Menning

Jón Gnarr telur Saga film brjóta á rétti sínum vegna endurgerðar Næturvaktarinnar
Þetta er bara svo ógeðslega glatað, segir Jón Gnarr.

Samfélagsspegill og spé
Kópur, Mjási, Birna & ég er titill bókar eftir Pál Benediktsson, fyrrverandi fréttamann. Hún er yndislestur með smá broddi. Hundurinn Kópur er með innlegg.

Vaka til heiðurs Jakobínu
Jakobínuvaka verður haldin í Iðnó í dag. Þar verður þess minnst í tali og tónum að skáldkonan Jakobína Sigurðardóttir (1918–1994) hefði orðið hundrað ára á þessu sumri.

Sumar senur tóku á
Elín Sif Halldórsdóttir sýnir afbragðstakta í kvikmyndinni Lof mér að falla. Hún stefnir að frekari frama í tónlist en ekki á hvíta tjaldinu.

Hreyfðir fletir Sigurðar Árna
Listamaðurinn sýnir ný verk í Listasafni Akureyrar. Málverk og laserskorin álverk. Þrjár aðrar sýningar fram undan.

Borgarstjórakosning 1920
Íslensk stjórnmálasaga hefur að geyma ótal dæmi um grimmúðlegar kosningabaráttur. Þótt í seinni tíð sé oft kvartað yfir illmælgi og dómhörku á samfélagsmiðlum í aðdraganda kosninga, má telja það barnaleik samanborið við margt af því sem tíðkaðist í stjórnmálaátökum tuttugustu aldar.

Stærra og veglegra Listasafn
Laugardaginn 25. ágúst verða dyr Listasafnsins á Akureyri opnaðar að nýju eftir stórfelldar endurbætur. Sýningarsalir voru áður fimm en eru nú tólf. Að auki verður nýtt kaffihús opnað á safninu og einnig safnbúð.

Heiðraður fyrir framlag sitt til menningarmála
Leikskáldið og tónlistarmaðurinn Smári Guðmundsson hlaut í gær viðurkenningu Ferða-, safna- og menningaráðs Sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis fyrir framlag sitt til menningarmála.

Systkinatónleikar í fjórða sinn
Söngelsku systkinin Kristín og Guðfinnur Sveinsbörn syngja saman á sínum fjórðu Systkinatónleikum í kvöld.

Valdakonur vega móti karlaveldi fortíðar
Útskorin dýr, heklað blómskrúð og meitlaðir og málaðir alþingismenn fortíðar og nútíðar er meðal þess sem líta má í Listasafni Árnesinga. Þar voru tvær sýningar opnaðar um síðustu helgi. Önnur hverfist um leir.

Heiðursgestur RIFF stundaði Studio 54
Litháíski leikstjórinn Jonas Mekas verður heiðursgestur RIFF í ár. Mekas er 95 ára gamall og talinn guðfaðir framúrstefnukvikmynda. Þemað á hátíðinni í ár eru Eystrasaltslöndin. Miðasala á hátíðina hefst formlega í byrjun septemb.

Ætlum að spila okkar uppáhalds standarda
Sölvi Kolbeinsson saxófónleikari hefur stofnað kvartett sem treður upp í Norræna húsinu annað kvöld og gerir lög eftir Duke Ellington, Thelonious Monk og Miles Davis að sínum, auk laga úr bandarískum söngleikjum.

Mesti listaverkaþjófnaður allra tíma fyrir 107 árum
Ítalinn Vincenzo Peruggia gekk inn í Louvre-safnið á þessum degi árið 1911 og fjarlægði í rólegheitum myndina af Mónu Lísu af veggnum.

Hér eru ekkert nema andskotans snillingar
Skálmöld og Sinfóníuhljómsveit Íslands, ásamt Karlakór Reykjavíkur, kammerkórnum Hymnodia og Barnakór Kársnesskóla, blása til veislu næstu daga í Hörpu sem rúmlega 7.200 manns munu njóta.

New Music For Strings kemur til Reykjavíkur
Tónlistarhátíðin New Music For Strings fer fram í Reykjavík nú í vikunni. Auk þrennra tónleika verða haldnir fyrirlestrar og vinnustofur.

Vekja athygli með söng
Fólk sem bjó í Laugarnesi sem börn tekur á móti hlaupurum Reykjavíkurmaraþonsins á Laugarneshólnum í dag klukkan tólf með fánum skrýddum Massey Ferguson og söng.

Menningarmógúlar mæla með þessum viðburðum á Menningarnótt
Fréttablaðið fékk fjóra menningarmógúla til þess að velja sér þrjá skemmtilega viðburði á Menningarnótt sem höfða til þeirra. Þau Arnar Eggert, Jóna, Lóa og Matthías Tryggvi mæla með nokkrum góðum.

Eins og heimkoma eftir öll þessi ár
Kristján Jóhannsson syngur á Berjadögum á Ólafsfirði. Heldur sig aðallega við íslensk lög. Sér um námskeið hjá amerísku kompaníi. Geisladiskar rokseljast.

Bókmenntafólk frá Svíþjóð komið í heimsókn
Fjölmennur samráðsfundur um bókmenntir og bókmenntahátíðir verður haldinn í Gunnarshúsi við Dyngjuveg í kvöld. Davíð Stefánsson skáld hefur skipulagt fundinn.

Jón Gnarr er rödd Oks í nýrri heimildarmynd
Heimildarmynd um fjallið Ok, sem var jökull til ársins 2014, verður frumsýnd í Reykjavík á föstudaginn. Kvikmyndagerðarmennirnir eru tveir bandarískir mannfræðiprófessorar sem hafa rannsakað hlýnun jarðar og bráðnun íss.

Landnámsbær telst fundinn
Í Sandvík á Ströndum eru merki um landnámsbæ aog sögurölt verður um svæðið á föstudag. Á laugardag verður svo fjölbreytt málþing í Hveravík um fornleifar Stranda.

Borgarstjóri lærði að ganga þökk sé lúðrasveitum
Menningarnótt 2018 verður haldin 18. ágúst næstkomandi, sem er afmælisdagur Reykjavíkurborgar.

Sækir innblástur í menningu og popplist
Oddur Eysteinn Friðriksson sýnir klippimyndir í Galleríi Fold. Öll verkin eru hringlaga.

Tilvistarleg spennusaga
Nýjasta skáldsaga Guðmundar Steingrímssonar heitir Heimsendir og er samtímaævintýri. Er að skrifa bók þar sem stjórnmálamaður leysir morðgátu.

Hugurinn fór á flug í íslensku landslagi
Enski rithöfundurinn Philip Reeve stendur á barmi heimsfrægðar þar sem stórmynd byggð á Mortal Engines er væntanleg. Hera Hilmarsdóttir fer með eitt aðalhlutverkanna og Reeve lýsir henni sem "frábærri“ og "mjög einbeittri“ leikkonu.

Beina ljósi að konum í mannkynssögunni
Bréf Halldóru Guðbrandsdóttur – 1625 – tvær konur – er yfirskrift listviðburðar í Hóladómkirkju nú á sunnudaginn, 12. ágúst. Þar tvinnast saman barokk, raftónlist, texti og leikræn tjáning. Frumsýningin er liður í Hólahátíð

Erum með mæðgnaspuna
Mæðgurnar Jóní Jónsdóttir og Sigurlína Jóhannsdóttir heiðra sameiginlegar minningar og formæður á sýningu sem opnuð verður á morgun í Listasal Mosfellsbæjar.

Eins og í góðu hjónabandi
Guitar Islancio fagnar 20 ára starfsafmæli. Tónleikar verða víða um land. Tríóið átti að verða saumaklúbbur.

Ég er að reyna á þanþol myrkursins
Á sýningu sinni í Ramskram galleríi sýnir Bjargey Ólafsdóttir alvöru ljósmyndir sem þó liggja á mörkum skáldskapar og veruleika. Sýningin nefnist Vasaspegill.

Listahjónin Baldur og Patty standa fyrir sýningunni Skemmtilegs
Listahjónin Patty Spyrakos og Baldur Helgason standa í sameiningu að sýningunni Skemmtilegs en þar getur á að líta fjölbreytt úrval verka, bæði olíumálverk og teikningar Baldurs og keramikskúlptúra Pattyar.