
Tíska og hönnun

Svona valdi Cardi B kjólinn fyrir Grammy-verðlaunin
Tónlistarkonan Cardi B varð fyrsta konan til að hljóta Grammy-verðlaunin fyrir bestu rappplötuna á sunnudagskvöldið.

Forsetinn valdi Urban Nomad hillur
Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLKs, segir það ákveðna viðurkenningu að forseti Íslands valdi að gefa verðlaunahöfum Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands Urban Nomad hillur.

Drapplitað í sumar
Einn af þemalitum sumarsins verður drapplitaður. Liturinn var vinsæll á vor- og sumarsýningum stóru tískuhúsanna og er nú einnig farinn að sjást á götum stórborganna.

Blár og svartur fyrirtaks felulitir
Björk Níelsdóttir, söngkona og trompetleikari, er búsett í Amsterdam þar sem hún syngur og leikur óperu og djass jöfnum höndum. Hún verslar mest við íslenska hönnuði og í vintage-búðum í Amsterdam en þar finnast ýmsir fjársjóðir.

Skór sem opna augun
Ást kvenna á skóm er víðkunn. Nú er hægt að láta sig dreyma um skvísulega skó í ævintýralegum útfærslum fyrir framtíðina.

Fyrsta vegan tískuvikan
Tískuvikurnar í New York, London, Mílanó og París eru heimsþekktar. Í ár bætist skemmtileg nýjung í hóp tískuviknanna þegar fyrsta vegan tískuvikan verður haldin í Los Angels í febrúar.

Hildur Yeoman í Hong Kong
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman dvelur nú í Asíu þar sem hún tekur þátt í alþjóðlegri hátíð. Hún segir framleiðsluna sem hún hafi skoðað í Kína vera langt frá þeim staðalímyndum og umhverfissóðaskap sem haldið hafi verið á lofti.

Á sér ólíkar tískufyrirmyndir
Arnar Leó segir tískuáhuga sinn þróast daglega þar sem hann sé alltaf að sjá eitthvað nýtt. Utan tískunnar hefur hann áhuga á tónlist, góðum mat og öllu því sem tengist skapandi umhverfi.

Upp á hár á nýju ári
Veistu upp á hár hvernig þú ætlar að hafa hárið á nýju ári? Línurnar hafa verið lagðar og það er klippt og skorið hvernig hárið verður 2019.

Þetta stóð upp úr í tískuheiminum 2018
Það var margt sem gerðist í tískuheiminum á árinu. Miklar breytingar hafa átt sér stað og háværustu raddirnar að þessu sinni töluðu um kynferðisofbeldi, alvöru loðfeld, hertogaynjuna Meghan og mikilvægi þess að tískuhús sýni fjöl

Gerviloð tekur við af því ekta
Undanfarin ár hefur umræða um alvöru loðfeldi verið mjög áberandi í tískuheiminum. Fleiri og fleiri fatamerki tilkynna að þau ætli að skipta yfir í gervifeld og má búast við að það muni bara bætast í hópinn. Stór tískuhús á bor

Þefar uppi notaðan fatnað
Einar Indra kýs að ganga í notuðum fötum enda finnst honum fólk kaupa yfirhöfuð allt of mikið af drasli. Uppáhaldsflíkin hans er peysa sem hann keypti í Lissabon fyrr á þessu ári.

Nú er tími fyrir rykfrakkann
Gamli góði rykfrakkinn, sem margir eiga inni í skáp, er fullkominn í októbermánuði. Þó að klassíski brúni rykfrakkinn sé alltaf fallegur, þá kemur hann einnig vel út í dökkgrænu og gráu.

Vel varin fyrir veturinn
Verslunin Akkúrat er þekkt fyrir sérstaka uppröðun og framsetningu sem hefur vakið mikla lukku. Þar er boðið upp á rjómann af sköpun eftir íslenska hönnuði og listamenn.

Gæði, líf og sál
Hjónin og hönnunartvíeykið Karitas og Hafsteinn hafa átt annasamt ár og hafa nýlokið við tvö stór og krefjandi verkefni á árinu.

Supreme frumsýnir vetrarlínu
Fatamerkið Supreme, sem er gríðarlega vinsælt meðal íslenskra ungmenna, frumsýndi nýja vetrarlínu í dag.

North West í hátískuherferð ásamt móður sinni og ömmu
Hin fimm ára North West, dóttir athafnakonunnar Kim Kardashian og tónlistarmannsins Kanye West, leikur í auglýsingaherferð fyrir ítalska tískuhúsið Fendi.

Strigaskór við jakkaföt er trend fyrir bæði kynin
Á nýafstaðinni herratískuviku í Parísarborg mátti greina eitt gott trend sem bæði kynin hafa fallið fyrir þetta sumarið. Það er að vera í strigaskóm við jakkaföt.

Einn þekktasti hönnuður samtímans með sýningu í Reykjavík
Tom Dixon heldur sýninguna Around the World í tíu borgum víðsvegar um heiminn og var Reykjavík valin sem ein þeirra.

Með flóamarkaðsgeðsýki á háu stigi
Á sínum yngri árum var tónlistarmaðurinn Lord Pusswhip pönkari og skreytti sig með keðjum frá BYKO. Í dag finnst honum flóamarkaðsgeðsýki lýsa best fatastíl sínum.

Leðurjakkinn bestu kaupin
Guðný Ásberg er mikill fagurkeri og fylgist vel með nýjum tískustraumum. Hún segist eiga of mikið af skóm en pels sem hún keypti nýlega á markaði í Los Angeles er í mestu uppáhaldi.

Illums beinir sjónum að íslenskri hönnun næstu daga
Í tilefni af aldarafmæli fullveldisins standa Hönnunarmiðstöð Íslands og sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn fyrir tveimur sýningum á íslenskri hönnun á hönnunarviðburðinum 3daysofdesign

Fatalína innblásin af landsliðinu í fótbolta
Íslenska útivistafatafyrirtækið 66°Norður hefur gefið út fatalínu í tilefni þess að íslenska karlalandsliðið keppir á HM í sumar.

Lilja stefnir á að vinna Nordic Face Awards í ár
Netkosning mun ráða því hvaða fimm myndbandsbloggarar komast í úrslitin.

Guðdómlegir líkamar, geislabaugar og páfinn á tískuviðburði ársins
Met-galakvöldið er einn af hápunktum vestræns tískuheims og keppast stórstjörnurnar sem þangað mæta við að sýna fram á framúrstefnulegt tívkuvit sitt – og kynþokka um leið.

Fötin hans Ara vísa í eldgos og ástríðueldinn
Fatahönnuðurinn Ýr Þrastardóttir gerir fötin sem íslenski Eurovision hópurinn klæðist í Lissabon. Jakkinn hans Ara hefur þegar vakið mikla athygli en þar eru íslenskar rúnir enda segir hönnuðurinn að Ari sé boðberi jákvæðni.

Ný verslun Geysis opnuð með pompi og prakt
Á síðustu tveimur vikum hafa umfangsmiklar framkvæmdir átt sér stað í verslun Geysis á Skólavörðustíg 16.

Sam Smith í úlpu frá 66°Norður á Instagram
Breski tónlistarmaðurinn Sam Smith deildi mynd af sér íklæddum úlpu frá íslenska fyrirtækinu 66° norður í dag.

Þykir enn vænt um hvert einasta skópar
Sýningin Undraveröld Kron by Kronkron verður opnuð á sunnudaginn í Hönnunarsafni Íslands. Þar verða til sýnis þeir fjölmörgu skór sem Hugrún Árnadóttir og Magni Þorsteinsson hafa hannað á 10 árum. Hugrún segir magnað að líta til baka í aðdraganda sýningarinnar.

Endurtekning er þemað í níundu útgáfu af Mænu
Mæna er tímarit um hönnun sem kemur nú út í níunda sinn. Tímaritið er gefið út af hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands og hannað af þriðja árs nemum í grafískri hönnun. Í dag verður haldið upp á útgáfuna í Hafnarhúsinu í Reykjavík.