóðasamfélagið verður að draga til ábyrgðar alla þá sem hafa framið gróft ofbeldi gegn börnum í Sýrlandi í þessu grimmilega stríði, segir Helle Thorning-Schmidt, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children.

Næstu tíu ár lykilár í örlögum komandi kynslóða
Ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna afhenti ríkisstjórninni aðgerðaráætlun á fundi sem haldinn var á föstudag. Í aðgerðaráætluninni eru fimm verkefni sem unga fólkið telur mikilvæg við innleiðingu stjórnvalda á heimsmarkmiðunum.

Rúmlega tvö hundruð milljóna króna framlag Íslands vegna átakanna í Sýrlandi
Fulltrúi Íslands á Sýrlandsráðstefnunni, sem lauk í gær, ítrekaði fyrirheit stjórnvalda frá síðasta ári um 225 milljóna króna framlag til mannúðarstarfa á þessu ári, í tengslum við átökin í Sýrlandi og 250 milljóna króna framlag á næsta ári. Rúmlega fimm og hálf milljón Sýrlendinga hafa neyðst til að yfirgefa heimili sín og flýja til nágrannaríkja á þeim átta árum sem átökin hafa staðið yfir.

Reyna að afstýra ofbeldi gegn kvenframbjóðendum
Utanríkisráðuneytið hefur gegnum sendiráðið í Lilongwe í Malaví ákveðið að veita tæplega fimm milljóna króna viðbótarstuðning við 50:50 herferðina í Mangochi héraði, samstarfshéraði Íslendinga í þróunarsamvinnu. Markmiðið er að afstýra ofbeldi gegn kvenframbjóðendum í kosningabaráttunni fyrir þing- og sveitarstjórnakosningar í vor.

Yfir 80% framlaga til þróunarsamvinnu styðja jafnrétti kynjanna
Ísland er í þriðja sæti á nýbirtum lista DAC, þróunarsamvinnunefndar OECD, um hlutfall þróunarfjár sem rennur til jafnréttismála. Tölurnar eru frá árunum 2016 og 2017 og samkvæmt greiningu DAC nýttust rúmlega 80 prósent íslenskra framlaga í baráttuna fyrir kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna.

Nemendur frá fimmtán löndum útskrifast frá Sjávarútvegsskólanum
Í gær útskrifuðust 24 nemendur frá Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, þar af níu konur. Nemendurnir koma frá 15 löndum í Eyjaálfu, Asíu, Afríku, Mið-Ameríku og Karíbahafi.