

Á miðnætti kemur út nýtt lag með rapparanum, grínistanum og rithöfundinum Dóra DNA. Dóri bregður sér þó í gervi kjúklingaofurstans Colonel Sanders í laginu.
Skipuleggjendur Eurovision tilkynntu rétt í þessu að Måneskin munu koma fram á keppninni í ár. Hljómsveitin Måneskin sigraði Eurovision í Rotterdam á síðasta ári.
Tónlistarkonurnar Zoë Vala og Gunnur Arndís voru að senda frá sér lagið Baby The Ocean, sem er seiðandi popp sumarsmellur með jazz innblæstri. Lagið fjallar um að leyfa sér að vera berskjaldaður, treysta og þar með upplifa ástina og allt það fallega sem hún getur haft í för með sér.
Systur fluttu lagið Með hækkandi sól saman ásamt Lay Low lagahöfundi lagsins í Eurovision House Party. Lay Low, Elín, Sigga og Beta eru allar staddar í Tórínó á Ítalíu þar sem Systur keppa á fyrra undankvöldi Eurovision þriðjudaginn 10. maí.
Meðlimur í portúgalska Eurovision hópnum greindist með Covid-19 í skimun í PalaOlimpico tónleikahöllinni í Torino.
Árný Fjóla Ásmundsdóttir meðlimur í Gagnamagninu verður stigakynnir Íslands í Eurovision keppninni í ár.
Hljómsveitin BSÍ var að senda frá sér tveggja laga EP plötu sem ber nafnið „Relax, blabla“. Meðlimir sveitarinnar, bestu vinirnir Sigurlaug Thorarensen og Julius Pollux, reyna að taka sjálf sig ekki of hátíðlega og eru óhrædd við að gera og vera alveg nákvæmlega eins og þeim sýnist.
Systur, framlag Íslands til Eurovision í ár, tóku sína fyrstu æfingu á sviðinu í dag. Íslenski hópurinn flaug út aðfaranótt laugardags með systkinin Eyþór, Elínu, Sigríði og Elísabetu í fararbroddi.
Tónlistarmaðurinn Farruko trónir á toppi íslenska listans þessa vikuna með lagið Pepas. Lagið kom út síðastliðið sumar og er skothelldur danssmellur sem flæðir vel og býr yfir kröftugu viðlagi sem er næstum ómögulegt að dansa ekki við.
Tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar var að senda frá sér lagið Brenndur, sem fylgir á eftir hinu gífurlega vinsæla ástarlagi Ástin heldur vöku. Júlí frumflutti lagið í gær í beinni hjá Gústa B í útvarpsþættinum Veisla á FM957. Blaðamaður tók púlsinn á tónlistarmanninum og fékk að heyra söguna á bak við lagið.
Telja má líklegt að einhverjir hristi hausinn um hádegisbil á morgun þegar þeir átta sig á því að miðasölu á Bræðsluna 2022 er lokið. 900 miðar eru í boði á hátíðina og í ljósi reynslunnar má reikna með að miðarnir rjúki út á augabragði. Þeir sem sofa á verðinum gætu því misst af miðum enda uppsöfnuð þrá landsmanna og ferðamanna eftir tónleikastemmningu eftir faraldurinn.
Einn stærsti tónlistarmaður Bretlands, rapparinn Skepta, er væntanlegur til landsins til að halda sínu fyrstu sólótóleika á Íslandi. Hann er ein stærsta stjarna rappheimsins sem hefur haldið tónleika á Íslandi.
Í gær var tilkynnt að Kanada fylgir í fótspor Bandaríkjanna og byrjar með eigin Eurovision keppni. Keppendur frá öllum hlutum Kanada munu keppa með frumsömdum lögum í beinni útsendingu í þáttunum Eurovision Canada.
Þríeykið Vök var að senda frá sér nýtt lag sem ber nafnið „Miss Confidence“ og fylgir í kjölfar „Lose Control“ sem gefið var út í lok febrúar.
Kanadíski söngvarinn The Weeknd skipar fyrsta sæti íslenska listans á FM957 þessa vikuna með lagið sitt Sacrifice. Friðrik Dór dettur niður um eitt sæti eftir margar vikur á toppnum með lagið Bleikur og Blár.
Stefanía Pálsdóttir frumsýnir í dag sitt fyrsta tónlistarmyndband, við lagið Easy. Lagið er það fyrsta af annarri sólóplötu listakonunnar sem væntanleg er í sumar.
Nýja íslenska rokk hljómsveitin Tragically Unknown sendi frá sér sitt fyrsta lag í dag sem ber nafnið Villain Origin Story. Hljómsveitin er skipuð þeim Oddi Mar Árnasyni gítarleikara, Helenu Hafsteinsdóttur söngkonu, textasmið og lagahöfundi, og Þórgný Einari Albertssyni bassaleikara og lagahöfundi. Blaðamaður hafði samband við þau og fékk að heyra nánar frá nýja laginu.
Hljómsveitin Of Monsters and Men hefur gefið út lagið This Happiness. Lagið er hluti af EP plötunni TÍU sem er gefin út samhliða samnefndri heimildarmynd sem var tekin upp hér á landi á síðasta ári.
Tónlistarmaðurinn Hugo skipar þriðja sæti íslenska listans á FM þessa vikuna með lagið Farinn. Hugo var valinn Nýliði Ársins á Hlustendaverðlaununum í ár og hefur vakið mikla athygli fyrir grímuna sem hann klæðist hvert skipti sem hann kemur fram. Enginn virðist vita hver raunverulegi maðurinn sé á bak við Hugo. Blaðamaður hafði samband við Hugo og tók púlsinn á honum.
Hljómsveitin LÓN sendi frá sér lagið Drifting fyrr í dag. Fyrsta plata hljómsveitarinnar er væntanleg 15. maí næstkomandi og ber nafnið Thankfully Distracted.
Eydís Helena Evensen er skapandi listakona með meiru sem ber ýmsa hatta á borð við tónskáld og píanóleikara. Hún sendi frá sér EP plötuna Frost síðastliðna helgi en þar er að finna fjögur tónverk eftir Eydísi. Samhliða plötunni sendu Eydís og maki hennar Einar Egils frá sér myndverk við lagið Dawn is near. Blaðamaður hafði samband við Eydísi og fékk að skyggnast inn í hennar listræna hugarheim.
Tónskáldið og píanóleikarinn Eydís Evensen gaf út plötuna FROST um helgina. Samhliða útgáfunni kom út undurfagurt myndverk, sem Eydís gerði ásamt Einari Egils.
Hljómsveitin Inspector Spacetime sendi frá sér lagið Kenndu mér síðastliðinn föstudag og er þetta tíunda lagið sem hljómsveitin sendir frá sér.
Nú styttist óðfluga í Eurovision og íslenski listinn fylgist spenntur með á hliðarlínunni. Framlag okkar Íslendinga, lagið Með hækkandi sól, hækkar sig um tólf sæti á milli vikna og situr nú í sjötta sæti íslenska listans.
Pönksveitin The Boob Sweat Gang sendi frá sér sitt fyrsta lag, „Alpha Mom“, í dag ásamt tónlistarmyndbandi þar sem hliðar sjálf hljómsveitarmeðlima fá að skína. Blaðamaður hafði samband við hljómsveitina, en allir meðlimir sveitarinnar eru sviðslistakonur.
Tónlistarmaðurinn John B kemur fram á Húrra miðvikudaginn 13. apríl og mun þeyta skífum á vegum plötusnúðahópsins Hausa sem fagna tíu ára starfsafmæli á þessu ári.
Tónlistarmaðurinn Atli Arnarsson gefur út sitt fyrsta tónlistarmyndband í dag við nýtt lag af komandi plötu hans Stígandi. Lagið nefnist Siglandi.
Hljómsveitin Umbra hefur sett tónlist við eldheitt ástarljóð úr Víglundarsögu, Stóðum tvö í túni, sem er ef til vill fyrsta ástarsaga okkar Íslendinga.
Íslenski poppdúettinn heró gefur í dag út lagið Sorry (Lofa Veit Betur). Lífið á Vísi frumsýnir hér tónlistarmyndbandið við lagið.
Hljómsveitin Hipsumhaps sendi frá sér glænýjan smell fyrr í dag. Lagið ber nafnið Hringar og er grípandi taktfast danslag sem býr yfir angistar víbrum. Blaðamaður hafði samband við Fannar Inga söngvara Hipsumhaps og fékk nánari innsýn í gerð lagsins.